Tíu seríur af sorg og svefnleysi

[cs_text]Sex eftirlifendur ranka við sér í algjöru óminni á óræðum stað. Eitthvað hefur gerst en enginn veit hvað. Kannski hefur einhver ýtt á rauða takkann og framkallað heimsendi. Ekkert er eftir nema rústir einar og bergmál af dósahlátri, jú, og safndiskur með áletruninni F.R.I.E.N.D.S. Út frá sjónvarpsþáttunum reyna eftirlifendur að staðsetja sig að nýju, endurbyggja siðmenningu, lög, reglu, trúarbrögð og heimspeki og skilja hvað það var sem fór úrskeiðis.

Þetta er uppleggið í nýju sviðsverki úr smiðju Stertabenduhópsins sem kallast Insomnia Café. Stertabenda er hinsegin leikhópur sem byggir aðgerðir og fagurfræði á hinsegin gagnrýni. Verkið er krufning á Friends-þáttaröðinni geysivinsælu um vinina sex; Ross Geller, Monicu Geller, Rachel Green, Phoebe Buffay, Joey Tribbiani og Chandler Bing. Þau eru bestu vinir, búsett í New York í Bandaríkjunum og verja bróðurparti af sínum tíma saman á kaffihúsinu Central Perk. Leikhópurinn hefur einsett sér að rannsaka húmor og virkni grínsins í gegnum Friends, efni sem heilu kynslóðirnar þekkja eins og eigið handabak.

Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstjóri, ásamt leikhópnum í heild, ætlar að rannsaka hvernig sjálfsmynd kynslóða verður til í gegnum skemmtanaiðnaðinn í samtímanum. Hópurinn notar Friends-þáttaröðina sem stökkpall inn í rannsóknina.

„Ástæðan fyrir því að Friends varð fyrir valinu er einföld. Þættirnir eru kanóna í poppkúltúr og hluti af uppeldi heilu kynslóðanna. Þeir eru algjört fenómen sem hafa tröllriðið allavega tveimur kynslóðum ungs fólks á okkar tímum. Þættirnir hafa síast inn í meðvitund okkar, dómgreind og litað afstöðu okkar hvort sem við viðurkennum það eða ekki. Við kunnum Friends utan að og vitum hvernig persónurnar bregðast við í öllum aðstæðum. Við þekkjum þær eins og okkar eigin vini og dýrkum þær nánast eins og guði,“ segir Gréta um þættina sem voru í loftinu frá 1994 til 2004.

Leikhópurinn Stertabenda

En hvað er það við þættina sem þér þykir áhugavert að skoða?

„Það sem kveikir í mér er að þetta er einhvers konar spegill á nútímasamfélag sem einkennist af „antí-intellektúalisma“. Við lifum á hátindi síðsannleikans, falskra frétta og afneitunar á vísindalegum staðreyndum. Þessi nýaldarheimspeki snýst um að ef þú trúir einhverju bara nógu mikið þá sé það satt. Þetta grefur undan undirstöðum vísinda og þekkingar. Það er algjör hylling á þessu í þáttunum. Þetta eru tíu ár þar sem sex vinir búa saman og þau þróast ekki neitt. Það verður rúnnun á karakterunum, þeir verða hvorki dýpri né margbrotnari, þeir verða einfaldari, þeir verða meiri steríótýpur, karíkatúrar og innantóm.

Þeir virka eins og þeir séu bara þarna til að þjóna þessum brandara. Allt snýst um að viðhalda „status quo“ og að halda tryggð við þitt hlutverk innan hópsins og ekki fara út fyrir kassann. Ekki sækja þér þekkingu einhvers staðar, ekki efast. Það er ákveðin tilbeiðsla á því hversdagslega. Í þáttunum er ekki hvatning til að gera eitthvað stórfenglegt, að breyta heiminum eða að hefja byltingu,“ segir Gréta sem bendir á að hegðun sexmenninganna í Friends hafi letjandi áhrif á lýðræðislega þátttöku.

„Handritshöfundar þáttanna forðuðust í lengstu lög að skrifa um stjórnmál til þess að höfða til breiðari áhorfendahóps. Það er bara betra að vera fáfróður og glaður með þitt. Það eina sem þú þarf að hugsa um er næsti kaffihúsahittingur með vinahópnum þínum. Síðan er gert stólpagrín að Ross, þeim eina sem sóttist eftir framgangi í vísindum og námi.“

Allir hafi verið meðvitaðir um hversu „leiðinlegur“ Ross væri. Hann var ekki fyrr byrjaður að tjá sig um sín fræði þegar gripið var fram í fyrir honum og alltaf talaði hann fyrir daufum eyrum vina sinna.

„Það sama gildir um Phoebe. Hún er hin hliðin á sama pening. Hún býr yfir visku um mýtólógíu eða hið andlega og er af þeim sökum álitin geðveik. Hennar trámatíska saga verður að brandara. Brandarinn verður, eftir því sem líður á, að einhvers konar guði sem þau lifa öll fyrir. Það gengur allt út á „pönslænið“ og vélin tekur yfir; næsti brandari, næsti brandari, næsti brandari…“

Svo eru þversagnir í þessu öllu saman?

„Já, við tökum ekki afstöðu með neinum vinanna heldur köfum ofan í þversagnirnar innan þáttanna sem verða til í gríninu. Um margt voru þættirnir nefnilega á undan sinni samtíð og jafnvel byltingarkenndir með umfjöllun sinni um trans fólk, staðgöngumæðrun. Þættirnir sýndu meira að segja giftingu tveggja kvenna og var sá þáttur bannaður í mörgum ríkjum í Bandaríkjunum. Síðan er eins og efnistökin taki að súrna og jafnvel úrkynjast en alltaf klædd smekklega í búning gríns, doða og slens.“

Hvaðan kemur nafnið á sviðsverkinu, Insomnia café?

Friends-þættirnir áttu upprunalega að heita Insomnia Café. Þeir áttu að gerast á þessu kaffihúsi sem síðar verður Central Perk en Insomnia Café er staður þar sem fólk hittist sem getur ekki sofið. Svefnleysi er líka ákveðinn lykill inn í þetta fyrir okkur. Hvers vegna getum við ekki sofið? Við horfum á Friends þegar við getum ekki sofið.“

Gæti það tengst því hversu vinsælir þættirnir urðu? Borgarlífi fylgir óhjákvæmilega einmanaleiki. Reyna áhorfendur að finna vinskap í karakterunum?

„Já, það er ákveðin friðþæging með áhorfinu. Það verður einhvers konar framlenging á sjálfi áhorfandans. Ég hef alveg fundið það sjálf þegar ég hef horft á þættina að ég fer að hugsa með sjálfri mér hvað Monica Geller myndi gera í þessum aðstæðum. Hvað myndu þau ráðleggja mér að gera? Þau verða einhvers konar staðgengill fyrir félagslíf.“

Hver er þinn uppáhalds karakter í Friends?

„Ég tengi mest við Chandler Bing. Mér finnst hann svo tragískur karakter. Það er svo mikil sorg í honum og hann notar kaldhæðni til að breiða yfir hana. Hann burðast um endalaust með einhverja grímu og á mjög erfitt með tilfinningar sínar.“

Síðan er það manífestóið sem á að lita allt ykkar samstarf. Hvað eigið við með sorg sem umfjöllunarefni og aðferð í sviðslist?

„Sorg sem lógík. Það er einhver ólínuleg rökleysa með sorginni. Hún er ofsafengið og stundum drepfyndið ferðalag í myrkri og það er enginn áfangastaður. Aðferð sorgarinnar leyfir okkur að vera samhengislaus því sorg er samhengislaus. Hún tekur okkur úr samhengi við okkur sjálf og umhverfið og fer með okkur á staði sem eru ekki ennþá til. Við erum náttúrulega að skrifa verk um heimsendi.“

Leikhúsmiðillinn sjálfur er hluti af þessari rannsóknarvinnu, ekki satt?

„Jú, leikhúsmiðillinn sjálfur verður kannaður og pælingar honum tengdar verða í forgrunni verksins. Þessa metafóru sem leikhúsmiðillinn er nota ég sem tæki til að sýna fram á að hugmyndafræðikerfin sem við búum við eru bæði manngerð og tilfallandi og þar af leiðandi ekki föst heldur breytanleg. Það er áhugavert að sjá persónur verða til á sviði. Það er ákveðið samkomulag sem er gert við áhorfendur því þeir ganga inn í „samþykkta blekkingu“. Þarna er einhver sannleikur sem er samt ekki veruleiki. Um leið og við sýnum brestina og glufurnar í heildarmyndinni sjáum við hvernig hlutir eru samsettir, á sama hátt og sjálfsmyndir, heimsmyndir eða þjóðarsál.“

Insomnia Café verður sýnt í Þjóðleikhúsinu í byrjun nóvember en Stertabenduhópurinn hefur fengið til liðs við sig danskt leikskáld, Amalie Olsen. Um þessar mundir liggja meðlimir leikhópsins yfir rannsóknarvinnu. Það fellur síðan í skaut Amalie að vinna úr hugmyndunum og setja þær saman í heildstætt verk.

Að Stertabenduhópnum standa þau Gréta Kristín Ómarsdóttir leikstjóri, leikararnir Bjarni Snæbjörnsson og Þorleifur Einarsson, leikkonurnar Tinna Sverrisdóttir og María Heba Þorkelsdóttir og Hljómsveitin Eva en hana skipa þær Vala Höskuldsdóttir og Sigríður Zophaníasardóttir.

Þetta er í annað sinn sem leikhópurinn kemur saman en síðast vann hann að útskriftarsýningu Grétu frá Listaháskóla Íslands á sviðshöfundabraut, Stertabendu, eftir Marius Von Mayerburg. Verkið hlaut frábæra dóma; Gréta hlaut Grímuverðlaun sem Sproti ársins 2017 fyrir Stertabendu og þá var hún valin ein af bestu sýningum ársins 2017 hjá Morgunblaðinu.

Nú er hópurinn kominn saman aftur og leggur upp í annað ævintýri.

Þessi umfjöllun var hluti af verkefnavinnu í námskeiðinu „Loksins, loksins: Vinnustofa í menningarblaðamennsku“ á vorönn 2018.[/cs_text]

Um höfundinn
Margrét Helga Erlingsdóttir

Margrét Helga Erlingsdóttir

Margrét Helga Erlingsdóttir er meistaranemi í blaða- og fréttamennsku.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

118000781

118000782

118000783

118000784

118000785

118000786

118000787

118000788

118000789

118000790

118000791

118000792

118000793

118000794

118000795

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000246

228000247

228000248

228000249

228000250

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701