„Fyrir enga glæpi aðra en eigin bullsjóðandi kynvillu og ölvun“


Í Kynvillta bókmenntahorninu er skrifað um hinsegin bókmenntir og hinseginleikann í bókmenntum — við lesum á skjön, skyggnumst út fyrir síðurnar og skoðum það sem býr á milli línanna. Umsjón: Ásta Kristín Benediktsdóttir, lektor við Íslensku- og menningardeild: akb@hi.is.  


Magnús Orri Aðalsteinsson, BA-nemi í ensku og íslensku á Hugvísindasviði Háskóla Íslands, fjallar um ljóðið „Howl“ eftir Allen Ginsberg.

Eftirstríðsárin, bæði hérlendis og vestanhafs, hafa lengi verið mér hugleikin, ekki síst bókmenntir tímabilsins. Eftir síðari heimstyrjöld hittust þrír bandarískir andófsmenn með sameiginlega hugsjón um nýja og endurbætta meðvitund – eins konar „Nýja sýn“ (e. New Vision). Þetta voru að sjálfsögðu þeir Jack Keruoac, William S. Burroughs og Allen Ginsberg.[1] Ásamt fleiri skáldum mynda þeir bítkynslóðina svokölluðu (e. The Beat Generation) sem einkenndist af andófsmenningu og uppreisn gegn yfirvaldi. Áhrif hennar á 20. öld voru mikil en því hefur meðal annars verið haldið fram að hippatímabilið og pönkið hefði aldrei getað átt sér stað nema fyrir þá braut sem bítið ruddi.[2] Ég mun hér einblína á ljóðskáldið Allen Ginsberg og hinsegin þætti í hans þekktasta verki, „Howl“ (1956), eða „Ýlfri“ eins og það útleggst á íslensku í þýðingu Eiríks Arnar Norðdahl.[3] Þar koma fram þættir sem áttu eftir að einkenna bítið, svo sem andóf, brjálæði, spíritismi og andlegir þættir og grófar kynferðislegar lýsingar. Yfirvöldum samtíma Ginsberg þótti ljóðið jafnvel svo gróft að útgefandinn þurfti að sæta réttarhöldum. Hann stóð þó uppi sem sigurvegari og raunar var það stórt skref til varnar tjáningarfrelsi í Bandaríkjunum.[4] Í ljóðinu eru sterkar hinsegin birtingarmyndir andófs og kynferðis, bæði í táknum og lýsingum Ginsberg á sínum uppáhalds brjálæðingum.

„Ég horfði á bestu hugsuði minnar kynslóðar tortímast úr brjálæði“

Allen Ginsberg

„Ýlfur“ var eitt áhrifamesta ljóð 20. aldarinnar og höfundinn sjálfan má setja á sama stall, enda hefur hann frá útgáfu þess árið 1956 verið miðlægur í bandarískri bókmenntasögu. Ljóðið byrjar sömuleiðis á einum þekktustu línum bandarískrar ljóðlistar: „Ég horfði á bestu hugsuði minnar kynslóðar tortímast úr brjálæði“.[5] Fyrsti hlutinn felur í sér lýsingar á þessum hugsuðum, uppátækjum þeirra og brjálæði. Í öðrum hluta ljóðsins kemur fram ein sterkasta andófsmynd þess en þar birtist táknið Moloch, forn guð sem hlaut barnafórnir samkvæmt goðsögninni en ég kem betur að honum síðar. Þriðji hluti ljóðsins er svo ákall til vinar Ginsbergs, Carls Solomon, sem hann hitti á geðveikrahæli í Rockland, Fjórði og síðasti hlutinn heitir „Neðanmálsgrein við Ýlfur,“ og er eins konar viðbót. Þar hrópar ljóðmælandinn „Holy“ eða „Heilagur“ ítrekað og lýsir yfir heilagleika alls í kringum hann, nefnir t.a.m. heilagleika nefsins og tungunnar, rassgatsins og getnaðarlimsins.[6]

„Hins eineygða flagðs gagnkynhneigðs dollars“

Andófið í „Ýlfri“ beinist ekki síst gegn sísgagnkynhneigða regluveldinu og kapítalísk ádeila er áberandi. Á sjötta áratug 20. aldar var blómaskeið iðnaðarkapítalisma og byggðist sjálfsmynd Bandaríkjamanna að miklu leyti á fylgispekt. Kapítalisminn var sem sagt orðinn að rótgrónum þætti sjálfsmyndar þjóðarinnar. Innan hins viðtekna staðals regluveldisins var enn fremur gerð krafa um gagnkynhneigð. Gert var ráð fyrir hefðbundinni kjarnafjölskyldu en kapítalisminn byggði á sterkum fasteignamarkaði þar sem húseigendur, yfirleitt millistéttafólk, gátu arfleitt börn sín að fasteignum. Til þess þurfti að sjálfsögðu börn og því voru gagnkynja hjónabönd talin lífsorka reglukerfisins.[7] Þetta kemur fremur skýrt fram í ljóði Ginsberg þegar hann bendir á örlög nokkurra brjálæðinganna:

sem glötuðu ástsveinum sínum í hendur fornu örlagaflagðanna þriggja, hins eineygða flagðs gagnkynhneigðs dollars, hins eineygða flagðs sem gægist úr móðurkviði, og hins eineyga flagðs sem gerir ekkert utan að sitja á rassinum og klippa niður spaklega gullþræðina, sem ofnir eru um örlög listamannsins. [8]  

Hér má sjá eina túlkun á grísku örlaganornunum úr Hercules (1997), frá Walt Disney Studio

Hér vísar Ginsberg til örlaganornanna úr grískri goðafræði og bendir á grimm örlög þeirra sem samþykkja hlutverk sín innan hins fastmótaða reglukerfisins eða afneita sjálfinu til að passa inn í heildarmyndina sem yfirvaldið hefur teiknað upp. Örlaganornirnar tákna handhafa hins viðtekna; yfirvaldið sjálft, sem mótar samfélagið eftir hentugleika og á forsendum efnahagsgróða. Með vísun til „hins gagnkynhneigða dollars“ undirstikar skáldið að kapítalisminn þröngvi sísgagnkynhneigðarhyggju á þegna sína.[9]

Moloch málverk:  Charles Foster’s, Bible Pictures and What They Teach Us. 1897

Annað tákn kapítalismans, sem er í raun sterkara og meira áberandi í ljóðinu er Moloch. Eins og fyrr segir er Moloch forn guð sem krafðist lífsfórna ungra barna. Með vísuninni er sýnt fram á sterk tengsl kynferðis og kapítalísma. Í ljóðinu birtist Moloch sem samsteypa steins og stáls sem rífur upp höfuðkúpur fórnarlamba sinna og étur heila þeirra og ímyndunarafl, á sama hátt og fylgispekt við kapítalsimann gerir. Rétt eins og börnum var fórnað til guðsins var hinsegin fólk Bandaríkjanna fast í kæfandi samfélagi sem þröngvaði hefðbundnum hugmyndum og stöðlum á þau. En bæði Ginsberg og það fólk sem hann talar um í „Ýlfri“ afneituðu gagnkynhneigðarhyggjunni sem þeir voru neyddir til að lifa við. Í stað þess opnaði skáldið öðruvísi og hinsegin umræðu um kynverund. Bítið hvarf frá þeirri hugmynd að kynlíf væri til þess eins að búa til erfingja – fleiri tannhjól í skrímslavélina – og hugsaði frekar um kynlíf sem ánægjulega og örvandi upplifun. Þar fór hæst sú hugmynd að prófa sig áfram með eigin kynverund og eiga í hinsegin samböndum. Umræðan vann að því að brjóta niður skömmina sem fylgdi flæðandi kynverund.[10] Andófið gegn og gagnrýnin á sísgagnkynhneigða regluveldið í ljóðinu er því skýr.

„og æptu yfir sig af fögnuði“

Allen Ginsberg

Ljóðið er þó ekki aðeins ádeila á sísgagnkynhneigt kapítalískt reglukerfi og á handhafa staðalsins, heldur fagnar það einnig og hefur í hávegum andófsmenninguna sjálfa.[11] Lýsingar Ginsbergs á þeim sem hann telur bestu hugsuði sinnar kynslóðar eru grófar en sömuleiðis upphefjandi. Í lýsingum sínum blandar hann saman hinu andlega og hinu líkamlega með því að samsama utangarðsmenn og engla – fyrir honum er það einn og sami hluturinn. Ginsberg segir t.d. í „Neðanmálsgrein við Ýlfur“: „Róninn er jafn heilagur og seraphim“[12]. Með því að bera saman heilagleika róna og englafylkingar spyrnir ljóðið gegn trúarlegu yfirvaldi og klæðir trúarlega og andlega eiginleika þess aftur í búning hreinnar trúar, sem er laus við allt moð og hverja þá spillingu og kúgun sem leynist innan trúarstofnanna (e. institutionalised religion). Hinseginleiki ljóðsins felst að mörgu leyti í andófi þess gegn kúgandi regluveldi, en lýsingar á kynlífi karla fara þar einnig mjög hátt. Í þeim lýsingum má þó einnig finna samsömun hins líkamlega og andlega. Hér má til dæmis nefna þegar ljóðmælandi talar um mennina „sem leyfðu háheilögum mótorhjólaköppum að ríða sér í rassgatið og æptu yfir sig af fögnuði“.[13] Vert er að nefna að háheilögu mótorhjólakapparnir vísa til hins fræga hjólagengis Hell‘s Angels, en þó er tenging heilagleika og kynferðis sannarlega til staðar. Ginsberg rís því gegn stofnun trúarbragða og kúgandi orðræðu um kynferði með grófum lýsingum á kynlífi og samsömun samkynja kynlífs við heilagleika, eitthvað sem kirkja þess tíma hefur eflaust talið guðlast.

„Heilagir hinir óþekktu kynvilltu og þjáðu betlarar, heilagir hinir herfilegu mannenglar“

„Ýlfur“ eftir Allen Ginsberg er mikilvægt ljóð í hinsegin bókmenntasögu. Áhrif þess enduróma í gegnum síðustu öld og fram til dagsins í dag. Opinská tjáning samkynhneigðar sem og kynferðis almennt spilar stóran þátt í andófi þess. Þó má ekki gleyma hvar meginbarátta bítkynslóðarinnar var háð – gegn regluveldinu sjálfu. Kapítalisma gagnkynhneigða sískynja karlmannsins sem mótar örlög annarra að vild og þröngvar upp á þegna sína hinu viðtekna og almenna, þ.e. því sem er hentugast og skilar sem mestum fjárhagslegum hagnaði. Regluveldi sem gengur þvert á vilja þeirra sem vilja sofa hjá hverjum sem er og elska hvern sem er. Lagaleg barátta Ginsbergs og útgefanda hans við yfirvaldið undirstrikar hvernig tjáningarfrelsi og hinseginbókmenntir tóku skref í rétta átt 1956. Í dag hefur bítkynslóðin mikið verið skoðuð af fræðasamfélaginu og því ber að fagna. Við höfum að einhverju leyti dregið lærdóm af sögunni. Að sjálfsögðu eigum við langt eftir en þó er það stórt skref að fjalla í ræðu og riti um hinsegin bókmenntir eins og bítkynslóðina, sem á árum áður var litin hornauga og hart gegn henni barist „fyrir enga glæpi aðra en eigin bullsjóðandi kynvillu og ölvun“.[14]


[1] Prothero, „On the Holy Road“, bls. 208–9.

[2] D’Angelo, „The History and Philosophy of the Postwar American Counterculture”, bls. 1.

[3] Þær línur úr ljóðinu sem birtast hér á eftir eru úr þýðingu Eiríks Arnar Norðdahl. Sjá: https://www.youtube.com/watch?v=1_qlwaO3ETY&t=373s&ab_channel=Eir%C3%ADkur%C3%96rnNor%C3%B0dahl.

[4] Ferlinghetti, Howl on Trial, bls. 3.

[5] Eiríkur Örn Norðdahl, „Á íslensku má alltaf finna Ginsberg“, mín. 00:04.

[6] Ginsberg, Howl, Kaddish and Other Poems, bls. 12.

[7] Jahin Kaissar, „Sexuality and its Relation to Capitalism, Religion, and Madness in Allen Ginsberg’s “Howl.”“, bls. 1292

[8] Eiríkur Örn Norðdahl, „Á íslensku má alltaf finna Ginsberg“, mín. 05:54.

[9] Jahin Kaissar, „Sexuality and its Relation to Capitalism, Religion, and Madness in Allen Ginsberg’s “Howl.”“,   bls. 1292.

[10] Jahin Kaissar, „Sexuality and its Relation to Capitalism, Religion, and Madness in Allen Ginsberg’s “Howl.”“,  bls. 1293.

[11] Jahin Kaiisar, „Sexuality and its Relation to Capitalism, Religion, and Madness in Allen Ginsberg’s “Howl.”“,   bls.1289

[12] Eiríkur Örn Norðdahl, „Á íslensku má alltaf finna Ginsberg“, mín. 22:43.

[13] Eiríkur Örn Norðdahl, „Á íslensku má alltaf finna Ginsberg“, mín. 05:20.

[14] Eiríkur Örn Norðdahl, „Á íslensku má alltaf finna Ginsberg“, mín. 05:08.

Heimildaskrá

D’Angelo, Ed. „The History and Philosophy of the Postwar American Counterculture: Anarchy, the Beats and the Psychedelic Transformation of Consciousness.“ Core, 2019. URL: https://philpapers.org/archive/DANTHA.pdf. Þetta er lengri útgáfa af grein höfundar sem birtist hér: D’Angelo, Ed. „Anarchism and the Beats.“ Í The Philosophy of the Beats, ritstýrt af Sharin Elkholy, bls. 335–357, Kentucky: University Press of Kentucky (2012).

Eiríkur Örn Norðdahl. „Á íslensku má alltaf finna Ginsberg.“ Youtube-myndband. 25:19 mínútur. 1. okt. 2020. https://youtu.be/1_qlwaO3ETY

Ferlinghetti, Lawrence. Howl on Trial: The Battle for Free Expression. New York: City Light Books, 2006.

Kaiissar, Jahin. „Sexuality and its Relation to Capitalism, Religion, and Madness in Allen Ginsberg’s “Howl.”“ International Journal of English Literature and Social Sciences, 5. árgangur, nr. 4, (2020), bls. 1289–1297. Doi: 10.22161/ijels.54.69

Prothero, Stephen. „On the Holy Road: The Beat Movement as Spiritual Protest.“ Harvard Theological Review, 84. árgangur, nr. 2 (1991), bls. 205–222. Doi: 10.1017/S0017816000008166

sabung ayam online


judi bola online


sabung ayam online


sabung ayam online


sabung ayam online


sabung ayam online


sabung ayam online


sabung ayam online


sabung ayam online


demo slot mahjong ways 2


sabung ayam online


slotoppo88 scatter hitam


sabung ayam online


sabung ayam online


Sabung Ayam Online


Agen Casino


scatter hitam Mahjong ways 2


Scatter Hitam


slot gacor


mahjong ways 2


Slotoppo hadirkan scatter hitam gacor terbaru


slotoppo


sabung ayam online bocahgacor


sabung ayam online


Judi Bola


Slotoppo


SLOTBOM Slot Gacor Gampang Menang Jackpot.


SLOTBOM Situs Pola Scatter Mahjong Ways Paling Gacor di Indonesia.


SLOTBOM Situs Slot Online Paling Gacor Gampang Scatter Mahjong Ways.


SLOTBOM Slot Gacor Gampang Menang Jackpot.


SLOTBOM Situs Pola Scatter Mahjong Ways Paling Gacor di Indonesia.


sbobet88 agen judi bola online


sabung ayam online


sabung ayam online


Judi Bola Online


SLOTOPPO88 AGEN SABUNG AYAM SV388 RESMI


SLOTBOM Situs Slot Online Paling Gacor Gampang Scatter Mahjong Ways.


slotoppo88 portal slot online terpercaya di Indonesia


SLOTBOM77 penyedia permainan slot online resmi


SLOTOPPO88 slot online terpercaya


sabung ayam online


SLOTBOM77 situs selot online terpercaya dan resmi


Slotbom Hadir dengan Slot Gacor Gampang Menang Jackpot. Link Resmi slotbom.net ini akan sangat membantu para member setia untuk akses alternatif terbaik ke Slotbom.


SLOTOPPO Situs Sabung Ayam Online SV388 Online 24 jam Terpercaya


SBOBET88 : Login SBOBET Mobile Melalui Link Alternatif SBOBET WAP Agen SBOBET Terpercaya


Borong Rp220 Juta Wild Bandito

Raih Rp180 Juta Gates of Olympus

Cuan Rp250 Juta Sweet Bonanza XMas

Kaya Mendadak Starlight Princess

Panen Rp195 Juta Aztec Gems

Tembus Rp210 Juta Sugar Rush

Auto Sultan Rp230 Juta Scatter Naga Merah

Pecah Rekor Rp175 Juta Wild Bandito

Panen Cuan Gates of Olympus

Dapat Rp190 Juta Sweet Bonanza XMas

Auto Kaya Starlight Princess

Menang Rp200 Juta Aztec Gems

Panen Rp240 Juta Sugar Rush

Raup Rp260 Juta Scatter Naga Merah

Pecah Rp185 Juta Wild Bandito

Jackpot Rp215 Juta Gates of Olympus

Borong Rp225 Juta Sweet Bonanza XMas

Hoki Besar Starlight Princess

Dapat Rp205 Juta Aztec Gems

Kaya Mendadak Sugar Rush

Menang Rp210 Juta Wild Bandito

Auto Kaya Scatter Naga Merah

Gates of Olympus Bikin Ayu Makassar Cuan Besar

Sweet Bonanza XMas Jadikan Bima Jogja Raih Rp180 Juta

Starlight Princess Hantarkan Dedi Bali Pecah Rekor

Aztec Gems Buat Nisa Pontianak Panen Rp200 Juta

Sugar Rush Jadi Jalan Fajar Pekanbaru

Lani Samarinda Usai Menang Wild Bandito

Pola Scatter Naga Merah

Tembus Rp195 Juta Berkat Gates of Olympus

Sweet Bonanza XMas Antar Hasan Aceh Pecah Rekor

Starlight Princess Jadi Kunci

Aztec Gems Bikin Irfan Balikpapan Kaya Mendadak

Cairkan Rp220 Juta Sugar Rush

Bongkar Pola Wild Bandito

Panen Besar Scatter Naga Merah

Jackpot Gates of Olympus

Auto Tajir Sweet Bonanza XMas

Starlight Princess Bikin Andi Palembang Kaya Raya

Aztec Gems Bawa Sari Banjarmasin Jadi Bintang

news

news8

news18

news28

news38

news48

news58

news68

news78

news88

news98

news108

news118

news128

news138

news148

news158

news168

news178

news188

news

news8

news18

news28

news38

news48

news58

news68

news78

news88

Data Kemenangan Harian Panduan Membaca Pola Main Lebih Akurat

Winrate Tinggi Terbaru dan Cara Memanfaatkannya di Casino Online

Cuan Fantastis Malam Ini Bisa Diraih Lewat Tips Manajemen Modal

Rekor Jackpot Heboh dengan Strategi Bermain yang Lebih Efisien

Strategi Menang Konsisten untuk Pemula Agar Hasil Selalu Stabil

AI Analisis Pola Membantu Pemain Menentukan Waktu Spin Terbaik

Algoritma Prediksi Hoki Menjadi Kunci Kemenangan Berulang

Trik Spin Efisien untuk Hemat Modal dan Tetap Bawa Pulang Cuan

Pola Scatter Unik yang Sering Jadi Pemicu Bonus Besar

Cara Raih Maxwin dengan Pola Scatter Langka di Permainan Kasino

Cara Mudah Meningkatkan Winrate di Game Populer

Strategi Pemula untuk Mastering Permainan Kasino

Trik Tersembunyi di Permainan Lucky Neko

Cara Menggunakan Fitur Auto Spin dengan Bijak

Strategi Menang Besar di Permainan Kasino Online

Trik Menggunakan Fitur Bonus dengan Efektif

Cara Memanfaatkan Fitur Bonus dengan Bijak

Strategi Pemula untuk Menang Besar di Kasino

Cara Menggunakan Fitur Auto Play dengan Bijak

AI Membantu Meningkatkan Kemenangan di Permainan Kasino

Blockchain dan Trik Mendapatkan Jackpot

Cara Memaksimalkan Fitur Reward Menggunakan Data Analitik

5 Tips Jitu Menang Terus Menerus di Game Online

Strategi Pemula untuk Menguasai Kasino Online dengan AI

Trik Tersembunyi Meningkatkan Peluang Kemenangan di Era Digital

Cara Memanfaatkan Fitur Reward dengan Pintar dan Analitik

5 Pola Ampuh untuk Memenangkan Permainan Modern

Strategi Memaksimalkan Bonus di Kasino Online Tanpa Ribet

Trik Mudah Mendapatkan Kemenangan Terbesar dengan Algoritma

Panduan Lengkap Menang Besar di Permainan Terbaru

Tips Memilih Permainan Paling Menguntungkan di Era Game

Cara Memaksimalkan Fitur Reward dengan Teknologi

Strategi Pemula untuk Memenangkan Permainan Online dengan Pintar

Trik Tersembunyi Mendapatkan Kemenangan Jackpot di Era Modern

Cara Menggunakan Fitur Auto Play untuk Kemenangan Terjamin

5 Tips Jitu Memenangkan Permainan Kasino Online Terbaru

Strategi Ampuh Memenangkan Permainan Populer dengan Teknologi

Trik Mendapatkan Fitur Bonus Terbaik dengan Data

Cara Memilih Permainan Paling Menguntungkan dengan Inovasi

AI dan Strategi Maksimalkan Kemenangan di Kasino Online

Trik Tersembunyi Mendapatkan Jackpot dengan Data Analytics

Cara Cerdas Memanfaatkan Fitur Bonus dengan Teknologi

5 Tips Jitu Meningkatkan Peluang Kemenangan di Permainan Modern

Strategi Pemula untuk Memenangkan Permainan Kasino Tanpa Ribet

Trik Mendapatkan Kemenangan Terbesar dengan Inovasi

Cara Menggunakan Fitur Auto Play dengan Pintar dan Efektif

Strategi Ampuh Memenangkan Permainan Populer di Era Digital

Trik Mendapatkan Fitur Bonus Terbaik dengan Algoritma

Cara Memilih Permainan Paling Menguntungkan dengan Tips Terbaru

Trik Meningkatkan Peluang Jackpot di Permainan Modern

Strategi Terbaru Memenangkan Permainan Kasino dengan AI

Cara Memanfaatkan Fitur Rewards dengan Cerdas

5 Tips Jitu Mendapatkan Kemenangan Besar di Era Digital

Trik Tersembunyi Mendominasi Permainan Kasino

Strategi Pemula untuk Mendapatkan Kemenangan Maximal

Cara Menggunakan Auto Play dengan Pintar dan Efektif

Strategi Mengoptimalkan Fitur Bonus Terbaru

Trik Cerdas Meningkatkan Peluang Menang

Cara Pintar Memaksimalkan Peluang Jackpot

Raih Scatter Hitam

Mahjong Ways 2 Ubah Rp50 Ribu

Jackpot Mahjong Wins 3

Scatter Hitam 2 Kali Langsung Cairkan

Mahjong Ways 2 Modal Rp100 Ribu

Mahjong Wins 3 Raih Cuan

Scatter Hitam Dadakan Pecahkan Rekor

Mahjong Ways 2 Jackpot Rp22 Juta

Mahjong Wins 3 Spin Pendek

Scatter Hitam 3 Kali Berturut

Raih Cuan Mahjong Ways 2

Scatter Hitam Turun Pas Lagi Urus Pajak Warisan

Mahjong Wins 3 Bikin Heboh Grup WA Saat Bahas Kasus 200 Triliun

Spin Mahjong Ways 2 Auto Jackpot

Scatter Hitam Tiga Kali Saat Sidang Kelulusan & Ambil Ijazah

Mahjong Wins 3 Raih Jackpot Besar Usai Ramai Isu Shell PHK Karyawan

Mahjong Ways 2 Spin Malam Jadi Sorotan Saat Topik Nepal Viral

Scatter Hitam Hadir Pas Ramai Kasus SMPN1 Prabumulih Kepsek

Mahjong Wins 3 Spin Kilat Pecahkan Rekor di Tengah Isu 200 Triliun

Mahjong Ways 2 Jackpot Besar Saat Antar Penumpang Ojol