Óður og Flexa halda afmæli

[cs_text id=”” class=”” style=”” text_align=”none”]
Barnadansverkið Óður og Flexa hefur nú verið á fjölum Borgarleikhússins í rúmar tvær vikur við mjög góða aðsókn. Reyndar svo góða að nokkrar aukasýningar hafa verið settar inn. Þessi góða aðsókn kemur undirritaðri ekki á óvart því sýningin er kröftug, skrautleg og skemmtileg og ýmsum brellum leikhússins beitt til að skemmta áhorfendum.

Hugras_Odur_flexa_dansa

Áhorfendur kynntust Óði og Flexu og einkennilega sófanum þeirra fyrst árið 2014 á sviðslistahátíð ASSITEJ í verki sem bar nafnið Óður og Flexa reyna að fljúga. Þá voru þau bara tvö á ferð, tveir kraftmiklir krakkar sem kunnu að nýta ímyndunaraflið til að finna upp á skemmtilegum leikjum þar sem auðveldlega var hægt að verða eitthvað allt annað eins og til dæmis ofurhetja. Sú sýning hafði yfir sér hversdagslegan blæ. Þar voru fyrst og fremst tvö börn að leik sem áhorfendur fengu að fylgjast með, kynnast persónum þeirra og sambandinu þeirra á milli.

Í Óður og Flexa halda afmæli bætist þeim vinunum liðsstyrkur því fyrir utan sófann góða er kominn ansi hreint skemmtilegur sögumaður og prumpuslím sem tekur á sig einkennilegar myndir. Hér eru einlægnin og hversdagsleikinn sem einkenndi fyrra verkið að nokkru horfin en í staðinn kominn glaumur og glys ævintýrsins. Herra Glæsibuxur sem kemur beint úr heimi kabarettanna leiðir söguna og Rekviður og Freta, skrímslin sem Óður og Flexa búa til úr prumpuslíminu, lifna við eins og í sönnum ævintýrum. Óður og Flexa hverfa nú nokkuð í skuggann af öllu því öðru sem fram fer á sviðinu en eru samt sá rauði þráður sem heldur verkinu saman. Samspil þeirra við prumpuskrímslin kemur skemmtilega út. Í því sambandi er ánægjulegt að sjá að höfundar og leikstjóri leyfðu sér að skapa senur þar sem dansinn sem abstrakt form fékk að njóta sín án þess að hann yrði að hafa aðra merkingu en hreyfingarnar í sjálfum sér.

Hugras_Odur_flexa_tekvidur

Uppfærslan er samansett af allskyns leikhúsbrellum og dettur manni helst í hug að höfundar, leikstjóri og dansarar hafi dottið ofan í verkfærakistu leikhússins og ekki getað hætt fyrr en þau höfðu prófað öll trixin í bókinni.
Uppfærslan er samansett af allskyns leikhúsbrellum og dettur manni helst í hug að höfundar, leikstjóri og dansarar hafi dottið ofan í verkfærakistu leikhússins og ekki getað hætt fyrr en þau höfðu prófað öll trixin í bókinni. Þessi leikgleði og ofgnótt gaf verkinu skemmtilega vídd því vangaveltur um hvernig brellurnar væru gerðar urðu þáttur af upplifun sumra áhorfenda ásamt því að gera listræna útfærslu áhugaverða. Það hefði samt ekki þurft svona margar brellur til að sýningin stæði mjög vel fyrir sínu. Til dæmis bætti senan með hönskunum og töskunni í seinni hluta verksins ekki neinu við verkið sem slíkt þó að hún væri bæði sniðug og skemmtileg.

Það fyrsta sem manni dettur í hug þegar maður horfir á verkið er að aðstandendur sýningarinnar hafi greinilega skemmt sér konunglega við gerð þess. Húmorinn var alls staðar og dansararnir sem áhorfendur fá venjulega að sjá í dramatískari dansverkum nutu sín greinilega í leiknum og gríninu. Cameron var t.d. óborganlegur í hlutverki Herra Glæsibuxna og var eins og hans innri dansari fengi loksins að njóta sín. Ásgeir Helgi Magnússon og Ellen Margrét Bæhrenz voru líka ótrúlega í hlutverki prumpuskrímslanna. Það getur ekki hver sem er sett sig í hlutverk liðamótalausra slímskrímsla. Til þess þurfa þeir hinir sömu að vera verulega góðir dansarar auk þess að geta leikið sér með húmorinn því prumpuskrímslin voru jú fyndin eins og allt annað í sýningunni.

Hugras_Odur_flexa1

Þó framsetningin í verkinu næði mjög vel til áhorfenda – það var mikið hlegið, spáð og spekúlerað – vantaði nokkuð upp á söguna og samhengið í verkinu. Brellurnar báru frásögnina ofurliði sem gerði það að verkum að einlægnin og dýptin sem við sáum í samskiptum vinanna í fyrri verkinu var lítt með í för. Þannig hvarf hversdagsleikinni að mestu í skugga ævintýrsins í staðinn fyrir að mynda ró og andstæðu við það. Þá hefði mátt nýta sum atriðanna betur. Þegar pakkinn er til dæmis á sviðinu í upphafi ásamt Óði og Flexu gátu þau leikið sér ótrúlega lengi í kringum hann án þess að hann hefði nokkurt hlutverk. Það skapaðist engin spenna af tilvist hans fyrr en eftir langa mæðu. Það sama má segja um prumpið í prumpuskrímslunum. Prumpubrandarar eru og verða einir þeirra vinsælli í bransanum þegar um börn er að ræða eins og sást þegar þau Rekviður og Freta mættu á svæðið. Það hefði því verið full ástæða til að nýta þetta töfratæki betur bæði þegar skrímslin voru sýnileg og jafnvel líka þegar þau voru ekki á sýnileg en áhorfendur meðvitaðir um þau í myrkrinu eða baksviðs.

Höfundarnir velja að nýta vel þekkta klassíska tónlist við verkið sem kemur vel út. Þó að tónlistin sé „stór og mikil“ þá verður hún ekki yfirgnæfandi enda á sviðsframkoma dansaranna í fullu tré við styrk hennar. Búningar og sviðsmynd eru flott. Sjá má fallegar andstæður í annars vegar hversdagslegum og einföldum búningum Óðs og Flexu og hins vegar skærari og ævintýralegri búningum tengdum ævintýraheiminum sem þau ferðast inn í. Hljóðmynd og ljósahönnun kemur líka vel út og undirstrikar það sem þarf án þess að vera áberandi.

Hugmyndin að Óði og Flexu er býsna skemmtileg og Þýri Huld Árnadóttir og Hannes Þór Egilsson, höfundar hugmyndar og dans, eiga virkilega hrós skilið bæði fyrir handritið en ekki síður frammistöðu sína í hlutverki vinanna.
Hugmyndin að Óði og Flexu er býsna skemmtileg og Þýri Huld Árnadóttir og Hannes Þór Egilsson, höfundar hugmyndar og dans, eiga virkilega hrós skilið bæði fyrir handritið en ekki síður frammistöðu sína í hlutverki vinanna. Leikstjórinn, Pétur Ármannsson, sem er betur þekktur sem höfundur Petru, eftirminnilegs leikverks sem hann gerði ásamt danshöfundinum Brogan Davison um ömmu sína Petru, kemur greinilega með jákvæða inn orku inn í þetta teymi svo maður er alveg til í að sjá meira í þessum dúr.

Það er hlutverk gagnrýnanda að rýna til gagns og tuða svolítið yfir ónákvæmni í frammistöðu listamannanna sem þeir eru að skrifa um. Áhorfendur geta aftur á móti bara farið og notið þess að hlæja og gleðjast yfir leik listmannanna. Það eru því vinsamleg tilmæli til foreldra að fara með börnin í afmælið hjá Óði og Flexu og endilega bjóðið stóru systkinunum með því það er bara ávísun á skemmtilega samverustund.

Höfundar hugmyndar og dansins: Hannes Þór Egilsson og Þyrí Huld Árnadóttir en þau dansa jafnframt hlutverk Óðs og Flexu.
Prumpuskrímslin Rekviður og Freta: Ásgeir Helgi Magnússon og Ellen Margrét Bæhernz
Herra Glæsibuxur: Cameron Corbett
Leikstjórn: Pétur Ármannsson
Ljósahönnun: Jóhann Friðrik Ágústsson
Hljóð&Hljóðmynd: Baldvin Magnússon
Sviðsmynd og búningar: Júlíanna Lára Steingrímsdóttir

Ljósmyndir við grein: Jónatan Grétarsson[/cs_text]

Um höfundinn
Sesselja G. Magnúsdóttir

Sesselja G. Magnúsdóttir

Sesselja G. Magnúsdóttir er menntuð í íþróttafræðum og dansi auk sagnfræði. Hún hefur skrifað gagnrýni og greinar um dans undanfarin ár auk þess að kenna listdanssögu á framhaldsskólastigi og skapandi dans fyrir börn.

[cs_text id=”” class=”” style=”” text_align=”none”][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

118000646

118000647

118000648

118000649

118000650

118000651

118000652

118000653

118000654

118000655

118000656

118000657

118000658

118000659

118000660

118000661

118000662

118000663

118000664

118000665

118000666

118000667

118000668

118000669

118000670

118000671

118000672

118000673

118000674

118000675

118000676

118000677

118000678

118000679

118000680

118000681

118000682

118000683

118000684

118000685

118000686

118000687

118000688

118000689

118000690

118000691

118000692

118000693

118000694

118000695

118000696

118000697

118000698

118000699

118000700

118000701

118000702

118000703

118000704

118000705

118000706

118000707

118000708

118000709

118000710

118000711

118000712

118000713

118000714

118000715

118000716

118000717

118000718

118000719

118000720

128000681

128000682

128000683

128000684

128000685

128000686

128000687

128000688

128000689

128000690

128000691

128000692

128000693

128000694

128000695

128000710

128000711

128000712

128000713

128000714

128000715

128000716

128000717

128000718

128000719

128000720

128000721

128000722

128000723

128000724

128000725

128000726

128000727

128000728

128000729

128000730

128000731

128000732

128000733

128000734

128000735

128000736

128000737

128000738

128000739

128000740

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

138000426

138000427

138000428

138000429

138000430

138000431

138000432

138000433

138000434

138000435

138000431

138000432

138000433

138000434

138000435

138000436

138000437

138000438

138000439

138000440

138000441

138000442

138000443

138000444

138000445

138000446

138000447

138000448

138000449

138000450

138000451

138000452

138000453

138000454

138000455

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

208000361

208000362

208000363

208000364

208000365

208000366

208000367

208000368

208000369

208000370

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

228000051

228000052

228000053

228000054

228000055

228000056

228000057

228000058

228000059

228000060

228000061

228000062

228000063

228000064

228000065

228000066

228000067

228000068

228000069

228000070

228000071

228000072

228000073

228000074

228000075

228000076

228000077

228000078

228000079

228000080

228000081

228000082

228000083

228000084

228000085

238000211

238000212

238000213

238000214

238000215

238000216

238000217

238000218

238000219

238000220

238000221

238000222

238000223

238000224

238000225

238000226

238000227

238000228

238000229

238000230

news-1701