Hlustið kæru vinir ég skal sögu ykkur segja….

[cs_text]Sagan sem Astrid Lindgren sagði af Emil í Kattholti (1963) er sennilega allra vinsælasta bók hennar enda ómótstæðilega fjörug og falleg.

Fjörið og fegurðin skila sér vel í sýningu Borgarleikhússins á söngleiknum um Emil í leikstjórn Þórunnar Örnu Kristjánsdóttur. Þetta er mannmörg sýning sem þarfnast útsjónarsemi og hugmyndaauðgi. Kattholtsbænum er snúið út og inn. Eldhúsið er fullt af skemmtilegum smáatriðum og þar sefur vinnukonan Lína í rúmi sem hægt er að draga saman á daginn. Það er Eva Signý Berger sem á heiðurinn af hönnun leikmyndarinnar. Breski dansahöfundurinn Lee Proud semur dansana. Hann virðist orðinn fastur dansahöfundur Borgarleikhússins og leikarar Borgarleikhússins geta svo sannarlega dansað og sungið!

Það voru samt börnin sem allra augu beindust að í þetta skiptið. Þau stóðu sig afskaplega vel!  Á sýningunni sem við sáum á laugardaginn lék Þórunn Obba Gunnarsdóttir hlutverk Ídu og Gunnar Erik Snorrason hlutverk Emils. Um börnin í sýningunni segir Þórunn Arna leikstjóri í viðtali: „Þau eru 8, 9 og 10 ára og eru á sviðinu nánast allan tímann, þrjú þeirra standa á sviði í fyrsta skipti, einn er með aðeins meiri reynslu. Þetta eru burðarrullurnar og þau gefa þeim fullorðnu ekkert eftir.“

Ída, systir Emils, er hugrökk lítil stúlka og tekur þátt í furðulegum uppátækjum bróðurins af lífi og sál. Þegar Alfred spyr Emil, fimm ára gamlan, hvort fyrirætlanir hans þá stundina séu ekki prakkarastrik segir hann: “Það veit ég aldrei fyrr en eftir á”. Þetta finnst mér afar viturlega mælt hjá Emil. Og þetta lífsviðhorf gerir líf hans og allra hans nánustu að mikilli óvissuferð. Faðir hans, Anton Sveinsson, er ekki sérlega hrifinn af þessari heimspeki Emils og ég heyrði því fleygt þegar fréttist að nú ætti að setja Emil á svið að það væri ótækt, þessi saga Lindgren væri alvarlega á skjön við uppeldisfræði nútímans af því að faðirinn beitti drenginn stöðugu ofbeldi og læsti hann inni við hvert tækifæri.

Þetta er hins vegar misskilningur. Það er næstum alltaf móðirin sem læsir soninn inni í smiðjukofanum til að forða honum frá reiði föðurins. Anton er nefnilega eins hvatvís og sonurinn og reiðist ógurlega þegar sláturhræru er hellt yfir höfuð hans, músagildra sett við berar tær hans o.s.frv. En þó að hann missi gjarnan stjórn á sér þegar eitthvað fer úr böndunum þykir honum afar vænt um drenginn og það kom skýrt fram í leik Bergs Þórs Ingólfssonar sem lék föðurinn. Ester Thalía Casey lék móðurina, hlýja og trausta, hún er miðja þessa stóra heimilis og kjölfesta og sú eina sem er sannfærð um að verði maður úr Emil. Alfred vinnumaður, besti vinur Emils, er leikinn af Sigurði Þór Óskarssyni og hann sýndi Alfred í nýju ljósi, því bókin lýsir honum sem hálfgerðum einfeldningi en þannig er hann ekki á sviðinu. Samband þeirra Emils nær hámarki þegar Emil bjargar lífi hans með því að koma honum til læknis í blindbyl. Það var áhrifamikil sena.

Senuþjófur var Sólveig Arnardóttir sem lék meðal annars hina illu og heimsku Ráðsku á fátækrahælinu. Gervi hennar var sannkallað nornargervi og hún hafði sterk áhrif á yngra barnið (4 ára) sem var með okkur.  Og það verður líka að nefna Sigrúnu Eddu sem lék Títuberja Mæju af list og lá við að hún spólaði eins og teiknimyndafígúra þegar hún lagði af stað til að segja sveitinni nýjustu sögurnar af Emil.

Þórarinn Eldjárn þýðir söngtextana og fer það afskaplega vel úr hendi eins og allt annað sem hann gerir.

Böðvar Guðmundsson þýddi textana við þennan söngleik árið 1982. Við sem áttum lítil börn á áttunda og níunda áratug aldarinnar sem leið gátum þakkað linnulaust fyrir allar þær góðu barnaplötur sem búnar voru til þá fyrir hippabörn. Tónlistin var skemmtileg og textarnir þannig að gaman var að læra þá og syngja.

Agnar Már Magnússon sá um tónlistarstjórn, tónlistarútsetningar hans eru fallegar og hljómsveitin mjög góð en hún var staðsett í stúkunni vinstra megin við sviðið, allir leikararnir voru með hljóðnema og fyrir minn smekk var hljóðstyrkurinn umtalsvert of hár, ég var hreinlega lúin eftir sýninguna. Þetta sama var gert í Skugga Sveini, sýningu Leikfélags Akureyrar sem ég sá með fríðu föruneyti um helgina þar á undan og meira að segja í barnasýningunni Umskiptingur sem ég sá á sunnudag og leikin var í hinu litla fallega rými kúlunnar. Börn heyra mun betur en fullorðnir svo að ég veit ekki fyrir hvern þetta er gert.

Sýningin er engu að síður gríðar fjörug og falleg eins og sagt var í upphafi.[/cs_text]

Um höfundinn
Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir er prófessor emeríta í íslenskum nútímabókmenntum við Íslensku­- og menningardeild Háskóla Íslands. Sérsvið hennar er íslensk bókmenntasaga, kvennabókmenntir, barnabókmenntir, kynjafræði og sálgreining. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1412

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

judi bola online

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

ayowin

mahjong ways

judi bola online

mahjong ways 2

JUDI BOLA ONLINE

maujp

maujp

20021

20022

20023

20024

20025

20026

20027

20028

20029

20030

20031

20032

20033

20034

20035

30021

30022

30023

30024

30025

30026

30027

30028

30029

30030

30031

30032

30033

30034

30035

80001

80002

80003

80004

80005

80006

80007

80008

80009

80010

80011

80012

80013

80014

80015

80016

80017

80018

80019

80020

80021

80022

80023

80024

80025

80026

80027

80028

80029

80030

80136

80137

80138

80139

80140

80211

80212

80213

80214

80215

80216

80217

80218

80219

80220

9041

9042

9043

9044

9045

80031

80032

80033

80034

80035

80036

80037

80038

80039

80040

80041

80042

80043

80044

80045

80141

80142

80143

80144

80145

80146

80147

80148

80149

80150

80151

80152

80153

80154

80155

30046

30047

30048

30049

30050

30051

30052

30053

30054

30055

30056

30057

30058

30059

30060

80066

80067

80068

80069

80070

80071

80072

80073

80074

80075

80076

80077

80078

80079

80080

80081

80082

80083

80084

80085

80086

80087

80088

80089

80090

80091

80092

80093

80094

80095

30081

30082

30083

30084

30085

30086

30087

30088

30089

30090

80096

80097

80098

80099

80100

80101

80102

80103

80104

80105

80106

80107

80108

80109

80110

80111

80112

80113

80114

80115

80156

80157

80158

80159

80160

80161

80162

80163

80164

80165

80166

80167

80168

80169

80170

80116

80117

80118

80119

80120

80121

80122

80123

80124

80125

80126

80127

80128

80129

80130

80131

80132

80133

80134

80135

80171

80172

80173

80174

80175

80176

80177

80178

80179

80180

80181

80182

80183

80184

80185

80186

80187

80188

80189

80190

80191

80192

80193

80194

80195

80196

80197

80198

80199

80200

80201

80202

80203

80204

80205

80206

80207

80208

80209

80210

news-1412