Í gegnum skuggsjána — Undraland Katrínar Sigurðardóttur í Hafnarhúsi

[x_text]
Á sýningunni Horft inní hvítan kassa má finna tengingar við Lísu í Undralandi sem fela í sér vissan lykil að list Katrínar Sigurðardóttur.

Hugras_KatrinSig2015_mynd1_300px
Séð yfir innsetningu Katrínar Sigurðardóttur Boiserie eða Skrautþiljur frá 2010 í rýminu í Hafnarhúsinu. Á myndinni hér fyrir neðan sést inn um glugga innsetningarinnar. Ljósm: Hlynur Helgason
Seinni bókin sem Lewis Carroll skrifaði um sögupersónuna Alice heitir Through the Looking-Glass – and what Alice found there. Í íslenskri þýðingu ber hún titilinn: Í gegnum spegilinn – og það sem Lísa fann þar. Í verki Katrínar Sigurðardóttur Skrautþiljur (eða Boiserie) sem nú er til sýnis í Hafnarhúsinu birtast hugmyndir úr bók Carrolls ljóslifandi fyrir hugskotssjónum. Þegar gengið er um sýninguna er erfitt að losna undan áhrifum Carrolls; um leið og þessi tenging hefur orðið til falla flest verkin á sýningunni undir álög Lísu og þess sem hún lenti í „og fann“ á ferðum sínum um Undraland. Þar er í reynd fólginn viss lykill að mörgu í list Katrínar, hvernig hún lætur hversdagslegt viðfangsefni umbreytast á forsendum undraheima þannig að líkami áhorfandans umbreytist einnig og stækkar og minnkar á víxl í samskiptum hans við verkið. Skrautþiljur eru jafnframt þungamiðja sýningar Katrínar — ástæða sýningarinnar — sem aðrir hlutar hennar snúast um og styðja.[/x_text]
Séð inn um glugga innsetningar Katrínar Sigurðardóttur Boiserie eða Skrautþiljur frá 2010.
[x_text]Í Skrautþiljum snýr að áhorfanda smíðaður kassi með gluggum á fimm hliðum. Kassinn er eins og herbergi með engum dyrum sem áhorfendur geta horft inn í um gluggana. Fyrir innan sést flúrað timburverk og húsgögn; allt eins og það gæti hafa verið smíðað á átjándu öld. Herbergið er allt litað í sama hvíta litnum, veggir, gólf, húsmunir og áklæði. Hér er í sjónhendingu boðið upp á dvalarstað; áhorfandinn sér sig fyrir sér sitjandi í stólnum þótt hann hafi engan aðgang að honum. Fyrir utan stílfærða uppsetningu rýmisins vekja gluggarnir mesta athyglina. Við fyrstu sýn veit áhorfandinn ekki að inn í rýmið er hægt að horfa um fimm glugga; þegar hann kemur fyrst að verkinu sér hann einungis inn um einn eða tvo glugga og sýnist sem hinumegin í herberginu séu speglar. Speglarnir bjóða hinsvegar upp á endalausa speglun; þeir spegla ekki áhorfandann í glugganum sem er gegnt honum heldur sýna endalausa röð speglunar svo langt sem augað eygir. Þegar áhorfandinn gengur umhverfis herbergið sér hann hvað veldur: gluggarnir eru á öllum hliðum rýmisins; þeir eru ekki eiginlegir gluggar heldur tví-hliða eftirlitsspeglar sem endurspegla það sem er inni í björtu rýminu, en ekki það sem fyrir utan það er. Gluggarnir spegla því hvern annan endalaust í speglun sem dofnar sífellt eftir því sem lengra dregur. Í raun og veru verða þeir að því sem skáldin hafa kallað „skuggsjá“ og er eldra og upphafið orð yfir spegilinn: endalaus röð speglunarinnar í verkinu hverfur smátt og smátt í skuggann eftir því sem fjær dregur.

Þetta verk var upphaflega gert fyrir sýningu Katrínar í Metropolitan-listasafninu í New York árið 2010. Það var annað tveggja verka sem byggðu á 18. aldar endurgerðum herbergjum sem eru til sýnis í safninu sjálfu. Hitt verkið, sem áhorfendur geta séð líkan af á sýningunni, var flókin samsetning veggja, glugga og dyra þar skalinn var allt frá því að vera yfirstærð yfir í að vera í dúkkustærð. Þar sá áhorfandinn sjálfan sig í síbreytilegu hlutfalli við umhverfið sem hann var í (nokkuð sem jafnframt vekur upp minningar um hvernig Lísa tók stöðugum stærðarbreytingum í sögu Carrolls). Í innsetningunni sem sýnd er í Hafnarhúsinu gerði Katrín eftirmynd af herbergi úr safninu sem hún minnkaði niður í 85% af upphaflegri stærð sinni.

Líkan af innsetningu Katrínar Sigurðardóttur Boiserie sem var sett upp í Metropolitan-safninu í New York árið 2010. Ljósm: Hlynur Helgason
Líkan af innsetningu Katrínar Sigurðardóttur Boiserie sem var sett upp í Metropolitan-safninu í New York árið 2010. Ljósm: Hlynur Helgason
Eftirmyndin var öll máluð hvít og henni lokað fyrir áhorfendum, en opnuð til sýnis með því að skipta speglunum sem voru í upphaflega herberginu út fyrir tvíhliða eftirlitsspegla. Fyrir vikið sjá áhorfendur inn í herbergið utan frá, án þess að speglast sjálfir í verkinu, þá mynd sem sá sem staddur væri í herberginu sæi endalaust með sinni spegilmynd í miðjunni. Verkið sýnir þessvegna aðferðina sem á 18. öldinni staðsetti manninn í miðdepli speglunarinnar, en hér hefur Katrín í reynd fjarlægt manninn sjálfan úr myndinni. Handan spegilsins verður því til órætt rými, tómt og án mannlegrar tilvistar, þar sem allt getur umsnúist og engin viðmið eru til staðar til að styðast við.

Hitt verkið „í fullri stærð“ á sýningunni er án titils, en er í reynd smá-útgáfa af High Planes myndverkaröð Katrínar. Katrín hefur gert High Planes í mörgum útgáfum; öll byggja þau á því að áhorfandinn þarf að stinga höfðinu innan í gat á plötu til að sjá verkið. Oftast er gatið í loftinu svo áhorfandinn þarf að ganga upp stiga til að sjá myndina. Í útgáfunni sem er til sýnis í Hafnarhúsinu þarf áhorfandinn hinsvegar að skríða upp á stóran kassa til að stinga höfðinu ofan í gat á honum. Þar blasir við módelsmíð sem sýnir bláleit fjöll rísa upp úr fletinum; áhorfandanum finnst eins og hann horfi yfir eyjaklasa úr lofti. Verk þetta er einskonar viðauki á hvolfi við margar útgáfur af þessu verki sem fyrst var sýnt í Galleríi Sævars Karls í Bankastræti árið 2001.

Hugras_KatrinSig2015_mynd3
Innsetning Katrínar Sigurðardóttur Án titils frá 2007 séð utan frá, en verkið er tilbrigði við High Planes myndröð Katrínar. LJósm: Hlynur Helgason

Lesanda þarf ekki að koma á óvart að hægt er að tengja verkið við Lísu í Undralandi og það sem fyrir hana kom. Fyrri bók Lewis Carolls um stúlkuna hefst, eins og flestir kannast við, á því að Lísa eltir kanínu ofan í kanínuholu. Þar ofaní er allt með ólíkindum; heimurinn og líkami Lísu tekur sífelldum breytingum. Í flestum High Planes verkum Katrínar byggir þátttaka áhorfandans á því að fara upp í stiga, stinga höfðinu upp um gat í loftinu og horfa yfir eyjaklasann þegar upp er komið. Í samhengi Lísu í Undralandi þá minna þau á kaflann þar sem hún beit í svepp fiðrildalirfunnar og stækkaði svo ógurlega að höfuð hennar náði upp fyrir skýin. Í verkinu í Hafnarhúsinu, þessum viðauka við High Planes, leiðir Katrín áhorfandann hinsvegar ofan í kanínuholuna þar sem yfirsýnin birtist honum á hvolfi, umsnúin í raun og veru, en rétt eins og áhorfandinn sér hana.

Hugras_KatrinSig2015_mynd5
Séð yfir salinn í Hafnarhúsinu sem hýsir líkön af innsetningum Katrínar. Ljósm: Hlynur Helgason

Í listamannaspjalli á sýningunni sunnudaginn 4. október vitnaði Katrín í Richard Serra sem sagði að líkan að verki yrði ekki raunhæft nema það væri í fullri stærð. Það á vissulega við um líkönin sem eru þriðji hluti sýningar Katrínar í Hafnarhúsinu. Það er algengt að Katrín leiki sér í verkum sínum með fjölbreytt blæbrigði stærðar og hlutfalla. Þar lendir áhorfandinn oft í því að að horfa yfir veröld í leikfanga- eða dúkkuhúsastærð sem hann er risavaxinn í samanburði við. Í sumum verkanna eru hlutföllin breytileg, eins og í stærri rýmisverkunum, þannig að áhorfandinn er ýmist of stór eða of lítill í hlutfalli við verkið.

Hugras_KatrinSig2015_mynd7
Líkan af innsetningu Katrínar Sigurðardóttur Án titils sem sýnd var í Hafnarhúsinu árið 2004. Ljósm: Hlynur Helgason

Líkönin af verkum Katrínar gefa áhorfandanum nokkuð vel til kynna hvernig verkin eru samsett í heild og hvernig þau eru hugsuð inn í rýmin sem þau voru gerð fyrir. Smæð þeirra og oft skissukennd útfærsla gerir það þó að verkum að áhorfandinn á erfitt með að skilja líkamlegt samhengi þeirra. Það er helst að líkanið af veggja-verkinu sem sett var upp í Hafnarhúsinu árið 2004 skiljist; vegna þess að áhorfandinn er sjálfur staddur í rýminu sem verkið var sýnt í getur hann ímyndað sér hlutföll þess og afstöðu út frá líkaninu. Að sama skapi virka fínlega teiknuð smáatriðin í módelinu af Boiserie þannig að áhorfandinn getur betur áttað sig á því hvernig afstaða áhorfanda í verkinu sjálfu og hlutföll hafa breyst í raun og veru. Önnur líkön sem eru til sýnis eru þó áhugaverð að skoða; þótt áhorfandi geti ekki sett sig líkamlega í samband við þessi verk ná þau að sýna vel þá hugsun og aðferð sem liggur að baki stærri innsetningum Katrínar.

Í heildina er upplifun áhorfanda af sýningu Katrínar Sigurðardóttur í Hafnarhúsinu góð. Hún er vissulega sterkust í hápunkti sýningarinnar sem er spegilrýmið Skrautþiljur Það er afar ánægjulegt að hægt hafi verið að fá þetta meginverk Katrínar hingað til lands. Katrín hefur haldið margar áhugaverðar sýningar víða um lönd en því miður hafa fæst verkin ratað hingað. Þessi sýning er því kærkomið tækifæri fyrir íslenska áhorfendur að berja verk hennar augum. Umsnúna kassaútgáfan af High Planes kemur einnig skemmtilega á óvart, þótt hún sé ekki eins stórbrotin og útgáfur verksins í fullri stærð. Líkönin sem fylgja með, af helstu innsetningum Katrínar, eru einnig áhugaverð fyrir fólk að skoða; þótt þar sé ekki um fullbúin verk að ræða eru þau góður viðauki við meginverkin, þokkaleg leið til að kynna þessi verk Katrínar fyrir íslenskum áhorfendum sem ekki hafa átt þess kost að sjá þau í raun og veru.[/x_text]

Um höfundinn
Hlynur Helgason

Hlynur Helgason

Hlynur Helgason er myndlistarmaður og listfræðingur. Hann er lektor í listfræði við Íslensku­ og menningardeild Háskóla Íslands og stundar m.a. rannsóknir á samhengi íslenskrar samtímalistar, áhrifum hennar og stöðu í fjölþjóðlegu samhengi. Sjá nánar

[x_text][fblike][/x_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

118000646

118000647

118000648

118000649

118000650

118000651

118000652

118000653

118000654

118000655

118000656

118000657

118000658

118000659

118000660

118000661

118000662

118000663

118000664

118000665

118000666

118000667

118000668

118000669

118000670

118000671

118000672

118000673

118000674

118000675

118000676

118000677

118000678

118000679

118000680

118000681

118000682

118000683

118000684

118000685

118000686

118000687

118000688

118000689

118000690

118000691

118000692

118000693

118000694

118000695

118000696

118000697

118000698

118000699

118000700

118000701

118000702

118000703

118000704

118000705

118000706

118000707

118000708

118000709

118000710

118000711

118000712

118000713

118000714

118000715

118000716

118000717

118000718

118000719

118000720

128000681

128000682

128000683

128000684

128000685

128000686

128000687

128000688

128000689

128000690

128000691

128000692

128000693

128000694

128000695

128000710

128000711

128000712

128000713

128000714

128000715

128000716

128000717

128000718

128000719

128000720

128000721

128000722

128000723

128000724

128000725

128000726

128000727

128000728

128000729

128000730

128000731

128000732

128000733

128000734

128000735

128000736

128000737

128000738

128000739

128000740

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

138000426

138000427

138000428

138000429

138000430

138000431

138000432

138000433

138000434

138000435

138000431

138000432

138000433

138000434

138000435

138000436

138000437

138000438

138000439

138000440

138000441

138000442

138000443

138000444

138000445

138000446

138000447

138000448

138000449

138000450

138000451

138000452

138000453

138000454

138000455

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

208000361

208000362

208000363

208000364

208000365

208000366

208000367

208000368

208000369

208000370

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

228000051

228000052

228000053

228000054

228000055

228000056

228000057

228000058

228000059

228000060

228000061

228000062

228000063

228000064

228000065

228000066

228000067

228000068

228000069

228000070

228000071

228000072

228000073

228000074

228000075

228000076

228000077

228000078

228000079

228000080

228000081

228000082

228000083

228000084

228000085

238000211

238000212

238000213

238000214

238000215

238000216

238000217

238000218

238000219

238000220

238000221

238000222

238000223

238000224

238000225

238000226

238000227

238000228

238000229

238000230

news-1701