„Þarf allt að vera svona dramatískt í dag?“

Í Kynvillta bókmenntahorninu er skrifað um hinsegin bókmenntir og hinseginleikann í bókmenntum — við lesum á skjön, skyggnumst út fyrir síðurnar og skoðum það sem býr á milli línanna. Umsjón: Ásta Kristín Benediktsdóttir, lektor við Íslensku- og menningardeild: akb@hi.is.  

Unnur Steina K. Karls, meistaranemi í almennri bókmenntafræði, skrifar um trans persónur í íslenskum glæpasögum.

Um trans persónur í íslenskum glæpasögum

Glæpasögur eru ein vinsælasta bókmenntagreinin í dag víða um heim og íslenskir glæpasagnahöfundar hafa verið afkastamiklir síðustu tvo áratugi. Það er ekki auðvelt verk að skrifa bækur sem eru frumlegar og koma á óvart þegar svo margar glæpasögur koma út ár hvert og höfundar leitast því oft við að fjalla um umfjöllunarefni sem ekki eru algeng í bókmenntum. Hér verður skoðað hvernig trans persónur birtast í íslenskum glæpasögum en hingað til hef ég einungis fundið þrjár bækur eftir tvo höfunda sem fjalla um málefnið og eru þær allar nýlegar.

Launsátur

Launsátur (2021) eftir Jónínu Leósdóttur fjallar um sálfræðinginn Adam sem aðstoðar rannsóknarlögreglukonuna Soffíu – sem jafnframt er fyrrverandi eiginkona hans – við rannsókn á sakamáli. Ásamt sakamálinu fæst Adam einnig við mál Rebekku, skjólstæðings síns, sem er í leit að blóðföður sínum.

Snemma í bókinni birtist persónan Jenný í stutta stund heima hjá Adam en hún yfirgefur heimilið þegar dóttir hans kemur í heimsókn. Jenný er mjög ólík Adam og sér hlutina frá öðru sjónarhorni en hann. Til dæmis líkar henni illa við Soffíu en Adam virðist eiga í ágætis sambandi við sína fyrrverandi. Það að Jenný láti sig hverfa svona snögglega vekur litlar grunsemdir í fyrstu þar sem kórónaveirufaraldurinn geysar í sögunni. Hægt og rólega fara þó spurningar að vakna þar sem það verður ljóst að Jenný er aldrei á staðnum þegar aðrir en Adam eru viðstaddir. Að lokum kemur svo í ljós að Jenný og Adam eru í raun ein og sama manneskjan.

Jenný er nokkurs konar annað sjálf Adams og virðist vera ein af meginástæðum skilnaðar hans og Soffíu. Adam er frekar ánægður með að búa einn því þá getur Jenný fengið að blómstra. Inni á heimilinu getur hún lakkað táneglur, rakað fótleggi, prófað hárgreiðslur, málað sig, klæðst kvenmannsfötum og gengið í hælum. Allt eru þetta hlutir sem aðeins Jenný getur gert en ekki Adam. Hann getur þó farið út á meðal fólks en Jenný fer ekki út úr húsi nema í útlöndum þar sem hún getur verið á almannafæri án þess að þekkjast.

Mikil áhersla er lögð á að Adam og Jenný eru aðskildar persónur með aðskilin líf. Það kemur því mjög á óvart þegar Adam ákveður að hitta Rebekku sem Jenný en Rebekka hafði beðið um að hitta kvenkyns sálfræðing. Hér fellur sagan í gryfju klisjunnar um að trans fólk sé á einhvern hátt að stunda blekkingar. Blekkingarminnið má finna víða í bókmenntum og kvikmyndum en það byggir á þeirri skaðlegu hugmynd að þar sem kyngervi trans fólks samræmist ekki því kyni sem því var úthlutað við fæðingu sé það að halda „sannleikanum“ leyndum og þar með að beita fólk blekkingu. Þessi hugmynd er í grunninn mjög transfóbísk og leiðir til fordóma og jafnvel ofbeldis gegn trans fólki.[2] Hér felst blekkingin þó ekki einfaldlega í því að Jenný sé trans kona, heldur að Adam segir sig og Jennýju ekki vera sömu manneskjuna. Jenný/Adam er því í raun að beita skjólstæðing sinn blekkingu sem ýtir undir fyrrnefnda staðalímynd.

Jenný er ekki eina trans persónan í sögunni en lausnin á máli Rebekku finnst þegar í ljós kemur að Hafdís – sem komið hefur við sögu í sakamáli Soffíu – er trans og í raun sá ættingi sem Rebekka hefur verið að leita að. Tveir óvæntir vendipunktar í sögunni felast þannig í því að persóna sé afhjúpuð sem trans. Byggir þetta á svipuðum hugmyndum og fyrrnefnt blekkingarminni en afhjúpun bendir til þess að eitthvað hafi verið falið. Að afhjúpa persónu sem trans byggir því á þeirri hugmynd að persónan sé ekki sú sem hún segist vera, hún sé að fela eitthvað. Ýtir þetta undir þá skaðlegu hugmynd að trans konur séu ekki „alvöru“ konur heldur í raun karlmenn og öfugt. Að koma lesendum á óvart með því að afhjúpa persónu sem trans felur jafnframt í sér þá hugmynd að það að vera trans sé eitthvað óvenjulegt sem eigi að vekja furðu sem það er auðvitað ekki.

Barnið sem hrópaði í hljóði

Barnið sem hrópaði í hljóði (2019) er fjórða bókin í glæpasagnaseríunni Eddumál eftir Jónínu Leósdóttur. Aukafléttan í sögunni fjallar um samband Eddu við mæðgurnar Evu og Dagnýju. Dagný er ung trans stelpa en atriðið þar sem Edda kemst að því að hún sé trans er mjög dramatískt. Edda æðir inn á bað þar sem Dagný er að koma úr sturtu og sér þá kynfæri stelpunnar. Dagný fer skiljanlega í mikið uppnám en meiri áhersla er lögð á áfall Eddu:

Dagný. Barnið. Strákurinn. Stelpan. Edda vissi ekki lengur hvaða orð hún ætti að nota. Þetta hafði komið henni gjörsamlega í opna skjöldu.[3]

Þegar Edda veit að Dagný er trans hættir hún að hugsa um hana sem stelpu og hugsar í stað um hana sem „barnið“ í hvorugkyni. Einnig má greina mikinn vanskilning af hálfu Eddu þar sem hún skilur ekki hvernig börn geti vitað að þau eru trans. Henni finnst að það eigi ekki að taka börn svo hátíðlega þar sem þau fái allskonar dellur, þau geti vaxið upp úr þessu eða einfaldlega verið samkynhneigð. Fordómar Eddu byggja á vanþekkingu en Eva, Dagný og Iðunn, dóttir Eddu, benda allar á og mótmæla fordómum hennar. Það er þó ekki fyrr en Dagný lendir á spítala eftir að hafa reynt að klippa af sér typpið sem Edda og Agnar, faðir Dagnýjar og skoðanabróðir Eddu, átta sig á alvarleika málsins og sjá að þau þurfa að hugsa sinn gang.

Birtingarmynd Dagnýjar sem trans persónu er í raun ekki slæm en hér notast höfundur aftur við fyrrnefnda klisju, sem er að afhjúpun persónu sem trans er stór og óvæntur vendipunktur í sögunni. Eins og áður segir ýtir þetta undir skaðlegar hugmyndir og fordóma gegn trans fólki sem geta jafnvel leitt til ofbeldis. Það er því leiðinlegt að sjá höfund nota þessar klisjur alls þrisvar sinnum í tveimur bókum sérstaklega þar sem þetta eru einu birtingarmyndir trans fólks í bókum höfundar.

Dauðabókin

Dauðabókin (2020) er áttunda bók Stefáns Mána um rannsóknarlögreglumanninn Hörð Grímsson. Í bókinni rannsakar Hörður morðmál en rannsóknin leiðir hann að viðtali þar sem rætt er við einstakling sem segir í bókinni að sé stúlka en er af lýsingum að dæma trans drengur. Drengnum hafði verið neitað um að hefja kynstaðfestingarferli þar sem sérfræðinefnd taldi að hann uppfyllti ekki skilyrði til að byrja hormónameðferð. Drengurinn hefur sjálfur reddað sér hormónum en ef hann vill komast í aðgerð segist hann þurfa að sækja þá þjónustu í Taílandi:

Kannski geri ég það, kannski ekki. En þangað til er ég bara transkona en ekki karlmaður. Ég er bara eitthvert skrípi af því að þessi heimska nefnd felldi mig á sálfræðimatinu.[4]

Hörður hefur orð á því að hann hafi engan skilning á trans málefnum og á hugsunum hans má greina mikla vanþekkingu og fordóma. Vanskilningur Harðar skrifast á hann sem persónu en einnig má greina vanþekkingu höfundar á málefninu. Sem dæmi myndi trans manneskja að öllum líkindum þekkja muninn á trans konu og trans manni. Einnig myndi hún vita að trans menn eru menn þó þeir hafi ekki undirgengist kynstaðfestandi aðgerðir og eru á engum tímapunkti trans konur líkt og drengurinn segir í textanum.

Transfóbía bókarinnar kristallast svo í því þegar í ljós kemur að morðinginn er persónan Rut, sem er í raun drengurinn í viðtalinu og hefur þóst vera aðrar persónur líkt og Hörður hefur orð á:

Þú ert ekki bara hin eftirlýsta Rut. Þú ert líka Haukur Hansson. Og þú ert einnig þessi stúlka sem mætir hér í dag […]. Þessi gerviljóska er stúlkan sem þú aldrei varst, Haukur Hansson er pilturinn sem þig langar að vera. En þú ert hvorugt. Hvaðan koma þessar persónur? Innan úr höfðinu á þér, upp úr myrkviðum sársauka og brotinni sjálfsmynd. Eins og þú sagðir sjálf ertu skrípi. Geðtruflað skrípi drifið áfram af sjálfshatri og hefndarþorsta.[5]

Hér notast höfundur ekki einungis við þá gömlu tuggu að afhjúpa persónu sem trans sem meginvendipunkt og lausn sakamálsins heldur ýtir hann hér einnig undir þá rangfærslu að trans fólk sé veikt á geði. Jafnframt eru blekkingar morðingjans og glæpir hans tengdir beint við það að hann er trans. Vísar þetta til þeirra skaðlegu hugmynda að trans fólk sé ekki einungis að blekkja fólk heldur sé einnig ofbeldisfullt en í raun er líklegra að trans fólk verði fórnarlömb ofbeldis en gerendur. Það má því segja að þessi birtingarmynd byggir einungis á vanþekkingu og ranghugmyndum um trans fólk og sé í raun fremur skaðleg. Höfundur hefði hér að minnsta kosti þurft að afla sér grunnupplýsingar um trans fólk áður en hann hóf skrif á trans persónu.

Gerið betur

Eins og greina má notast allar bækurnar þrjár við afhjúpunar- og blekkingarminnin í frásögnum sínum og í öllum fjórum tilfellum er það óvæntur vendipunktur í sögunum að persóna er trans. Það er sorglegt að sjá íslenska glæpasagnahöfunda falla í þá gryfju að nota særandi klisjur um trans fólk, sérstaklega þar sem þetta virðast vera einu birtingarmyndir trans persóna í íslenskum glæpasögum til þessa. Klisjurnar eru ekki frumlegar heldur gamlar mýtur sem byggja á úreltum og fordómafullum hugmyndum. Það væri því í raun frumlegra, og mun til hins betra, ef höfundar myndu í stað fjalla um trans persónur á jákvæðan hátt í glæpasögum. Að minnsta kosti mættu höfundar kynna sér málið betur.


[1] Jónína Leósdóttir, Barnið sem hrópaði í hljóði, (Reykjavík: Mál og menning, 2019), bls. 183.

[2] Talia Mae Bettcher, „Evil Deceivers and Make-Believers: On Transphobic Violence and the Politics of Illusion,“ Hypatia 22, nr. 3 (2007): bls 43, http://www.jstor.org/stable/4640081.

[3] Jónína Leósdóttir, Barnið sem hrópaði í hljóði, (Reykjavík: Mál og menning, 2019), bls. 177.

[4] Stefán Máni, Dauðabókin, (Reykjavík: Sögur, 2020), bls. 206.

[5] Sama heimild, bls. 274.

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

slot mahjong

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

article 710000011

article 710000012

article 710000013

article 710000014

article 710000015

article 710000016

article 710000017

article 710000018

article 710000019

article 710000020

article 710000021

article 710000022

article 710000023

article 710000024

article 710000025

article 710000026

article 710000027

article 710000028

article 710000029

article 710000030

article 710000031

article 710000032

article 710000033

article 710000034

article 710000035

article 710000036

article 710000037

article 710000038

article 710000039

article 710000040

article 710000041

article 710000042

article 710000043

article 710000044

article 710000045

article 710000046

article 710000047

article 710000048

article 710000049

article 710000050

article 710000051

article 710000052

article 710000053

article 710000054

article 710000055

article 710000056

article 710000057

article 710000058

article 710000059

article 710000060

kasus 898100001

kasus 898100002

kasus 898100003

kasus 898100004

kasus 898100005

kasus 898100006

kasus 898100007

kasus 898100008

kasus 898100009

kasus 898100010

kasus 898100011

kasus 898100012

kasus 898100013

kasus 898100014

kasus 898100015

kasus 898100016

kasus 898100017

kasus 898100018

kasus 898100019

kasus 898100020

kasus 898100021

kasus 898100022

kasus 898100023

kasus 898100024

kasus 898100025

kasus 898100026

kasus 898100027

kasus 898100028

kasus 898100029

kasus 898100030

kasus 898100031

kasus 898100032

kasus 898100033

kasus 898100034

kasus 898100035

kasus 898100036

kasus 898100037

kasus 898100038

kasus 898100039

kasus 898100040

cuaca 898100001

cuaca 898100002

cuaca 898100003

cuaca 898100004

cuaca 898100005

cuaca 898100006

cuaca 898100007

cuaca 898100008

cuaca 898100009

cuaca 898100010

cuaca 898100011

cuaca 898100012

cuaca 898100013

cuaca 898100014

cuaca 898100015

cuaca 898100016

cuaca 898100017

cuaca 898100018

cuaca 898100019

cuaca 898100020

cuaca 898100021

cuaca 898100022

cuaca 898100023

cuaca 898100024

cuaca 898100025

cuaca 898100026

cuaca 898100027

cuaca 898100028

cuaca 898100029

cuaca 898100030

cuaca 898100031

cuaca 898100032

cuaca 898100033

cuaca 898100034

cuaca 898100035

cuaca 898100036

cuaca 898100037

cuaca 898100038

cuaca 898100039

cuaca 898100040

article 868000011

article 868000012

article 868000013

article 868000014

article 868000015

article 868000016

article 868000017

article 868000018

article 868000019

article 868000020

article 868100021

article 868100022

article 868100023

article 868100024

article 868100025

article 868100026

article 868100027

article 868100028

article 868100029

article 868100030

article 868100031

article 868100032

article 868100033

article 868100034

article 868100035

article 868100036

article 868100037

article 868100038

article 868100039

article 868100040

article 868100041

article 868100042

article 868100043

article 868100044

article 868100045

article 868100046

article 868100047

article 868100048

article 868100049

article 868100050

article 868100051

article 868100052

article 868100053

article 868100054

article 868100055

article 868100056

article 868100057

article 868100058

article 868100059

article 868100060

article 878000011

article 878000012

article 878000013

article 878000014

article 878000015

article 878000016

article 878000017

article 878000018

article 878000019

article 878000020

article 878800021

article 878800022

article 878800023

article 878800024

article 878800025

article 878800026

article 878800027

article 878800028

article 878800029

article 878800030

article 878800031

article 878800032

article 878800033

article 878800034

article 878800035

article 878800036

article 878800037

article 878800038

article 878800039

article 878800040

article 888000031

article 888000032

article 888000033

article 888000034

article 888000035

article 888000036

article 888000037

article 888000038

article 888000039

article 888000040

article 888000041

article 888000042

article 888000043

article 888000044

article 888000045

article 888000046

article 888000047

article 888000048

article 888000049

article 888000050

article 888000051

article 888000052

article 888000053

article 888000054

article 888000055

article 888000056

article 888000057

article 888000058

article 888000059

article 888000060

article 888000061

article 888000062

article 888000063

article 888000064

article 888000065

article 888000066

article 888000067

article 888000068

article 888000069

article 888000070

article 328000601

article 328000602

article 328000603

article 328000604

article 328000605

article 328000606

article 328000607

article 328000608

article 328000609

article 328000610

article 328000611

article 328000612

article 328000613

article 328000614

article 328000615

article 328000616

article 328000617

article 328000618

article 328000619

article 328000620

article 328000621

article 328000622

article 328000623

article 328000624

article 328000625

article 328000626

article 328000627

article 328000628

article 328000629

article 328000630

article 328000631

article 328000632

article 328000633

article 328000634

article 328000635

article 328000636

article 328000637

article 328000638

article 328000639

article 328000640

article 328000641

article 328000642

article 328000643

article 328000644

article 328000645

article 328000646

article 328000647

article 328000648

article 328000649

article 328000650

article 999990001

article 999990002

article 999990003

article 999990004

article 999990005

article 999990006

article 999990007

article 999990008

article 999990009

article 999990010

article 999990011

article 999990012

article 999990013

article 999990014

article 999990015

article 999990016

article 999990017

article 999990018

article 999990019

article 999990020

news-1701