Er umburðarlyndi barnaleg einfeldni?

[x_text]
Í kjölfar hryðjuverkanna í París á dögunum tjáði forseti vor sig um atburðina og vöktu ummæli hans umtal, vonbrigði og gagnrýni margra. Við þetta tækifæri sagði hann að við ættum ekki að „[…] lifa í barnalegri einfeldni um það að með einhverjum aðgerðum á sviði umburðalyndis og félagslegum umbóta sé hægt að taka á þessum vanda.“

Í viðamiklu viðtali Kolbrúnar Bergþórsdóttur í helgarblaði DV 27.–30. nóv. fékk forsetinn svo ágætt tækifæri til að túlka og skýra þessi ummæli sín. Í viðtalinu nefnir forsetinn líka mikilvægi þess að ræða þessi mál með opnum og heiðarlegum hætti. Hér mun ég gera tilraun til þess. Fyrst langar mig þó til að drepa á annað atriði sem forsetanum virðist ofarlega í huga.

Ný þjóðremba?

Þegar líður á viðtalið verður forsetanum tíðrætt um árangur okkar Íslendinga á lýðveldistímanum, sem og hlutverk okkar í samfélagi þjóðanna. Þar lætur hann þess getið að helst megi ekki tala jákvætt um árangur okkar „[…] án þess að vera umsvifalaust sakaður um gamaldags þjóðrembu.“

[pullquote type=”left”]Hitt er álitamál hvort það sé „gamaldags þjóðremba“ sem vekur með okkur þá óbeit eða hugsanlega eitthvað annað. [/pullquote]Líklega er það rétt hjá forsetanum að við séum mörg nokkuð viðkvæm fyrir öllu sem rekja má til þjóðernislegrar hugsunar og orðræðu. Hitt er álitamál hvort það sé „gamaldags þjóðremba“ sem vekur með okkur þá óbeit eða hugsanlega eitthvað annað. „Þjóðremba“ var vissulega skapandi afl um daga sjálfstæðisbaráttunnar á 19. öld og skilaði okkur fullveldi og síðar lýðveldi. Hinar þjóðernislegu hugmyndir trosnuðu síðan upp á 20. öldinni og má rekja þræði þeirra víða í samfélagi okkar og menningu, bæði meðal íhaldssamra hreyfinga og róttækra. Stundum hafa þessar hugmyndir ugglaust verið nýskapandi en oft líka heftandi og geldandi. Til dæmis reyndist það ábyggilega heillaspor þegar loks tókst að keyra söguritun okkar og söguskoðun upp úr hjólförum þjóðernislegra vanahugmynda.

Ég tel þó líklegt að það sé ekki þessa gamla þjóðremba sem foretinn skynjar að vekur andúð nú á dögum. Er ekki líklegra að þar sé á ferðinni gagnrýni á nýja þjóðrembu sem gerði vart við sig um og upp úr síðustu aldamótum, það er á árunum fyrir Hrun. Það augljósa Messíasar-hlutverk sem ýmsir ætluðu þá þjóðinni, ekki síst á sviði efnahags- og fjármála, var svo sannarlega þreytandi og ófrjór spuni sem leiddi okkur ekki inn á hollar brautir. — Þetta var þó útúrdúr!

Hvar liggur rót vandans?

Í viðtalinu spyr Kolbrún mikilvægrar spurningar sem við verðum öll að glíma við, nefnilega hvort sá „yfirgangur“ — líklega með öðrum orðum heimsvaldastefna — sem við Vesturlandabúar höfum sýnt víða um heim og ekki síst í Miðausturlöndum skýri ekki að einhverju leyti það ástand sem við glímum nú við. Er þar bæði átt við hryðjuverkaógnina og ástandið í þeim löndum sem hún á upptök sín í. Þessari spurningu svarar forsetinn svo: „Orsökin er að einhverju leyti vanhugsaðar aðgerðir sumra vestrænna ríkja í Miðausturlöndum á fyrri tíð.“

[pullquote type=”left”]Er það ekki miklu frekar svo að það séu þaulhugsaðar og –skipulagðar aðgerðir margra vestrænna ríkja í Miðausturlöndum í seinni tíð sem að verulegu leyti skýra ástandið í þessum löndum og þær afleiðingar sem það hefur haft, m.a. í París?[/pullquote]Hér virðist ástæða til að staldra við. Hvað á forsetinn við með „á fyrri tíð“ og hvaða aðgerðir voru þá „vanhugsaðar“ og hverjar ekki? Með orðalagi sínu virðist mér forsetinn smætta þátt Vesturlanda í spennunni í Miðausturlöndum og eiginlega drepa málinu á dreif. Að vísu kemur fram í máli hans að hann á t.d. ekki við það félagslega tráma sem krossfarirnar á miðöldum urðu lengi, líkt og Tyrkjaránið hjá okkur. Hann gengur út frá tímaspönninni „síðustu hundrað ár“ en það er vissulega óþarflega langur tími í þessu sambandi.

Er það ekki miklu frekar svo að það séu þaulhugsaðar og –skipulagðar aðgerðir margra vestrænna ríkja í Miðausturlöndum í seinni tíð sem að verulegu leyti skýra ástandið í þessum löndum og þær afleiðingar sem það hefur haft, m.a. í París?

Hugsanlega er ég þó að misskilja forsetann og að hann eigi t.a.m. við að aðgerðir hinna „viljugu og staðföstu þjóða“ um árið eigi hér að „einhverju leyti“ sök og að það hafi verið „vanhugsað“ af forsætiráðherra okkar og utanríkisráðherra á sínum tíma að skrá okkur á lista þeirra. Var það afstaða forsetans þá eða hefur hann ef til vill skipt um skoðun í þessu efni? — Sá réttur verður auðvitað ekki frá neinum tekinn.

Er vandans að leita í íslam?

Forsetinn telur að meginskýringarinnar á ólgunni sem við er að glíma sé þó ekki að leita í þeim yfirgangi sem við höfum vissulega sýnt í Miðausturlöndum. Þar telur hann vega þyngra „[…] að í samfélögum, sem okkur eru náin, eru einstaklingar sem eiga sér hugmyndalegar, trúarlegar og persónulegar rætur í þessum heimshluta og eru í heilögu stríði við evrópskt samfélag […]“. Í framhaldinu ræðir hann síðan það mótunarafl sem íslam býr yfir. Viðurkennir hann þar vissulega að íslam sé „í eðli sínu friðsöm“ trú en hafi líka „fóstrað öfgahópa.“

Hér kemur forsetinn inn á mikilvægt en vandmeðfarið mál. Eru flestir þeirra sem staðnir hafa verið að hryðjuverkum í Evrópu ekki ungir innflytjendur af þriðju til fjórðu kynslóð sem einangrast hafa frá hugmyndlegum, trúarlegum og persónulegum rótum sínum án þess að hafa fengið nokkuð í staðinn? Er ekki orsakanna frekar að leita í örvæntingu, uppgjöf og óþoli þeirra sem ekki hafa átt þess kost að rækta tengslin við trúarlegan og menningarlegan bakgrunn sinn en hinna sem fengið hafa að þróa með sér trausta persónulega sjálfsmynd í lifandi tengslum við uppruna sinn?

Þetta er ágeng spurning hér í Reykjavík þar sem enn er deilt um hvort moska megi rísa hér eða hvort öllum ráðum skuli beitt til að sníða múslimum okkar á meðal sem allra þrengstan stakk.

Vinningstillaga fyrir nýja mosku í Reykjavík.
Vinningstillaga fyrir nýja mosku í Reykjavík.

Ég álít að friðsamleg sambúð okkar við þá múslima sem hér búa þegar og eiga eftir að flytja hingað í stærri stíl velti að miklu leyti á umburðarlyndi og félagslegum úrbótum. Það kann þó að vera „barnaleg einfeldni“ að mati forsetans.

Þörf áminning

[pullquote type=”right”]Þegar öllu er á botninn hvolft kann að vera að það sé ekki svo mikill munur á því gildismati sem fylgir íslam þar sem sú trú fær að búa við eðlilegar og frið-samlegar aðstæður og því kristna gildismati sem við erum mörg hver svo stolt af.[/pullquote]Að einu leyti tel ég þó þarfa áminningu að finna í máli forsetans. Hann bendir á að rétt eins og íslam hafi kristin trú „fóstrað öfgahópa […] fyrr á öldum“. Þetta er hverju orði sannara og minnir okkur á að margt sem er hluti af nútímamenningu múslima er hluti af sögu okkar og ekki alltaf í svo fjarlægri fortíð.

Þegar öllu er á botninn hvolft kann að vera að það sé ekki svo mikill munur á því gildismati sem fylgir íslam þar sem sú trú fær að búa við eðlilegar og friðsamlegar aðstæður og því kristna gildismati sem við erum mörg hver svo stolt af. Það sem öllu skiptir er hvort einstaklingar og samfélög fá að þróa eðlileg tengsl milli fortíðar sinnar og samtíðar eða hvort þau eru hindruð í því af eigin valdhöfum, erlendum ríkjum eða fámennum öfgahópum.

[Ljósmynd við grein: OddurBen – Sjá hér][/x_text]

Um höfundinn
Hjalti Hugason

Hjalti Hugason

Hjalti Hugason er prófessor í kirkjusögu við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Hann hefur stundað rannsóknir á ýmsum sviðum íslenskrar kirkjusögu og kirkjuréttar en auk þess ritað um trú, samfélag og menningu á ýmsum vettvangi. Sjá nánar

[x_text][fblike][/x_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

118000781

118000782

118000783

118000784

118000785

118000786

118000787

118000788

118000789

118000790

118000791

118000792

118000793

118000794

118000795

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000246

228000247

228000248

228000249

228000250

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701