Háðsópera um hjónabandserjur

[cs_text]Háðsóperan Trouble in Tahiti var sett upp í fyrsta sinn á Íslandi, 28. október síðastliðinn í Tjarnarbíói, í tilefni af því að 100 ár eru frá fæðingu tónskáldsins Leonard Bernstein. Sýningin er undir stjórn Gísla Jóhanns Grétarssonar og Pálínu Jónsdóttur og er hluti af Óperudögum í Reykjavík.

Um hið fullkomna líf

Leonard Bernstein er þekktur fyrir verkin On the Town, Candide og West Side Story sem sýnd voru á Broadway. Hann hófst handa við að skrifa Trouble in Tahiti í brúðkaupsferð sinni árið 1951. Verkið fjallar um Sam (Aron Axel Cortes) og Dinah (Ása Fanney Gestsdóttir) og hjónabandserjur þeirra. Óhamingja þeirra er greinileg andstæða við hið fullkomna millistéttarlíf í úthverfaparadís sem hið hamingjusama tríó (Íris Björk Gunnarsdóttir, Gunnar Guðni Harðarson og Ragnar Pétur Jóhannsson) dregur upp mynd af. Tríóið er eins og grískur kór sem varpar ljósi á satíruna í verkinu, flytur hugmyndir um markaðs- og neysluhyggju, áhrif auglýsinga og samfélagspressu. Ýtarlega má lesa um verkið á vefsíðu sem tileinkuð er skáldinu.

Tímalaust verk

Tónlistin í verkinu er grípandi. Það er flott hvernig óperu og djass er skeytt saman. Sagan sem verkið segir er nokkuð tímalaus. Á öllum tímum óskar fólk einskis fremur en að vera hamingjusamt og umvafið ást. Í sögu Bernstein eru það auglýsingar og Hollywood-myndir sem ýta undir neyslukapphlaupið sem oft vill standa í vegi fyrir því sem raunverulega skiptir máli í lífinu. Í uppsetningunni í Tjarnarbíói er verkið staðfært að íslenskum nútíma, upp að vissu marki. Aftast á sviðinu eru hvítar gardínur fyrir glugga en á þær er varpað myndum og myndböndum sem sýna íslensk íbúðarhús. Þar birtast einnig nokkrar fjölskyldumyndir sem hjónin hafa póstað á Instagram. Þá pósa meðlimir tríósins í allskonar stellingum, alltaf kát og hamingjusöm að sjá. Myndirnar verða síðan meira og meira uppstilltar svo ádeilan verður skýr. Sam tók einnig uppstilltar myndir á snjallsímann sinn af sér í ræktinni. Þetta voru allt liðir í því að færa verkið nær íslenskum áhorfendum.

Ekki var farið alla leið til nútímans hvað varðar búninga (Þórdís Erla Zoëga). Búningarnir voru heldur ekki samkvæmt tísku 6. áratugarins í Bandaríkjunum. Sam var klæddur bláum buxum, bláum bol, bláum frakka – öllu bláu enda hefur blár í gegnum tíðina táknað karlmennsku. Að sama skapi var Dinah í öllu bleiku – því oft hefur bleikur verið tákn fyrir kvenleika. Bolurinn sem hún var í var allt of stuttur miðað við buxurnar. Tríóið var í þröngum svörtum buxum og hvítum skyrtum, herrarnir með axlabönd. Búningarnir voru með öðrum orðum einfaldir, að mínu mati of einfaldir. Þeir hefðu mátt vera klæðilegri, það er passa leikurunum/söngvurunum betur.

Tvennt í uppsetningunni er sérstaklega vert að nefna. Það er hlutverk sonarins og hlutverk ungfrú Brown því þau eru nýjung, eftir því sem ég best veit. Sonurinn kemur fyrir í upphafi fyrstu senunnar. Hann er á leiðinni í skólann og hjónin kveðja hann og fara síðan að rífast. Aftur kemur hann á sviðið í lokaatriðinu. Þá kemur hann heim úr skólanum eftir að hafa tekið þátt í leikriti sem hvorki móðir hans né faðir mættu á. Þau eru farin í bíó á myndina „Trouble in Tahiti“ án þess að hugsa um hann. Drengurinn er með hjartalaga gasblöðru í bandi. Mér þótti þetta sterk og táknræn lokasena. Eins var vel heppnað að leyfa ungfrú Brown, samstarfskonu Sam sem Dinah grunar að hann haldi fram hjá sér með, að fá „rödd“ en það var þverflautuleikarinn (Sigríður Hjördís Indriðadóttir) sem túlkaði hana.

Meiri tími og meira fjármagn

Velta má fyrir sér hvort Tjarnarbíó hafi verið heppilegasta sviðsrýmið fyrir uppsetningu Trouble in Tahiti. Hljómburðurinn var ekki upp á sitt besta og lítið rými var fyrir söngvarana að athafna sig þar sem á sviðinu með þeim var fullskipuð hljómsveit. Flygill, trommusett og fleiri hljóðfæri tóku sitt pláss, sem og stólar og nótnastatíf hljóðfæraleikaranna. Ef til vill hefði mátt bæta innkomu og útgöngu söngvaranna með því að æfa oftar í Tjarnarbíói. Þrengslin settu mark sitt á þær. Flutningurinn hefði mátt vera samstilltari og ég velti þess vegna fyrir mér hvort nógu margar samæfingar hafi verið haldnar í æfingaferlinu. Þrátt fyrir að tríóið væri með hljóðnema heyrðist of lítið í þeim í samanburði við hljóðfærin. Gott hefði verið að geta betur heyrt og greint orðaskil söngvaranna til að skilja betur framvindu verksins. Söguþráðinn hefði einnig verið hægt að hafa útprentaðan á sýningarskrá. Setja hefði mátt meiri tíma og meira fjármagn í uppsetningu þessa skemmtilega verks.[/cs_text]

Um höfundinn
Karítas Hrundar Pálsdóttir

Karítas Hrundar Pálsdóttir

Karítas Hrundar Pálsdóttir er með meistarapróf í ritlist frá Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000491

118000492

118000493

118000494

118000495

118000496

118000497

118000498

118000499

118000500

118000501

118000502

118000503

118000504

118000505

118000506

118000507

118000508

118000509

118000510

118000511

118000512

118000513

118000514

118000515

118000516

118000517

118000518

118000519

118000520

118000521

118000522

118000523

118000524

118000525

128000546

128000547

128000548

128000549

128000550

128000551

128000552

128000553

128000554

128000555

128000556

128000557

128000558

128000559

128000560

128000561

128000562

128000563

128000564

128000565

128000566

128000567

128000568

128000569

128000570

128000571

128000572

128000573

128000574

128000575

128000576

128000577

128000578

128000579

128000580

128000581

128000582

128000583

128000584

128000585

128000586

128000587

128000588

128000589

128000590

158000326

158000327

158000328

158000329

158000330

158000331

158000332

158000333

158000334

158000335

158000336

158000337

158000338

158000339

158000340

158000341

158000342

158000343

158000344

158000345

178000746

178000747

178000748

178000749

178000750

178000751

178000752

178000753

178000754

178000755

178000756

178000757

178000758

178000759

178000760

178000761

178000762

178000763

178000764

178000765

178000766

178000767

178000768

178000769

178000770

178000771

178000772

178000773

178000774

178000775

208000206

208000207

208000208

208000209

208000210

208000211

208000212

208000213

208000215

208000216

208000218

208000219

208000220

208000221

208000222

208000223

208000224

208000225

208000226

208000227

208000228

208000229

208000230

208000231

208000232

208000233

208000234

208000235

208000236

208000237

208000238

208000239

208000240

208000241

208000242

208000243

208000244

208000245

208000246

208000247

208000248

208000249

208000250

208000251

208000252

208000253

208000254

208000255

208000256

208000257

208000258

208000259

208000260

208000261

208000262

208000263

208000264

208000265

news-1701