„Geðveikur maður í geðveikum heimi er bara heill á geði“

[cs_text]Vertu úlfur er einleikur byggður á samnefndri sjálfsævisögulegri frásögn Héðins Unnsteinssonar sem var frumsýndur 22. janúar 2021 í Þjóðleikhúsinu. Í bók sinni segir Héðinn frá ferðalagi manns í heimi stjórnleysis og baráttu hans við fordóma samfélagsins og kerfið sem virðist ekki hafa úrbætur fyrir fólk eins og hann. Héðinn hefur látið til sín taka á sviði geðheilbrigðismála í tvo áratugi, meðal annars sem sérfræðingur á vegum stjórnvalda og hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni. Það var Unnur Ösp Stefánsdóttir sem vann leikverkið upp úr frásögn Héðins, en hún leikstýrir einnig verkinu, og fer eiginmaður hennar, Björn Thors, með eina hlutverk sýningarinnar. Sýningin hlaut sjö Grímuverðlaun, meðal annars sem sýning ársins og leikari ársins í aðalhlutverki.

„Vertu úlfur: wargus esto“

Leikritið fjallar um líf manns með geðhvarfasýki, móttökur samfélagsins og baráttu hans við kerfið. Sýningin varpar fram mikilvægum spurningum um framkomu samfélagsins við fólk sem glímir við geðveiki, mannréttindabrot og frelsissviptingu. Sagan spannar um tvo áratugi og segir frá upplifun persónunnar af þunglyndi, maníu, aukaverkun geðlyfja, breytta framkomu vina og vandamanna við greiningu og margt fleira. Hluti af frásögninni gerist á því herrans ári 2008, rétt fyrir bankahrunið og í góðærinu. Þessu er líkt við að öll þjóðin sé í maníu og að þá eigi eftirfarandi setning úr leikverkinu vel við: „Geðveikur maður í geðveikum heimi er bara heill á geði“.

Björn Thors fer sem áður segir með hlutverk nafnlausu aðalpersónunnar. Leikur hans er magnaður og tekst honum að miðla víðum tilfinningaskala til áhorfenda, sama hvort um er að ræða vonleysi, reiði, gleði eða æði. Sem áhorfandi í salnum upplifði ég allar þessar tilfinningar með honum og tók eftir viðbrögðum annarra áhorfenda sem hlógu dátt á köflum og þerruðu tár á öðrum stöðum. Frásögn mannsins er að hluta til beint ávarp til áhorfenda og en að öðru leyti endurskapar hann ákveðin augnablik í lífi sínu. Hann veður úr einu í annað á sama tíma og hann æðir um sviðið þegar manían ræður öllu, en stendur niðurlútur og í hnipri þegar þunglyndið tekur völd. Birni tókst vel að mynda samband við áhorfendur og bregðast við því sem gerðist í salnum án þess að rjúfa karakter, svo sem þegar einhver hnerraði hátt þegar það var algjör þögn. Björn skaut þá inn einu „Guð hjálpi þér“ áður en hann hélt áfram með línur sínar. Hann fléttaði samtímanum inn í sýninguna og frásögn sína, til að mynda alþingiskosningarnar sem fóru fram daginn áður en tiltekin sýning átti sér stað, án þess að rjúfa flæðið í frásögninni.

„Karmað vinnur alltaf allt og alla“

Tónlistin og lýsingin í sýningunni spila vel saman og eru mikilvægur þáttur í að koma tilfinningum mannsins áleiðis. Að sitja í salnum og horfa á manneskjuna á sviðinu í svarthvítu er tækni sem er ofar mínum skilningi. Þeir Björn Bergsteinn Guðmundsson og Halldór Örn Óskarsson fara á kostum með lýsinguna sem hefur mikil áhrif á skynjun áhorfenda. Lýsing er hins vegar ekki fyrir viðkvæma þar sem blikkljós snúa að áhorfendum og eru í gangi í nokkrar mínútur en þau skila tilætluðum árangri; áhorfandinn upplifir óþægindi og ringulreið líkt og maðurinn á sviðinu.

Sama má segja um tónlist og hljóðhönnun sýningarinnar sem magnar upp skynjun áhorfenda sem er ekki áhrifaminni en lýsingin. Emilíana Torrini er höfundur textans við titillagið, en lagið samdi hún ásamt Merkéta Irglová, sem og textans Kötturinn vill inn við lag Prins Póló. Lagið Vertu úlfur fjallar um þunglyndi mannsins á meðan Kötturinn vill inn fjallar um maníuna, en það sést greinilega á texta laganna auk þess sem takturinn og hljómurinn miðla því áfram. Önnur tónlist í verkinu er í höndum Valgeirs Sigurðssonar og hljóðhönnun í höndum Elvars Geirs Sævarssonar, sem og öll önnur hljóð; svo sem útvarpssendingar og tónlist í bakgrunni. Öll þessi hljóð og lög setja tóninn fyrir verkið og ýta undir áhrif leiksins. Ásamt lýsingunni ýkir hljóðið þær tilfinningarnar sem túlkaðar eru hverju sinni.

Á flestum sýningum sem ég hef séð á stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu, og líka í Borgarleikhúsinu, hefur sviðsmyndin verið stór og flókin. Hér er staðan þó önnur en sviðsmyndin er minimalísk, dökk yfirlitum og hrá svo öll stjórntæki sviðsins sjást. Snúningssviðið er klætt plastdúk, það glyttir í brunaslöngu aftast, ljósrofar og kaðlar eru sýnilegir sem og útgangar sviðsins. Þrátt fyrir að standa einn á stóru og tómlegu sviði nýtir Björn það vel undir leiðsögn Hrafnhildar Hagalín Guðmundsdóttur dramatúrgs. Hann hleypur t.a.m. um það og á plastdúkuðu snúningssviðinu flæðir vatn úr brunaslöngu, en Björn ýmist stendur undir bununni eða veður í vatninu. Það er eitthvað við þessa hráu sviðsmynd sem heillar mig og passar vel inn í þessa frásögn um einmanaleika og innri baráttu.

„Ég fékk kvef, ég er ekki kvef“

Ein mikilvægasta spurning verksins er hvenær fólk sem hefur verið greint með einhvers konar geðsjúkdóm hætti að vera sjúklingur. Til að setja það í samhengi er notast við samlíkingu við kvef: „Ég er ekki kvef, ég fékk kvef“. Af hverju fá geðsjúkdómar að skilgreina fólk á meðan líkamlegir kvillar gera það ekki? Á heildina litið er þetta mjög átakanlegt leikrit með erfiðri sögu, en það inniheldur mikilvægar spurningar sem fá áhorfendur til þess að líta á upplifun einstaklinga með geðsjúkdóma í samfélagi, sem vill ekkert með þá hafa, í öðru ljósi. Sjálf fór ég í gegnum allan tilfinningaskalann á sýningunni; upplifði sorg, leiða, vonbrigði, gleði og sátt.

Aðrir áhorfendur voru jafn agndofa og ég því þegar Björn gekk út af sviðinu og ljósin voru slökkt sátum við öll kyrr í um tvær mínútur uns einhver áttaði sig loks á því að sýningunni væri lokið og byrjaði að klappa. Eftir þessa sýningu dugði greinilega ekkert minna en standandi lófatak því áhorfendur stóðu hver á fætur öðrum í uppklappinu og ýlfruðu eins og úlfar með Birni. Skemmtileg og áhrifarík sýning sem ég hvet alla sem geta til þess að sjá.[/cs_text]

Um höfundinn
Selma Dís Hauksdóttir

Selma Dís Hauksdóttir

Selma Dís Hauksdóttir er meistaranemi í þýðingafræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands og hefur lokið BA gráðu í þýsku frá Mála- og menningardeild.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1112

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

judi bola online

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

ayowin

mahjong ways

judi bola online

mahjong ways 2

JUDI BOLA ONLINE

10221

10222

10223

10224

10225

10226

10227

10228

10229

10230

11000

11001

11002

11003

11004

11005

11006

11007

11008

11009

12001

12002

12003

12004

12005

12006

12007

12008

12009

12010

20001

20002

20003

20004

20005

20006

20007

20008

20009

20010

10231

10232

10233

10234

10235

10236

10237

10238

10239

10240

11010

11011

11012

11013

11014

11015

11016

11017

11018

11019

12011

12012

12013

12014

12015

12016

12017

12018

12019

12020

20011

20012

20013

20014

20015

20016

20017

20018

20019

20020

10126

10127

10128

10129

10130

10206

10207

10208

10209

10210

10211

10212

10213

10214

10215

10216

10217

10218

10219

10220

11020

11021

11022

11023

11024

11025

11026

11027

11028

11029

11030

11031

11032

11033

11034

12021

12022

12023

12024

12025

12026

12027

12028

12029

12030

12031

12032

12033

12034

12035

20021

20022

20023

20024

20025

20026

20027

20028

20029

20030

20031

20032

20033

20034

20035

9041

9042

9043

9044

9045

10196

10197

10198

10199

10200

10201

10202

10203

10204

10205

11035

11036

11037

11038

11039

11040

11041

11042

11043

11044

10146

10147

10148

10149

10150

10181

10182

10183

10184

10185

10186

10187

10188

10189

10190

10191

10192

10193

10194

10195

11045

11046

11047

11048

11049

11050

11051

11052

11053

11054

11055

11056

11057

11058

11059

12036

12037

12038

12039

12040

12041

12042

12043

12044

12045

12046

12047

12048

12049

12050

20036

20037

20038

20039

20040

20041

20042

20043

20044

20045

20046

20047

20048

20049

20050

10161

10162

10163

10164

10165

10166

10167

10168

10169

10170

10171

10172

10173

10174

10175

10176

10177

10178

10179

10180

11060

11061

11062

11063

11064

11065

11066

11067

11068

11069

11070

11071

11072

11073

11074

12051

12052

12053

12054

12055

12056

12057

12058

12059

12060

20051

20052

20053

20054

20055

10086

10087

10088

10089

10090

10091

10092

10093

10094

10095

10096

10097

10098

10099

10100

11000

11001

11002

11003

11004

11005

11006

11007

11008

11009

20056

20057

20058

20059

20060

20061

20062

20063

20064

20065

news-1112