[cs_text]Margir hafa séð myndina Legally Blonde þar sem Reese Witherspoon er í aðalhlutverki sem ljóskan Elle Woods. Færri vita kannski að til er söngleikur sem byggður er á kvikmyndinni. Söguþráðurinn í báðum útsetningunum er svipaður. Elle Woods er forseti systrafélagsins og aðalskvísan í menntaskólanum en þegar kærastinn hennar, Warner Huntington III, hættir með henni til að komast inn í laganám í Harvard tekur hún til sinna ráða. Hún ákveður að gera allt sem í hennar valdi stendur til að komast líka inn í Harvard og elta það sem hún heldur að sé ástin í lífi hennar. Þegar þangað er komið kemst Elle að því að laganámið á vel við hana og hún er ekki bara sæt ljóska heldur líka efni í góðan lögfræðing.

Nú hefur Fúría, leikfélag Kvennaskólans í Reykjavík, sett upp söngleikinn Legallý Blonde í leikstjórn Agnesar Wild, sem þýddi einnig handritið með aðstoð frá leikhópnum. Þetta er stærsta uppsetning Fúríu til þessa en áður voru sýningarnar minni og yfirleitt settar upp í matsal Kvennaskólans. Það er ánægjulegt að Fúría skuli hafa ákveðið að fara þá leið að setja upp stærri sýningar en áður og leikhópurinn hefur stækkað og orðið mun fjölbreyttari í kjölfar þess. Í fyrra var söngleikurinn Litla hryllingsbúðin settur á svið í Iðnó og þar er Legallý Blonde er einnig sýnd.

Söngleikurinn er hressandi og skemmtilegur og lögin lífga söguþráðinn við. Mér þykir uppsetningin sem og þýðingin hafa tekist vel. Leikararnir, sem margir hverjir eru líklega að stíga sín fyrstu skref á sviði, standa sig vel. Mikið mæðir á Þórunni Birtu Sigurðardóttur í aðalhlutverkinu sem ljóskan Elle Woods, þar sem hún er á sviðinu nánast allan tímann og syngur og dansar, en hún leysti hlutverk sitt mjög vel af hendi. Í hlutverki Emmets, fátæka námsmannsins sem er ástfanginn af Elle, er Daníel Óskar Jóhannesson og hann var einnig sannfærandi. Það er erfitt að benda á ákveðna leikara þar sem þeir standa sig allir frábærlega en þó er vert að minnast á Pálínu Ingibjörgu Jónmundsdóttur í hlutverki Paulette Bonafonté. Hún er fantagóð söngkona og leikur hlutvert hinnar óöruggu Paulette af stakri prýði. Samskipti hennar og Kyle, sem leikinn er af Alexi Elí Scheitz Jakobssyni, eru einnig óborganlega fyndin.

Auglýsing (trailer) fyrir söngleikinn á Facebook-síðu Fúríu.

Þórunn Birta Sigurðardóttir í hlutverki ljóskunnar Elle. Mynd: leikhópurinn Fúría.

Helst er hægt að setja út á hljóðblöndunina í nokkrum lögum en lagatextinn er hluti af söguþræðinum og stundum var erfitt að greina orðaskil. Þá ber að nefna að leikhúsrýmið hefur sína galla. Salurinn á neðri hæð Iðnó hefur gegnt hlutverki leikhúss síðan 1897 og segja má að hægt væri að hressa aðeins upp á ýmislegt þar á bæ og færa í nútímalegra horf. Bæta þyrfti loftræstikerfið en loftið þar inni verður fljótt mjög þungt. Stólarnir sem boðið er upp á eru mjög harðir og óþægilegir og varla er hægt að ætla ömmunum sem voru með mér í för að sitja á þeim út heila leiksýningu. Við sátum í þriðju stólaröð og þar sem stólunum er raðað á flatt gólf, án stalla eða upphækkana, er erfitt að sjá á allt leiksviðið í einu. Það er óþægilegt þegar mikið er um að vera á sviðinu, til dæmis í dansatriðunum.

Sýningin er í heild vel heppnuð. Hún er hressandi, hröð og aldrei kemur dauður punktur. Það er skemmtilegt að mæta á menntaskólauppsetningar því leikgleði ungu leikaranna er svo áberandi, eitthvað sem maður sér ekki alltaf jafn mikið af hjá atvinnuleikurum. Fúría á hrós skilið fyrir þessa skemmtilegu leiksýningu og vel er hægt að mæla með að fólk mæti með púða (munið slæmu stólana í Iðnó) og gleymi sér eina kvöldstund með ljóskunni Elle Woods. Það þarf þó að hafa hraðar hendur en aðeins tvær sýningar eru eftir, 22. og 23. mars.

 

Aðalmynd: Leikhópurinn Fúría á æfingu.

Þessi umfjöllun var hluti af verkefnavinnu í námskeiðinu „Loksins, loksins: Vinnustofa í menningarblaðamennsku“ á vorönn 2018.[/cs_text]

Um höfundinn
Jóhanna Sif Finnsdóttir

Jóhanna Sif Finnsdóttir

Jóhanna Sif Finnsdóttir er meistaranemi í HÍ.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1412

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

judi bola online

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

ayowin

mahjong ways

judi bola online

mahjong ways 2

JUDI BOLA ONLINE

maujp

maujp

20021

20022

20023

20024

20025

20026

20027

20028

20029

20030

20031

20032

20033

20034

20035

30021

30022

30023

30024

30025

30026

30027

30028

30029

30030

30031

30032

30033

30034

30035

80001

80002

80003

80004

80005

80006

80007

80008

80009

80010

80011

80012

80013

80014

80015

80016

80017

80018

80019

80020

80021

80022

80023

80024

80025

80026

80027

80028

80029

80030

80136

80137

80138

80139

80140

80211

80212

80213

80214

80215

80216

80217

80218

80219

80220

9041

9042

9043

9044

9045

80031

80032

80033

80034

80035

80036

80037

80038

80039

80040

80041

80042

80043

80044

80045

80141

80142

80143

80144

80145

80146

80147

80148

80149

80150

80151

80152

80153

80154

80155

30046

30047

30048

30049

30050

30051

30052

30053

30054

30055

30056

30057

30058

30059

30060

80066

80067

80068

80069

80070

80071

80072

80073

80074

80075

80076

80077

80078

80079

80080

80081

80082

80083

80084

80085

80086

80087

80088

80089

80090

80091

80092

80093

80094

80095

30081

30082

30083

30084

30085

30086

30087

30088

30089

30090

80096

80097

80098

80099

80100

80101

80102

80103

80104

80105

80106

80107

80108

80109

80110

80111

80112

80113

80114

80115

80156

80157

80158

80159

80160

80161

80162

80163

80164

80165

80166

80167

80168

80169

80170

80116

80117

80118

80119

80120

80121

80122

80123

80124

80125

80126

80127

80128

80129

80130

80131

80132

80133

80134

80135

80171

80172

80173

80174

80175

80176

80177

80178

80179

80180

80181

80182

80183

80184

80185

80186

80187

80188

80189

80190

80191

80192

80193

80194

80195

80196

80197

80198

80199

80200

80201

80202

80203

80204

80205

80206

80207

80208

80209

80210

news-1412