Ljósmynd af ómetanlega fallegu landslagi með fjallið Herðubreið í fjarska

Hvernig metum við hið ómetanlega?

[cs_text]
Guðbrandsstofnun á Hólum í Hjaltadal stendur um þessar mundir að ráðstefnuröð undir fyrirsögninni „Hvernig metum við hið ómetanlega?“ Tvær ráðstefnur eru þegar að baki. Á þeirri fyrri sem haldin var vorið 2015 var fjallað um náttúruna og auðlindirnar. Á hinni síðari sem haldin var í vor var á hinn bóginn fjallað um menninguna. Framundan eru að minnst kosti tvær í viðbót. Næst (vorið 2017) verður fjallað um trúna og síðar hið „hið góða líf“.
Guðbrandur Þorláksson
Guðbrandur Þorláksson
Guðbrandsstofnun er samvinnuverkefni akademíunnar, Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands, og þjóðkirkjunnar. Með því að fjalla um náttúruna, menninguna, trúna og loks mannlífið má segja að stofnunin hafi náð að spanna meginviðfangsefni þessara þriggja aðstandenda sinna sem láta sér ekkert óviðkomandi sem snertir manninn og umhverfi hans.

Mörg álitamál

Auðvitað vekur spurningin „Hvernig metum við hið ómetanlega?“ og viðfangsefnin fjögur: náttúra, menning, trú og „hið góða líf?“ fjölmörg álitamál.

Er eitthvað til sem er ómetanlegt í nútímanum? Er ekki mögulegt að meta flest til fjár nú á dögum og ef ekki er mögulegt að meta eitthvað í beinhörðum peningum er þá ekki hægt að setja á það annars konar verðmiða sem vísar til einhverrar annarrar valútu? Voru það ekki mistök að fjalla um náttúruna og auðlindirnar saman á fyrstu ráðstefnunni? Sé náttúran ómetanleg eru auðlindirnar það tæplega.[pullquote type=”left”]Ef eitthvað skyldi nú vera til sem við þrátt fyrir allt sættumst á að sé ómetanlegt er spurningin sjálf þá ekki merkingarlaus? [/pullquote]Eru þær ekki einmitt auðlindir vegna þess að mögulegt er að meta þær eða afrakstur þeirra til fjár? Ef eitthvað skyldi nú vera til sem við þrátt fyrir allt sættumst á að sé ómetanlegt er spurningin sjálf þá ekki merkingarlaus? Er trúin einhvers virði nema þá í augum hinna trúuðu? Hljóta aðrir ekki frekar að líta á hana sem úrelt ef ekki beinlínis skaðlegt fyrirbæri? Í hvaða merkingu er hún þá ómetanleg? Og loks: Í hverju felst „hið góða líf“? Er það líf fræga, ríka og fallega fólksins í neyslusamfélögum Vesturlanda eða er hægt að lifa góðu lífi á annan máta, til dæmis við skort, skerta andlega eða líkamlega getu eða við aðrar þær aðstæður sem setja okkur alvarlegar skorður?

Auðvitað eru ráðstefnurnar haldnar til að ræða álitamál af þessu tagi og ýmis önnur sem upp koma við samvinnu ólíkra stofnana, samtaka og einstaklinga en ráðstefnurnar eru skipulagðar í samvinnu við ýmsa aðila sem láta sig viðfangsefnið hverju sinni varða.

Orðræða peninganna

Á ráðstefnunum sem nú eru að baki hafa margir frummælendur og þátttakendur orðið sammála um að orðræða peningaaflanna nýtist til að sækja málstað sinn andspænis stjórnmálamönnum, hagsmunaaðilum og almenningsálitinu sem oftar en ekki er tekist á um í umræðu um náttúru og menningu.

Hver svo sem afstaðan hefur verið til nýtingar eða friðunar á náttúrunni og auðlindum hennar eða menningarinnar og einstakra menningarlegra fyrirbæra hefur fólk sem sé sammælst um að meira eða minna hagfræðilegt mat á þessum sviðum þjóni tilgangi. Þannig var talið gagnlegt á fyrstu ráðstefnunni að reikna út hvaða beinar og óbeinar tekjur megi hafa af ósnertum víðáttum, landslagi sem hvergi er rofið af háspennulínu eða öðru framandi mannvirki, straumvatni sem fellur frá upptökum til ósa án stíflu eða hvaða öðrum náttúrugæðum sem er. Í þessu sambandi var til dæmis bent á að ferðaiðnaðurinn gæti líklega til lengri tíma skilað meiri arði en orkuiðnaðurinn. Einnig þótti gagnlegt á ráðstefnunni í vor að bera fjölda beinna eða afleiddra starfa og annan þjóðhagslegan ávinning sem rekja má til menningar saman við þau störf og hagnað sem stóriðjan skapar.

Mat á eigin forsendum

Ugglaust er alveg rétt að á sviðum náttúru og menningar í víðasta skilningi verður að hugsa og skiptast á skoðunum á svipuðum brautum og gert er á öðrum sviðum í því kapítalíska neyslusamfélagi sem við Íslendingar höfum búið okkur. En hvað svo sem segja má um gildismat okkar á upphöfnum stundum er það fyrst og fremst hugarfar (hag)vaxtarins sem við höfum alið með okkur síðan við stukkum inn í tækniöldina.

[pullquote type=”left”]Það er þó áleitin spurning hvort í því felist ekki uppgjöf ef við látum staðar numið í hinni hagspekilegu umræðu um þau fyrirbæri sem okkur flestum eru hvað dýrmætust eins og náttúran, menningin, „hið góða líf“ og að margra mati einnig trúin?[/pullquote]Það er þó áleitin spurning hvort í því felist ekki uppgjöf ef við látum staðar numið í hinni hagspekilegu umræðu um þau fyrirbæri sem okkur flestum eru hvað dýrmætust eins og náttúran, menningin, „hið góða líf“ og að margra mati einnig trúin? Það er ekki hvað síst markmið Guðbrandsstofnunar með ráðstefnuröðinni að þróa orðræðu sem gerir mögulegt að tala um, vega og meta öll þessi fyrirbæri á þeirra eigin forsendum. Slík orðræða getur vissulega orðið vísir að nýju, fjölbreyttara og frjórra mati á náttúru, menningu, trú og „góðu lífi“ en tíðkast hefur á síðari tímum. — Endurmat af slíku tagi er forsenda þess að við getum breytt lífsháttum okkar og notið náttúru, menningar, trúar og „hins góða lífs“ til fulls þrátt fyrir að okkur geti svo áfram greint á um raunverulegt gildi hvers um sig.

Er menning valkostur?

Auðvitað eru margir möguleikar á að umrita spurninguna „Hvernig metum við hið ómetanlega?“ og ræða um gildi til dæmis menningarinnar á hennar eigin forsendum. Ein leið felst í að spyrja hvort menning sé valkostur sem við getum valið að nýta okkur eða njóta hvert og eitt á sinn hátt við breytilegar aðstæður lífsins eða hvort hún sé okkur þvert á móti lífsnauðsynleg.

[pullquote type=”right”]Menningarpenninn Carl-Göran Ekerwald leit til dæmis svo á að menningin væri fyrst og fremst sjálfsbjargarhvöt mannsins, hæli sem fólk leitar í þegar það stendur frammi fyrir aðstæðum sem ógna lífsgæðum þess og jafnvel lífi.[/pullquote]Svarið við þeirri spurningu veltur fyrst og fremst á því hvað við teljum að felist í menningu. Ef menning felst eingöngu í bókmenntum, tónlist, myndlist og öðru slíku — jafnvel klassískum bókmenntum og listum — er hún augljóslega valkostur sem mögulegt er að velja eða hafna að eigin vild. Þá er líka auðvelt að meta menninguna til fjár enda lýtur hún þá að mestu venjulegum markaðslögmálum.

En svo er líka mögulegt að líta menninguna allt öðrum augum. Menningarpenninn Carl-Göran Ekerwald leit til dæmis svo á að menningin væri fyrst og fremst sjálfsbjargarhvöt mannsins, hæli sem fólk leitar í þegar það stendur frammi fyrir aðstæðum sem ógna lífsgæðum þess og jafnvel lífi. Þar á meðal nefndi hann til dæmis tilbreytingarleysi vegna, veikinda, atvinnuleysis eða firrtra atvinnuhátta, ofbeldi eða aðrar aðstæður sem svipta lífið og tilveruna merkingu og tilgangi.[i]

Lífsnauðsynleg menning

Við getum velt því fyrir okkur hvar fólk lifi nú um stundir við ómanneskjulegastar og tilgangslausastar aðstæður. Á því er að sönnu hægt að hafa ýmsar skoðanir en í mínum huga er þær að finna í þeim fjölmörgu flóttamannabúðum sem risið hafa á útmörkum Evrópu á síðustu misserum. Þar dvelur nú fólk þúsundum saman sem flúið hefur vonlausar og jafnvel lífshættulegar aðstæður í von um betra líf í álfu allsnægtanna en hafnaði í forgörðum helvítis. Við þær aðstæður sem í slíkum búðum ríkja felast eðlileg mannleg viðbrögð í meiri eða minni áfallaröskun sem við höfum öll einhverja reynslu af. Við slíkar aðstæður verður tilfinningin fyrir tilgangsleysi mannlegrar tilveru hvað ágengust, við lömumst, leitum inn á við, einangrum okkur eftir bestu getu frá umheiminum og leitum skjóls.

En jafnvel í svartnætti vonleysis og depurðar bráir af okkur að minnsta kosti stund og stund. Hvað gerist þá? Þá tengist maður manni. Tekið er að rifja upp löngu liðin atvik, sögur eru sagðar, farið er með stef og hendingar, sungið er lag, börn bregða á leik. Þetta er menning í sinni hreinræktuðu mynd að mati Ekerwalds og þeirra sem deila mati hans að einhverju leyti. — Menning í þessum skilningi er ekki valkostur. Hún er grunnþáttur í mannlegri tilveru sem ekki verður skertur nema alvarlegt tómarúm myndist og lífsgæðum okkar verði stefnt í voða.

Menning sem aflvaki

Þessa mynd má svo færa inn í eðlilegri aðstæður. Menningin í þeirri merkingu sem mörg okkar veljum að nýta okkur að meira eða minna leyti en önnur helga líf sitt og krafta, sparimenningin, er í raun framhald af og sama eðlis og menningin í þeirri merkingu sem hér var rakin til Carl-Göran Ekerwalds, það er minning sem sjálfsbjargarhvöt.

[pullquote type=”left”]Samfélag án menningar og menningarstofnana; leikhúsa, hljómsveita, bókasafna, sýningarsala og ámóta staða sem við hvert og eitt getum látið okkur í léttu rúmi liggja við eðlilegar aðstæður er í raun snautt samfélag og vart búið til að mæta áföllum.[/pullquote]Samfélag án menningar og menningarstofnana; leikhúsa, hljómsveita, bókasafna, sýningarsala og ámóta staða sem við hvert og eitt getum látið okkur í léttu rúmi liggja við eðlilegar aðstæður er í raun snautt samfélag og vart búið til að mæta áföllum. Menningarstofnanir eru mikilvægar aflstöðvar í sérhverju samfélagi. Til menningarinnar sem þar er iðkuð sækjum við flest með einhverju móti kraft og þrótt í tilbreytingarleysi og tilgangleysi hverdagsins. Þangað sækjum við líka flest það sem raunverulega stendur með okkur þegar á reynir og okkur er sjálfum ógnað frammi fyrir áföllum lífsins. Hver man ekki eftir að hafa þá leitað athvarfs í einhverri reynslu sem rekja má til þess sem við í daglegu tali flokkum undir menningu? Höfum við ekki við erfiðar aðstæður horfið aftur til bókmennta- eða myndverka, tónlistar eða ljóðs sem rekið hefur á fjörur okkar einhvers staðar á lífsleiðinni og við lært eða lagt á minnið án þess að vera meðvituð um það fyrr en á reynir?

Líku máli gegnir um víðernin og hina ósnortnu náttúru og í hugum margra okkar einnig trúna. Allt er þetta, náttúran, menningin og trúin, órofa þættir í „hinu góða lífi“ sem við keppum öll að þótt hlutföllin verði að sönnu mismunandi hjá okkur hverju og einu þegar við reynum að skapa okkur gott líf.

Ráðstefnuröð Guðbrandsstofnunar um spurninguna „Hvernig metum við hið ómetnanlega?“ hjálpar vonandi til að dýpka umræðuna um gildi náttúru, menningar, trúar og „hins góða lífs“ á forsendum þessara fyrirbæra sjálfra óháð markaðslögmálum og peningahyggju.  [line][i] Carl-Göran Ekerwald, „Vi goda européer“. Om det europeiska kulturarvet, Stokkhólmi: Rabén Prisma, 1995, bls. 9.

Ljósmynd ofan við grein: Sóley Stefánsdóttir[/cs_text]

Um höfundinn
Hjalti Hugason

Hjalti Hugason

Hjalti Hugason er prófessor í kirkjusögu við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Hann hefur stundað rannsóknir á ýmsum sviðum íslenskrar kirkjusögu og kirkjuréttar en auk þess ritað um trú, samfélag og menningu á ýmsum vettvangi. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

118000781

118000782

118000783

118000784

118000785

118000786

118000787

118000788

118000789

118000790

118000791

118000792

118000793

118000794

118000795

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000246

228000247

228000248

228000249

228000250

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701