Er höfundarréttur á veruleikanum?

[cs_text]
Það er ekki höfundarréttur á veruleikanum nema að litlu leyti. Þó gilda vissar umgengnisreglur um hann á hverjum tíma, sagði Rúnar Helgi Vignisson á hádegisspjalli undir yfirskriftinni „Er allt leyfilegt í listum?“ Hugrás birtir erindi sem þar voru flutt af því tilefni að undanfarin ár hafa mörkin milli veruleika og skáldskapar orðið æ óljósari í listalífi landsmanna og í framhaldi af því hafa vaknað spurningar um hvort allt sé í raun leyfilegt eða hvort einhvers konar siðferðileg mörk verði og ætti að draga.

Margir af okkar kunnustu rithöfundum hafa í gegnum tíðina nýtt sér raunverulega atburði og persónur í skáldskap. Nægir þar að nefna Halldór Laxness. En hann bætti líka einhverju óskilgreinanlegu við sem gerði gæfumuninn og hóf skrifin upp yfir einstaklingshagsmuni. Þá hafa margir skrifað um sjálfa sig og gert úr mikla list. Eitt frægasta dæmi undanfarinna ára eru sjálfsævisögur Norðmannsins Karls Ove Knausgård sem skrifaðar eru með aðferðum skáldsögunnar.

Knausgård nýtir sér form sem ég hef kallað sannsögu og er þýðing á enska hugtakinu „creative nonfiction“.
Knausgård nýtir sér form sem ég hef kallað sannsögu og er þýðing á enska hugtakinu „creative nonfiction“. Þar er skrifað um sannsögulegt efni en aðferðum skáldskaparins beitt til að miðla efninu, það er sviðsett, notuð samtöl og unnið á skapandi hátt með formið. Eins notar höfundurinn oft sjálfan sig til að miðla efninu og þá koma aðrir gjarnan við sögu því enginn er eyland. Sannsögur eru regnhlífarheiti yfir alls konar skrif af sannsögulegum toga, s.s. ferðaskrif, minningabækur, uppgjörsbækur, reynslusögur, sagnfræðileg skrif og persónulegar eða ljóðrænar ritgerðir og þar er hægt að fást við hvað sem er. Öllu má breyta í sögu.

Í sannsögum fjalla höfundar um raunverulegt fólk og atburði, oft á listrænan hátt. Guðfeður skrifa af þessu tagi leggja mikla áhersu á að þar skuli hafa það sem sannast reynist og hjá erlendum tímaritum sem taka sig hátíðlega er sérstökum starfsmanni falið að ganga úr skugga um að allar staðreyndir standist skoðun.

Í sannsagnageiranum glíma höfundar oft við það að skrifa um nákomna.
Í sannsagnageiranum glíma höfundar oft við það að skrifa um nákomna. Það er allur gangur á því hvernig þeir nálgast það. Gjarnan bera þeir skrif sín undir viðfangsefnið áður en þeir senda ritsmíðina frá sér og fá samþykki viðkomandi. Einn höfund þekki ég sem sat hjá móður sinni dögum saman og las fyrir hana handrit að bók sem snerti látinn fjölskyldumeðlim. Aðrir hafa það fyrir reglu að bera ekki handritin undir þá sem fjallað er um vegna þess að það leiði til sjálfsritskoðunar. Það er aldrei einfalt að skrifa um nákomna sökum þess að engir tveir muna sama atburðinn eins, engir tveir leggja sama mat á hann. Á að banna einhverjum að viðra sína hlið ef hún stangast á við sýn annars ættingja? Á maður ekki sína hlið á sannleikanum? Það þarf að vega og meta. Mörg dæmi eru um það að ættingjar hafi móðgast og ekki talað við höfundinn framar en það eru líka dæmi um að þeir hafi verið þakklátir. Það er ekki sjálfgefið að sá móðgaði eigi að hafa ákvörðunarvald um það hvort ritsmíð birtist eða ekki eins og við göngum oft út frá.

Hér skiptir samhengið miklu máli. Það er t.d. hæpið að ætlast til þess að höfundur beri skrif sín undir einhvern sem hefur beitt hann eða hana ofbeldi. Fólki finnst núorðið sjálfsagt að segja frá illvirkjum. Margir hafa líka þörf fyrir að segja frá erfiðri upplifun og stundum hefur það mannbætandi áhrif á samfélagið. Við getum tekið sem dæmi bók Gerðar Kristnýjar, Myndin af pabba: saga Thelmu, sem hafði mikil áhrif á þjóðina og baráttuna gegn kynferðisofbeldi. Hér komum við að því sem blaðamenn beita gjarnan fyrir sig þegar þeir birta einhliða fréttir sem koma sér illa fyrir viðfangsefnið: þetta er í þágu almannahagsmuna. Alla daga birtast slíkar fréttir en fáum dettur í hug að binda hendur fjölmiðla til þess að skrifa þannig um fólk svo framarlega sem heimildirnar eru skotheldar.

Það er ekki höfundarréttur á veruleikanum nema að litlu leyti. Þó gilda vissar umgengnisreglur um hann á hverjum tíma. Með tilkomu nets og samfélagsmiðla hafa einkarými og almannarými að vissu leyti runnið saman og listin hlýtur að taka mið af því eins og öllu öðru, þ.á m. sannsögur sem flokkast undir list þegar vel tekst til.

Það er ekki höfundarréttur á veruleikanum nema að litlu leyti. Þó gilda vissar umgengnisreglur um hann á hverjum tíma.
Listin er vissulega stærri en einstaklingurinn og einstaklingurinn nýtur góðs af því alla daga. En samskipti við aðra skipta líka miklu máli, ekki síst fyrir einmana rithöfunda sem skrifa jú um fólk. Margur hefur hins vegar skrifað af sér góða vini og stundum hefur orðið úr því list sem skiptir máli, stundum ekki. Höfundar vita heldur ekki alltaf hvað muni móðga og hvað ekki. Og það geta ekki allir verið „gorgeous“ eins og Faulkner sem sagði, þegar hann var spurður hvort rithöfundur ætti að vera fullkomlega miskunnarlaus, að ljóðið fræga, „Ode on a Grecian Urn“ eftir John Keats, væri margra kerlinga virði. Reyndar var Faulkner ekki alltaf „gorgeous“ og um það hefur mikið verið skrifað án þess að fjaðrafoki hafi valdið mér vitanlega.

Að sjálfsögðu skiptir máli í hvaða ljósi höfundur sýnir persónur sínar, skáldaðar og raunverulegar, og sumir segja að hægt sé að segja allt sem segja þarf um fólk ef maður gerir það af hlýhug og virðingu. En felur það ekki í sér óæskilega takmörkun á listfrelsinu að ætlast alltaf til slíks?

Auðvitað getur það verið viðkvæmt ef kveikjurnar eru á lífi eða nýgengnar en tilgangurinn helgar meðalið
Listin hlýtur alltaf að fást við annað fólk og maður getur ímyndað sér að ein helsta ástæða þess að skáldskapur var fundinn upp sé að gera okkur kleift að fást við súrt og sætt í mannlegri tilveru án þess að það sé spyrt við ákveðna einstaklinga – jafnvel þótt kveikjan að verkinu hafi verið ákveðnir einstaklingar. Auðvitað getur það verið viðkvæmt ef kveikjurnar eru á lífi eða nýgengnar en tilgangurinn helgar meðalið:

Listin er afar mikilvæg í mannlegri tilveru vegna þess að hún rýfur tilvistarlega einangrun okkar, tengir okkur öll saman í gegnum tungumál og myndmál og segir okkur hver við erum.

Erindi þetta var fyrst flutt á opnum hádegisfundi í Háskóla Íslands undir yfirskriftinni Er allt leyfilegt í listum? – hádegisspjall um siðferði í listum þann 20. janúar 2017. Hér fyrir neðan má sjá upptöku frá fundinum.

[/cs_text]
Um höfundinn
Rúnar Helgi Vignisson

Rúnar Helgi Vignisson

Rúnar Helgi Vignisson er dósent í ritlist við Íslensku­ og menningardeild Háskóla Íslands. Hann hefur umsjón með ritlistarnámi við skólann og er jafnframt rithöfundur og þýðandi. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

138000511

138000512

138000513

138000514

138000515

138000516

138000517

138000518

138000519

138000520

138000521

138000522

138000523

138000524

138000525

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

158000406

158000407

158000408

158000409

158000410

158000411

158000412

158000413

158000414

158000415

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

208000436

208000437

208000438

208000439

208000440

208000441

208000442

208000443

208000444

208000445

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000246

228000247

228000248

228000249

228000250

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

228000256

228000257

228000258

228000259

228000260

228000261

228000262

228000263

228000264

228000265

228000266

228000267

228000268

228000269

228000270

228000271

228000272

228000273

228000274

228000275

228000276

228000277

228000278

228000279

228000280

228000281

228000282

228000283

228000284

228000285

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

238000257

238000258

238000259

238000260

news-1701