Sameinuð stöndum vér, sundruð föllum vér!

[cs_text]Júlía Helgadóttir fór í Sambíóin Álfabakka að sjá Guardians of the Galaxy vol. 2. Hún gaf engar stjörnur.

Guardians of the Galaxy Vol. 2 (James Gunn, 2017) er framhald samnefndrar myndar – án tölfræðikennimerkisins – frá árinu 2014 og flokkast báðar sem svokallaðir geimvestrar (e. space western). Sögupersónuteymið er ljær myndunum nafn sitt birtist fyrst á síðum myndasögublaða árið 1969 en fékk sjálfstætt (teiknimyndasögu)líf árið 1992. Sú sæla varð þó ekki langlíf en útgáfu var hætt árið 1995 og hafa eingöngu verið gefnar út tveir sagnabálkar í viðbót, annars vegar árið 2008 og hins vegar 2014. James Gunn, sem bæði skrifaði og leikstýrði Guradians of the Galaxy 1 og 2, er á hinn bóginn ekki af baki dottinn og hefur þegar staðfest gerð þriðju myndarinnar. Miðað við kraftinn í mynd númer tvö gæti framhaldsröð þessi vel átt innistæðu fyrir framhaldi.

Hin fimm fræknu er saman mynda Vetrarbrautavarnarliðið; Peter Quill (Chris Pratt), Gamora (Zoe Saldana), Drax the Destroyer (Dave Bautista), Rocket Racoon (Bradley Cooper) og Groot (Vin Diesel) eru hér mætt aftur og búa að frækilegum afrekum fyrri myndarinnar, þar sem þau björguðu vetrarbrautinni frá yfirvofandi gereyðingu. Þau hafa hlotið opinberar þakkir og viðurkenningu, umbreyst í almannavitund úr úrhrökum í hetjur, og hafa jafnframt, á yfirborðinu að minnsta kosti, yfirstigið glæfra– og glæpalíf á glapstigu.

Í ljós kemur að hópurinn tekur nú að sér háskaleg verkefni gegn greiðslu, nokkuð sem afhjúpast í upphafsatriði framhaldsmyndarinnar þar sem teymið berst við ægilegt geimskrímsli sem best mætti lýsa sem ímynduðu afkvæmi hákarls og smokkfisks. Það var í það minnsta ekki fallegt. Þar sem bardaginn hefst færist myndavélin á Groot litla sem dansar um stríðssvæðið undir dillandi hljómi „Mr. Blue Sky“ með hljómsveitinni Electric Lights Orchestra sem telst vel til fundin til að undirstrika hið barnslega kæruleysi sem fylgir þessi ungviði, honum Groot litla. Má vera að strákssprekið sé eina söguhetjan í teyminu sem þarf að kynna fyrir áhorfendum, en Groot-afleggjarinn birtist ekki fyrr en í blálok fyrri myndarinnar.

Aðrar söguhetjur eru lítið breyttar; Gamora er alvarleg og fálát (og græn), Drax er alveg óttasnauður, eins konar geimtröll sem segir og gerir nákvæmlega það sem hann vill. Peter er tónelskur töffari með húmor og Rocket heldur öllum í viðráðanlegri fjarlægð með særandi athugasemdum til að fela brotna sjálfsmynd sína. Nebula (Karen Gillan) systir Gamoru slæst í hópinn gegn vilja sínum og mynda systraerjur þeirra skemmtilega hliðarsögu í gegnum myndina.

Söguþráðurinn fléttast um tvö aðalatriði: Peter kynnist loksins föður sínum, Ego (Kurt Russell) á sama tíma og fimmmenningarnir flýja undan Æðsta kynþætti (e. the Sovereign race) sem Rocket gerðist svo djarfur að stela mikilvægum ofurbatteríum frá en kynþáttur þessi er þekktur fyrir að vera eingöngu með eina refsistefnu; dauða. Hvað útlit varðar líkist Æðsti kynþátturinn gullslegnum Paris Hilton eftirhermum, og úrættaðir snobbtaktarnir sem einkenna þessa geimverutegund eru jafnframt líkt og paródía á hegðun dekurdýra hins nýja ímyndasamfélags. Líf meðlima kynþáttarins æðsta eru jafnframt of dýrmæt til að þau séu sett í hættu í hefðbundnum stríðsrekstri (þess vegna voru Vetrarbrautarverðirnir ráðnir til vinnu í upphafi myndar) og heyir hann því jafnframt stríð í gegnum fjarstýrð geimskip, en atriðin sem sýna þetta vísa meðvitað í tölvuleiki ásamt því að gefa í skyn ákveðna firringu. Fjarstýrðu geimskipin eru táknræn fyrir sýndarmennskuna og fjarlægð frá raunverulegri eymd sem einkennir daglegt líf Vesturlandabúa í dag. Ekkert raunverulegt innihald er að baki þessa kynþáttar. Þeir eru lítið annað en gullinhúðaðir snúðar sem treysta sér ekki til að takast á við veröldina nema í gegnum skjá.

Myndin hverfist að miklu leyti um fjölskyldutengd gildi og hvernig böndin innan tiltekins hóps geta orðið svo þétt að um fjölskylduígildi er að ræða. Gegnir þar sagan af endurfundum Peters við föður sinn, Ego, lykilhlutverki. Eins og nafn föðurins gefur sterklega til kynna er ekki allt sem sýnist hvað hlýleika hans varðar og löngun hans til að rækta föðurhlutverkið, þótt seint sé. Án þess að of mikið sé gefið upp um söguþráð myndarinnar er óhætt að segja að andstæðupari sé stillt upp milli sjálfhverfu – óhefts egós sem reynist hálfgerð alheimsæta – og samheldni og náungakærleik. Má í því ljósi sjá myndina sem ákveðna upphafningu á hefðbundnum fjölskyldugildum, þótt í nýjum (geim)búningi sé, ef svo má að orði komast. Hvort sem um er að ræða blóðskylda ættingja eða þéttan vinahóp þá er það að bera hag náungans fyrir brjósti og sýna honum samstöðu og kærleika, samkvæmt myndinni, ofar öllu öðru og grundvöllur afkomu mannsins. Sameinuð stöndum vér, sundruð föllum vér![/cs_text]

Um höfundinn
Júlía Helgadóttir

Júlía Helgadóttir

Júlía Helgadóttir er nemandi í kvikmyndafræði við Háskóla Íslands.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

118000781

118000782

118000783

118000784

118000785

118000786

118000787

118000788

118000789

118000790

118000791

118000792

118000793

118000794

118000795

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000246

228000247

228000248

228000249

228000250

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701