[cs_text text_align=”none”]
Dagný Kristjánsdóttir
Bókabörn – Íslenskar barnabókmenntir verða til
Háskólaútgáfan, 2015
Dagný Kristjánsdóttir prófessor hefur sent frá sér verkið Bókabörn – Íslenskar barnabókmenntir verða til. Þetta er upprunasaga eins og titillinn bendir til, Dagný fjallar um aðdraganda og upphaf íslenskra barnabóka og rekur sögu þeirra fyrsta skeiðið. Sagan hefst árið 1780 þegar bók séra Vigfúsar Jónssonar kom út, Barnaljóð með ljúflingslag. Um var að ræða heilræðavísur sem Vigfús orti til dóttur sinnar og segja má að með þeim hafi ákveðinn tónn verið sleginn, barnabækur skyldu ala lesendur sína upp. Þetta stef hefur ómað allar götur síðan, mishátt að vísu, og það er ekki síst vegna þess sem barnabækur hafa svo margt að segja um viðhorf samtímans til barna og bernskunnar. Börn eru ekki bara söguhetjur í barnabókum heldur einnig innbyggðir lesendur og sem slík eru þau afsprengi tíðarandans.

Bókabörn er því öðrum þræði hugmyndasaga. Börn í barnabókum endurspegla hugmyndir höfundanna og þess samfélags sem þeir skrifa inn í. Dagný rekur hugmyndasögu bernskunnar aftur til miðalda, staldrar við í upplýsingunni þegar Barnaljóð Vigfúsar koma út, en lengst dvelur hún við þau tímabil sem meginhluti bókarinnar fjallar um, rómantík og nýrómantík. Dæmin sem hún tekur eru fjölmörg og forvitnileg, sum flúruð og kristileg, önnur sérlega krassandi, sótt í móralskar hryllingsbókmenntir sem kollvarpa viðteknum hugmyndum um að barnabækur séu krúttlegar og endi vel.

Dagný hefur skarpa yfirsýn og nýtir sér áralanga reynslu sína af kennslu og rannsóknum á barnamenningu við ritun Bókabarna. Hún afmarkar viðfangsefnið og rekur undir það styrkar stoðir með hugmyndasögunni sem fléttað er saman við sögu barnamenningar.
Bókabörn er þarft innlegg á fræðasvið sem allt of lítið hefur verið sinnt. 35 ár eru síðan Silja Aðalsteinsdóttir sendi frá sér bókina Íslenskar barnabækur 1780-1979 þar sem hún rekur 200 ára sögu íslenskra barnabókmennta. Skiljanlega þarf að fara hratt yfir sögu þegar svo langt tímabil er undir. Dagný hefur skarpa yfirsýn og nýtir sér áralanga reynslu sína af kennslu og rannsóknum á barnamenningu við ritun Bókabarna. Hún afmarkar viðfangsefnið og rekur undir það styrkar stoðir með hugmyndasögunni sem fléttað er saman við sögu barnamenningar. Stærstur hluti bókarinnar fjallar hins vegar um höfundarverk fjögurra valinkunnra brautryðjenda. Dagný greinir verk þeirra í ljósi ævi þeirra og umhverfis og setur þau jafnframt í alþjóðlegt samhengi. Höfundarnir fjórir störfuðu á Íslandi, í Kaupmannahöfn, Þýskalandi og Ameríku og tveir þeirra höfðu að miklu leyti alist upp erlendis, í frönskum og breskum menningarheimi. Höfundarnir fjórir, Jónas Hallgrímsson, Jón Sveinsson, Sigurbjörn Sveinsson og Jóhann Magnús Bjarnason, drukku í sig bókmenntastrauma samtímans og höfðu mótandi áhrif á fjölmarga rithöfunda sem á eftir komu. Verk þeirra vísa í dönsk ævintýri, breskar og franskar ævintýrasögur, nýlendubókmenntir og evrópska drengjamenningu. Með þessu sjónarhorni varpar Dagný nýju og fjölmenningarlegra ljósi á upphafsskeið íslenskra barnabókmennta.

Hinir fjórir fræknu fá hver sinn kafla þar sem einkenni þeirra sem bókabarna eru undirstrikuð. Jónas Hallgrímsson er rómantíska barnið, Nonni trúaða barnið, Sigurbjörn Sveinsson er tilfinningasama barnið og Jóhann Magnús Bjarnason er úrræðagóða barnið. Jónas og Sigurbjörn upphefja veröld sem var, bæði bernskuna og sveitina, báðir misstu þeir föður sinn ungir og skrifa falleg ævintýri, Jónas í anda H.C. Andersen, Sigurbjörn siðbætandi sögur. Jóhann Magnús og Nonni skrifa meiri hasarsögur, fjarri lesendum sínum á Íslandi en inn í evrópska bókmenntatísku, annar þó búsettur í Kanada. Báðir kveðja þeir Ísland á barnasaldri, Jóhann kemur aldrei aftur en Nonni sem fullorðinn. Dagný tengir Nonna við Robinson Krúsó, Jóhann Magnús dýrkaði hins vegar Charles Dickens en mótaðist einnig af Victor Hugo, Jules Verne og Robert Louis Stevenson. Það koma því margar þekktar persónur við sögu í Bókabörnum.

Jóhann Magnús Bjarnason er sennilega sá sem fólk síst þekkir nú til dags. Hann er engu að síður forvitnilegur höfundur, eins og greiningin í Bókabörnum sýnir. Hann flytur barnungur til Kanada með foreldrum sínum og drekkur þar í sig breskar ævintýrasögur sem hann sækir síðar innblástur til. Einkenni hans eru fjörleg frásagnaraðferð, spennandi söguþráður og söguhetjur úr lágstétt líkt og hjá Dickens. Dagný rekur viðtökurnar sem verk Jóhanns Magnúsar fá á Íslandi, dómarnir eru gjarnan harkalegir og endurspegla viðhorf til barnabóka, barnabókahöfunda og í tilfelli Jóhanns Magnúsar, til Vesturfaranna. Viðtökusagan sýnir stöðu íslenskra innflytjenda í Vesturheimi og viðhorfin sem þeir mættu frá þeim sem heima sátu. Hér birtist athyglisverð orðræða um flótta frá Íslandi og svik við landið. Málfarslögreglan situr fyrir hinum brottflutta þegar hann hættir sér inn á íslenskan bókamarkað, ítrustu kröfur eru gerðar um íslenskukunnáttu og Íslendingasagnastíl. Minna er rætt hvort ungu fólki líki lesturinn.

Hið bernska var heimfært upp á höfundinn sem varð að einhvers konar eilífðarbarni.
Viðtökurannsóknir eru nauðsynleg forsenda þess að öðlast skilning á stöðu barnabókmennta og barnabókahöfunda. Lesendahópurinn hafði engin tækifæri til að tjá sig og þeir sem settust í dómarasætið áttuðu sig ekki endilega á því hvers konar bókmenntir þeir væru með í höndunum. Höfundar sem lögðu fyrir sig ritstörf fyrir unga lesendur hlutu að vera öðruvísi en fólk var flest, einfeldningar, jafnvel svolítið leiðinlegir í gáfumennasamkvæmum, eins og Laxness lýsti víst Nonna og Sigurbirni Sveinssyni. Dagný rekur viðtökur við verkum fjórmenninganna rækilega og sú saga er stórmerkileg. Allir fengu þeir þau ummæli að verk þeirra væru saklaus, einlæg, hrein og tær: Hið bernska var heimfært upp á höfundinn sem varð að einhvers konar eilífðarbarni. Dagný bendir á þá áhugaverðu staðreynd að enginn talaði um Robert Louis Stevenson sem „barn að eilífu“ fyrr en eftir að Gulleyjan hafði verið markaðsfærð fyrir börn (bls. 254). Þannig loðir hugmyndin um barnaskap við barnabækur og höfunda þeirra frá upphafi (og gerir kannski enn?).

Dagný greinir höfundarverk fjórmenninganna með bókabarnið í brennidepli, en dregur einnig upp skýra mynd af þeim sem einstaklingum. Með því vekur hún spurningar um þá fegruðu mynd sem þeir draga upp af eigin bernsku. Allir lýsa þeir bernsku sinni sem sæluríki þó að í raun og veru hafi bernska þeirra verið allt annað en dans á rósum. Dagný notar þessa staðreynd til að ræða hugmyndir sem barnabókahöfundar mæta gjarnan, að aðalpersóna í raunsæisverki sé höfundurinn sjálfur. Nonni og Sigurbjörn Sveinsson gefa hvað mest tilefni til þess að draga þær ályktanir, en Dagný sýnir fram á að bókabörnin þeirra eru ekki þeir sjálfir. Þau eru sviðsett, sköpunarverk, og þau ber að túlka sem slík.

Kaflarnir um Jónas, Nonna, Sigurbjörn og Jóhann Magnús eru skemmtileg lesning. Feðurnir fjórir, eins og Dagný kallar þá, eru þeir fjórir rithöfundar sem mest áhrif höfðu á íslenska barnabókmenntasögu á bernskuskeiði hennar. Sú spurning vaknar sjálfkrafa hvort barnabókmenntasagan sé kvenmannslaus í upphafi. Dagný svarar þeirri gagnrýni sjálf í lokakafla bókarinnar: „Ef þeir eru „feður“ íslenskra barnabóka er vert að minna á að á undan þeim komu nafnlausar sagnakonur sem sögðu þjóðsögur og ævintýri, fóru með barnagælur og barnafælur fyrir börn sín og það eru „mæður“ íslenskra barnabókmennta.“ (bls. 249)

Bókabörn er falleg bók, um 300 síðna kilja, prýdd fjölda ljósmynda, bæði af höfundunum fjórum og tíðarandamyndum. Kápan, sem Ragnar Helgi Ólafsson hannaði, er hlý, heitur, gulur litur, snjáðir smábarnaskór í styrkum höndum, hvítir skrifstafir. Óður til nostalgíunnar sem umlykur barnabókmenntir og litar alla umfjöllun um þær. Þetta er rómantísk kápa og í anda rómantíkurinnar er bernskan upphafin; táknmynd hins fyrsta æviskeiðs er beinlínis hafin á loft. Hin rómantíska bernska er besta skeið ævinnar en gildir það einnig um bernskuskeið bókmennta? Þeirri spurningu er ósvarað. Dagný skilur við söguna þegar íslenskar barnabókmenntir hafa slitið barnsskónum.

Hvað er barnabók og hvernig á að meta barnabækur? Hvað gerir barnabók góða?
Bókabörn er merkilegt framlag til barnabókarannsókna og gefur íslenskri bókmenntasögu fyllri mynd. Höfundur dregur upp skýra mynd af því menningarlega og hugmyndafræðilega umhverfi sem íslenskar barnabókmenntir urðu til í. Mikil gróska er í bókmenntaheiminum, mörk bókmenntagreina óljós og skáldsagan að fæðast, trúartextar, uppeldiskver, lestrarbækur og ævintýrabækur krauma í sama pottinum. Menn reyna að átta sig á sérstöðu bernskunnar en sumir eiga erfitt með að viðurkenna að börn þurfi sínar eigin bókmenntir, hvað þá að nokkur rithöfundur með sjálfsvirðingu vilji leggja ritstörf fyrir börn fyrir sig. Upp sprettur hugmyndin um eðli barnabókahöfundarins; eilífðarbarnið. Enn eru menn vaklandi í viðhorfum til bókmenntaverka fyrir unga lesendur. Hvað er barnabók og hvernig á að meta barnabækur? Hvað gerir barnabók góða? Er það að barnið hafi gott af því að lesa bókina? Er það að bókin skemmti barninu? Er það að bókin skemmti hinum fullorðna lesanda? Að nostalgía bernskunnar umlyki hann og flytji í tímavél aftur undir sæng með vasaljós? Þarf maður kannski þegar öllu er á botninn hvolft að vera bernskur í anda til að geta metið – og skrifað – barnabækur? Hvort sem við nálgumst barnabækur sem fræðimenn, höfundar eða bara „venjulegir“ lesendur burðumst við fullorðna fólkið með viðhorf til bernskunnar og barnabóka sem ágætt er að horfast í augu við. Bókabörn sýna vel hversu mótandi áhrif þessar hugmyndir hafa á bókmenntirnar og viðtökur þeirra.

 [/cs_text]

Um höfundinn
Brynhildur Þórarinsdóttir

Brynhildur Þórarinsdóttir

Brynhildur Þórarinsdóttir er íslenskufræðingur og dósent við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Hún kennir meðal annars barnabókmenntir og ritlist.

[cs_text text_align=”none”][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000746

118000747

118000748

118000749

118000750

118000751

118000752

118000753

118000754

118000755

118000756

118000757

118000758

118000759

118000760

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

138000451

138000452

138000453

138000454

138000455

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

158000346

158000347

158000348

158000349

158000350

158000351

158000352

158000353

158000354

158000355

158000356

158000357

158000358

158000359

158000360

158000361

158000362

158000363

158000364

158000365

158000366

158000367

158000368

158000369

158000370

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

208000381

208000382

208000383

208000384

208000385

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

228000116

228000117

228000118

228000119

228000120

228000121

228000122

228000123

228000124

228000125

228000126

228000127

228000128

228000129

228000130

228000131

228000132

228000133

228000134

228000135

228000136

228000137

228000138

228000139

228000140

228000141

228000142

228000143

228000144

228000145

228000146

228000147

228000148

228000149

228000150

228000151

228000152

228000153

228000154

228000155

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

238000217

238000218

238000219

238000220

238000221

238000222

238000223

238000224

238000225

238000226

238000227

238000228

238000229

238000230

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701