Skúlptúr í endurnýjun lífdaga

[x_text]
Í Gerðarsafni í Kópavogi standa nú yfir sýningar á verkum tveggja listamanna, þeirra Baldurs Geirs Bragasonar og Hrafnhildar Óskar Magnúsdóttur. Sýningarnar eru þær fyrstu í sýningaröð safnsins undir sameiginlegri yfirskrift: „Skúlptúr / skúlptúr“, sem er ætlað að kanna „stöðu skúlptúrsins sem miðils í íslenskri samtímalist“.
Í þessari fyrstu umferð eru kynntir til sögunnar tveir ungir listamenn sem eru skemmtilega ólíkir í stíl og efnistökum þótt báðum sé rýmisvirkni efnisins hugleikin. Verk Baldurs Geirs er innsetning í átta hlutum þar sem uppbygging og grundvöllur skúlptúrhefðarinnar eru tekin til skoðunar á hreinlegan hátt. Hrafnhildur, sem kallar sjálfa sig „Habby Osk“, byggir sinn hluta upp af mörgum verkum sem innbyrðis eru ólík; sum eiginlegir skúlptúrar, á meðan önnur eru meira hugsuð sem inngrip í rýmið.

Efsti hluti tveggja beinu stöplanna, þar sem talið er upp í þrjá. Ljósmynd: Hlynur Helgason.
Efsti hluti tveggja beinu stöplanna, þar sem talið er upp í þrjá. Ljósmynd: Hlynur Helgason.

Þungamiðjan í rýmisverki Baldurs Geirs eru fjórir hvítir stöplar — hefðbundin undirstaða skúlptúrverka. Stöpullinn umbreytist hér í eins konar grunneiningu ítrekunar; ofan á stöplunum hvíla minni einingar sem einnig líkjast stöplum, nokkurs konar módelútgáfa af sama forminu. Þessir minni stöplar verða undirstöður enn minni samskonar eininga sem eru ýmist ein, tvær eða þrjár, hver á sínum smástöpli. Grunnform stöplanna eru byggð upp á tvennan hátt; annarsvegar eru beinir nútímalegir stöplar; hinsvegar eru stöplar með einskonar stafendum, formaðir eins og bókstafurinn „I“ í fornaletri (roman). Í þessari útgáfu víkur myndlistarvísunin og verður tvöföld menningarvísun: byggingarvísun sem horfir til klassískra súlna fornaldar; leturvísun þar sem minni stöplarnir umbreytast í rómverska tölustafi.

Nærmynd af efsta hluta tveggja „rómversku“ stöplanna á sýningu Baldurs Geirs. Ljósmynd: Hlynur Helgason.
Nærmynd af efsta hluta tveggja „rómversku“ stöplanna á sýningu Baldurs Geirs. Ljósmynd: Hlynur Helgason.

Utan við stöplana, sem afmarka miðju rýmisins í verki Baldurs Geirs, liggja fjórir grófir timburkassar. Þeir líta út fyrir að vera kassar sérsmíðaðir til þess að flytja stöplana í; til þess benda hlutföll þeirra og merkingar um að um „viðkvæman“ varning sé að ræða. Ofan á kössunum er tyllt röð heimasmíðaðra nagla sem eru of stórir til að gegna praktísku hlutverki, en eiga greinilega að vekja upp tengingar við líkkistur eða því-um-líkt. Það er greinilegt að það er hér, í kistunum, sem stöplarnir eiga eftir að hljóta hinsta legustað eftir að sýningu lýkur.

Ein fjögurra „kista“ í verki Baldurs Geirs. Hér er hinsti hvílustaður stöplanna með áberandi stílfærðum nöglum og varúðarmerki um viðkvæmni verkanna. Ljósmynd: Hlynur Helgason.
Ein fjögurra „kista“ í verki Baldurs Geirs. Hér er hinsti hvílustaður stöplanna með áberandi stílfærðum nöglum og varúðarmerki um viðkvæmni verkanna. Ljósmynd: Hlynur Helgason.

Sem fyrr segir felur verk Baldurs Geirs í sér fjölmargar vísanir. Í grunninn er það um sýningu og sýningarhald, það fjallar um stöpulinn, sem er hefðbundin undirstaða höggmynda. Á sama tíma er verkið kerfisbundin greining á myndbyggingu, á því hvernig hluturinn breytist eftir því hvort talið er „einn, tveir“ eða hvort þrír standa saman. Rómverska letrið styrkir þessa vísun en er auk þess tenging yfir í sögu byggingarlistarinnar. Regluleg uppsetning stöplanna fjögurra þar sem þeir afmarka og teikna miðrými salarins sver sig í ætt við áherslur hennar. Það er í þessari byggingu sem innsetningin á sér stað; hér afmarkast innra rými verksins í ferningnum og í því að rómverska letrið og hrein form stöplanna víxlast og tengja á ská á milli stöplanna sem þannig mynda X í miðjunni. Utan við þetta reglufasta rými sem miðjan helgar liggur rými dauðans, þar sem kisturnar bíða sýningarverkanna. Styrkur miðjumyndarinnar er augljós, þannig að það vekur upp spurningu um hvort sá hluti verksins hefði ekki nægt, hvort kössunum fyrir utan þessa miðju sé ekki í reynd ofaukið.[/x_text]

[x_text]
Yfirlit yfir innsetningu Baldurs Geirs, I, II, IIIs. Ljósmynd: Hlynur Helgason.
Yfirlit yfir innsetningu Baldurs Geirs, I, II, IIIs. Ljósmynd: Hlynur Helgason.
[/x_text]
[x_text]Sýning Hrafnhildar Óskar er ólík sýningu Baldurs. Hans verk er heildræn innsetning á meðan Hrafnhildur býður upp á sýningu þar sem mörg ólík verk koma saman. Eitt þeirra verður að telja meginverk sýningar hennar, verk sem tekur yfir rúman hálfan salinn. Í kring um það og setur Hrafnhildur mörg önnur verk: nokkra skúlptúra á stöplum, vídeóverk, auk minni hringja sem virðast vera hugmynd að látlausri innsetningu sem tengja á verkin saman.

Séð yfir sýningu Hrafnhildar Óskar. Ljósmynd: Hlynur Helgason.
Séð yfir sýningu Hrafnhildar Óskar. Ljósmynd: Hlynur Helgason.

Meginverkið í sýningu Hrafnhildar ber titilinn Stöðugleiki. Það er rýmisinnsetning sem samanstendur af röð stanga sem hallast upp að uppblásnum plastpokum, sem skorðast þannig á milli stanganna og veggjarins. Stangirnar eru málaðar hver í sínum litnum, sem gefur verkinu vissan fjölbreytileika. Heildaráherslan er þó á hverfulleikann sem byggir á breytilegu ástandi verksins. Þar vinnur Hrafnhildur bókstaflega með gamalgrónar áherslur skúlptúrsins: þanþolið, sem býr í loftinu sem heldur pokunum uppblásnum, og jafnvægið, sem er það sem heldur stöngunum uppi. Þegar á sýninguna líður tæmast plastpokarnir smátt og smátt og falla til jarðar. Stangirnar verða þá ýmist eftir og hallast upp að veggnum eða falla einnig til jarðar. Á sýningartímanum verður því verkið breytilegt, þótt trúlega finni það sér ákveðið jafnvægi þegar tæmst hefur úr öllum pokunum. Hér lætur listakonan náttúrulögmálunum eftir að ljúka verkinu; bygging þess er breytileg og viðkvæm og skemmtileg útgáfa af barnaleiknum „fallin spýta“.

Annað verk Hrafnhildar Óskar á sýningunni, vídeóverkið Let go, er í greinilegu samspili við þessa megin-innsetningu. Í verkinu er viðfangsefnið uppblásin blaðra sem handleggir halda utan um og reyna stöðugt og á taktfastan hátt að kreista, spenna saman, á milli þess sem þeir sleppa. Hljóðið sem myndast við átökin skapar spennuþrungna tilfinningu sem vinnur vel með sýningunni og innsetningunni hinum megin í salnum. Í innsetningunni á sér stað hægfara ferli þar sem þanþol pokanna minnkar smátt og smátt; í vídeóverkinu er látið reyna á þanþolið á einfaldan hátt og til skamms tíma. Þessi verk mynda því saman skemmtilega heild.

Að auki við þessi tvö plastpokaverk eru einnig á sýningu Hrafnhildar fjögur önnur verk sem eru annars eðlis. Eitt þeirra samanstendur af mislitum hringjum eða gjörðum sem staðsettar eru hér og þar á gólfi salarins; annað er búið til úr tveimur stólpum og á milli er búið að koma fyrir einhverju sem lítur út fyrir að vera borðtenniskúla; í þriðja verkinu, sem sett er á hillu á veggnum, er endurtekið tígulform steypt úr vaxi; það fjórða, sem sett er á hefðbundinn stöpul, er einnig úr vaxi og þar endurtekur ferningsform sig í mynstri. Þótt þessi verk vinni einnig með óstöðugt efni og viðkvæmt jafnvægi eru þau í heildina sundurlaus og tenging þeirra við plastpokaverkin ekki augljós; þau draga því heldur úr áhrifamætti þeirra verka og þar með sýningarinnar í heild.

Demantar, verk úr vaxi á sýningu Hrafnhildar Óskar. Ljósmynd: Hlynur Helgason.
Demantar, verk úr vaxi á sýningu Hrafnhildar Óskar. Ljósmynd: Hlynur Helgason.

Sem fyrr segir er sýning þessi fyrsti kaflinn í nýrri sýningaröð á vegum Gerðarsafns þar sem skúlptúr „sem miðill“ verður til skoðunar. Hér er Kristín Dagmar Jóhannesdóttir að marka safninu nokkra sérstöðu á sýningarvettvangi höfuðborgarsvæðisins, sérstöðu sem byggir á arfleifð Gerðar Helgadóttur. Í sýningarskrá kemur fram að fyrirmynd þessarar sýningaraðar sé sýning sem haldin var á Kjarvalsstöðum fyrir rúmum 20 árum undir yfirskriftinni „Skúlptúr, skúlptúr, skúlptúr“. Á þeirri sýningu, sem stýrt var af Gunnari Kvaran og Kristínu Guðnadóttur, var augum beint sérstaklega að nýjungum í sýningarhaldi þar sem þrívíðar innsetningar voru að verða áberandi þáttur í myndlistarlífinu. Sýningin innihélt þrívíð verk og innsetningar rúmlega 30 listamanna. Kristín Dagmar segir þá sýningu vera sér innblástur fyrir þessa nýju sýningaröð. Hún velur þó að fara aðra leið en fyrirrennarar sínir; í stað þess að halda eina stóra sýningu þar sem þrívíðum verkum eru gerð skil býður hún hverjum listamanni að helga sér heilan sal í senn; nokkuð sem gefur þeim færi á að marka sín spor í rýmið á markvissari hátt en ef um samsýningu væri að ræða. Í stað þess að stilla upp mörgum listamönnum með minni verk gefur sýningarskipulagið kost á því að gera hverjum listamanni betri skil. Sú hugmynd virkar vel í þessum fyrsta hluta verkefnisins, hér sést vel hvernig tveir listamenn takast á ólíkan hátt á við rýmið og rýmiskenndina. Baldur Geir Bragason vinnur á heildstæðan hátt með skýra og afmarkaða hugmynd þar sem rýmið allt er undir: niðurstaðan er sterk og áhrifarík „skúlptörsk“ innsetning. Hrafnhildur Ósk Magnúsdóttir, „Habby Osk“, setur upp fleiri verk í sinni sýningu. Hún nýtir hálfan salinn undir sitt sterkasta verk, á meðan önnur verk styðja ýmist við það eða virka sem truflun. Það verður í kjölfarið áhugavert að fylgjast með næstu köflum í þessu metnaðarfulla starfi Gerðarsafns — hversu vel tekst að beina augum áhorfenda að stöðu skúlptúrs og skúlptúr-tengdra hugmynda í samtímalistinni.

Mynd fyrir ofan grein: Stöðugleiki, meginverkið á sýningu Hrafnhildar Óskar.
Ljósmynd: Hlynur Helgason.[/x_text]

Um höfundinn
Hlynur Helgason

Hlynur Helgason

Hlynur Helgason er myndlistarmaður og listfræðingur. Hann er lektor í listfræði við Íslensku­ og menningardeild Háskóla Íslands og stundar m.a. rannsóknir á samhengi íslenskrar samtímalistar, áhrifum hennar og stöðu í fjölþjóðlegu samhengi. Sjá nánar

[x_text][fblike][/x_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

138000511

138000512

138000513

138000514

138000515

138000516

138000517

138000518

138000519

138000520

138000521

138000522

138000523

138000524

138000525

article 138000526

article 138000527

article 138000528

article 138000529

article 138000530

article 138000531

article 138000532

article 138000533

article 138000534

article 138000535

article 138000536

article 138000537

article 138000538

article 138000539

article 138000540

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

158000406

158000407

158000408

158000409

158000410

158000411

158000412

158000413

158000414

158000415

article 158000416

article 158000417

article 158000418

article 158000419

article 158000420

article 158000421

article 158000422

article 158000423

article 158000424

article 158000425

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

article 208000436

article 208000437

article 208000438

article 208000439

article 208000440

article 208000441

article 208000442

article 208000443

article 208000444

article 208000445

article 208000446

article 208000447

article 208000448

article 208000449

article 208000450

208000436

208000437

208000438

208000439

208000440

208000441

208000442

208000443

208000444

208000445

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

228000256

228000257

228000258

228000259

228000260

228000261

228000262

228000263

228000264

228000265

228000266

228000267

228000268

228000269

228000270

228000271

228000272

228000273

228000274

228000275

228000276

228000277

228000278

228000279

228000280

228000281

228000282

228000283

228000284

228000285

article 228000286

article 228000287

article 228000288

article 228000289

article 228000290

article 228000291

article 228000292

article 228000293

article 228000294

article 228000295

article 228000296

article 228000297

article 228000298

article 228000299

article 228000300

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

238000257

238000258

238000259

238000260

article 238000261

article 238000262

article 238000263

article 238000264

article 238000265

article 238000266

article 238000267

article 238000268

article 238000269

article 238000270

news-1701