Tilveruréttur

[cs_text]Titill kvikmyndarinnar A Fantastic Woman (Una Mujer Fantástica, Sebastian Lelio, 2017) er lýsandi fyrir umfjöllunarefni hennar – stórkostlega konu. Marina Vidal (Daniela Vega) er ung kona sem starfar við þjónustu á veitingastað, syngur óperur og dægurlög í frístundum sínum og er í hamingjusömu sambandi með talsvert eldri manni. Hún er líka trans. Þegar unnusti hennar lætur lífið skyndilega er grundvallarstoðunum hins vegar kippt undan tilveru hennar og Marina þarf að takast á við mikið mótlæti af hálfu fjölskyldu unnustans og raunar alls samfélagsins.

Framvinda kvikmyndarinnar er greinargóð lýsing á þeim fjölmörgu hindrunum sem trans einstaklingar þurfa að takast á við í sínu daglega lífi, hlutum sem sískynja fólk tekur oftast sem sjálfsögðum. Fókusinn er þó ekki á hræðileg ofbeldisverk eins og í hinni umtöluðu Boys Don´t Cry (Kimberly Peirce, 1999) eða læknisfræðilega þætti líkt og í The Danish Girl (Tom Hooper, 2015) heldur er hér fengist við það sem oft er kallað „microaggressions“ og mætti útleggja á íslensku sem smá-áreitni. Í henni felst kerfisbundin mismunun minnihlutahópa þar sem eitt stakt atvik hefur ekki endilega gríðarmikil áhrif á einstaklinginn en þegar atvikin eru sífellt endurtekin í daglegu lífi viðkomandi hafa þau djúpstæð og niðurbrjótandi áhrif. Í A Fantastic Woman þarf Marina að þola slíka smá-áreitni. Hún er oft miskynjuð, meðal annars af óvinveittum meðlimum fjölskyldu unnustans og lögreglumanni sem kallar hana ítrekað „herra“. Hún á ekki persónuskilríki með sínu rétta nafni, sem er gott dæmi um hvernig skrifræði nútímasamfélags gerir trans fólki erfitt fyrir. Löggæslukerfið gerir sjálfkrafa ráð fyrir að samband hennar við unnustann hafi ekki verið raunverulegt ástarsamband heldur hljóti hún að hafa verið að stunda vændi, eingöngu vegna þess að hún er trans. Þá gefa aðrar persónur ítrekað til kynna að þær álíti Marinu afbrigðilega, að ástarsamband hennar hafi verið byggt á einhverskonar öfuguggahætti, að þær líti ekki á hana sem „alvöru“ konu. Allt þetta eru hlutir sem sískynja fólk þarf ekki að hafa áhyggjur af og leiðir líklega sjaldan hugann að yfir höfuð en eru fastir liðir í tilveru trans einstaklinga.

Í kvikmyndinni reynir samfélagið sífellt að brjóta sjálfsmynd Marinu niður og áhorfendur fylgjast með henni takast á við mótlætið af nær ótrúlegri þolinmæði, staðfestu og styrk. Leikstjóranum tekst jafnframt að láta það skína í gegn að framkoma annarra persóna gagnvart Marinu, fordómar og jafnvel hatur, á rætur sínar að rekja til vanþekkingar þeirra og ótta gagnvart hinu óþekkta. Setningar eins og „Ég veit ekki hvað ég horfi á þegar ég horfi á þig“ og „Ég veit ekki hvað þú ert“ eru til marks um þetta. Manneskjurnar sjálfar eru ekki endilega illa innrættar, þær einfaldlega vita ekki betur og óttinn knýr þær til að sýna af sér ófyrirgefanlega framkomu. Marina á hvergi öruggt athvarf, hvorki tilfinningalega né veraldlega. Þegar hún missir manninn sem elskar hana glatar hún ekki aðeins ástinni, hún missir einnig heimili sitt, andlegan stuðning og framtíðarvonir á örskotsstundu. Eina athvarf Marinu er í söngnum, en þegar hún syngur sjá áhorfendur hana njóta sín á máta sem er hafinn yfir erfiðleika líðandi stundar og heftandi viðhorf heimsins gagnvart henni.

Samtöl í kvikmyndinni eru hófstillt og snúast að miklu leyti um praktísk atriði, lítið er um að aðalpersónan tjái tilfinningar sínar með orðum. Þess í stað fer leikstjórinn þá leið að túlka sálarlíf hennar á myndrænan hátt. Marina er nær alltaf miðjusett í römmum myndarinnar og í kringum hana er gjarnan tómarúm; pláss sem táknar hversu einsömul hún stendur. Örvænting hennar og andlegt þrot birtist þegar hún gengur um götur í myrkri og rigningu og í einu af eftirminnilegustu atriðum myndarinnar reynir hún að ganga leið sína í mótvindi sem verður sífellt sterkari og sterkari. Í þessum senum eru táknin auðskilin og áberandi og áhorfendur þurfa ekki að rýna sérstaklega í myndmálið til að áhrifin skili sér. Á köflum heldur leikstjórinn lengra frá stíl raunsæis með því að láta „draug“ látna unnustans birtast Marinu þegar mótlætið er hvað mest og í sérstæðu atriði má auk þess sjá Marinu dansa ímyndaðan kabarett inni á skemmtistað. Þá er spegilmynd aðalpersónunnar áberandi í kvikmyndinni allri og minnir áhorfendur á að hún þarf sífellt að standa föst á sínu, berjast fyrir tilverurétti sínum og viðurkenningu í samfélaginu. Þegar Marina gengur fram hjá verkamönnum sem halda á álplötu er flöktandi spegilmynd hennar í plötunni lýsandi fyrir þessa baráttu; baráttuna fyrir sjálfinu.

Daniela Vega á stórt hrós skilið fyrir túlkun sína á Marinu. Einnig er talsvert gleðiefni að leikkona sem sjálf er trans hafi verið valin í hlutverkið en margir hafa gagnrýnt tilhneigingu meginstraumsins til að ráða sískynja leikara í hlutverk trans persóna. Vega kemur afar vel til skila þeirri togstreitu sem Marina glímir við, hvernig hún dansar á mörkum þess annars vegar að koma kurteisislega fram og láta mótlætið yfir sig ganga og hins vegar þess að glata sjálfsstjórninni, henda háttvísinni út um gluggann og öskra af bræði. Ekki er annað hægt en að dást að þessari persónu. Hún heldur alltaf áfram, sama hversu mikilli mótstöðu hún mætir og án þess að hafa nokkra vissu í farteskinu um að einn daginn verði allt í lagi. Hún er sannarlega stórkostleg kona. Kvikmyndin í heild sinni er listræn og vandlega unnin baráttusaga. Hún er einnig vitnisburður um það misrétti sem trans einstaklingar þurfa að kljást við og þörf vitundarvakning fyrir áhorfendur sem lítið hafa leitt hugann að slíku. Allir hafa gott af því að horfa á slíka kvikmynd.[/cs_text]

Um höfundinn
Sólveig Johnsen

Sólveig Johnsen

Sólveig Johnsen er kvikmyndafræðingur (BA), meistaranemi í ritlist og meðlimur Engra stjarna.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000516

118000517

118000518

118000519

118000520

118000521

118000522

118000523

118000524

118000525

118000526

118000527

118000528

118000529

118000530

118000531

118000532

118000533

118000534

118000535

118000536

118000537

118000538

118000539

118000540

118000541

118000542

118000543

118000544

118000545

118000546

118000547

118000548

118000549

118000550

118000551

118000552

118000553

118000554

118000555

118000556

118000557

118000558

118000559

118000560

118000561

118000562

118000563

118000564

118000565

118000566

118000567

118000568

118000569

118000570

128000581

128000582

128000583

128000584

128000585

128000586

128000587

128000588

128000589

128000590

128000591

128000592

128000593

128000594

128000595

128000596

128000597

128000598

128000599

128000600

128000601

128000602

128000603

128000604

128000605

128000606

128000607

128000608

128000609

128000610

128000611

128000612

128000613

128000614

128000615

128000616

128000617

128000618

128000619

128000620

128000621

128000622

128000623

128000624

128000625

128000626

128000627

128000628

128000629

128000630

128000631

128000632

128000633

128000634

128000635

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

208000251

208000252

208000253

208000254

208000256

208000257

208000258

208000259

208000260

208000261

208000262

208000263

208000264

208000265

208000266

208000267

208000268

208000269

208000270

208000271

208000272

208000273

208000274

208000275

208000276

208000277

208000278

208000279

208000280

208000281

208000282

208000283

208000284

208000285

208000286

208000287

208000288

208000289

208000290

208000291

208000292

208000293

208000294

208000295

208000296

208000297

208000298

208000299

208000300

208000301

208000302

208000303

208000304

208000305

208000306

208000307

208000308

208000309

208000310

news-1701