[container]

Um höfundinn
Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir er prófessor emeríta í íslenskum nútímabókmenntum við Íslensku­- og menningardeild Háskóla Íslands. Sérsvið hennar er íslensk bókmenntasaga, kvennabókmenntir, barnabókmenntir, kynjafræði og sálgreining. Sjá nánar

 Átjánda september verður þjóðaratkvæðagreiðsla í Skotlandi um sjálfstæði þjóðarinnar og sambandsslit við Stóra-Bretland. Þetta hápólititíska og mikilvæga mál var alls staðar nálægt manni, beint og óbeint, á Fringe-hátíðinni í Edinborg í ágúst.  Silja Aðalsteinsdóttir skrifaði króníku um hátíðina og nefndi þar Spoiling, einþáttunginn um hinn fyndna, herskáa og kasólétta utanríkisráðherra skosku stjórnarinnar. Ráðherrann neitar að flytja ræðuna sem flokkurinn hefur skrifað fyrir hana en er ekki búin að skrifa sína eigin ræðu sem hún á að halda á fundi með enska utanríkisráðherranum þennan dag. Hún er samt búin að ákveða að biðjast heils hugar afsökunar á þeim þætti sem Skotland hafi leikið í breskri heimsvaldastefnu, þrælahaldi, alheims-fjármálakreppu og ýmsu öðru ófélegu. Það var alveg ljóst hvað hún hefði kosið á fimmtudaginn.

Leikrit fyrir okkar tíma, okkar líf

Upp á síðkastið hefur verið deilt nokkuð um íslenska leikritun og/eða leikgerðir, heimóttarskap og þjóðernishyggju sem sé af hinu illa. Um það langar mig til að segja tvennt: það fást ódýr vinsældastig fyrir að blása upp meintar og algjörar andstæður milli erlendrar og innlendrar listsköpunar. Eins og íslensk list væri til án samræðu við útlönd? Eins og einhver beinlínis þrái að læsa sig inni og kasta lyklinum út  um gluggann? Að sjálfsögðu viljum við fylgjast með því sem best er skrifað og leikið í erlendum leikhúsum, sýna það og túlka hérlendis. EN við viljum líka að íslenskir listamenn skrifi, yrki, syngi og túlki okkar veruleika og okkar líf og sögu hér í þessu landi – við viljum sjá þá list og deila um hana.  Það þarf ekki að skrifa leiðara í dagblöðin um það.

Hitt sem ég vildi segja er að aðlaganir og leikgerðir eru mjög mikilvægur hluti af nútíma listsköpun en þær koma  ekki í staðinn fyrir nýskrifuð leikrit. Það þarf að rækta ný leikskáld, ekki bara leyfa þeim að sýna hvað þau eru flink, einu sinni eða tvisvar sinnum, heldur gefa þeim tækifæri til að þroska listform sitt svo að þau geti staðið undir stöðugt meiri kröfum, sjálfra sín og áhorfenda. Það er vissulega ekki ókeypis fyrir ríkissjóð en öfugt við margt annað sem greitt er úr honum væri þeim peningum skattborgara vel varið. Það fannst Skotum þegar þeir réðu skoska leikskáldið Rona Munro til að skrifa þrjú, sjálfstæð en samstæð, leikrit fyrir Edinborgarhátíðina um fyrstu konunga Stewart konungaættarinnar. Sýningin í heild tekur níu tíma, hvert leikrit er tveir og hálfur tími og listrænn metnaður gífurlegur á öllum sviðum. Í inngangi að leikritunum segir höfundur að hún hefði aldrei getað skrifað þessi verk án þeirra tækifæra sem hún hefur fengið til  að þroskast sem leikskáld.

Sverðið

Leikritin voru samstarfsverkefni Skoska þjóðleikhússins og Þjóðleikhúss Stóra-Bretlands í London. Þau voru frumsýnd í Edinborg en flytjast til London 11. september. Á stóra sviði Þjóðleikhússins í Edinborg blasti við sláandi leikmynd Jon Bausor, dökk og mikilúðleg. Vinstra megin á baksviðinu eru pallar og brú yfir sviðið með hásæti konungs uppi fyrir miðju sviði. Á pöllunum, í leikmyndinni,  situr hluti áhorfenda og myndar skoskt þing en hægra megin  á sviðinu stendur risavaxið sverð upp úr sviðinu, tákn  valds og ofbeldis,  en undir þeim formerkjum var saga Jakobanna þriggja sem sagt var frá. Sviðsbúnaður var annars léttur enda dansað og barist mikið. Búningar Bausor voru einfaldir, stílfærðir og blönduðu  tímabilum og  hefðum. Hann er ótrúlegur snillingur og það sama má segja um leikstjórann, Laurie Sansom, sem hélt athygli áhorfenda allan tímann með hraða, samhæfingu og innsæi.

Konungasögur

Við sáum fyrsta leikritið: The Key Will Keep the Lock (Lásar skulu halda) sem segir frá James I sem átti að forða í skjól til Frakklands eftir að bræður hans höfðu verið drepnir, hann var 13 ára.  Bretar stálu honum hins vegar og héldu sem gísl í 18 ár. Frændur hans Stewartarnir sáu ekki ástæðu til að leysa hann út en hinn orðljóti Henry V er í leikritinu látinn setja James yfir Skota.  Þar voru frændur hans á fleti fyrir en eftir eldræðu gegn Englendingum sem Munro leggur James I í munn  lúta þeir honum og krýna árið 1424.  En það kraumar undir í þessu ósamheldna höfðingjaveldi og vald konungs er óstöðugt. Kóngur lætur taka hættulegustu frændur sína af lífi og innleiðir harða stjórn sem beinist að því að efla konungdæmið, lög og reglu. Hann hefur gifst enskri jarlsdóttur og það var hryllileg sena þegar hann afmeyjaði hana á brúðkaupsnóttinni að hirðinni áhorfandi eins og hefð var.

Leikaraval

Duff og Gråböl
Gråböl og Duff. Tvær fyrrverandi löggur en núverandi skoskar aðalskonur.

Stúlkan verður fremur vansæl í þessu harða landi, umkringd óvinum. Verst henni er Annabella, eiginkona Murdac Stewart, þess sem sat í valdastól á undan James. Hún hefur alið syni sína upp til að stjórna löndum og er hörkutól. Hún var leikin af krafti af Blythe Duff, sem Íslendingar þekkja betur sem Jackie í Taggart þáttunum. Fleiri stórstjörnur mönnuðu þessa sýningu, James McArdle lék James I, Andrew Rothney lék James II og Jamie Sives lék James III. Þeir eru allir ungir, ýmist á hraðri siglingu sem sviðs- og kvikmyndaleikarar, Sives er kannski þekktastur þeirra. Á móti honum lék Sofie Gråbøl úr Forbrydelsen í þriðja leikritinu, The True Mirror (Spegill sannleikans) sem við náðum að sjá áður en við fórum út á flugvöll.

Hinsegin kóngur og hörkudrottning

Hinn raunverulegi James III ríkti frá 1460-1488 og giftist danskri prinsessu, Margréti. Það þarf sterkan karakter til að leika hana og Sofie Gråbøl gerði það glæsilega. Margrét er mjög skotin í manni sínum þó að hún þoli hann ekki og alls ekki að hann tekur mið-soninn fram yfir frumburðinn og ætlar að gera hann að ríkisarfa.  Þau James skilja í leikritinu vegna þess að hann fer yfir strikið, verður leiður á þinginu og lýðræðinu, telur sér ekki skylt að hlusta á aðra en vini sína sem eru ekki af betri endanum og skarast þar skosk konungasaga og Sopranos, sagði einhver. Kóngurinn verður æ sérvitrari og mikilmennskubrjálaðri og þegar hann segir þinginu að fara til fjandans og stingur af með elskhuga sínum tekur drottningin völdin til að kaupa elsta syni sínum nokkur ár í viðbót til að þroskast. Við nöldrandi þingið segir hún: „I´m Danish, you ignorant, abusive lump of manure! I come from a rational nation with reasonable people. You know the problem with you lot? You´ve got fuck-all except attitude.“ (það er allt í skralli hjá ykkur nema hrokinn/stælarnir). Spennustigið í leikhúsinu var nánast áþreifanlegt í þessu uppgjöri og fagnaðarlæti brutust út að því loknu.  Boðskapur verksins var skýr: Átök og áhætta eru óumflýjanleg en menn verða að taka ábyrgð á tilveru sinni, enginn gerir það fyrir mann. Þetta voru skilaboð konungaleikritanna til Skota og þjóðaratkvæðagreiðslunnar.

Deila

[/container]


Comments

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

content-0312

Mix Parlay


yakinjp

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

Togel Online Resmi

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

news

slot mahjong ways

judi bola online

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

ayowin

mahjong ways

judi bola online

5066

5067

5068

5069

5070

8076

8077

8078

8079

8080

8081

8082

8083

8084

8085

8801

8802

8803

8804

8805

8806

8807

8808

8809

8810

8811

8812

8813

8814

8815

8881

8882

8883

8884

8885

8886

8887

8888

8889

8890

8891

8892

8893

8894

8895

8941

8942

8943

8944

8945

8946

8947

8948

8949

8950

8951

8952

8953

8954

8955

8896

8897

8898

8899

8900

5081

5082

5083

5084

5085

8041

8042

8043

8044

8045

8046

8047

8048

8049

8050

8821

8822

8823

8824

8825

8826

8827

8828

8829

8830

8831

8832

8833

8834

8835

8901

8902

8903

8904

8905

8906

8907

8908

8909

8910

8911

8912

8913

8914

8915

8956

8957

8958

8959

8960

8961

8962

8963

8964

8965

8966

8967

8968

8969

8970

5056

5057

5058

5059

5060

5086

5087

5088

5089

5090

5091

5092

5093

5094

5095

8011

8012

8013

8014

8015

8016

8017

8018

8019

8020

8021

8022

8023

8024

8025

8026

8027

8028

8029

8030

8841

8842

8843

8844

8845

8916

8917

8918

8919

8920

8921

8922

8923

8924

8925

8926

8927

8928

8929

8930

8971

8972

8973

8974

8975

8976

8977

8978

8979

8980

8981

8982

8983

8984

8985

8031

8032

8033

8034

8035

8036

8037

8038

8039

8040

8846

8847

8848

8849

8850

8931

8932

8933

8934

8935

8936

8937

8938

8939

8940

8986

8987

8988

8989

8990

8991

8992

8993

8994

8995

8851

8852

8853

8854

8855

8856

8857

8858

8859

8860

8861

8862

8863

8864

8865

8866

8867

8868

8869

8870

8871

8872

8873

8874

8875

8876

8877

8878

8879

8880

8996

8997

8998

8999

9000

content-0312
news-0312

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

judi bola online

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

ayowin

mahjong ways

judi bola online

5066

5067

5068

5069

5070

8076

8077

8078

8079

8080

8081

8082

8083

8084

8085

8801

8802

8803

8804

8805

8806

8807

8808

8809

8810

8811

8812

8813

8814

8815

8881

8882

8883

8884

8885

8886

8887

8888

8889

8890

8891

8892

8893

8894

8895

8941

8942

8943

8944

8945

8946

8947

8948

8949

8950

8951

8952

8953

8954

8955

8896

8897

8898

8899

8900

5081

5082

5083

5084

5085

8041

8042

8043

8044

8045

8046

8047

8048

8049

8050

8821

8822

8823

8824

8825

8826

8827

8828

8829

8830

8831

8832

8833

8834

8835

8901

8902

8903

8904

8905

8906

8907

8908

8909

8910

8911

8912

8913

8914

8915

8956

8957

8958

8959

8960

8961

8962

8963

8964

8965

8966

8967

8968

8969

8970

5056

5057

5058

5059

5060

5086

5087

5088

5089

5090

5091

5092

5093

5094

5095

8011

8012

8013

8014

8015

8016

8017

8018

8019

8020

8021

8022

8023

8024

8025

8026

8027

8028

8029

8030

8841

8842

8843

8844

8845

8916

8917

8918

8919

8920

8921

8922

8923

8924

8925

8926

8927

8928

8929

8930

8971

8972

8973

8974

8975

8976

8977

8978

8979

8980

8981

8982

8983

8984

8985

8031

8032

8033

8034

8035

8036

8037

8038

8039

8040

8846

8847

8848

8849

8850

8931

8932

8933

8934

8935

8936

8937

8938

8939

8940

8986

8987

8988

8989

8990

8991

8992

8993

8994

8995

8851

8852

8853

8854

8855

8856

8857

8858

8859

8860

8861

8862

8863

8864

8865

8866

8867

8868

8869

8870

8871

8872

8873

8874

8875

8876

8877

8878

8879

8880

8996

8997

8998

8999

9000

news-0312