Aldarspegill í útvarpi

Aldarspegill í útvarpi er útvarpsþáttaröð sem Eggert Þór Bernharðsson, prófessor í hagnýtri menningarmiðlun, gerði í tilefni af 80 ára afmæli útvarpsins árið 2010. Nú er hægt að hlusta á þættina á hlaðvarpi Ríkisútvarpsins og á iTunes.

Þættirnir eru átta og í hverjum þætti er fjallað um einn áratug. Efni Aldarspegils í útvarpi er að miklu leyti byggt á hljóðritum í segulbandasafni Útvarpsins. Safnið er mikið að vöxtum og afar forvitnilegt – eins konar spegill þjóðlífsins.

  1.  Frá kreppu til styrjaldar. 1930-1940.
  2. Sjálfstæð þjóð í samfélagi þjóðanna. 1940-1950.
  3. Menningardeigla um miðbik aldar 1950-1960.
  4. Hve glöð er vor æska. 1960-1970.
  5. Í fréttum er þetta helst. 1970-1980.
  6. Tvær rásir. 1980-1990.
  7. Fréttir á samtengdum rásum. 1990-2000.
  8. Sveiflur í samfélaginu. 2000-2010.

 

 

 

 

 

 

 

 


Comments

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *