„Við hikum ekki lengur“

[cs_text]Viðtal við Skarphéðin Guðmundsson, dagskrárstjóra sjónvarps hjá RÚV

Skarphéðinn Guðmundsson hefur verið dagskrárstjóri Ríkissjónvarpsins frá 2012 og ýmsar breytingar hafa verið gerðar á dagskránni á þessum tíma. Viðsnúningur hefur orðið í áhorfi á síðustu árum og það hefur til dæmis aukist meðal yngra fólks. Við settumst niður og ræddum hvernig Ríkissjónvarpið hefur orðið kjarkaðra í efnisvali, hvernig þau hika ekki lengur við að setja efni fyrir afmarkaðan hóp á besta sýningartíma þrátt fyrir að áhorf minnki á meðan. Mig langaði líka að vita hvort samkeppni við aðrar stöðvar hefði mikil áhrif á dagskrárvalið og hvernig Covid hefur haft áhrif á dagskrárstefnu Ríkissjónvarpsins undanfarna eina og hálfa árið.

Hurfum algjörlega frá því að kaupa amerískt efni“

Skarphéðinn segir að óháð Covid-19 hafi stefna Ríkissjónvarpsins varðandi menningarumfjöllun og í raun alla dagskrárgerðina færst æ meira í þá átt að skerpa á sérstöðunni. Þau leyfi sér að vera hugaðri í að velja dagskrárefni með því að leggja meiri áherslu á erindi og mikilvægi efnisins heldur en vinsældir og leggja sig fram við finna áhugavert efni utan bandaríska markaðsins.

„Fyrir svona sex, sjö árum hurfum við algjörlega frá því að kaupa amerískar þáttaraðir. Þessar fáu sem eftir eru á dagskrá lúta samningum sem kveða á um að á meðan þetta er í framleiðslu þá verðum við að kaupa þetta. Við erum að fara að bjóða upp á fyrstu portúgölsku seríuna og meira af pólsku efni. Okkur finnst það mjög spennandi því það er eitt af því sem engir aðrir eru að gera. Við erum meira að leita eftir gæðum, fjölbreytni, einhverju allt öðru. Þetta erum við að gera líka með menningarefni. Við hikum ekki lengur við að setja þungt efni á besta sýningartíma og það er ekkert hundrað í hættunni þó að áhorfið detti niður og verði tiltölulega lítið á meðan þetta er í boði.“

Skarphéðinn nefnir að besta dæmið um þetta sé trúlega Klassíkin okkar sem allajafna er sýnt á föstudagskvöldi. Markmiðið er að gefa almenningi tækifæri til að velja efnið og eftirlætisverk sín; óperuverk, sígild verk, kvikmynda- eða söngleikjatónlist.  Þannig upplifir þjóðin svolítið að það sé hún sem velur efnið en ekki einhverjir hvítflibbar á RÚV. Skarphéðinn segir að viðbrögð hafi verið svolítið sterk svona fyrst um sinn, en eftir að búið hafi verið að fastsetja þetta á þessum tíma sé þetta orðið að hefð og komi engum á óvart lengur.

„Við fórum að sinna fleiri viðburðum“

Ég spyr hvort innlent efni hafi aukist í dagskrá Ríkissjónvarpsins á þessu rúmlega eina og hálfa ári sem sóttvarnartakmarkanir hafa meira eða minna verið í gildi og Íslendingar hafa verið meira heima við en nokkurn tímann áður.

„Já að einhverju leyti. Það jókst hvað það varðar að við fórum að sinna fleiri viðburðum, beinum útsendingum og upptökum frá viðburðum sem hafði verið frestað eða aflýst. Við vorum með sérstaka dagskrárgerð í kringum Hinsegin daga og 1. maí og alls konar samkomur og menningarviðburði. Samstarfið við Sinfóníuhljómsveitina jókst til mikilla muna og við fórum að sýna reglulega frá tónleikum hennar. Þannig að það er ekki allt neikvætt sem hefur verið að koma út úr þessu Covid ástandi og stefnan er að halda þessu samstarfi við Sinfó áfram þrátt fyrir afléttingar á takmörkunum.“

Skarphéðinn segir að ástandið hafi reynt talsvert á menningarstofnanir í landinu, þar með talið Ríkissjónvarpið. Fólk hugsi fyrst og fremst um RÚV sem fjölmiðil en stofnunin gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki sem menningarstofnun. Það voru því ekki bara Harpa og Sinfóníuhljómsveitin sem leituðu samstarfs til að færa þessa viðburði heim í stofu til fólks í gegnum þá miklu dreifingu sem Ríkissjónvarpið hefur, til að reyna að viðhalda framboði á menningarlegu efni á þessum skrýtnu tímum. Ríkissjónvarpið hefur líka sýnt beint frá tónleikum Bjarkar Guðmundsdóttur í Hörpu en það verkefni sker sig úr að því leyti að Björk notar þetta efni áfram til sölu um allan heim. Til viðbótar við menningarefni varð svo einnig aukning á efni fyrir skólabörn á þessum tíma.

„Þegar skólastarf var takmarkað og skertist, sérstaklega á barna- og unglingastigi þá brugðumst við mjög hratt við og buðum upp á Heimavistina sem voru daglegir þættir sem voru sýndir á morgnana. Markmiðið var þar sannarlega ekki að koma með eitthvað í staðinn fyrir kennslu eða að vera eitthvað sem ætti að geta leyst skólasóknina af hólmi heldur var þetta í rauninni leið til þess að hafa ofan af fyrir krökkum þegar þau neyddust til þess að vera heima, með því að bjóða þeim upp á skemmtilega og fræðandi dagskrá og það gaf afskaplega góða raun.“

„Þessi hugmynd hafði verið á lofti á milli okkar Baggalútsmanna“

Mér leikur forvitni á að vita hvort Ríkissjónvarpið hyggist fara í samkeppni við Heima með Helga á Sjónvarpi Símans eða bregðast við því á einhvern hátt. Skarphéðinn segir það ekki vera stefnuna, Ríkissjónvarpið hafi það markmið að líta ekki á dagskrárgerð hjá öðrum sjónvarpsstöðvum sem samkeppni. Þau fagni henni frekar og líti svo á að þeirra hlutverk sé fremur það að vera að einhverju leyti leiðandi í þróun á dagskrárefni. Á þessum tíma kom upp sú hugmynd að bjóða upp á Sóttbarnalögin í samstarfi við Baggalút og Bogomil Font.

„Þessi hugmynd hafði verið á lofti á milli okkar Baggalútsmanna, að einhvern tímann væri gaman að gera þáttaröð sem væri helguð barnatónlist sem höfðar til allra. Þetta voru  bara bein viðbrögð við ástandinu. Við endurtókum svo leikinn um síðustu jól þegar við vorum með Baggalút í Skíðaskálanum í Hveradölum, það voru einnig bein viðbrögð. Það var náttúrlega búið að aflýsa öllum jólatónleikum og í raun taka alla viðburði af þjóðinni. Þannig að þrátt fyrir að hafa ekki verið búin að gera ráð fyrir því og hafa þurft að gera drastískar breytingar á öllum okkar áætlunum til þess að geta komið þessu fyrir, þá sáum við þetta sem einhverja sárabót fyrir þennan missi af jólatónleikunum. Það var þannig sem við vorum að bregðast við þessu miklu frekar en að bregðast við einhverri samkeppni frá Helga.“

Aðspurður hvort eitthvað í þessum dúr sé í pípunum núna í desember nú þegar þjóðin stendur frammi fyrir mögulegri aukningu á samkomutakmörkunum segir hann svo vera.

„Heldur betur. Fyrir svona viku, hálfum mánuði fórum við að vega og meta dagskrána okkar með tilliti til þessara takmarkana sem hafa nú þegar að einhverju leyti tekið gildi. Við erum að fara að bjóða upp á stutta þætti á undan Kappsmáli og Vikunni þar sem við ætlum að fara yfir ástsæl jólalög með Jóni Ólafssyni. Þetta er hálfgert svona Jóla-af fingrum fram þar sem hann fær gesti. Þetta er ekki bara leikin tónlist heldur er Jón líka að tala um jólatónlistina okkar. Þetta eru stuttir þættir sem við erum að ráðast í að framleiða með engum fyrirvara, sem einhvers konar viðbrögð við skorti á viðburðum sem fólk getur sótt.“

Jólastemningin verður við lýði í Ríkissjónvarpinu í desember, en við snúum okkur nú að spjalli um almenna menningarumfjöllun.

„Menningarmagasínþættir eru að einhverju leyti barn síns tíma“

Menningarumfjöllun í Ríkissjónvarpinu hefur breyst og vikið hefur verið frá svokölluðum menningarmagasínþáttum eins og Djöflaeyjunni og Mósaík. Skarphéðinn segir að þau hafi metið það svo að þannig þættir væru að einhverju leyti barn síns tíma og virtust alltaf fara í það horf að sinna bara því sem er í gangi hverju sinni í menningarlífinu, vera viðburðadrifnir. Slík menningarumfjöllun var því færð í annað form, eins og í Menninguna og Kastljós og sjónum var beint að gerð þátta um mismunandi listgreinar.

„Við erum í rauninni búin að vera á ákveðinni vegferð í að taka fyrir hinar ýmsu listgreinar, eins og við gerðum með sígilda tónlist í Útúrdúr með Víkingi Heiðari og Höllu Oddnýju og með myndlist í Opnun. Það var sérstök þáttaröð um nútímamyndlist þar sem fylgst var með ferli sjö íslenskra myndlistarmanna við samsýningu á verkum þeirra. Þetta er yfirlýst markmið hjá okkur, við erum að taka fyrir listgreinar hverja á eftir annarri.“

Þessa dagana er verið að klára framleiðslu á þáttaröðinni Ímynd sem er helguð ljósmyndun. Þar er stefnan sú sama og var í þáttaröðinni Sporið, þar sem ákveðið var að fjalla um dans út frá víðara sjónarhorni en þessu þrönga listræna formi sem flestir tengja hann við. Horft var á greinina út frá listrænum, mannlegum og heimspekilegum nótum, hvaða hlutverki dans gegnir í lífi okkar allra.  Skarphéðinn segir að ákveðið hafi verið að fara í þetta verkefni með það fyrir augum að þessi nálgun stórauki líkurnar á því að ná til breiðari hóps heldur en bara þeirra sem hafa áhuga á viðkomandi listgrein.

„Í stað þess að fara bara beint í að fjalla um listræna ljósmyndun, fréttaljósmyndun, landslagsljósmyndun eða portrett þá erum við líka að fjalla um hvaða risahlutverk ljósmyndun er farin að gegna í lífi okkar allra. Við erum sítakandi myndir, hvað gerir það við okkur sem samfélag, hvaða mynd erum við farin að draga upp af okkur í öllum þessum ljósmyndum. Svo er þetta til marks um það hvernig við viljum  nálgast viðfangsefnin, að reyna að finna þennan flöt sem hefur eins breiða skírskotun og hugsast getur en fer samt á dýptina. Við erum að gefa okkur tíma, því þegar þú ert farinn að fara svona djúpt þá eru svo margir fletir á því sem að manni virðist í fyrstu frekar þröngt viðfangsefni.“

Það er ljóst að dagskrárstjórinn hefur mikinn metnað fyrir hönd Ríkissjónvarpsins. Það er margt í vinnslu og ýmislegt sem hægt er að hlakka til að njóta í vetur á meðan úti geysar stormur og heimsfaraldur. Við látum staðar numið hér – ég þakka Skarphéðni fyrir að gefa sér tíma til að spjalla við mig og stika út í óveðrið töluvert fróðari um stefnu og markmið ríkissjónvarpsins okkar allra.[/cs_text]

Um höfundinn
Hanna Kristín Steindórsdóttir

Hanna Kristín Steindórsdóttir

Hanna Kristín Steindórsdóttir er meistaranemi í þýðingafræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, hefur lokið BA-gráðu í spænsku og íslensku frá Háskóla Íslands og starfar sem þýðandi á Þýðingamiðstöð utanríkisráðuneytisins.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

slot mahjong

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

cuaca 898100146

cuaca 898100147

cuaca 898100148

cuaca 898100149

cuaca 898100150

cuaca 898100151

cuaca 898100152

cuaca 898100153

cuaca 898100154

cuaca 898100155

cuaca 898100156

cuaca 898100157

cuaca 898100158

cuaca 898100159

cuaca 898100160

cuaca 898100161

cuaca 898100162

cuaca 898100163

cuaca 898100164

cuaca 898100165

cuaca 898100166

cuaca 898100167

cuaca 898100168

cuaca 898100169

cuaca 898100170

cuaca 898100171

cuaca 898100172

cuaca 898100173

cuaca 898100174

cuaca 898100175

cuaca 898100176

cuaca 898100177

cuaca 898100178

cuaca 898100179

cuaca 898100180

cuaca 898100181

cuaca 898100182

cuaca 898100183

cuaca 898100184

cuaca 898100185

cuaca 898100186

cuaca 898100187

cuaca 898100188

cuaca 898100189

cuaca 898100190

cuaca 898100191

cuaca 898100192

cuaca 898100193

cuaca 898100194

cuaca 898100195

article 888000081

article 888000082

article 888000083

article 888000084

article 888000085

article 888000086

article 888000087

article 888000088

article 888000089

article 888000090

article 888000091

article 888000092

article 888000093

article 888000094

article 888000095

article 888000096

article 888000097

article 888000098

article 888000099

article 888000100

article 710000171

article 710000172

article 710000173

article 710000174

article 710000175

article 710000176

article 710000177

article 710000178

article 710000179

article 710000180

article 710000181

article 710000182

article 710000183

article 710000184

article 710000185

article 710000186

article 710000187

article 710000188

article 710000189

article 710000190

article 710000191

article 710000192

article 710000193

article 710000194

article 710000195

article 710000196

article 710000197

article 710000198

article 710000199

article 710000200

article 710000201

article 710000202

article 710000203

article 710000204

article 710000205

article 710000206

article 710000207

article 710000208

article 710000209

article 710000210

article 710000211

article 710000212

article 710000213

article 710000214

article 710000215

article 710000216

article 710000217

article 710000218

article 710000219

article 710000220

artikel 338000001

artikel 338000002

artikel 338000003

artikel 338000004

artikel 338000005

artikel 338000006

artikel 338000007

artikel 338000008

artikel 338000009

artikel 338000010

artikel 338000011

artikel 338000012

artikel 338000013

artikel 338000014

artikel 338000015

artikel 338000016

artikel 338000017

artikel 338000018

artikel 338000019

artikel 338000020

artikel 338000021

artikel 338000022

artikel 338000023

artikel 338000024

artikel 338000025

artikel 338000026

artikel 338000027

artikel 338000028

artikel 338000029

artikel 338000030

psda 438000096

psda 438000097

psda 438000098

psda 438000099

psda 438000100

psda 438000101

psda 438000102

psda 438000103

psda 438000104

psda 438000105

psda 438000106

psda 438000107

psda 438000108

psda 438000109

psda 438000110

news-1701