Hverjum klukkan glymur

[cs_text]Væri forseti Bandaríkjanna ekki bundinn af tveimur kjörtímabilum heldur gæti hann setið eins mörg kjörtímabil og hann þolir við og kjósendur þola hann í embætti – hefði tveggja tímabila reglan verið afnumin og tímatakmörk felld niður með öðrum orðum –  þá væri auðvitað ekki um sama embætti að ræða, helsta pólitíska valdastaða á hnettinum myndi sjálfkrafa umbreytast, taka hamskiptum, líkt og Gregor Samsa. Sumir kynnu að halda að dvölin í Hvíta húsinu yrði að puntviðveru eins og hér á landi, eða þá að það hallaði alveg á hina hliðina og lýðskipanin stökkbreytast í stalínískt alræði. Í sjónvarpsþáttunum Watchmen er endurskilgreining forsetaembættisins löngu um garð gengin, Robert Redford hefur verið forseti um áratugaskeið þegar þættirnir hefjast, og útkoman virðist stilla sér upp miðs vegar á milli pólanna tveggja. Redford væri auðvitað skrautmunur og stofustáss í hvaða samhengi sem er en hér hefur einnig dregið mjög fyrir sólu þegar að manngildissjónarmiðum kemur og mannréttindum.

Í sjálfu sér og með hliðsjón af sögufléttunni er framgangur Redford í forseta og hústakan í Washington hálfgert aukaatriði í þáttunum, en þessi tiltekna breyting á lýðræðisumgjörðinni fangar þó hvernig söguheimurinn sem við áhorfendum blasir er í senn kunnuglegur og undarlega bjagaður. Auk þess má segja að hugmyndin um tímabil og tíma, það sem undirbyggir kjörtímabilshugtakið, sé einnig táknræn fyrir frásagnarlega rökvísi þáttaraðarinnar, sögusýn og þematískar áherslur. Það eru ávallt endalokin sem áskapa fyrirbærum og atburðum merkingu og á það við í lífinu og listinni jafnt og pólitíkinni. Í Watchmen er tíminn sjálfur í lykilhlutverki, líkt og titillinn gefur til kynna, og er það dregið fram strax í upphafi þegar ljóst verður að sögutími þáttanna er annar en upphaflegrar myndasögubókar Alan Moore og Dave Gibbons, sem hér er í orði löguð að litla skjánum en á borði lögð til hliðar og svigrúm skapað fyrir nýtt, heildstætt og aðskilið verk. Óhætt er jafnframt að segja að þáttastjórnandinn Damon Lindelof takist keikur á við flókið verkefni og farist það eindæma vel úr hendi.

Trámatískar menningarminningar

Tímahnikið inn í framtíðina kallar með öðrum orðum á frumsamda sögu, ryður veginn fyrir nýjar persónur og leyfir slátrun á flestum þeim upprunalegu, og gefur auk þess aðstandendum miklum mun meira svigrúm til að umbreyta þematískum áherslum og viðfangsefnum. Allt er breytingum undirorpið, ekkert varir að eilífu, ekki einu sinni klassísk myndasaga eftir Moore & Gibbons, og þetta er einmitt ríkjandi tilfinning í þáttunum; svo framarlega sem klukkan tifar þá erum við öll ávallt stödd í miðju feigðarflaninu í átt að eigin endalokum.

Mikil feigð vofir með öðrum orðum yfir þáttaröðinni, ekki aðeins ókennilega tilfinningin sem fylgir því að persónur upprunalegu myndasögunnar birtast hér eins og reimleikar eða draugagangur; þeirra dagar voru taldir, endalokin komu þegar lestri bókar Moore lauk, en hér eru þeir snúnir aftur, og söguheimurinn allur. En að sama skapi er dálítið eins og yfir sögusviðinu sé myrkur og forgengileiki, öllu átti þessu að vera lokið, menn hljóta að vera staddir þarna í erindaleysu, líkt og ósýnilegi draugurinn sem ekki getur yfirgefið eigin húsakynni þótt öll ummerki um hann séu löngu horfin. Eins og til að hnykkja á þessu mynda fyrstu tveir þættirnir eins konar samtengdan dauðadans, þeim fyrsta lýkur á sjálfsvígi, í þeim næsta er byrjað að fjalla um nýafstaðið fjöldamorð á lögregluliði heillar borgar.

Að baki frásagnarinnar sveimar svo trámatísk og bæld menningarminning um aðra tíma, öðruvísi tíma, þegar rasismi og blökkumannahatur voru samfélagslega samþykkt viðhorf (eða geðbrigði) og fyrir hvíta var óhætt að sleppa fram af sér beislinu öðru hvoru. Eins og þegar „Blökku-Wall Street“ í Tulsa í Oklóhóma-fylki var lagt í eyði árið 1921. Um var að ræða hagsælasta samfélag blökkumanna í Bandaríkjunum og eitt af velmegandi samfélögum þjóðarinnar. En svo gerðist það að hvítir létu ekki bjóða sér þetta; klæddir í mörgum tilvikum hvítum sjölum og hettum KKK brenndu þeir þennan hluta bæjarins til kaldra kola og myrtu hátt í fjögurhundruð manns. Þessi glæpur endurómar í gegnum þáttaröðina alla.

Mikilvægt er að ítreka að ekki sé um beina aðlögun á myndasögunni að ræða. Við það verkefni reyndi Zach Snyder sig árið 2009 og útkoman var alvond kvikmynd. Þáttaröðin nýtir sér upprunalegu myndasöguna frekar sem einskonar stökkpall til að segja nýja sögu með þeim frásagnarlegu og táknrænu vopnum sem Moore og Gibbons reiddu á sínum tíma fram. Í stað þess að vera ádeila á Reagan-isma, forræðishyggju kapítalismans og valdníðslu hægri afla beinir þáttaröðin sjónum að líðandi stund og málefnum sem knýjandi eru í Bandaríkjum samtímans. Kynþáttahatur og djúpstætt ósamlyndi hvítra í garð blökkufólks, og sú valdníðsla og afbökun á samfélagsstofnunum sem þessu fylgir, er miðlægasta viðfangsefni nýju Watchmen þáttanna. Það er því ekki ofsögum sagt að þessir þættir, enda þótt þeir hafi komið út í fyrra, bjóði upp á djúpstæða samræðu við þá atburði sem skekið hafa þjóðina vestanhafs undanfarið.

Í skjóli nafnleysis

Áratugum eftir harmleikinn í Blökku-Wall Street hefst raunveruleg frásögn þáttanna. Robert Redford er eins og áður segir forseti og fyrirskipar hann umfangsmiklar endurgjaldsaðgerðir til þeldökkra íbúa Tulsa vegna fjöldamorðsins 1921. Þær aðgerðir reyndust áorka litlu fyrir samfélag Tulsa öðru en að fleygja bautasteini á þá glerbrú sem hafði myndast á milli hvítra og svartra. Arftakasamtök KKK rísa úr öskustó gömlu samtakanna gegngert vegna þessara aðgerða og hefja stríð gegn minnihlutahópum sem og lögreglunni. Þegar sagan hefst hafa þessi samtök herjað svo illa að lögreglufulltrúum Tulsa að búið er að lagfesta grímuburð lögreglunnar sem og nafnleysi, svo ekki sé hreinlega farið heim til lögreglumanna- og kvenna og þau myrt að næturlagi. Valdir aðilar lögreglunar taka meira segja að sér hliðareinkenni og persónuleika sem svipar allmikið til skapalóns fyrstu ofurhetjanna. Í skjóli nafnleysis og faldir á bakvið grímur eru lögregluþjónarnir nær óaðgreinanlegir frá sjálfskipuðum „verndurum“ hins óbreytta borgara, framtíðarfasistum eins og Leðurblökumanninum.

Þessi sviðsmynd kallar fram meginspurningar þáttaraðarinnar, sem hverfast um traust. Hverjum er hægt að treysta og hverjum er treystandi fyrir valdi? Fyrir öryggi almennra borgara, fyrir fjármunum – og, aftur, fyrir völdum. Er hægt að treysta fólki til þess að gera hið rétta, að fylgja gefnum reglum og stöðlum samfélagsins ef þegnarnir eftirláta þessum sömu aðilum vald og umboð til að deila og drottna? Reynslan sýnir að stofnanir og félagsleg net og hópar hefja gjarnan leika með glæsilegar hugsjónir að leiðarljósi, en ávallt spillist allt. Eina lausnin er hin samtengda krafa lýðræðisskipulagsins, sem gengur út frá því að allir séu hættulegir og sjálfhverfir ruddar, og því þurfi að aðskilja stjórntæki ríkisins og aðrar valdstöðvar samfélagsins með svo afgerandi hætti að enginn einstaklingur eða hópur geti nokkurn tíma náð valdi á þeim öllum í óþökk samfélagsins (aðgreining löggjafa og framkvæmdavalds, sjálfstæði dómstóla, tjáningarfrelsi og önnur slík atriði eru uppistöður þessarar „fávitafælu“).

En ef okkur finnst svona varasamt og erfitt að treysta dagfarslegum samborgurum okkar, og eins og dæmin sýna draga völd og peningar allskyns hyski trekk í trekk í valdastöður; ef með öðrum orðum marglæstri og baktryggðri samfélagsumgörðinni tekst aðeins með naumindum að fjötra mannlegt eðli og forða því að myrkustu miðaldir verði hið eilífa samfélagsnorm, hversu óendanlega vör um okkur verðum við þá ekki að vera þegar þeir sem manna þessar stöður, og sýsla með þessi völd, byrja að fela sig á bak við grímur?

Vefsvæði Engra stjarna er hér.[/cs_text]

Um höfundinn
Heiðar Bernharðsson

Heiðar Bernharðsson

Heiðar Bernharðsson er með BA próf í kvikmyndafræði og meðlimur Engra stjarna.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

118000781

118000782

118000783

118000784

118000785

118000786

118000787

118000788

118000789

118000790

118000791

118000792

118000793

118000794

118000795

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000246

228000247

228000248

228000249

228000250

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701