[cs_text]Fræðimaðurinn Theodor Adorno hélt því fram að hlutverk dægurmenningar á borð við popptónlist væri að hvetja fólk til að ganga aftur í barndóm. Það væri með öðrum orðum hlutverk hennar að láta fólk hverfa aftur á fyrri þroskastig. Í fjöldaframleiddri tónlist væri sífellt breitt yfir sömu endurteknu mynstrin til að láta eins og um nýstárlegt efni væri að ræða.¹ Þetta benti Adorno einkum á til að sýna fram á að dægurtónlist væri ófrumleg og hana skorti sjálfstæði. Margir mótmæltu honum, sögðu að hann einfaldaði dægurmenningu um of og hún væri margslungnari og flóknari en hann vildi vera láta. Þótt aðgreining Adornos milli poppmenningar og hámenningar eigi varla við í greiningu á kvikmynd eins og Svaninum, enda flokkast hún varla sem dægurmenning, er kenning hans um að listir hvetji fólk til að hverfa aftur á fyrri þroskastig engu að síður áhugaverð. Hún var mér ofarlega í huga eftir að ég sá Svaninn, því við áhorfið fékk ég tækifæri til að ganga inn hugarheim barns og upplifa skynjun þess að vissu marki.

Kvikmyndin Svanurinn var frumsýnd hér á landi föstudaginn 5. janúar síðastliðinn. Hún er fyrsta kvikmynd Ásu Helgu Hjörleifsdóttur, sem er bæði höfundur handrits og leikstjóri, í fullri lengd og er byggð á samnefndri skáldsögu Guðbergs Bergssonar (1991). Í myndinni endurspeglar falleg og miskunnarlaus náttúra ólíkar hliðar mannskepnunnar. Það er ekkert nýtt að náttúran kallist á við mannlegt eðli í íslenskum kvikmyndum en helsti styrkleiki Svansins er hvernig viðfangsefnið er sýnt frá sjónarhorni barnsins. Ásu tekst þannig að miðla tærri og fordómalausri skynjun bernskunnar sem við mörg hver leitumst sífellt við að endurupplifa.

Lífið á sveitabænum

Söguhetja myndarinnar er níu ára stelpa að nafni Sól sem er send í sveit eftir að hafa verið til vandræða í heimabæ sínum. Gríma Valsdóttir fer með hlutverk Sólar og tekst með áhrifamiklum hætti að túlka hið fjölbreytta litróf tilfinninga sem persónan upplifir í myndinni. Myndin er tekin upp í Svarfaðardal og tilkomumikil náttúran þar undirstrikar smæð aðalpersónunnar frammi fyrir aðstæðunum sem hún er í. Sól kemst fljótt að því að í sveitinni gilda aðrar reglur um lífið en í smábænum. Á sveitabænum þarf hún að ganga í öll verk, sama hversu erfið þau eru, og hún fylgist með því þegar dýr sem eru rétt komin í heiminn eru tekin af lífi svo mannfólkið fái að borða.

Dauði og líf – sakleysi og grimmd, þetta eru kunnugleg stef í íslenskum þroskasögum sem gerast í sveit og í mörgum þeirra kynnast börn lífinu gegnum dauðann. Hér má taka sem dæmi skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur, Kaldaljós, og samnefnda mynd Hilmars Oddssonar frá 2004 og Nóa albinóa, mynd Dags Kára Péturssonar frá 2003, en í þeim báðum setur vægðarlaus náttúran mark sitt á sálarlíf óharðnaðra barna og unglinga. Af nýlegum kvikmyndum má nefna Hjartastein Guðmundar Arnars Guðmundssonar frá árinu 2016 og Þresti Rúnars Rúnarssonar frá 2015.
Myndmál náttúrunnar í Svaninum er engu að síður frumlegt og spennandi, ekki síst líkingin sem felst í sjálfum svaninum, þessum fallega en stygga fugli. Í frægu ævintýri H.C. Andersens breyttist ljóti andarunginn sem átti erfitt uppdráttar að lokum í fallegasta svaninn á tjörninni. Svanurinn á líka sinn ljóta andarunga, sem enginn sér fegurðina í nema litla stelpan, en vegna næmninnar sem hún býr yfir er hún sú eina sem tengist óhamingjusömustu persónum sögunnar – vinnumanninum og dóttur hjónanna á bænum. Dóttirin er með þykkan skráp en litla stelpan gefur sig að henni og tekst að skyggnast undir kalt yfirborðið.

Barn í heimi fullorðinna

Stúlkan hrífst líka af vinnumanninum á bænum, einrænu skúffuskáldi með flókið sálarlíf. Eins og aðrar manneskjur á vinnumaðurinn bæði sínar ljósu og dökku hliðar og hann heldur sig ekki alltaf réttu megin línunnar í samskiptum við stúlkuna. Vinnumaðurinn sem birtist okkur í skáldsögu Guðbergs er þó ef til vill öllu pervertískari en sem Ása sýnir okkur í kvikmyndinni. Það er líka hann sem kynnir Sól fyrir skuggahliðum lífsins; meðal annars slátrar hann uppáhaldskálfinum hennar sem hún tók sjálf þátt í að koma í heiminn. Áhorfandinn verður fyrir áhrifum af fordómaleysi barnsins og það gerir honum auðveldara fyrir að finna til samkenndar með persónum myndarinnar og sjá það góða í hinu vonda.

Börn geta sannarlega hrifist af fullorðnu fólki. Í þessu sambandi leitar önnur skáldsaga, minna þekkt en Svanurinn, á hugann. Í Sögunni af sjóreknu píanóunum (2002) eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur er hinn níu ára gamli Kolbeinn sendur sumarlangt í sveit í Landeyjarnar. Þar hrífst hann á skilyrðislausan hátt af Steingerði, matmóður sinni, og gerir allt sem hann getur til að ganga í augun á henni. Þegar Kolbeinn verður fullorðinn eignast hann svo unga vinkonu sem hrífst af honum á sama hátt. Guðrún Eva fetar þarna inn á svipaðar slóðir og gert er í Svaninum, með sambandi Sólar og vinnumannsins, þrátt fyrir að ekkert í sögu hennar sé kynferðislegt.

„Öll börn eru listamenn“

„Öll börn eru listamenn, þau hafa einhvers konar skáldlega skynjun,“² sagði skáldið og rithöfundurinn Sigurður Pálsson í viðtali við Morgunblaðið árið 2011 um Bernskubók sína, en þar fjallaði hann um uppvöxt sinn á Skinnastað í Öxarfirði. Töfrarnir í bók Sigurðar, rétt eins og í kvikmynd Ásu, liggja í sjónarhorni barnsins sem sér og skynjar heiminn á móttækilegan og tæran hátt. Er það ekki einmitt þessi milliliðalausa og fordómalausa upplifun á veruleikanum, þessir skæru litir og sterka lykt sem við erum alltaf að reyna að fanga, aftur og aftur, í daglegu lífi?

1. Green, L. (1999) Ideology. Í Horner, Bruce og Swiss, Thomas (ritstjórar), Key terms in popular music and culture (bls. 7-8). Malden: Blackwell.

2. Einar Falur Ingólfsson. (2011, 13.11). Skrásetningarbrjálæðið byrjaði snemma. Mbl.is.

Þessi umfjöllun var hluti af verkefnavinnu í námskeiðinu „Loksins, loksins: Vinnustofa í menningarblaðamennsku“ á vorönn 2018.[/cs_text]

Um höfundinn
Jóna Kristjana Hólmgeirsdóttir

Jóna Kristjana Hólmgeirsdóttir

Jóna Kristjana Hólmgeirsdóttir er meistaranemi í ritlist.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1412

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

judi bola online

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

ayowin

mahjong ways

judi bola online

mahjong ways 2

JUDI BOLA ONLINE

maujp

maujp

20021

20022

20023

20024

20025

20026

20027

20028

20029

20030

20031

20032

20033

20034

20035

30021

30022

30023

30024

30025

30026

30027

30028

30029

30030

30031

30032

30033

30034

30035

80001

80002

80003

80004

80005

80006

80007

80008

80009

80010

80011

80012

80013

80014

80015

80016

80017

80018

80019

80020

80021

80022

80023

80024

80025

80026

80027

80028

80029

80030

80136

80137

80138

80139

80140

80211

80212

80213

80214

80215

80216

80217

80218

80219

80220

9041

9042

9043

9044

9045

80031

80032

80033

80034

80035

80036

80037

80038

80039

80040

80041

80042

80043

80044

80045

80141

80142

80143

80144

80145

80146

80147

80148

80149

80150

80151

80152

80153

80154

80155

30046

30047

30048

30049

30050

30051

30052

30053

30054

30055

30056

30057

30058

30059

30060

80066

80067

80068

80069

80070

80071

80072

80073

80074

80075

80076

80077

80078

80079

80080

80081

80082

80083

80084

80085

80086

80087

80088

80089

80090

80091

80092

80093

80094

80095

30081

30082

30083

30084

30085

30086

30087

30088

30089

30090

80096

80097

80098

80099

80100

80101

80102

80103

80104

80105

80106

80107

80108

80109

80110

80111

80112

80113

80114

80115

80156

80157

80158

80159

80160

80161

80162

80163

80164

80165

80166

80167

80168

80169

80170

80116

80117

80118

80119

80120

80121

80122

80123

80124

80125

80126

80127

80128

80129

80130

80131

80132

80133

80134

80135

80171

80172

80173

80174

80175

80176

80177

80178

80179

80180

80181

80182

80183

80184

80185

80186

80187

80188

80189

80190

80191

80192

80193

80194

80195

80196

80197

80198

80199

80200

80201

80202

80203

80204

80205

80206

80207

80208

80209

80210

news-1412