Óður til ástarinnar og leikhússins

[cs_text]Shakespeare verður svo sannarlega ástfanginn á stóra sviði Þjóðleikhússins í leikhússútgáfu kvikmyndarinnar Shakespeare in Love. Myndin sem er frá árinu 1998 er þekkt fyrir að vera í hópi þeirra kvikmynda sem hlutu Óskarsverðlaunin en hefðu að margra mati ekki átt að gera það. Söguþræðinum svipar mjög til Rómeó og Júlíu, en verkið segir frá leikskáldinu Will Shakespeare sem verður ástfangið af hinni ungu Víólu de Lesseps. Hún tilheyrir hins vegar hástéttinni og er auk þess lofuð öðrum manni. Víólu dreymir um að verða leikari en í kvenfjandsamlegu samfélagi 16. aldar mega konur ekki stíga á svið og öll kvenhlutverk eru leikin af körlum. Þvert á boð og bönn finnur Víóla leið til að taka þátt í uppsetningu á verki eftir hið upprennandi skáld og verður þegar fram líða stundir skáldgyðja Shakespeares við samingu leikritsins.

Verkið er tilgáta um hvernig Rómeó og Júlía gæti hafa orðið til og fjallar um skáldskapinn sjálfan, leikhúsið og listina. Draumur Víólu um leikhúsið hrindir af stað ævintýralegri atburðarás þar sem skáld, leikarar og aðrir leikhúsáhugamenn setja líf sitt í hættu fyrir málstað listarinnar og töfra hennar. Uppsetning Þjóðleikhússins á Shakespeare verður ástfanginn er metnaðarfull, kraftmikil og full af húmor og leikgleði. Hún er þó ekki síst full af eldheitum ástum og óði til listarinnar og leikhússins.

Leikgleði

Selma Björnsdóttir leikstýrir Shakespeare verður ástfanginn, en hún hefur ítrekað sýnt hvað í henni býr sem leikstjóri stórra uppsetninga í Þjóðleikhúsinu. Leikhópur sýningarinnar er breiður og þéttur, en því miður hallar áberandi á hlut kvenna í verkinu. Þrjú stór kvenhlutverk eru í sýningunni: Víóla de Lesseps (Lára Jóhanna Jónsdóttir), fóstra hennar (Edda Björgvinsdóttir) og Elísabet drottning (Jóhanna Vigdís Arnardóttir). Leikarar sýningarinnar stóðu sig með prýði þar sem leikgleðin var allsráðandi. Sérstaklega var samspil Will Shakespeare (Aron Már Ólafsson) og Christopher Marlowe (Jóhann G. Jóhannsson) áhrifaríkt. Þá fór Guðjón Davíð Karlsson á kostum sem hinn seinheppni Henslowe, en kómísk vídd verksins vó á móti dramatískum þræði þess. Að lokum verður að minnast á samleik Láru Jóhönnu og Arons Más í hlutverkum ungu elskendanna; neistinn á milli þeirra var sannfærandi, einlægur og eldheitur.

Glæsileg umgjörð

Shakespeare verður ástfanginn ber vott um mikinn metnað af hálfu listrænna stjórnenda sýningarinnar. Lýsingin er áhrifarík og vinnur frá upphafi vel með leikmyndinni og vendingum sýningarinnar. Fíngerðar stjörnur blika í kvöld- og nætursenum og vísa til þeirra stjarna sem eru endurtekið stef í Rómeó og Júlíu Shakespeares. Tónlist sýningarinnar er eftir bræðurna Jón Jónsson og Friðrik Dór, en hún er flutt á sviðinu af GDRN og hljómsveit. Nærvera tónlistarfólksins bætir miklu við sýninguna og fléttast við atburðarásina. Leikmyndin er falleg og þjónar verkinu vel. Hún býður upp á fjölmargar skemmtilegar útfærslur á hringsviðinu en engu er þó ofaukið. Þá er sýningin sannkallað búningadrama þar sem öllu er tjaldað til. Búningarnir vísa til þeirra sem notaðir eru í kvikmyndinni og eru margir augnayndi.

Hallar á hlut kvenna

„Í óði mínum lifir fegurð þín“ kallar Will Shakespeare til Víólu í svalasenu sýningarinnar, en Shakespeare verður ástfanginn er óður til leikhússins sjálfs. Verkið er þó einnig óður til hins þjáða snillings og ómældrar aðdáunar og upphafningar samfélagsins á honum. Eins og fram hefur komið hallar mjög á hlut leikkvenna í sýningunni og líkt og í kvikmyndinni er handritið mjög karllægt. Þó má nefna að með tilkomu tónlistarkonunnar GDRN hefur Þjóðleikhúsið bætt mikilvægri kvenrödd á sviðið, en því miður eru hlutföllin enn mjög skökk. Sú ákvörðun Þjóðleikhússins að setja upp verk með 14 karlkyns leikurum og 6 kvenkyns er vægast sagt vafasöm í ljósi jafnréttisumræðu samtímans. Að öðru leyti er ekki hægt að segja annað en að sýningin hafi heppnast glæsilega.[/cs_text]

Um höfundinn
Kristín Nanna Einarsdóttir

Kristín Nanna Einarsdóttir

Kristín Nanna Einarsdóttir er meistaranemi í ritlist við Háskóla Íslands og ritstjóri Stúdentablaðsins.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000491

118000492

118000493

118000494

118000495

118000496

118000497

118000498

118000499

118000500

118000501

118000502

118000503

118000504

118000505

118000506

118000507

118000508

118000509

118000510

118000511

118000512

118000513

118000514

118000515

118000516

118000517

118000518

118000519

118000520

118000521

118000522

118000523

118000524

118000525

128000546

128000547

128000548

128000549

128000550

128000551

128000552

128000553

128000554

128000555

128000556

128000557

128000558

128000559

128000560

128000561

128000562

128000563

128000564

128000565

128000566

128000567

128000568

128000569

128000570

128000571

128000572

128000573

128000574

128000575

128000576

128000577

128000578

128000579

128000580

128000581

128000582

128000583

128000584

128000585

128000586

128000587

128000588

128000589

128000590

158000326

158000327

158000328

158000329

158000330

158000331

158000332

158000333

158000334

158000335

158000336

158000337

158000338

158000339

158000340

158000341

158000342

158000343

158000344

158000345

178000746

178000747

178000748

178000749

178000750

178000751

178000752

178000753

178000754

178000755

178000756

178000757

178000758

178000759

178000760

178000761

178000762

178000763

178000764

178000765

178000766

178000767

178000768

178000769

178000770

178000771

178000772

178000773

178000774

178000775

208000206

208000207

208000208

208000209

208000210

208000211

208000212

208000213

208000215

208000216

208000218

208000219

208000220

208000221

208000222

208000223

208000224

208000225

208000226

208000227

208000228

208000229

208000230

208000231

208000232

208000233

208000234

208000235

208000236

208000237

208000238

208000239

208000240

208000241

208000242

208000243

208000244

208000245

208000246

208000247

208000248

208000249

208000250

208000251

208000252

208000253

208000254

208000255

208000256

208000257

208000258

208000259

208000260

208000261

208000262

208000263

208000264

208000265

news-1701