Bioshock – Eru leikir list?

[cs_text]Spurningin hvort tölvuleikir geti talist list eða ekki er þrautseigt þrætuepli þegar kemur að því að skera úr um menningarlegt vægi slíkra leikja. Margir hafa þó orðið afhuga slíkum vangaveltum þar sem erfitt hefur reynst að fá botn í umræðuna og talsmenn beggja vegna deilunnar tregir til að láta segja sér til. Önnur ástæða fyrir umræðuleiða snýr þó að gagnrýni á listahugtakið sjálft þar sem margir telja það of illa skilgreint til að hægt sé að nota það til að segja nokkuð marktækt um tölvuleiki. Sama hversu loðið hugtakið getur reynst fylgir því þó óneitanlega ákveðinn virðingarvottur í stærra samhengi menningarrýni. Listin er gjarnan talin yfirstíga snauðan hversdagsleikann og í ritum manna á borð við heimspekinginn Friedrich Schiller hefur listin jafnvel uppeldisfræðilegt hlutverk sem er nauðsynlegt til að koma fólki til manns. Fyrir þeim sem vilja vinna tölvuleikjamiðlinum brautargengi getur slík gæðavottun verið dýrmæt því hún undanskilur þá að vissu leyti undan ásökunum um sljóandi, og jafnvel mannskemmandi áhrif sem afþreyingarmenning er gjarnan sökuð um.

Meðal þeirra sem hafa andmælt listrænu gildi leikja er kvikmyndagagnrýnandinn Roger Ebert. Samkvæmt honum útvista leikir listrænni sköpun um of til spilara á kostnað höfundarætlunar. Að mati Ebert er um er að ræða eðlislægan fylgikvilla spilunar þar sem spilun felur ætíð í sér ákveðið svigrúm fyrir spilara til þess að koma sjálfum sér á framfæri. Því geta þeir ekki gefið sig algjörlega á vald listaverksins. Eftir að Ebert hafði varpað þessari yfirlýsingu fram var hann tregur til að tjá sig frekar um málið en að lokum sagði hann þó að það væri ef til vill full djúpt í árina tekið að halda því fram að leikir gætu „aldrei“ orðið list. Þrátt fyrir að harðorða skoðanir Eberts í garð tölvuleikja hafi mildast ögn í framhaldinu stóð hann þó fastur á því að tölvuleikir myndu seint ná sömu hæðum og klassískar kvikmyndir eða bókmenntaverk og segir að hingað til hafi enginn getað bent á leik sem stenst samanburð við verk hinna miklu skálda, kvikmyndagerðamanna og rithöfunda. Hér er ekki ætlunin að eiga síðasta orðið í deilunni um hvort leikir geti talist list eða ekki. Þess í stað verður athugað hvernig einn útvalinn leikur stígur inn í þessa umræðu og hvað hann hefur að segja um málið.

Einn þekktasti leikurinn sem talsmenn tölvuleikja sem listforms tefla fram er leikurinn Bioshock (2007) í leikstjórn Ken Levine. Um er að ræða fyrstu persónu skotleik sem var hannaður af 2K Boston og gefinn út af 2K Games. Leikurinn var upprunalega gefinn út fyrir Xbox 360 leikjatölvuna en var ári seinna aðgengilegur á Playstation 3. Síðan þá hefur hefur leikurinn verið endurútgefinn í ýmsum myndum og er nú spilanlegur í endurbættri mynd á einkatölvum, Playstation 4 og Xbox One. Til er beint framhald af leiknum sem nefnist einfaldlega Bioshock 2 (2010) ásamt öðru sjálfstæðu innleggi sem nefnist Bioshock Infinite (2013). Spilun leiksins er í anda System shock leikjaraðarinnar, sem Levine ásamt öðrum í fyrirtækinu hafði unnið að áður, og er keimlíkt nafn leiksins vísun í þessa arfleið. Það sem kemur fleirum á óvart er hins vegar bókmenntafræðilegt bakland leiksins þar sem hann sækir innblástur í bækur á borð við verk Aldous Huxley, George Orwell og síðast en ekki síst Ayn Rand. Sögusvið leiksins tekur sérstaklega mið af skáldsögu Ayn Rand, Atlas Shrugged (1957), og er því uppfullur af beinum og óbeinum tilvísunum í verkið.

Í leiknum tekur spilarinn sér bólfestu í persónunni Jack sem lendir í flugslysi árið 1960. Eftir að hafa brotlent út á miðjum rúmsjó og leitað sér skjóls í dularfullum vita uppgötvar hann neðansjávarborgina Rapture á botni hafsins. Brátt kemur í ljós að borgin er hugsmíð frumkvöðulsins Andrew Ryan, nafngiftin vísun í Ayn Rand, og hefur hann líkt og í skáldsögu Rand safnað helstu hugvitsmönnum mannkynsins saman undir einu þaki. Á hafsbotninum hafa þeir undið af sér oki ábyrgðar sinnar við óæðri menn og geta þar með starfað óáreittir eftir eigin sannfæringu og snilligáfu (líkt og ef hinn forngríski Atlas hefði yppt öxlum og leyft himninum að falla af herðum sér). Ólíkt skáldsögu Rand reynist draumurinn þó skammlífur þar sem óheflaður sköpunarkraftur þeirra hefur umbreytt hafsbotninum í helvíti á jörðu. Þrátt fyrir að Jack hafi upprunalega talið sig hafa fundið bjargræði sitt í vitanum kemur því fljótt í ljós að ekki er öll hætta úti enn.

Hvað varðar spilun leiksins er um að ræða fyrstupersónu skotleik með vott af hlutverkaleikjareglum, þar sem spilarinn getur tekið ákvarðanir um hvernig styrkleikar persónunnar þróast. Flest allt í borginni er óvinveitt spilaranum og eru ágreiningar oftast nær leystir með blóðsúthellingum. Í flestum tilvikum þýðir þetta að spilarinn þurfi annað hvort að berja sig eða skjóta sig í gegn um mannmergð vitstola neðasjávarborgara ef ætlunin er að sögunni vindi áfram. Þegar líður á leikinn fjölgar í vopnabúri spilarans, sem eykur á fjölbreytni manndrápanna, en auk vopnanna öðlast spilarinn nýja hæfileika og styrkleika. Það er gert með því að safna ADAM, efni sem getur stökkbreytt stofnfrumum á ótrúlegan hátt, og umbreyta þessu kraftaverkaefni í plasmíð (e. plasmid) eða erfðadrykki (e. gene-tonics). Slíkt gerir spilaranum meðal annars kleift að kalla fram eld eða eldingar með höndunum eða gera öryggisbúnað tímabundið hliðhollan sér. Þrátt fyrir að slíkir eiginleikar geti talist langsóttir og ótrúverðugir þá auka þeir skemmtanagildi leiksins samhliða því að leyfa spilaranum að upplifa máttinn sem varð borginni að falli.

Ferðalagið um neðansjávarborgina Rapture einkennist af óttablendinni aðdáun þar sem spilaranum býðst að verða vitni að hryllingnum og fegurðinni sem fylgir hruni háþróaðrar siðmenningar. Þrátt fyrir hörmulegt ásigkomulag borgarinnar má glögglega sjá vott af fyrri mikilfengleika hennar, ekki aðeins í gegnum tækninýjungar sem nýtast við spilun, heldur einnig byggingar- og myndlist sem tekur mið af art déco hönnunarstefnunni og hefur enn að geyma lokkandi svipmynd betri tíma. Í samanburði við marga aðra skotleiki, sem endurnýta í meiri mæli hluta úr leiknum eða eru á annað borð einsleitir, hefur mikið verið lagt í umhverfið. Söguheimurinn endurspeglar því framvindu sögunnar með skýrum hætti jafnfætis því að spilarinn þræðir sig í gegnum borgarlíkamann. Vissir hlutar borgarinnar endurspegla þar að auki ákveðna hugmyndafræði eins og t.d. spítala- og listahverfið þar sem snillingar á sínu sviði hafa að mati flestra gengið langt út fyrir öll siðsemismörk. Þar má meðal annars finna lýtalækninn Dr. Steinman sem hefur í krafti hæfileika sinna sem skurðlæknir orðið hugfanginn af ósamhverfum líkamshlutföllum. Einnig mætti nefna listamanninn Sander Cohen sem hefur líkt og læknirinn þróað listsköpun sína á kostnað mannlegs lífs – þrátt fyrir að þeir hafi ólík fagsvið er mannslíkaminn strigi þeirra beggja.

Á heildina litið eru staðirnir í Bioshock gjöful mið fyrir túlkun er varðar dramb mannsins og hugmyndafræði sem hefur verið leidd til lykta með hrottalegum afleiðingum. Engu síður væri full mikil fljótfærni fólgin í því að halda því fram að leikurinn sé bein árás á hugmyndafræði Rand. Ástæðan er sú að ólík öfl takast á innan borgarinnar og ekki skýrt hvaða afstöðu hönnuðir leiksins aðhyllast í raun og veru (þó dýpri greining gæti mögulega ljóstrað upp um það). Að leikurinn geti verið kveikjan fyrir slíkar vangaveltur, er snúa að siðferðislegum álitamálum í tengslum við óheflaðan sköpunarmátt mannsins og ábyrgð hans við samfélagið, getur þó verið til marks um listrænt gildi hans. Fáguð efnistök sem ala á margræðni túlkunarinnar renna þar að auki stoðum undir gæði sjálfrar framsetningarinnar.

Margir telja það hæpið að fullyrða að Bioshock sé dæmi um leikjalist á þessum forsendum þar sem um er að ræða efni sem er komið til skila með texta og myndum. Því mætti færa rök fyrir því að jafnvel þó umrædd atriði gætu talist list þá væri það ekki í krafti leikjamiðilsins sjálfs. Þess í stað væri um að ræða menningarnám leikjahönnuða sem nýttu sér arfleið sem væri miðli þeirra alls óviðkomandi. Í hversdagslegum skilningi eru flestir tilbúnir að upplifa leiki sem dæmi um margmiðlun þar sem frjálst er að skeyta saman öllu því sem tæknin hefur upp á að bjóða. Þó hefur viss hópur sett spurningarmerki við það hvort leikir geti í raun og veru sagt sögur í verufræðilegum skilningi. Þ.e.a.s. hvort það sé réttmætt að líta á spilun og reglukerfi sem merkingarbær fyrirbæri á sama hátt og texta og myndir.

Jafnvel þó þessar forsendur væru teknar gildar spila leikjahönnuðir Bioshock með væntingar spilara til leikjahefða á þann hátt að spilunin sjálf verður að að táknrænni einingu. Að vísu er það gert í samráði við áðurnefnda þætti, enda eiga spilun og reglur sér ætíð vissa birtingarmynd, en spilunarmöguleikarnir sýna þá í algjörlega nýju ljósi. Um er að ræða eina þekktustu snúningsfléttu í leikjasögunni sem á sér stað um miðbik leiksins. Ekki er ætlunin að ljóstra upp um fléttuna hér en þó ber að nefna að umrætt atriði mun að öllum líkindum tryggja Bioshock sæti í hefðaveldi tölvuleikja um ókomna tíð – svo framarlega sem slíkur samtíningur eigi rétt á sér. Eins og áður segir hafði Ebert útilokað leiki sem list meðal annars vegna áhrifavalds spilarans. Hér mætti þó færa rök fyrir því að áhrifavaldið sjálft sé hluti af hinni listrænu heild þar sem unnið er með meint frelsi spilunarinnar á markvissan hátt.

Leikurinn er þó engan veginn fyrsti leikurinn til þess að spila með leikjahefðir á merkingarbæran hátt eða til að snerta á flóknum hugmyndafræðilegum álitamálum. Því mætti segja að ef Bioshock á að teljast dæmi um leikjalist getur leikurinn ekki gert tilkall til þess að vera sá fyrsti sinnar tegundar. Það sem aðskilur Bioshock hins vegar frá öðrum slíkum leikjum eru viðtökur hans og markaðsetning. Ólíkt mörgum öðrum leikjum sem gætu gert tilkall til þess að kallast list var Bioshock markaðssettur með sem breiðastan markhóp í huga og því ekki einangraður við einstaka markaðskima. Leikurinn var því fær um að færa hróður þróunar í leikjahönnun til breiðari hóps en áður þekktist.

Stærri spilarahóp fylgdu þó auknar kröfur um aðgengileika og er leikurinn því töluvert auðveldari en leikir á borð við System schock. Þetta þýðir að mörgum gæti þótt leikurinn helst til of auðveldur. Þetta hefur þó verið þróunin innan leikjaiðnaðarins allt frá því að leikjatölvur urðu góðkunnir gestir á heimilum og minni áhersla var lögð á að kreista sem flesta skildinga úr höndum spilara í leikjasölum. Engu síður er enn stór hópur spilara sem sækist eftir krefjandi spilun og fyrir þann hóp er spilun leiksins ekki að fara að umbylta skilningi þeirra á tölvuleikjum jafnvel þó saga leiksins gæti það mögulega.

Eitt af því sem leikurinn hefur verið mest gagnrýndur fyrir er hvernig kosið hefur verið að nálgast siðferðislegt ákvörðunarvald spilarans. Nú er ekki verið að vísa í misvel ígrundaðar hugmyndir um að skotleikir séu almennt siðferðislega vafasamir eða hvetji til ofbeldis. Þess í stað er vegið að einfeldingslegri birtingarmynd mannkosta og siðgæðis í leiknum. Vandamálið felst í því að leikurinn leggur dóm á hvernig spilarinn kýs að haga spiluninni og eru einu valmöguleikarnir gott og illt. Hvorum megin spilarinn endar á þessu línulega rófi segir svo til um hvaða endi leikurinn hefur. Fyrir leik sem er að öðru leyti margræðinn stingur þetta fyrirkomulag í stúf. Líkt og með margt annað er þó ekki hægt að segja að Bioshock hafi verið að finna upp hjólið. Þess í stað er þetta hluti af töluvert stærra mengi leikja sem fara sömu leið. Í þessu samhengi má nefna Star Wars Jedi Knight: Dark Forces II (1997) þar sem spilarinn hallaðist annað hvort að myrku eðu ljósu hlið máttarins í Stjörnustríðs-heiminum. Slík kerfi verðlauna gjarnan algjöra trúfestu við aðra hvora leiðina ásamt því að útiloka nokkurskonar grátt svæði þar sem vafi ríkir um siðferðislegt réttmætri vissra aðgerða.

Þegar kemur að upphaflegu spurningunni hvort leikir geti talist list er tilvist Bioshock ein og sér ekki að fara að hafa úrslitaáhrif. Um er að ræða verk sem er vissulega gífurlega frambærilegt og til fyrirmyndar að mörgu leyti. Engu síður gerir leikurinn fátt nýtt þó að hann geri flest vel. Því mætti segja að ef Bioshock er dæmi um leikjalist þá væru töluvert fleiri leikir sem gætu gert tilkall til þess sama. Það sem aðskilur Bioshock frá slíkum leikjum er nefnilega ekki innihaldið sjálft heldur viðtökur leiksins og aðgengileiki hans – sem kynnir áhrifamátt leikjamiðilsins fyrir nýjum hóp og lætur leikin standa uppi sem dæmi um tiltölulega miðlægt verk sem hefur mögulegt listrænt vægi. Sama hvort Bioshock geti talist list eður ei er þó nokkuð ljóst að leikurinn grefur undan hugmyndum um tölvuleiki sem heilalausa afþreyingu. Í það minnsta stenst hann mörgum bókum og kvikmyndum snúning hvað varðar túlkunarmöguleika verksins ásamt því að vera til marks um greinagóðan skilning höfunda á miðlinum sjálfum sem verkið tilheyrir.[/cs_text]

Um höfundinn
Nökkvi Jarl Bjarnason

Nökkvi Jarl Bjarnason

Nökkvi Jarl er með BA-gráðu í Japönsku máli og menningu og MA-gráðu í almennri bókmenntafræði. Hann stundar nú nám í Hagnýtri ritstjórn og útgáfu við Háskóla Íslands.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

158000361

158000362

158000363

158000364

158000365

158000366

158000367

158000368

158000369

158000370

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

208000381

208000382

208000383

208000384

208000385

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000136

228000137

228000138

228000139

228000140

228000141

228000142

228000143

228000144

228000145

228000146

228000147

228000148

228000149

228000150

228000151

228000152

228000153

228000154

228000155

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701