Um höfundinn
Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir er prófessor emeríta í íslenskum nútímabókmenntum við Íslensku­- og menningardeild Háskóla Íslands. Sérsvið hennar er íslensk bókmenntasaga, kvennabókmenntir, barnabókmenntir, kynjafræði og sálgreining. Sjá nánar

Vesturport og Borgarleikhúsið frumsýndu leikritið Bastarðar eftir Richard LaGravenese á og Gísla Örn Garðarsson á laugardaginn 27. október. Sýningin er metnaðarfull, morðfyndin og full af hæfileikum en heldur ekki fluginu til enda.

Harðstjórinn

Sviðsmynd Barkar Jónssonar er glæsileg. Hluti af áhorfendum situr á bekkjaröðum í leikmyndinni á móti stóra salnum enda má lesa í efni um sýninguna að hún sé hönnuð til ferðalaga og sýninga m.a. í stóru sirkustjaldi.

Við áhorfendum blasir eyja, gróðursæl með afbrigðum, með tjörn á miðju sviði og glerhvelfingu yfir því og í þessu„glerhúsi“ er steinunum  aldeilis kastað. Í fyrstu senunni birtast okkur faðirinn Magnús (Jóhann Sigurðsson) og eftirlætissonur hans Axel (Sigurður Þór Óskarsson). Faðirinn hlýðir syninum yfir  þau gildi og þann mannskilning sem hann hefur kennt honum og vill að verði honum leiðarljós. Boðskapur hans er skýr,  stefnuskrá hans er full af mannhatri, ofbeldi og og mannfyrirlitningu, en hatur hans beinist einkum og sér í lagi að börnum sínum. Miklu ofbeldi hefur hann beitt móður þeirra og börnin, önnur en Axel, vill hann losna við með því að kaupa þau útúr lífi sínu.

Vísanirnar fossa fram í leikritinu því að Magnús hyggst „éta“ börnin sín eins og guðinn Krónos, svo að þau ógni honum ekki, og rétt eins og frumfaðirinn ætlar Magnús að taka girnilegustu konuna frá syni sínum til að undirstrika völd sín og getu. Hann getur það af því að hann setur lögin. Þessi evrópska harmleikjahefð er mögnuð upp með mikilúðlegri hljóðmynd Lars Danielsson og Cæcilie Norby. Lýsing Carinu Persson og Þórðar Orra Péturssonar er sjónarspil en íburðarmikil þannig að (þessi) áhorfandi spurði sig stundum hvort hún beindi athygli að eða frá veigamiklum atburðum á sviðinu.

Höfundur verksins

Höfundur verksins er í leikskrá sagður Richard LaGravense sem er frægur handritahöfundur í Hollywood en í kynningu á verkinu eru þeir Gísli Örn Garðarsson báðir skrifaðir fyrir leikritinu. Í stuttu en athyglisverðu viðtali við LaGravense undirstrikar hann muninnn á því að skrifa fyrir kvikmyndir og leikhús. Eftir að handritshöfundur kvikmyndar afhendir handritið sitt kvikmyndaframleiðanda hefur hann ekkert um meðferð þess að segja og það kann að gjörbreytast svo að hann þekki það ekki aftur. Þessu er ólíkt farið í leikhúsi þó að endanlegt handrit sé líka samvinnuverk þar. LaGravense segir að innblásturinn að verkinu hafi verið Karamazov-bræðurnir eftir Fjodor Dostojevskí og þeir Gísli hafi komið sér niður á að bræðurnir séu „þrjár manngerðir sem áttu að endurspegla þrjár hliðar manneskjunnar: Skynfærin, tilfinningarnar og hugsunina.“ Þetta hlýtur að skoðast sem örútgáfa á því hinu mikla verki Karamazov bræðrunum svo ekki sé meira sagt. Að auki segir LaGravense að Gísli Örn hafi sent sér Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness en áhrif Bjarts í Sumarhúsum eru ekki sérlega ljós í verkinu.

Skýrar persónur

Magnús er drullusokkur og mannhatari og fer illa með alla. Hann brýtur fólkið í kringum sig varanlega niður. Þetta kemur skýrt í ljós fyrir hlé og í túlkun Jóhanns Sigurðssonar var hrottaskapur og andleg grimmd karlsins ógurleg. Öll börn hans eru eyðilagðar manneskjur. Elsti sonurinn Mikael (Stefán Hallur Stefánsson) hallast að einhvers konar ný-nasískri hugmyndafræði til að pumpa upp veika sjálfsmynd sína. Miðsonurinn Jóhann (Hilmir Snær) er svo mikil drusla að allt lekur útúr höndunum á honum – hann er svo getulaus að hann getur ekki einu sinni haldið rándýrum perversjónum sínum gangandi og svo nöldursamur og svo tilþrifamikill í sjálfsmeðaumkvuninni að áhorfendur áttu ekki í neinum vandræðum með að gleðjast yfir óförum hans. Hann er giftur tryggðatrölli og mjög svo meðvirkri konu, Natalíu (Elvu Ósk Ólafsdóttur).

Þá er eftir yngsti bróðirinn Alex sem er eftirlætissonur Magnúsar og á að verða arftaki föðurins. Allir laðast að honum eins og Alyosha í Karamazov bræðrunum. Því er öfugt farið með hina bitru dóttur Mörtu (Þórunni Ernu Clausen) sem líkist fyrirlitinni og píndri móður sinni og liggur fyrir fótum harðstjórans. Sá eini sem er verr settur en hún er hinn undirgefni maður hennar (Víkingur Kristjánsson) og hún níðist á honum. Síðasta og óræðasta „persónan“ í leikritinu er svo hálfnakinn maður (Jóhannes Níels Sigurðsson) sem sveimar um á þaki hússins og vindur sig utan um rær og sperrur og hangir á haus og rennur upp og niður kaðla. Hann á að vera að mála mynd af Magnúsi og gerir það öðru hvoru en dregur að sér ótrúlega athygli þar fyrir utan. Alveg er mér fyrirmunað að skilja hvaða hlutverki hann gegndi í sýningunni fyrir utan að vera kattliðugur og fagurlimaður. Fyrir hlé voru allar aðrar persónur vel mótaðar enda hörkuleikarar að verki og átakalínur allar skýrar og fín stígandi í verkinu.

Eftir hlé

Eftir hlé bættist sáralítið við einkenni eða sögur persónanna nema helst tálkvendisins og tilvonandi eiginkonu harðstjórans, Margréti (Nínu Dögg Filippusdóttur). Og hvernig átti annað að vera? Það er ekkert spaug að vera mótaður af skepnu og þó grimmd föðurins verði æ yfirgengilegri getur ekkert barnanna risið upp gegn honum ef eitthvað er að marka kenningar um alræðissamfélagið. Systkinin eru mannlegar rústir. Uppreisnin verður að koma utan frá, eitthvað eða einhver verður að gefa einhverju þeirra styrk til að virkja hatrið til að rjúfa hringinn því að þó að öll óski föðurnum dauða þorir enginn að vinna verkið. Það þarf hins vegar að enda þetta drama (eða kómedíu) einhvern veginn en niðurstaðan kemur eins og skrattinn úr sauðarleggnum. Á leiðinni að þessari „lausn“ eru mörg þemu, slapstikk og hopp í tjörnina sem eru hugkvæm og skemmtileg en endurtekin of oft og sá skarpi fókus sem er í fyrri hlutanum verður óskýrari. Það var synd.

Deila


Comments

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

news-1412

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

judi bola online

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

ayowin

mahjong ways

judi bola online

mahjong ways 2

JUDI BOLA ONLINE

maujp

maujp

20021

20022

20023

20024

20025

20026

20027

20028

20029

20030

20031

20032

20033

20034

20035

30021

30022

30023

30024

30025

30026

30027

30028

30029

30030

30031

30032

30033

30034

30035

80001

80002

80003

80004

80005

80006

80007

80008

80009

80010

80011

80012

80013

80014

80015

80016

80017

80018

80019

80020

80021

80022

80023

80024

80025

80026

80027

80028

80029

80030

80136

80137

80138

80139

80140

80211

80212

80213

80214

80215

80216

80217

80218

80219

80220

9041

9042

9043

9044

9045

80031

80032

80033

80034

80035

80036

80037

80038

80039

80040

80041

80042

80043

80044

80045

80141

80142

80143

80144

80145

80146

80147

80148

80149

80150

80151

80152

80153

80154

80155

30046

30047

30048

30049

30050

30051

30052

30053

30054

30055

30056

30057

30058

30059

30060

80066

80067

80068

80069

80070

80071

80072

80073

80074

80075

80076

80077

80078

80079

80080

80081

80082

80083

80084

80085

80086

80087

80088

80089

80090

80091

80092

80093

80094

80095

30081

30082

30083

30084

30085

30086

30087

30088

30089

30090

80096

80097

80098

80099

80100

80101

80102

80103

80104

80105

80106

80107

80108

80109

80110

80111

80112

80113

80114

80115

80156

80157

80158

80159

80160

80161

80162

80163

80164

80165

80166

80167

80168

80169

80170

80116

80117

80118

80119

80120

80121

80122

80123

80124

80125

80126

80127

80128

80129

80130

80131

80132

80133

80134

80135

80171

80172

80173

80174

80175

80176

80177

80178

80179

80180

80181

80182

80183

80184

80185

80186

80187

80188

80189

80190

80191

80192

80193

80194

80195

80196

80197

80198

80199

80200

80201

80202

80203

80204

80205

80206

80207

80208

80209

80210

news-1412