[cs_text]Nýjasta kvikmynd leikstjórans Baldvins Z., Lof mér að falla, er sýnd í kvikmyndahúsum um þessar mundir og hefur vakið mikla athygli, auk þess að hljóta nær einróma lof gagnrýnenda. Myndin lýsir með bersöglum og sláandi hætti lífinu í undirheimum Reykjavíkur í okkar nánustu fortíð og nútíð. Sögupersónur myndarinnar eru ungar stúlkur er leiðast út í notkun fíkniefna og myndin horfist í augu við það hyldýpi örvæntingar og grimmdar er bíður þeirra sem lengst láta leiðast.

Um Lof mér að falla hafði Sólveig Johnsen, gagnrýnandi Engra stjarna, þetta meðal annars að segja:

Í Lof mér að falla (2018) tekst Baldvin Z á við undirheima Reykjavíkur á hátt sem ekki hefur sést áður í íslenskri kvikmyndagerð. Í henni er sögð ástarsaga tveggja kvenna sem báðar eru fíklar. Þetta er eitrað samband sem dregur þær báðar dýpra og dýpra í svaðið, þær eru ekki einungis háðar efnunum heldur hvor annarri líka og því skapast hér saga um fíkn og þráhyggju, í efni og í ást. Með þessum vinkli tekst Baldvin að fjalla um fíkniefnaheiminn á Íslandi á tilfinningalegu plani; þetta er ekki spennuþrungin frásögn heldur næm og grípandi umfjöllun um fíkla – sem hér eru venjulegar manneskjur með ástríður og drauma, ekki tölur á blaði eða hættulegir glæpamenn.

Enn fremur gefur það kvikmyndinni aukna merkingu að fjalla um konur innan þessa heims, en ljóst er að þó undirheimarnir séu grimmir við alla verða konur undir á annan og alvarlegri hátt en karlar, meðal annars vegna þess mikla kynferðisofbeldis sem þær eru beittar. Þær eru jaðarsettar innan jaðarsetts hóps. Með því að byggja handritið á raunverulegum frásögnum íslenskra kvenna í neyslu hefur Baldvin, ásamt Birgi Erni Steinarssyni, skapað heildarsögu sem er sannfærandi og heldur áhorfendum vel við efnið, en má jafnframt ætla að endurspegli reynslu fjölmargra íslenskra kvenna. Atburðirnir sem sjást á hvíta tjaldinu hafa gerst oft og mörgum sinnum, þeir eru að gerast akkúrat núna og munu eiga sér stað aftur og aftur og aftur.

Lof mér að falla er þriðja leikna frásagnarkvikmynd Baldvins. Árið 2010 kom sú fyrsta út, Órói, svo var það Vonarstræti árið 2014, sem var framlag Íslands til Óskarsins það árið. En þótt að þrjár frásagnarkvikmyndir á átta árum þyki auðvitað út af fyrir sig og einar og sér prýðileg afköst í kvikmyndaumhverfinu hér á landi, er þá hvergi nærri allt talið. Í fyrra komu tvær heimildarmyndir út eftir Baldvin, Reynir sterki, um aflraunamanninn sögufræga, og Island Songs, um Ólaf Arnalds. Þá hefur Baldvin einnig leikstýrt fyrir sjónvarp, og var t.d. einn af lykilleikstjórunum Ófærðar árið 2016.

Baldvin Z. kom í heimsókn í síðustu viku og spjallaði við Kvikmyndafræði Háskóla Íslands fyrir fullum sal áhugafólks um sína nýjustu mynd undir yfirskriftinni „Íslenska nýbylgjan“. Það sem fer hér á eftir er stytt og ritstýrð útgáfa af því er bar á góma í umræðunum.

Nú segir í kynningu myndarinnar að hún sé byggð á sönnum atburðum. Gætirðu aðeins útskýrt hvernig efni myndarinnar sækir í raunverulega atburði?

Árið 2011 fékk ég mjög skrítið verkefni, forvarnarverkefni, sem ég hafði ekki sérlega mikinn áhuga á forvörnum á þeim tíma. Ég sagði þó já við því (ég fengi laun í smá tíma). Ég átti að taka svona Sliding Doors atriði með Ragnhildi Steinunni – búa til sögur með stjörnum á Íslandi, hvernig hefði getað farið fyrir þeim ef lífið hefði ekki gengið jafnvel upp. Ég sagði Kristínu Júllu sminku og stórvinkonu minni frá þessu og hún sagði mér frá Kristínu Gerði og eftir það fékk ég í hendur dagbækurnar sem áttu eftir að móta Lof mér að falla í gegnum Jóhannes Kr. [Kristjánsson]. Ég og Biggi [Birgir Örn Steinarsson] vorum að leita okkur að nýju verkefni, nýbúnir með Vonarstræti, og þessi reynsla með Sliding Doors verkefnið, og svo kynnast Jóhannesi Kr. sem sagði okkur sögu Sissu og hleypti okkur inn í það mál sem kom okkur svo í samband við nokkrar stelpur sem voru þá í neyslu vorum við komnir með efni til þess að vinna með.

Dagbók Kristínar Gerðar var auðvitað sérstkalega sláandi en maður velti því fyrir sér hvort hlutirnir hefðu versnað frá því sem var – og þá var það vont – eða batnað hvað varðar fíkniefnaheiminn og við komumst að því að ástandið hefði versnað. Myndin snýst samt alls ekki um að ganga fram af fólki, heldur að fylgja raunveruleikanum. Hvað mig varðar fannst mér mikilvægt að skila af mér sögu sem væri raunsæ og sýndi að þetta væri að gerast á Íslandi. Það var ekki okkar markmið að miðla svakalega miklum boðskap og breyta heiminum, en það var í rauninni ekki fyrr en við screenuðum fyrsta klippið – vorum með eina karlasýningu og eina kvennasýningu – að við vissum hvað við höfðum í höndunum, og ég var stressaður. Annað hvort var ég að fremja carreer-sjálfsmorð að segja sögu kvenna sem karlmaður eða þetta myndi ganga upp og ná til fólks. Og þarna, þegar myndin var fyrst prufusýnd, var ég ekki viss – að vissu leyti missir maður tilfinninguna fyrir verkinu á einhverjum tímapunkti. En þótt munur hafi verið á sýningunum var það konusýningin sem staðfesti fyrir mér að við hefðum eitthvað. Það var minna feedback af karlasýningunni en á konusýningunni voru viðbrögðin ótvíræð, áhorfendur voru grátandi og frábærar samræður fylgdu í kjölfarið. Af einhverjum ástæðum var skoðunin sú á karlasýningunni, til dæmis, að Magnea hefði ekki gengið í gegnum nógu mikið fyrir lokauppgjörið í myndinni, þetta skiptist að vísu dálítið milli aldurs, yngri mennirnir voru hrifnari. En þeim fannst til dæmis óþarfi að við værum að sýna Gísla – sem leiddi til þess að við breyttum aðeins myndinni til að auðveldara væri að lesa og túlka persónu Gísla í myndinni.

Björn Þór Vilhjálmsson og Baldvin Z.

Stundum talað um sjokkklippingar og leikstjóra sem sérhæfa sig í að ýta á hnappa og stuða (Trier, Noe, jafnvel Haneke). Nú sýnir Lof mér að falla ekki það grófasta sem á sér stað í söguframvindunni, það virðist vísvitandi að myndavélin lítur eiginlega undan. Hvað réð þeirri ákvörðun?

Atriðið sem þú vísar til þar sem myndavélin lítur undan, bókstaflega, er þegar Gísli pyntar Magneu í sprautuatriðinu og í handriti var þetta allt öðruvísi sena. En að lokum spyr maður sig, af hverju þurfum við að sjá ofbeldið? Hvaða tilgangi þjónar það? Mig langaði að finna leið til að kynna Gísla í þessu fyrsta myndskeiði sem hann sést. Poloroidmyndin sést til dæmis í leikmyndinni og það er seinna sem við sjáum hana tekna. Leikmyndin í atriðinu leggur líka áherslu guðsdæmið, hann er samhjálparmaður, og Bogi Ágústsson er í sjónvarpinu að flytja fréttir. Skilaboðin eru að þetta sé að gerast í næsta húsi, á meðan þú horfir á fréttir.

Við erum líka svo vön að sjá alls konar viðbjóð, það er erfitt að sjokkera, ekki síst unglinga og ungt fólk sem er ýmsu vant. Þetta var bara önnur leið, mig langaði að komast undir skinnið á áhorfendum. Það þarf ekki að sýna allt. Ímyndunaraflið getur verið sterka en það sem er sýnt.

Myndin talar, að því er virðist, inn í samhengi þar sem ungt fólk virðist hafa frjálslyndari hugmyndir um notkun fíkniefna en kannski var áður, fyrir 10 eða 20 árum. En á sama tíma finnst mér ég hafa fundið og heyrt er að ungt fólk sé að fara á myndina og sé algjörlega slegið. Fullyrðingar eins og „ég ætla aldrei að nota dóp,“ hafa heyrst þegar fólk er að ganga út. Hvernig hafa viðtökur myndirnar komið þér fyrir sjónir?

Viðtökurnar eru langt umfram það sem ég vonaðist eftir. Kristín vildi að sín saga yrði sögð. Þess vegna skildi hún dagbækurnar eftir. Hún var ótrúlega dugleg manneskja og hugrökk, hún vann hjá Stígamótum, bjargaði mörgum. Efnið rataði með óvenjulegum leiðum upp í hendurnar á mér. Nú getur fjöskyldan skilið við þetta og munað hver hún var, persóan ekki eiturlyfja neitandinn.

Sagan sem þú segir er auðvitað séríslensk og nær manni ef maður horfir sem Íslendingur. Ertu að fá önnur viðbrögð úti?

Það er merkilegt en í raun ekki. Þegar ég sýndi myndina í Toronto var Q&A eftir sýninguna, og vanalega gengur helmingurinn út áður en að því kemur. Í þessu tilviki urðu allir eftir, allur salurinn sat áfram til að vera með í spurningunum. Og fólk var ennþá grátandi klukkutíma eftir að myndin var búin. Það er ekki bara á Íslandi sem myndin hefur áhrif. En vissulega er það öðruvísi að sjá hlutina í útlöndum. Þegar ég tók þátt í sambærilegu Q&A eftir Vonarstræti (og gaman er að minnast á að Darren Aronovsky var í salnum og tvítaði um myndina eftirá), sagðist ég næst ætla að gera dökka mynd, og þá var spurt, er þessi mynd ekki nægilega myrk? [hlátur] En munurinn liggur auðvitað í því að hér heima er spurt, af hverju er Gói að leika vondan gaur. Úti er fóllki sama um svoleiðis, vita ekki að barnastjarna er að rústa barnakreditinu sínu. [hlátur] En það sem mér þykir kannski vænst um er að heyra að gagnrýnandi sem fór á myndina með dóttur sinni hafði það að segja að dóttir hans sagðist aldrei hafa séð mynd sem fjallar um unglinga sem skilur unglinga svona vel.

Úr Lof mér að falla eftir Baldvin Z.

Nú fannst mér alveg sláandi hvað leikarar standa sig vel í krefjandi hlutverkum, allt frá aðalleikonunum fjórum til þeirra sem fara með smærri hlutverk. Hvernig var staðið að vali í hlutverkin, nú eru ekki allir sem þarna eru í forgrunni með mikla reynslu? Og í beinu framhaldi, nú hlýtur það að hafa verið stór ákvörðun að ákveða að segja söguna á tveimur tímaplönum, og nota ólíkar leikkonur til að túlka sama hlutverkið. Gætirðu aðeins rætt um þetta allt saman?

Sko, tímaplönin þjóna ólíkum tilgangi, Meðal annars vildi ég að áhorfendur engdust um yfir því að foreldrarnir gera ekkert, eða ekki nógu mikið. Og við veltum aðeins endalokunum fyrir okkur. Í upphafi var sena í lokin þar sem Magnea var komin í Háskóla, í sæmilegum málum. En við hættum við það. Bæði Magnea og Stella eru hluti af Kristíni Gerði, innblásnar af ólíkum hliðum hennar. En eftir að ég sá Christine F. (ragarðsbörnin) sá ég hversu mikilvægt var að hafa raunverulega unga leikara í hlutverkunum, leikara sem gátu tjáð varnarleysi. Og Elínu [Elín Sif Halldórsdóttir] hafði ég spottað fyrr og vissi í raun að hún væri rétt fyrir Magneu. Eyrún [Eyrún Björk Jakobsdóttir] villtist eiginlega inn í prufu fyrir Stellu. Hún er raunverulega yngri en Elín, en það sem á endanum skipti máli var áreynsluleysið hjá þeim. Að finna eldri leikkonurnar var flóknara. Kristín Þóra hafði hafði komið í prufu fyrir Stellu en kom þá aftur fyrir Magneu. Og svo kom Kristín fram með þessa persónu, lék hana þannig að hún var miklu ver farin en hún átti að vera.

2018 virðist ætla að vera dálítið lykilár í íslenskri kvikmyndagerð. Andið eðlilega, Kona fer í stríð og myndin þín, Lof mér að falla, eru allar að glíma við samtímann, og málefni sem skipta máli í samtímanum. Íslensk kvikmyndagerð hefur að sumu leyti verið eins og föst í einhverri tímavél, ýmist týnd í fortíðinni (atómstöðvarkomplex) eða föst í málefnum sem öllum stendur á sama um (bændur bregða búi, fylleríssögur hestamanna, hrútar, það sem efst er á baugi í sjávarþorpinu). Hvernig sérðu sjálfan þig í þessu samhengi og hvernig verða næstu verkefni?

Benni með náttúrumyndina sína, mynd um loftslagsmál, og Ísold með innflytjendamálin. Ég fagna því að við seum farin að fjalla um málefni líðandi stundar og ég held að áhorfendur geri það líka. Í Lof mér að falla er ekkert sjávarþorp, það eru engir hestar, engar beljur. Það er eitt náttúrskot í myndinni, það er þegar Gísli og Magnea flýja úr meðferð, og það er þarna af nauðsyn! Það má kannski segja að myndin tikki í sum íslensk box, þunglyndi og sjálfsmorð, til dæmis, en mér finnst mikilvægt að segja sögur sem skipta máli. Raunar hef ég fundið að ég get eiginlega ekki sagt annað en tiltölulega flóknar sögur, það liggur ekki vel fyrir mér að segja sögu um eina persónu. Ég veit ekki hvers vegna. En þetta er það sem ég á held ég eftir að gera, segja sögur sem mér finnst vera áríðandi.

(Forsíðumynd: Brynjar Gunnarsson)

[/cs_text]
Um höfundinn
Björn Þór Vilhjálmsson

Björn Þór Vilhjálmsson

Björn Þór Vilhjálmsson er dósent í almennri bókmenntafræði og kvikmyndafræði. Sérsvið hans eru skörun og samræða kvikmynda og bókmennta, tækni og menning, nýmiðlar af ýmsum toga, og íslensk kvikmyndasaga. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

berita 128000696

berita 128000697

berita 128000698

berita 128000699

berita 128000700

berita 128000701

berita 128000702

berita 128000703

berita 128000704

berita 128000705

berita 128000706

berita 128000707

berita 128000708

berita 128000709

berita 128000710

berita 128000711

berita 128000712

berita 128000713

berita 128000714

berita 128000715

berita 128000716

berita 128000717

berita 128000718

berita 128000719

berita 128000720

berita 128000721

berita 128000722

berita 128000723

berita 128000724

berita 128000725

artikel-128000751

artikel-128000752

artikel-128000753

artikel-128000754

artikel-128000755

artikel-128000756

artikel-128000757

artikel-128000758

artikel-128000759

artikel-128000760

artikel-128000761

artikel-128000762

artikel-128000763

artikel-128000764

artikel-128000765

artikel-128000766

artikel-128000767

artikel-128000768

artikel-128000769

artikel-128000770

artikel-128000771

artikel-128000772

artikel-128000773

artikel-128000774

artikel-128000775

artikel-128000776

artikel-128000777

artikel-128000778

artikel-128000779

artikel-128000780

artikel-128000781

artikel-128000782

artikel-128000783

artikel-128000784

artikel-128000785

artikel-128000786

artikel-128000787

artikel-128000788

artikel-128000789

artikel-128000790

artikel 128000791

artikel 128000792

artikel 128000793

artikel 128000794

artikel 128000795

artikel 128000796

artikel 128000797

artikel 128000798

artikel 128000799

artikel 128000800

artikel 128000801

artikel 128000802

artikel 128000803

artikel 128000804

artikel 128000805

artikel 128000806

artikel 128000807

artikel 128000808

artikel 128000809

artikel 128000810

artikel 128000811

artikel 128000812

artikel 128000813

artikel 128000814

artikel 128000815

artikel 128000816

artikel 128000817

artikel 128000818

artikel 128000819

artikel 128000820

article 138000756

article 138000757

article 138000758

article 138000759

article 138000760

article 138000761

article 138000762

article 138000763

article 138000764

article 138000765

article 138000766

article 138000767

article 138000768

article 138000769

article 138000770

article 138000771

article 138000772

article 138000773

article 138000774

article 138000775

article 138000776

article 138000777

article 138000778

article 138000779

article 138000780

article 138000781

article 138000782

article 138000783

article 138000784

article 138000785

article 138000786

article 138000787

article 138000788

article 138000789

article 138000790

article 138000791

article 138000792

article 138000793

article 138000794

article 138000795

article 138000796

article 138000797

article 138000798

article 138000799

article 138000800

article 138000801

article 138000802

article 138000803

article 138000804

article 138000805

article 138000806

article 138000807

article 138000808

article 138000809

article 138000810

article 138000811

article 138000812

article 138000813

article 138000814

article 138000815

article 138000716

article 138000717

article 138000718

article 138000719

article 138000720

article 138000721

article 138000722

article 138000723

article 138000724

article 138000725

article 138000726

article 138000727

article 138000728

article 138000729

article 138000730

article 138000731

article 138000732

article 138000733

article 138000734

article 138000735

article 138000736

article 138000737

article 138000738

article 138000739

article 138000740

article 138000741

article 138000742

article 138000743

article 138000744

article 138000745

article 228000341

article 228000342

article 228000343

article 228000344

article 228000345

article 228000346

article 228000347

article 228000348

article 228000349

article 228000350

article 228000351

article 228000352

article 228000353

article 228000354

article 228000355

article 228000356

article 228000357

article 228000358

article 228000359

article 228000360

article 228000361

article 228000362

article 228000363

article 228000364

article 228000365

article 228000366

article 228000367

article 228000368

article 228000369

article 228000370

article 228000371

article 228000372

article 228000373

article 228000374

article 228000375

article 238000461

article 238000462

article 238000463

article 238000464

article 238000465

article 238000466

article 238000467

article 238000468

article 238000469

article 238000470

article 238000471

article 238000472

article 238000473

article 238000474

article 238000475

article 238000476

article 238000477

article 238000478

article 238000479

article 238000480

article 238000481

article 238000482

article 238000483

article 238000484

article 238000485

article 238000486

article 238000487

article 238000488

article 238000489

article 238000490

article 228000376

article 228000377

article 228000378

article 228000379

article 228000380

article 228000381

article 228000382

article 228000383

article 228000384

article 228000385

article 228000386

article 228000387

article 228000388

article 228000389

article 228000390

article 228000391

article 228000392

article 228000393

article 228000394

article 228000395

article 228000396

article 228000397

article 228000398

article 228000399

article 228000400

article 228000401

article 228000402

article 228000403

article 228000404

article 228000405

update 238000492

update 238000493

update 238000494

update 238000495

update 238000496

update 238000497

update 238000498

update 238000499

update 238000500

update 238000501

update 238000502

update 238000503

update 238000504

update 238000505

update 238000506

update 238000507

update 238000508

update 238000509

update 238000510

update 238000511

update 238000512

update 238000513

update 238000514

update 238000515

update 238000516

update 238000517

update 238000518

update 238000519

update 238000520

update 238000521

sumbar-238000381

sumbar-238000382

sumbar-238000383

sumbar-238000384

sumbar-238000385

sumbar-238000386

sumbar-238000387

sumbar-238000388

sumbar-238000389

sumbar-238000390

sumbar-238000391

sumbar-238000392

sumbar-238000393

sumbar-238000394

sumbar-238000395

sumbar-238000396

sumbar-238000397

sumbar-238000398

sumbar-238000399

sumbar-238000400

sumbar-238000401

sumbar-238000402

sumbar-238000403

sumbar-238000404

sumbar-238000405

sumbar-238000406

sumbar-238000407

sumbar-238000408

sumbar-238000409

sumbar-238000410

news-1701