Fyrirlestur í uppnámi!


[container]

Um höfundinn
Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir er prófessor emeríta í íslenskum nútímabókmenntum við Íslensku­- og menningardeild Háskóla Íslands. Sérsvið hennar er íslensk bókmenntasaga, kvennabókmenntir, barnabókmenntir, kynjafræði og sálgreining. Sjá nánar

 Gamanleikurinn Beint í æð eftir Ray Cooney í leikstjórn Halldóru Geirharðsdóttur var frumsýndur í Borgarleikhúsinu föstudaginn 31. október.

 Aðalpersónan,  Jón Borgar, yfirlæknir á taugadeild, er leikin af Hilmi Snæ Guðnasyni. Jón Borgar er ansi taugaveiklaður því að hann þarf að æfa fyrirlesturinn sem hann á að halda á ensku yfir alþjóðlegum hópi áheyrenda eftir rúman klukkutíma. Þetta er enginn venjulegur fyrirlestur, heldur sjálfur Hippokratesarfyrirlesturinn, haldinn á fimm ára fresti, (og hér reikna ég með að ég hafi náð athygli Hugvísindasviðs og kannski Heilbrigðisvísindasvið líka,  því hver hefur ekki verið á elleftu stundu með mikilvægan fyrirlestur?), nema hvað aumingja maðurinn fær engan frið til að æfa sig af því að í sameiginlegu vinnurými lækna hleypur fólk fram og aftur, út og inn, tilkynnir Jóni Borgari að hann sé faðir 18 ára sonar sem hótar að stökkva út af svölunum,fólkið dansar, dulbýr sig, talar tungum, grínast, syngur, skiptir um kyn, gerir margt sem stríðir gegn Hippokratesareiðnum, gamall karl og yfirlæknir sjúkrahússins stelast í jólavínið, fólk dregur sig saman og sundur – en allt endar þetta vel að lokum.  Áhorfendur grétu úr hlátri en ég var meira í glottinu – ekki laus við áhyggjur af því að fyrirlesturinn yrði aldrei haldinn. J

Gamalt vín á nýjum belgjum

Ray Cooney (1932-) er breskur gamanleikjahöfundur. Hann var leikari sjálfur áður en hann hóf feril sinn sem leikritahöfundur árið 1946 og þykir hafa mjög gott auga fyrir hinu sjónræna og sviðsvinnunni. Hann hefur með réttu verið gagnrýndur fyrir að vera karlrembusvín, gamaldags, léttdónalegur, léttvægur en hann nýtur samt viðurkenningar fyrir að hafa auga fyrir fjölda hliðarsagna og hröðum skiptingum sem er aðalsmerki gamanleikjahöfunda.

Gísli Rúnar Jónsson þýðir og staðfærir verkið og er þar af leiðandi lykilmaður í að koma bröndurum til skila og  aukamerkingum  í tilsvörum, þegar það tekst verður það mjög til dæmis í skammstafanafargani sjúkrahússins: dæmi (eftir minni) DVK = (sjúklingur)dauður við komu og BKP = borgaralega klæddur prestur. Takist slík stað- og tímafærsla verður það brillíant, takist hún ekki verður það hallærislegt. Hvort tveggja sjáum við í Beint í æð.

Að þetta skuli vera farsi um lækna er kaldhæðni örlaganna í ljósi ástandsins í þjóðfélaginu hér og nú. Hópurinn fellir inn í sýninguna vísun til þess sem er að gerast í íslenska heilbrigðiskerfinu  og meira að segja Faraó maurarnir rötuðu samdægurs inn í sýninguna á föstudagskvöld!

Unaðsleg fagmennska

Hilmir Snær og mótleikari hans Grettir Sig (Guðjón Davíð Karlsson) fara algjörlega á kostum í  burðarhlutverkunum. Þeir eru vinir en andstæður. Þeir hafa svo mikla tækni, vald á svipbrigðum og tímasetningum, að það er ekki hægt annað en heillast af þeim. Hin karlhlutverkin eru lögga frá Höfn í Hornafirði  (Valur Freyr Einarsson) sem eltir son Jóns Borgars sem leitar föðurins, Grímur Briem (Hjörtur Jóhann Jónsson) aðstoðarlæknir sem er ábyrgur fyrir jólaveislu og búningamálum, Frímann (Sigurður Þór Óskarsson) sem var kannski gerður full krakkalegur miðað við að eiga að vera átján ára) , yfirlæknir sjúkrahússins Páll Óskar (Halldór Gylfason) og síðast en ekki síst elliæri sjúklingurinn Manfreð (Örn Árnason) sem var með sitt eigið leikrit í gangi sem þið megið ekki missa af. Allir eiga hrós skilið og fá það hér með.

Yfirhjúkrunarfræðingurinn, Jórunn (Þórunn Arna Kristjánsdóttir), er venjulega leikinn af eldri leikkonu en Þórunn Arna var býsna skaphörð og ekkert vantaði heldur upp á myndugleika Gróu, móður Grettis, sem Sigrún Edda Björnsdóttir lék,  þessi glæsilega kona hafði verið durguð svo upp að ég þekkti hana ekki þegar hún birtist.  Mótleikarar karlatvíeykisins eru eiginkona Jóns Borgars, Súsanna (Jóhanna Vigdís Arnardóttir), og fyrrverandi hjákona hans, Díana Thors (Maríanna Clara), sem fá fremur lítil hlutverk að moða úr miðað við karlana tvo en fara vel með þau. Lokaútganga Súsönnu varpaði eiginlega íronísku ljósi  á allt samspil þeirra hjóna. Verkið er  þunnildi en góð afþreying og aðdáunarverð fagmennska í fyrirrúmi.

Leikstjórn

Í viðtölum hefur Halldóra Geirharðsdóttir líkt leikstjórn af þessu tagi við hljómsveitarstjórn. Bak við svona farsa sem byggist á minnst tíu hliðarsögum sem vefast saman, miklum skiptingum, hraða og nákvæmni, er gífurleg vinna. Hér skal sérstaklega nefnd leikmynd Helgu I Stefánsdóttur sem er mjög góð, sótthreinsuð sjúkrastofa í grunninn, þó með aumingjalegum pálma af því að þetta er líka afdrep fyrir lækna.  Fjórir útgangar auðvelduðu mikil hlaup og úthendingar og glugginn/svalirnar sömuleiðis.

Það er full ástæða til að óska Halldóru Geirharðsdóttur til hamingju með sýninguna.

Deila

[/container]


Comments

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

138000511

138000512

138000513

138000514

138000515

138000516

138000517

138000518

138000519

138000520

138000521

138000522

138000523

138000524

138000525

article 138000526

article 138000527

article 138000528

article 138000529

article 138000530

article 138000531

article 138000532

article 138000533

article 138000534

article 138000535

article 138000536

article 138000537

article 138000538

article 138000539

article 138000540

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

158000406

158000407

158000408

158000409

158000410

158000411

158000412

158000413

158000414

158000415

article 158000416

article 158000417

article 158000418

article 158000419

article 158000420

article 158000421

article 158000422

article 158000423

article 158000424

article 158000425

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

article 208000436

article 208000437

article 208000438

article 208000439

article 208000440

article 208000441

article 208000442

article 208000443

article 208000444

article 208000445

article 208000446

article 208000447

article 208000448

article 208000449

article 208000450

208000436

208000437

208000438

208000439

208000440

208000441

208000442

208000443

208000444

208000445

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

228000256

228000257

228000258

228000259

228000260

228000261

228000262

228000263

228000264

228000265

228000266

228000267

228000268

228000269

228000270

228000271

228000272

228000273

228000274

228000275

228000276

228000277

228000278

228000279

228000280

228000281

228000282

228000283

228000284

228000285

article 228000286

article 228000287

article 228000288

article 228000289

article 228000290

article 228000291

article 228000292

article 228000293

article 228000294

article 228000295

article 228000296

article 228000297

article 228000298

article 228000299

article 228000300

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

238000257

238000258

238000259

238000260

article 238000261

article 238000262

article 238000263

article 238000264

article 238000265

article 238000266

article 238000267

article 238000268

article 238000269

article 238000270

news-1701