[cs_text text_align=”none”]
Kristín G. Guðnadóttir og Æsa Sigurjónsdóttir
Jóhannes S. Kjarval: Út á spássíuna – teikningar og pár
Crymogea, 2015
Eitt af mörgum álitamálum sem blasa við hverjum þeim sem áformar að brjóta til mergjar myndlistariðkun Jóhannesar Kjarvals er hvort nokkur vegur sé að greina á milli textagerðar, línuteikningar og málaralistar í verkum hans. Til að mynda þarf sá sem gaumgæfir myndlist Jóns Stefánssonar ekki að þræða neinar slíkar grafgötur. Þar er gjörvalla merkingu verkanna að finna í samspili málaðra flata, öll teikning er ýmist víkjandi eða vandlega falin og textagerð hvers konar er ætlunarverki listamannsins óviðkomandi. Um Kjarval gildir öðru máli. Ýmis ummæli hans benda til þess að honum hafi alla tíð verið fullkunnugt um óljós mörkin milli texta og teikningar. Þegar Matthías Johannessen spurði listamanninn hvenær hann hafi farið að mála, svaraði hann að bragði: „Það kom af sjálfu sér með skriftinni.“ Og það er út af fyrir sig ekki nýr sannleikur. Í forngrísku er sögnin „graphein“ notuð fyrir hvorttveggja að skrifa og teikna.

En sennilega er leitun að listamanni sem starfar eins gjörsamlega á mörkum tungumáls og myndar og Kjarval. Ekki einu sinni Paul Klee, sem teiknaði og skrifaði jöfnum höndum, gekk jafn langt í því að afmá þessi mörk eins og sá íslenski afkomandi sískrifandi og síyrkjandi alþýðu sem hér er til umræðu. Glefsur úr sendibréfum Kjarvals, dagbókum og ljóðum rata inn í myndir hans, bæði sem myndrænar líkingar og sjálfstæður texti, sjálfsævisögulegur texti verður að sjálfsævisögulegum veggmyndum, heimatilbúin orðskrípi umbreytast í skringilegar myndir og þær myndir geta af sér ærslafullan leikaraskap í orðum, hátíðlega orðuð heillaskeyti breytast í stóreflis blómamálverk, blómamálverkin verða listamanninum síðan tilefni hátimbraðra yrkinga. Þegar honum er sérstaklega mikið niðri fyrir sjáum við nafn hans og þá um leið listrænt „ídentítet“hans renna saman við atburðarásina á striganum, hverfa jafnvel í flaum litanna. Margar teikningar Kjarvals mætti hæglega flokka undir þögulan skáldskap og ljóð hans undir mælska málaralist. Í því sambandi er freistandi að vitna til forngrísks skálds, Simonídes af Keos, sem hélt því fram að markmið listmálara og skálda væru í rauninni þau sömu: „Jafnvel þótt hinir fyrrnefndu noti liti og fígúrur en þeir síðarnefndu orð […] er undirliggjandi markmið beggja eitt og hið sama.“

Margar teikningar Kjarvals mætti hæglega flokka undir þögulan skáldskap og ljóð hans undir mælska málaralist.
Tilvitnunin í Símonídes er fengin úr nýrri og veglegri bók, Út á spássíuna sem Æsa Sigurjónsdóttir og Kristín G. Guðnadóttir listfræðingar hafa tekið saman í tengslum við sýningu þeirra með sama nafni er nýlega rann sitt skeið á enda að Kjarvalsstöðum. Verklag þeirra er tímamótaframkvæmd, því í stað þess að einblína á „viðurkennt“ höfundaverk Kjarvals, svokallað „canon“, sem er t.d. uppistaðan í viðamikilli bók Nesútgáfunnar um myndlist hans (2005), hafa þær látið greipar sópa í skissu- og gagnasafninu sem upprunalega var varðveitt í 153 kössum í geymslum Kjarvalsstaða, og dregið fram alls kyns áður forsómuð pappírsverk.

Pappírsmagnið sem varðveitt er í geymslum Kjarvalssafns er með ólíkindum og fjölbreytnin sömuleiðis. Á rúmlega sextíu ára starfsævi leið Kjarval aldrei úr minni hvílíkt dýrmæti pappír var fátækum sveitapilti á síðasta áratug 19 aldar. Því henti hann aldrei nokkru pappírssnifsi sem honum barst; pappírinn hlóðst upp á vinnustofu hans og myndaði þar eins konar landslag, samsett úr aðskiljanlegum sneplum og lausarifrildum, póstkortum, blaðaúrklippum, sendibréfum, umslögum, sýningarskrám, aðgöngumiðum, reikningseyðublöðum, servíettum, umbúðapappír, pappírsöskjum og öðru tilfallandi. Þessu „pappírslandslagi“ eða kannski „pappírshöll““, lýsti annar þekktur pappírshamstrari, Thor Vilhjálmsson rithöfundur, eftirminnilega í frásögnum af heimsóknum sínum á vinnustofu Kjarvals.

Það er kannski í þessu samsafni dægurprents (ephemera) af ýmsu tagi sem okkur opnast í ríkara mæli en nokkru sinni fyrr samspil texta og mynda í sköpunarverki Kjarvals. Einsog margir aðrir notaði listamaðurinn það sem hendi var næst til að punkta niður minnispunkta og innkaupalista. En í hantéringu þessa tilfallandi pappírs fékk hann einnig útrás fyrir það sem kalla mætti „skapandi leikaraskap“, alls konar útúrsnúninga á hefðbundnu samhengi texta og myndar. Æsa lýsir þessu með eftirfarandi hætti:

[Kjarval] skáldar inn í myndflötinn og nýtir sér efniskennd skriftarinnar og órætt samband skriftar og teikningar. Hann krotar oft í jaðarinn, skrifar undir teikningu eða krassar beint ofan í myndina. Stundum standa orð og setningar einar og sér á blaði, eins og skilaboð til heimsins eða yfirlýsingar, eða þá að orð eru skrifuð ofan í mynd […] Skrift hans rennur saman við línuteikningu sem aftur getur umbreyst í skrift.

Oft og tíðum er sjálf efniskennd orðanna undir; Kjarval býr til úr þeim sjálfstæðar orðmyndir sem ekki standa fyrir annað en sjálfar sig. Segja má að markmið bókahöfunda með afhjúpun þessarar „myndveraldar“ til hliðar við áðurnefnda kanónu listamannsins sé aðallega tvíþætt. Nýr sjónvinkill verður til, eða eins og Æsa segir í eftirmála: „Við að færa sig frá miðjunni út í hliðarrýmin opnast nýr heimur sem veitir áhorfandanum innsýn inn í vinnuaðferðir, hugarheima og andlegar vistarverur listamannsins.“ Og eiginleg forsenda þessa breytta rannsóknarramma (paradigm) er sú að gjörvöll pappírshöllin hefur nú verið skráð með stafrænum hætti og við það hafa orðið til nýjar og frjóar uppflettileiðir á verkum Kjarvals. Með skipulegri „afmiðjun“ af þessu tagi verður til aðferðafræði, sem rekja má til þeirra Gilles Deleuze og Felix Guattari, þar sem litið er á spássíuna eða jaðarinn sem eins konar „tilraunarými listamannsins“, þar sem myndast svigrúm lesenda/skoðenda til takmarkalausra pælinga, endurskoðana og útlegginga á viðhorfum hans og lífsstarfi.

Bók og sýning þeirra Æsu og Kristínar eru til samans merkasta framlagið til íslenskra myndlistarrannsókna á árinu 2015.
Hins vegar nýtist okkur „hliðarveröldin“ einnig til rannsókna á móttökusögu Kjarvals, en hún er framar öðru umfjöllunarefni Kristínar G. Guðnadóttur í þessari bók. Þúsundir Íslendinga höfðu samband við Kjarval bréflega, þeir skrifuðu honum aðdáendabréf, þakkarbréf, vinabréf, ljóðabréf, viðskiptabréf, betlibréf eða sendu honum heillaskeyti á tyllidögum, sömuleiðis fékk listamaðurinn bréf frá hinu opinbera, og allt þetta varðveitti hann. Þessi bréf eru ómetanleg heimild um viðhorf þjóðarinnar til síns „fremsta sonar“. En móttökusagan sem hér um ræðir er með sérstökum hætti gagnkvæm, því bréfin og þá sérstaklega umslögin utan um þau, urðu Kjarval oftlega tilefni til alls kyns inngripa, párs og athugasemda, sem stundum hverfast um nafn eða rithönd sendanda, eða eru lýsandi fyrir vináttusamband listamannsins við sama. Auk þess geta þessi sömu bréf oft og tíðum af sér ríkulega skreytt drög að persónulegum svarbréfum. Á öðrum umslögum, eyðublöðum eða skeytum bregður listamaðurinn á leik með það „myndefni“ sem á þeim er að finna, afmyndar frímerki eða teiknar frímerki eftir eigin höfði, skapar tilbrigði við lógó eða há-og lágstafi á prentuðum tilkynningum, semur tilfyndna útúrsnúninga á staglkenndu orðfæri opinberra aðila eða dettur niður á ljóðræna túlkun á klisjukenndum auglýsingatextum.

Bók og sýning þeirra Æsu og Kristínar eru til samans merkasta framlagið til íslenskra myndlistarrannsókna á árinu 2015. Bókina gefur Crymogea út með tilhlýðilegri viðhöfn. Brotið er stórt (31 x 22) og texti læsilegur, og hönnunarleg sérviska þeirra Snæfríðar Þorsteins og Hildigunnar Gunnarsdóttur í lágmarki; helst að smásmugulegur lesandi sakni blaðsíðutals. Myndir eru vel þrykktar á mattan pappír og fá gott pláss á síðum, þær minnstu (c. 9 x 15 sm) birtast í nákvæmri eftirgerð (facsimile). Þeir sem sverma fyrir fagurhönnuðum „prentgripum“ geta vel við unað, aðrir mundu hugsanlega vilja sjá í svona bók fleiri og fjölbreyttari myndir úr því gnægtarbúri sem pappírshöll Jóhannesar Kjarvals er.[/cs_text]

Um höfundinn
Aðalsteinn Ingólfsson

Aðalsteinn Ingólfsson

Aðalsteinn Ingólfsson er listfræðingur, aðjúnkt í listfræði við Háskóla Íslands og sjálfstætt starfandi sýningarstjóri og gagnrýnandi. Eftir hann liggja á fjórða tug bóka um íslenska myndlist og menningarmál og á annað hundrað sýningarverkefni heima og erlendis.

[cs_text text_align=”none”][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

138000511

138000512

138000513

138000514

138000515

138000516

138000517

138000518

138000519

138000520

138000521

138000522

138000523

138000524

138000525

article 138000526

article 138000527

article 138000528

article 138000529

article 138000530

article 138000531

article 138000532

article 138000533

article 138000534

article 138000535

article 138000536

article 138000537

article 138000538

article 138000539

article 138000540

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

158000406

158000407

158000408

158000409

158000410

158000411

158000412

158000413

158000414

158000415

article 158000416

article 158000417

article 158000418

article 158000419

article 158000420

article 158000421

article 158000422

article 158000423

article 158000424

article 158000425

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

article 208000436

article 208000437

article 208000438

article 208000439

article 208000440

article 208000441

article 208000442

article 208000443

article 208000444

article 208000445

article 208000446

article 208000447

article 208000448

article 208000449

article 208000450

208000436

208000437

208000438

208000439

208000440

208000441

208000442

208000443

208000444

208000445

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

228000256

228000257

228000258

228000259

228000260

228000261

228000262

228000263

228000264

228000265

228000266

228000267

228000268

228000269

228000270

228000271

228000272

228000273

228000274

228000275

228000276

228000277

228000278

228000279

228000280

228000281

228000282

228000283

228000284

228000285

article 228000286

article 228000287

article 228000288

article 228000289

article 228000290

article 228000291

article 228000292

article 228000293

article 228000294

article 228000295

article 228000296

article 228000297

article 228000298

article 228000299

article 228000300

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

238000257

238000258

238000259

238000260

article 238000261

article 238000262

article 238000263

article 238000264

article 238000265

article 238000266

article 238000267

article 238000268

article 238000269

article 238000270

news-1701