Hawkline-skrímslið

[cs_text]PÁR Í TÍU ÁR: Dagana 15.-20. október halda nemendur í ritlist við Háskóla Íslands, fyrrverandi og núverandi, upp á það með ýmsu móti að tíu ár eru liðin frá því að ritlist varð að fullgildri námsgrein. Af því tilefni mun Hugrás birta daglega nýtt efni eftir höfunda sem stunda eða hafa stundað nám í ritlist við HÍ. Hér er einkum um að ræða brot úr væntanlegum eða nýútkomnum bókum. Að þessu sinni birtist kafli úr bókinni Hawkline-skrímslið eftir Richard Brautigan í þýðingu Þórðar Sævars Jónssonar. Á þessu hausti sendir Þórður Sævar einnig frá sér þýðingu á bókinni Hefnd grasflatarinnar eftir sama höfund. Áður hefur Þórður sent frá sér ljóðabókina Blágil.

Þórður Sævar Jónsson.

Reiðkennslan

Þeir lágu með rifflana sína á ananasakrinum og horfðu á mann kenna syni sínum að sitja hest. Þetta var á Hawaii sumarið 1902.

Þeir höfðu ekki talast við í dágóða stund. Þeir lágu bara í hnipri og horfðu á manninn og drenginn og hestinn. Þeim var ekki skemmt.

„Ég get þetta ekki,“ sagði Greer.

„Þetta er ljóta helvítið,“ sagði Cameron.

„Ég get ekki skotið mann sem er að kenna syni sínum að sitja hest,“ sagði Greer. „Ég er ekki þannig gerður.“

Greer og Cameron þekktu ekki til á ananasakrinum. Þeir voru einsog þorskar á þurru landi. Þeir voru báðir í kúrekafötum frá Austur-Oregon.

Greer var með uppáhalds byssuna sína, 30:40 Krag, og Cameron með 25:35 Winchester. Greer fannst gaman að stríða Cameron út af byssunni hans. Hann sagði alltaf: „Hvað ertu að paufast með þennan kanínuriffil þegar þú getur verið með alvöru byssu einsog ég?“

Þeir fylgdust af athygli með reiðkennslunni.

„Jæja, þarna fara tvöþúsund dollarar fyrir lítið,“ sagði Cameron. „Og þessi andskotans ferð á þessum andskotans bát var til einskis. Ég hélt ég ætlaði aldrei að hætta að æla og þarf núna að endurtaka leikinn tómhentur.“

Greer kinkaði kolli.
Sjóferðin frá San Francisco til Hawaii var hræðilegri en orð fá lýst. Greer og Cameron höfðu aldrei lent í öðru eins, ekki einu sinni þegar þeir skutu lögreglustjóra í Idaho tíu sinnum án þess að stúta honum. Hann vildi ekki drepast þannig að Greer sagði loks við lögreglustjórann: „Viltu vinsamlegast deyja? Við viljum ekki skjóta þig oftar.“ Og lögreglustjórinn sagði: “Gott og vel, ég skal deyja, en bara ef þið skjótið mig ekki aftur.“

„Við skjótum þig ekki aftur,“ sagði Cameron.

„Ókei, ég er dauður.“

Hann stóð við orð sín

Maðurinn, drengurinn og hesturinn voru í garði framan við stórt hvítt hús sem stóð í skugga pálmatrjáa. Það var einsog skínandi eyja á ananasökrunum. Frá húsinu barst píanótónlist. Hún ómaði letilega í hlýju síðdeginu.

Síðan kom kona fram á veröndina. Hún bar sig einsog frú og móðir. Hún var í síðum hvítum kjól með uppháum kraga. „Það er kominn matur!“ hrópaði hún. „Komið og fáið ykkur, strákar!“

„Helvítis djöfull!“ sagði Cameron. „Nú er þetta endanlega búið. Eitt þúsund dollarar. Undir venjulegum kringumstæðum væri hann dauður og búið að koma líkinu fyrir í dagstofunni, en núna arkar hann inn til að fá sér að éta.“

„Komum okkur af þessari andskotans eyju,“ sagði Greer.

Aftur til San Francisco

Cameron var teljari. Hann kastaði nítján sinnum upp á leiðinni til San Francisco. Honum fannst gaman að telja allt sem hann gerði. Þegar þeir kynntust fyrir mörgum árum gerði þessi árátta Greer dálítið órólegan, en hann var búinn að venjast henni núna. Það kom ekkert annað til greina. Annars hefði hann gengið af göflunum.

Stundum veltu menn fyrir sér hvað Cameron væri eiginlega að gera og þá sagði Greer: „Hann er að telja eitthvað,“ og þá spurðu menn: „Hvað er hann að telja?“ og Greer svaraði: „Hvaða máli skiptir það?“ og þá sögðu menn: „Ó.“

Yfirleitt fóru menn ekkert nánar út í þetta því að Greer og Cameron voru mjög öruggir með sig á þennan stórmannlega afslappaða hátt sem gerir fólk órólegt.

Greer og Cameron höfðu yfir sér þannig áru að þeir gátu leyst úr hverju sem var með lágmarks fyrirhöfn en hámarksárangri.

Þeir litu ekki út fyrir að vera harðir í horn að taka. Þeir litu út einsog pollrólegur kjarni eimaður úr þeim eiginleika. Þeir litu út fyrir að eiga í mjög nánu sambandi við eitthvað sem enginn annar gat séð.

Með öðrum orðum: Þeir voru með sitt á hreinu. Maður abbaðist ekki upp á þá, þótt Cameron væri alltaf að telja hluti og þar á meðal nítján uppköst á leiðinni til San Francisco. Manndráp voru lifibrauð þeirra.

Og Greer spurði um borð í bátnum: „Hvað ertu kominn upp í?“

Og Cameron sagði, „Tólf.“

„En á leiðinni þangað?“

„Tuttugu.“

„Hvernig fer það?“ spurði Greer.

„Nokkuð jafnt.“

Ungfrú Hawkline

Richard Brautigan.

Á þessari stundu beið ungfrú Hawkline eftir þeim í þessu risastóra, ískalda gula húsi . . . í Austur-Oregon . . . meðan þeir redduðu sér ferðapening í Kínahverfi San Francisco með því að drepa einhvern Kínverja sem fullt af öðrum Kínverjum fannst að ætti að drepa.

Þetta var gallharður Kínverji og þeir buðu Greer og Cameron sjötíu og fimm dollara fyrir að drepa hann.

Ungfrú Hawkline sat nakin á gólfinu. Herbergið var fullt af hljóðfærum og steinolíulömpum sem loguðu dauft. Hún sat við hliðina á sembal. Það var óvenjuleg birta á nótum sembalsins og sú birta myndaði skugga.

Sléttuúlfar ýlfruðu fyrir utan.

Skuggar af hljóðfærunum, sem birtan frá lampanum afskræmdi, mynduðu framandi mynstur á líkama hennar og eldurinn skíðlogaði í arninum. Eldurinn leit næstum því út fyrir að vera of stór, en hann varð að vera stór því það var ískalt í húsinu.

Það var barið að dyrum.

Ungfrú Hawkline leit við.

„Já,“ sagði hún.

„Maturinn verður til eftir augnablik,“ hljómaði rödd gamals manns gegnum hurðina. Maðurinn gerði sig ekki líklegan til að koma inn í herbergið. Hann stóð fyrir utan.

„Þakka þér fyrir, herra Morgan,“ sagði hún.

Svo barst hávært fótatak frá dyrunum og niður eftir ganginum sem hvarf að endingu bakvið lokaða hurð.

Sléttuúlfarnir voru nálægt húsinu. Af ýlfrinu að dæma gátu þeir allt eins verið á veröndinni.

„Við gefum ykkur sjötíu og fimm dollara. Þið drepa,“ sagði aðalkínverjinn.

Fimm eða sex Kínverjar sátu með þeim í litlum dimmum bás. Staðurinn angaði af slæmri kínverskri eldamennsku.

Þegar Greer og Cameron heyrðu sjötíu og fimm dollurum varpað fram brostu þeir á þennan afslappaða hátt sem breytti stöðunni hið snarasta.

„Tvö hundruð dollara,“ sagði aðalkínverjinn svipbrigðalaust. Þetta var klár Kínverji. Þess vegna var hann foringi þeirra.

„Tvö hundruð og fimmtíu dollara. Hvar er‘ann?“ spurði Greer.

„Í næsta herbergi,“ sagði aðalkínverjinn.

Greer og Cameron fóru inn í næsta herbergi og drápu hann. Þeir komust ekki að því hversu gallharður hann var því þeir gáfu honum ekki séns. Þannig fóru þeir að. Þeir voru ekkert að tvínóna við manndrápin.

Meðan þeir afgreiddu Kínverjann beið ungfrú Hawkline enn eftir þeim, kviknakin í herbergi þöktu skuggum ýmissa hljóðfæra. Fyrir tilstilli lampanna flöktu skuggarnir um líkama hennar í þessu risastóra húsi í Austur-Oregon.

Það var eitthvað annað á ferli í þessu herbergi. Það fylgdist með henni og naut nakins líkama hennar. Hún vissi ekki að það væri þarna. Hún vissi ekki heldur að hún væri nakin. Ef hún hefði vitað það hefði hún verið yfir sig hneyksluð. Hún var fín ung dama, fyrir utan skrautlega málfarið sem hún hafði lært af föður sínum.

Ungfrú Hawkline var að hugsa um Greer og Cameron, þótt hún hefði aldrei hitt þá eða heyrt þeirra getið, en hún beið sífellt eftir því að þeir kæmu einsog örlögin höfðu fyrirskipað, því hún var hluti af gotnesku framtíðinni þeirra.

Morguninn eftir náðu Greer og Cameron lestinni til Portland í Oregon. Þetta var fallegur dagur. Þeir voru glaðir því þeim þótti gaman að taka lestina til Portland.

„Hvað eru komin mörg skipti núna?“ spurði Greer.

„Átta sinnum án vandræða og sex sinnum fyrir horn,“ sagði Cameron.

 

Richard Brautigan (1935–1984) var á meðal þekktustu rithöfunda Bandaríkjanna á sinni tíð. Hann samdi 10 skáldsögur og gaf út 9 ljóðasöfn og eitt smásagnasafn á ferli sínum. Hawkline-skrímslið var sú fimmta sem hann sendi frá sér og er á margan hátt einstök í höfundarverkinu þar sem hún er skopstæling á hinni vinsælu bókmenntagrein vestranum. Tveir atvinnumorðingjar eru ráðnir til að ganga milli bols og höfuðs á skrímsli sem hefur lagt undir sig Hawkline-setrið, en þar búa líka hinar gullfallegu systur, sem nær ógerningur er að þekkja í sundur. Dimma gefur bókina út.[/cs_text]

Um höfundinn
Þórður Sævar Jónsson

Þórður Sævar Jónsson

Þórður Sævar leggur stund á nám í ritlist.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

118000781

118000782

118000783

118000784

118000785

118000786

118000787

118000788

118000789

118000790

118000791

118000792

118000793

118000794

118000795

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000246

228000247

228000248

228000249

228000250

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701