Herra Björnsson í leikriti


[container] 

Um höfundinn
Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir er prófessor emeríta í íslenskum nútímabókmenntum við Íslensku­- og menningardeild Háskóla Íslands. Sérsvið hennar er íslensk bókmenntasaga, kvennabókmenntir, barnabókmenntir, kynjafræði og sálgreining. Sjá nánar

Til hliðar á hálfrökkvuðu sviði Kassans í Þjóðleikhúsinu er hrúga af gömlum ferðatöskum og öðru því sem fólk staflar í bílskúra sína. Uppúr þessu rís manneskjumynd  sem hefur nánast runnið saman við ruslið. Þetta er Herbjörg María Björnsson, bílskúrsbúi, og eftir að hún hefur tekið til máls á hún sviðið.

Dramatísk dama

Það er að sjálfsögðu sýningin Konan við 1000° eftir Hallgrím Helgason sem hér um ræðir.  Herbjörg María er leikin af tveimur leikkonum, Herbjörgu yngri sem er leikin af Elmu Stefaníu Ágústsdóttur. Elma hefur komið sterkt inn í Harmsögu Mikaels Torfasonar, Eldraun Arthur Millers og nú í Konunni við 1000°. Elma túlkar Herbjörgu fram til ca.18 ára aldurs með áherslu á sakleysi hennar og einlægni. Herbjörg eldri er leikin af Guðrúnu Gísladóttur sem vinnur hlutverkið af nákvæmi og innsæi. Henni tekst að túlka Herbjörgu Hallgríms Helgasonar þannig að andstæðurnar í henni renna saman; hún er samtímis „lady and a tramp“, hámenntuð alþýðustúlka, viðkvæmur ruddi, klámfenginn púrítani. Hún talar í stuðlum eins og Blálandskeisari Benedikts Gröndals í Heljarslóðarorustu.

Eins og milljónir barna í Mið-Evrópu upplifir Herbjörg skelfingar síðari heimsstyrjaldarinnar, verður viðskila við foreldra sína tólf ára gömul og tekst að lifa af til stríðsloka en fær sinn skerf af hungri, nauðgunum og hryllingi sem merkja hana fyrir lífstíð. Tveimur heimsálfum, þremur eiginmönnum og fjórum börnum síðar hittum við hana í bílskúrnum, harða konu, óbilgjarna og reiða en um leið óborganlega klára og fyndna. Hugur hennar reikar til baka,  saga hennar er sögð í svipmyndum, stuttum senum, sem leiknar eru á tvískiptu sviðinu. Það er vel nýtt með yfir- og hliðarrými utan um hið þrönga rými hennar í skúrnum sem hún yfirgefur aldrei en þar sem minningarnar og persónur úr lífi hennar ryðjast inn. Konan við 1000° er ákaflega metnaðarfull sýning þar sem mikið hæfileikafólk leggur saman krafta sína.

Saga verður leikrit

Sögur Hallgríms Helgasonar eru ekkert sérlega vel fallnar til leikgerða, þær gerast í tungumálinu og styrkur þeirra er stríður straumur frumlegra vísana og mynda og harðsoðnar persónur sem eru heimur útaf fyrir sig. Baltasar Kormáki tókst þó vel að endurskapa kaldhæðna kynslóðarlýsingu bókarinnar Þetta er allt að koma í samnefndri sýningu fyrir tíu árum.  Skáldsagan Konan við 1000° eftir Hallgrím Helgason er hins vegar stórt, epískt verk sem fer yfir lönd og höf, kynnir lesanda fyrir fjölmörgum persónum sem lifa  viðburðaríkustu tíma tuttugustu aldarinnar og burðast með trámu sín allar götur síðan. Þessari sögu er breytt í leikrit með fáum leikurum á litlu sviði. Hallgrímur sjálfur, leikstjórinn Una Þorleifsdóttir og Símon Birgisson dramatúrg höfðu það erfiða verkefni og það gengur ekki nógu vel upp að mínu viti.

Of mikið, of hratt

Ég hafði ekki lesið bók Hallgríms fyrir sýninguna og hélt það væri kostur. Mér fannst sýningin um margt áhrifarík en jafnframt ansi „frústrerandi“. Ég skildi ekki  sumar senur, hvernig þær tengdust og hvað þær voru að gera,  það voru göt í myndinni. Ég tók mig því til og las skáldsögu Hallgríms næstu daga og fannst hún  alveg mögnuð. Þá skildi ég fyrst hve ótrúlega flókið samband Herbjargar er við fjölskyldu sína, hvernig góðu tímarnir með drengjunum gera svikin verri og særindin illskeyttari. Þessi undirbygging bókarinnar hefði vel mátt koma skýrar fram í sýningunni. Samskipti Herbjargar við Magnús (sem leikinn er af Baldri Trausta Hreinssyni) og konu hans Ragnheiði (sem leikin er af Eddu Arnljótsdóttur) voru  mjög vel unnin og áhrifarík en maður gat ekki vitað hvort hefði nokkurn tíma verið tilfinningasamband milli Herbjargar og sona hennar.

Í leikgerðinni er lögð áhersla á stríðið og þar koma saman þrír meginþættir verksins sem er  saga íslensku þjóðarinnar, fjölskylduharmleikur Herbjargar, og sú ógn og skelfing sem hún upplifir sem barn og umbreytir henni í þann varg sem hún verður. Þar hefði mátt setja punkt. Eftir það verður barnsmissirinn sem Herbjörg segir frá í míkrófón  ekki tragískur hápunktur. Mannraunir, nauðganir og sifjaspell (sem ég skildi fyrst eftir að hafa lesið bókina), hafa hlaðist upp of hratt á of stuttum tíma og eftir það er einhvern veginn engin leið til baka. Eins og kerlíngin segir í Birtingi: „Mér þætti gaman að vita hvort verra er að láta blámenn nauðga sér hundrað sinnum, láta skera af sér þjóhnappinn, gánga svipugaungin hjá Búlgurum, vera húðstrýktur og heingdur í trúarathöfn, vera krufður, róa galeiðu, rata í allar þær raunir sem við höfum þolað, eða hánga hér í aðgerðaleysi?“

Það hefði áreiðanlega verið hægt að gera stórmynd uppúr hinni miklu bók Hallgríms eða kosta öllu til og setja leikritið upp á stóra sviðið í Þjóðleikhúsinu með fjölda leikara eða breyta henni í einleik (með Guðrúnu Gísladóttur) sem hefði kannski verið best.  Hvað veit ég. Um sýninguna eru skiptar skoðanir eins og fram hefur komið í viðtökum. Ég sagði í upphafi að það er mikið hæfileikafólk sem leggur saman krafta sína í þessari metnaðarfullu sýningu en fyrir mína parta held ég að verkefnið hafi verið óvinnandi frá upphafi.

Deila

[/container]


Comments

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

news-1312

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

judi bola online

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

ayowin

mahjong ways

judi bola online

mahjong ways 2

JUDI BOLA ONLINE

maujp

maujp

12021

12022

12023

12024

12025

12026

12027

12028

12029

12030

12031

12032

12033

12034

12035

20021

20022

20023

20024

20025

20026

20027

20028

20029

20030

20031

20032

20033

20034

20035

30021

30022

30023

30024

30025

30026

30027

30028

30029

30030

30031

30032

30033

30034

30035

80001

80002

80003

80004

80005

80006

80007

80008

80009

80010

80011

80012

80013

80014

80015

80016

80017

80018

80019

80020

80021

80022

80023

80024

80025

80026

80027

80028

80029

80030

9041

9042

9043

9044

9045

80031

80032

80033

80034

80035

80036

80037

80038

80039

80040

80041

80042

80043

80044

80045

11035

11036

11037

11038

11039

11040

11041

11042

11043

11044

30036

30037

30038

30039

30040

30041

30042

30043

30044

30045

80046

80047

80048

80049

80050

80051

80052

80053

80054

80055

80056

80057

80058

80059

80060

80061

80062

80063

80064

80065

12036

12037

12038

12039

12040

12041

12042

12043

12044

12045

12046

12047

12048

12049

12050

20036

20037

20038

20039

20040

20041

20042

20043

20044

20045

20046

20047

20048

20049

20050

30046

30047

30048

30049

30050

30051

30052

30053

30054

30055

30056

30057

30058

30059

30060

80066

80067

80068

80069

80070

80071

80072

80073

80074

80075

80076

80077

80078

80079

80080

80081

80082

80083

80084

80085

80086

80087

80088

80089

80090

80091

80092

80093

80094

80095

30081

30082

30083

30084

30085

30086

30087

30088

30089

30090

80096

80097

80098

80099

80100

80101

80102

80103

80104

80105

80106

80107

80108

80109

80110

80111

80112

80113

80114

80115

80116

80117

80118

80119

80120

80121

80122

80123

80124

80125

80126

80127

80128

80129

80130

80131

80132

80133

80134

80135

news-1312