Valdakonur og hatursmenn þeirra

[container]

Um höfundinn
Gauti Kristmannsson

Gauti Kristmannsson

Gauti Kristmannsson er prófessor í þýðingafræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Rannsóknasvið hans eru almenn þýðingafræði, enskar og þýskar bókmenntir, upplýsingin í Evrópu, þýðingasaga, málstefna á Íslandi og annars staðar og íslenskar samtímabókmenntir. Sjá nánar

Nú þegar járnfrúin svokallað hefur verið borin til grafar er ekki úr vegi að velta fyrir sér stöðu kvenna í æðstu valdastöðum, því hún var meðal þeirra fyrstu að gegna slíkri stöðu og raunar sú fyrsta í Evrópu. Þann skugga bar á andlát hennar að það hlakkaði í sumum andstæðinga stefnu hennar sem vissulega var umdeild, svo umdeild til dæmis að henni og eftirmanni hennar tókst að gera Skotland að því sem menn kölluðu „Tory free zone“ á tíunda áratugnum og hefur Íhaldsflokkurinn breski ekki borið sitt barr þar síðan.

En kannski er það ekki svo mikið einsdæmi þegar konur eiga í hlut, einhvern veginn virðist heiftin og rætnin í þeirra garð stundum, ef ekki oft, eiga rætur í kvenhatri, fyrirbrigði sem a.m.k. er þekkt aftur til Forn-Grikkja, enda á fræðiorðið „misogyny“ í ensku t.d. rætur að rekja til forn-gríska orðsins.

Kvenhatur virðst verða mjög stækt þegar um konur í valdastöðum er að ræða. Margaret Thatcher var vissulega óvinsæl meðal pólitískra andstæðinga, jafnvel hötuð, en reikna má með að stefna hennar og Íhaldsflokksins hafi átt stóran þátt í því. Hins vegar var hún ekki jafn vinsæl innan flokksins og sá sem hér ritar gleymir seint ræðu Geoffreys Howes í breska þinginu haustið 1990 þar sem hann pakkaði fögrum mælskulistarrýtingi í flauel vel valinna orða og rak hann bakið á járnfrúnni sem reyndist á endanum vera úr mýkra efni eins og við öll.

Fleiri dæmi koma upp í hugann, t.d. hér á Íslandi og í Þýskalandi. Jóhanna Sigurðardóttir hefur þurft að sitja undir meiri svívirðingum og hreinum ósannindum að mínum dómi en margur karlinn sem gert hefði hið sama og hún í embætti. Oftast heyrist að hún hafi valið leið illinda og átaka í stað samstöðu eins og það hafi verið reglan hér áður fyrr. Þetta er vitaskuld rangt, stjórnmál á Íslandi hafa ævinlega verið lituð af miklum átökum og við þekkjum vel stjórnmálaskörunga sem höfðu það prinsipp, líka gegn betri vitund, að mæla engu bót sem andstæðingarnir lögðu fram. Nú vil ég taka fram, til að fyrirbyggja allan misskilning, að ég þekki ekki Jóhönnu Sigurðardóttur persónulega á nokkurn hátt, en mér hefur virst hin opinbera umræða undanfarin ár vera lituð af einhverju hatri sem á sér dýpri rætur en einungis stjórnmálaátök.

Orðavalið og líkingarnar sem beitt er stundum þegar valdakonur eiga í hlut er oft fyrir neðan alla lágkúru; þannig fékk Ingibjörg Sólrún Gísladóttir oft stimpla í opinberri umræðu sem segja meira um andstæðingana en hana. Meira að segja Vigdís Finnbogadóttir, sem náði að sameina þjóðina á bak við sig, mátti heyra í kosningabaráttunni 1980 óheyrilegar spurningar sem henni tókst að gera út af við með hnyttilegu tilsvari. Nú síðast voru menn fljótir til að koma með myndhverfa lýsingu á Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í valdabaráttunni innan Sjálfstæðisflokksins.

Kvenhatrið nær þó ekki alltaf yfirhöndinni. Önnur umdeild kona í valdamesta embætti lands síns er Angela Merkel. Hún er ekki hötuð í heimalandi sínu, langt í frá, hún er margfalt vinsælli en flokkur hennar, Kristilegir demókratar, og ríkisstjórnin sem hún leiðir. Hún er þó ekki elskuð af öllum, og hún hefur að sumu leyti beitt svipuðum aðferðum og Margaret Thatcher gerði í innanflokksmálum, að losa sig fljótt og vel við hættulega karlkyns keppinauta, sem stundum bera sig ekki vel á eftir. Til valda komst hún einmitt með því að vera fyrst að benda á að flokkurinn þyrfti að gera upp við Helmut Kohl sem þá stóð hnédjúpt í pólitísku foraði sem snerist um ólögleg fjárframlög til flokksins.  Hún var hins vegar ekki hafin upp til skýjanna strax og lék þá snjallan millileik í valdabaráttunni. Af því að valdamennirnir í flokknum vildu hana ekki bauð hún Edmund Stoiber, formann systurflokks Kristilegra demókrata, að vera kanslaraefni og hann tapaði fyrir Gerhard Schröder sem þá varð kanslari annað kjörtímabil í röð. Eftir það var leiðin greið fyrir hana.

Angela Merkel hefur kannski pólitískara nef en flestir aðrir og það kann að skýra vinsældir hennar heima fyrir. Hún hefur undanfarin ár einfaldlega alltaf skipt um skoðun í stórum málum þegar hún hefur áttað sig á því hvernig vindurinn blæs. Dæmi um þetta eru kjarnorkumálin. Græningjar og Sósíaldemókratar í Þýskalandi höfðu ákveðið loka kjarnorkuverum í áföngum í Þýskalandi meðan þeir voru við völd og hafði hægri stjórn Merkel ákveðið að snúa því við. En eftir slysið í Fukushima kúventi hún, mörgum samflokksmönnum og ýmsum iðnjöfrum til mikillar mæðu. Sama gerðist eftir að Sósíaldemókratar tilkynntu með lúðraþyt að þeir vildu lágmarkslaun í landinu. Merkel svínbeygði sína eigin ríkisstjórn til að koma fram með ámóta loforð og var fyndið að heyra Peer Steinbrück, kanslaraefni Sósíaldemókrata segja á eftir „við erum origínallinn!“

En þótt Merkel sé vinsæl í heimalandinu er annað uppi á teningnum annars staðar í Evrópu, þar sem mótmælendur halda uppi myndum af henni með hakakrossum og yfirskeggi Hitlers, gamalkunnug leiðarstytting að gagnrýni á Þjóðverja tæpum sjötíu árum eftir lok seinni heimsstyrjaldar. Það er kannski ekki skrýtið að hún sé táknmynd sparnaðarpólitíkurinnar í Evrópu sem margir gagnrýna, en kannski dæmigert fyrir eitthvert undirliggjandi viðhorf til valdakvenna að beitt sé ódýrustu brögðum og líkingum sem finna má í mælskulistarskápnum.

Deila


[/container]


Comments

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000491

118000492

118000493

118000494

118000495

118000496

118000497

118000498

118000499

118000500

118000501

118000502

118000503

118000504

118000505

118000506

118000507

118000508

118000509

118000510

118000511

118000512

118000513

118000514

118000515

118000516

118000517

118000518

118000519

118000520

118000521

118000522

118000523

118000524

118000525

128000546

128000547

128000548

128000549

128000550

128000551

128000552

128000553

128000554

128000555

128000556

128000557

128000558

128000559

128000560

128000561

128000562

128000563

128000564

128000565

128000566

128000567

128000568

128000569

128000570

128000571

128000572

128000573

128000574

128000575

128000576

128000577

128000578

128000579

128000580

128000581

128000582

128000583

128000584

128000585

128000586

128000587

128000588

128000589

128000590

158000326

158000327

158000328

158000329

158000330

158000331

158000332

158000333

158000334

158000335

158000336

158000337

158000338

158000339

158000340

158000341

158000342

158000343

158000344

158000345

178000746

178000747

178000748

178000749

178000750

178000751

178000752

178000753

178000754

178000755

178000756

178000757

178000758

178000759

178000760

178000761

178000762

178000763

178000764

178000765

178000766

178000767

178000768

178000769

178000770

178000771

178000772

178000773

178000774

178000775

208000206

208000207

208000208

208000209

208000210

208000211

208000212

208000213

208000215

208000216

208000218

208000219

208000220

208000221

208000222

208000223

208000224

208000225

208000226

208000227

208000228

208000229

208000230

208000231

208000232

208000233

208000234

208000235

208000236

208000237

208000238

208000239

208000240

208000241

208000242

208000243

208000244

208000245

208000246

208000247

208000248

208000249

208000250

208000251

208000252

208000253

208000254

208000255

208000256

208000257

208000258

208000259

208000260

208000261

208000262

208000263

208000264

208000265

news-1701