Skapstirð híbýli og flandur um konungshöll

[cs_text id=”” class=”” style=”” text_align=”none”]
Irmgard Kramer
Sólbjört Valentína: Um frumskógarfugla og konunglegar nærbuxur
Nina Dulleck myndskreytti
Þýðandi: Herdís Hübner
Bókabeitan, 2015
Umræðan um þýddar barna- og unglingabækur hér á Íslandi er fremur fátækleg. Hún einskorðast alla jafna við fremur fáa einstaklinga og er gjarnan á þá leið að ekki sé nógu mikið þýtt úr íslensku á önnur tungumál og að of mikið sé þýtt úr ensku á íslensku á kostnað bóka frá öðrum málsvæðum. Þó er alltaf eitthvað um bækur frá öðrum löndum en Bretlandi og Bandaríkjunum og seint á síðasta ári kom út hressileg barnabók, Sólbjörg Valentína: Um frumskólarfugla og konunglegar nærbuxur, en höfundur hennar er hin austurríska Irmgard Kramer og bókin er þýdd úr þýsku af Herdísi Hübner.

Irmgard Kramer hefur skrifað bækur fyrir börn, unglinga og fullorðna en bókin sem hér um ræðir er sú fyrsta í seríu um samnefnda aðalpersónu, fjölskyldu hennar og hús sem er geðstirt í meira lagi. Þessi fyrsta bók um hana Sólbjörtu og fjölskyldu er hressileg, skondin og jákvæð og ætti líkast til best heima í hópi með bókunum um Kidda Klaufa, Fríðu framhleypnu, Kaftein Ofurbrók og hinn sænska Bert (áður en hormónarnir skiptu yfir í fimmta gír) og svipuðum barnabókum þar sem hraði, fjör og stuð eru í fyrirrúmi. Þetta eru bækur sem krakkar lesa yfirleitt sjálfir og hlæja upphátt að, bækur sem graftarbólur unglingsáranna, kossar og kelerí hafa ekki náð tangarhaldi á.

Húsið reynist vera lifandi og með ákaflega sjálfstæðan vilja og sterkar skoðanir og lítið þarf til að koma því úr jafnvægi.
Sagan sjálf er römmuð inn af bréfi sem Sólbjört skrifar sjálfum Vilhjálmi Bretaprinsi þar sem hún reynir að útskýra hvernig það vildi til að hana sárvantaði nærbuxur hans hátignar og álpaðist í kjölfarið inn í Buckhingham-höll. Það reynist vera húsinu að kenna, húsinu þar sem Sólbjört býr ásamt pabba sínum, bróður og Konráði gamla og var keypt fyrir örfáar krónur. Húsið reynist vera lifandi og með ákaflega sjálfstæðan vilja og sterkar skoðanir og lítið þarf til að koma því úr jafnvægi. Eftir að pabbi hefur lesið ævintýrið um Þyrnirós fyrir Sólbjörtu og Nóa bróður hennar eitt kvöldið fer húsið í allsherjar fýlu og hrækir systkinunum og pabba út um gluggann þannig að þau sitja föst í risastórri eik fyrir utan. Þau eru eðlilega hissa, og svolítið svekkt þar sem húsið hafði lofað að þau mættu stundum sofa í friði. Fljótlega kemur í ljós hvað húsið vill en það púar orðunum upp úr skorsteininum, með frjálslegri stafsetningu: „Henngið mígið fínan fána á vorn hæssta turn“ (bls. 20). Húsið vill sem sagt vera eins fínt og fágað og konungshöllin í ævintýrinu um Þyrnirós og vill að á sig verði hengdur fáni. Stórum nærbuxum er komið fyrir á toppi hússins og þegar húsið áttar sig á því bregst það ókvæða við og krefst þess að eitthvað verði gert í málunum. Í kjölfarið á þessu öllu saman lendir Sólbjört Valentína, berfætt á náttkjólnum, inni í Buckingham-höll í brúðkaupsveislu Vilhjálms og Katrínar. Sólbjört er rammvillt og örlítið skelkuð. Henni tekst engu að síður að vingast við framandi prins en lendir líka í því að vera hundelt af öryggisvörðum ásamt því að hamast við að leita að konunglegum nærbrókum til að hengja á fánastöng hússins.

Þetta er frumleg og fyndin krakkabók – tilvalin ef krakkana vantar eins og eitt hláturskast.
Sólbjört Valentína: Um frumskógarfugla og konunglegar nærbuxur en ein þessara bóka þar sem raunsæi og fantasía blandast saman án þess að það þyki nokkuð tiltökumál og innan sögunnar þykir það hreint ekkert undarlegt þótt hús kunni að stafa (illa), börn ferðist á milli húsa og halla í ólíkum löndum eins og ekkert sé eða að híbýlum finnist gott að borða egg. Þetta er frumleg og fyndin krakkabók – tilvalin ef krakkana vantar eins og eitt hláturskast. Sagan er öll sögð frá sjónarhorni Sólbjartar og er þannig barnslegt, og allt gerist býsna hratt, þ.e. bæði er söguþráðurinn hraður en einnig er skipt ört milli nútíðar og fortíðar, til dæmis þegar Sólbjört útskýrir fyrir lesendum hvers vegna mamma hennar býr ekki hjá þeim og hvernig það kom til að þau fluttu í hið mislynda hús. Þessi hraði og áhersla á atburðarás gerir það að verkum að lesandinn kynnist persónunum frekar lítið, sérstaklega pabba og Nóa litla, og öll persónusköpun er frekar yfirborðskennd. Vel hefði mátt eyða meira púðri í hana og sögu fjölskyldunnar til að skapa meiri dýpt og samúð eða skilning lesenda á aðstæðum sögupersónanna.

Þýðendur barnabóka standa oft frammi fyrir því að þurfa að velja á milli þess að staðfæra þýðinguna, breyta til að mynda útlendum nöfnum í íslensk, erlendum staðarheitum í íslensk o.s.frv. eða reyna að vera eins trúir frumtextanum og mögulegt er og breyta sem allra minnstu. Ef þeir gera það eiga þeir það stundum á hættu að lesendur skilja ekki um hvað ræðir, átta sig ekki á staðarháttum eða bröndurum. Sólbjört Valentína: Um frumskógarfugla og konunglegar nærbuxur virðist henta einkar vel til þýðingar þar sem fjarskalega lítið í sögunni tengist náið ákveðinni menningu, landi eða þjóð. Bókin virðist þannig „alþjóðleg“ – að minnsta kosti ef við gerum ráð fyrir því að það sé almenn vitneskja að vita hver Kata hertogaynja og Villi prins eru. Þýðingin sjálf er Herdísi Hübner til sóma. Eins og áður sagði er sagan sögð frá sjónarhóli Sólbjartar sjálfrar og er uppfull af sniðugheitum, sem ekki lukkast alltaf vel, og misgóðum bröndunum sem Herdísi tekst með lagni að þýða á fínustu íslensku. Sá tónn sem hún setur í þýðinguna hæfir mjög vel hressilegum stíl sögunnar.[/cs_text]

Um höfundinn
Helga Birgisdóttir

Helga Birgisdóttir

Helga Birgisdóttir er doktorsnemi í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands en doktorsverkefni hennar fjallar um barnabókmenntir. Helga hefur skrifað greinar, haldið fyrirlestra og kennt námskeið á sviði nútímabókmennta, einkum þó á sviði barnabókmennta og afþreyingarbókmennta.

[cs_text id=”” class=”” style=”” text_align=”none”][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

118000691

118000692

118000693

118000694

118000695

118000696

118000697

118000698

118000699

118000700

118000701

118000702

118000703

118000704

118000705

118000706

118000707

118000708

118000709

118000710

118000711

118000712

118000713

118000714

118000715

118000716

118000717

118000718

118000719

118000720

118000721

118000722

118000723

118000724

118000725

118000726

118000727

118000728

118000729

118000730

128000681

128000682

128000683

128000684

128000685

128000686

128000687

128000688

128000689

128000690

128000691

128000692

128000693

128000694

128000695

128000726

128000727

128000728

128000729

128000730

128000731

128000732

128000733

128000734

128000735

128000736

128000737

128000738

128000739

128000740

138000441

138000442

138000443

138000444

138000445

138000446

138000447

138000448

138000449

138000450

138000451

138000452

138000453

138000454

138000455

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000451

138000452

138000453

138000454

138000455

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

158000346

158000347

158000348

158000349

158000350

158000351

158000352

158000353

158000354

158000355

158000356

158000357

158000358

158000359

158000360

158000361

158000362

158000363

158000364

158000365

208000361

208000362

208000363

208000364

208000365

208000366

208000367

208000368

208000369

208000370

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000408

208000409

208000410

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

228000061

228000062

228000063

228000064

228000065

228000066

228000067

228000068

228000069

228000070

228000071

228000072

228000073

228000074

228000075

228000076

228000077

228000078

228000079

228000080

228000081

228000082

228000083

228000084

228000085

228000086

228000087

228000088

228000089

228000090

228000091

228000092

228000093

228000094

228000095

228000096

228000097

228000098

228000099

228000100

228000101

228000102

228000103

228000104

228000105

228000106

228000107

228000108

228000109

228000110

228000111

228000112

228000113

228000114

228000115

228000116

228000117

228000118

228000119

228000120

228000121

228000122

228000123

228000124

228000125

228000126

228000127

228000128

228000129

228000130

228000131

228000132

228000133

228000134

228000135

228000136

228000137

228000138

228000139

228000140

news-1701