Annarsheimsferðir og einsetumenn. Þrjú rit eftir ítalska fræðimenn

[cs_text]Rannsóknir á íslenskum miðaldabókmenntum standa með miklum blóma á Ítalíu. Nýlega hafa komið út þrjú fræðirit eftir ítalska fræðimenn, sem eiga það sameiginlegt að fjalla um grundvallarrit sem þýdd voru úr latínu á miðöldum. Í öllum fræðiritunum þremur er vönduð útgáfa á norræna textanum og hann síðan þýddur, á ensku eða ítölsku.

Dario Bullitta. Niðurstigingar saga. Sources, Transmission and Theology of the Old Norse „Descent into Hell“. Toronto:University of Toronto Press, 2017. (Toronto Old Norse and Icelandic Series)

Nikódemusarguðspjall, eða Evangelium Nicodemi var með útbreiddustu ritum miðalda, svo mjög að það var gjarnan nefnt fimmta guðspjallið. Upprunalega var ritið sett saman úr tveimur hlutum, Gesta Salvatoris og Descensus Christi ad Inferos, en sá hluti hlaut nafnið Niðurstigningar saga í norrænni þýðingu. Hér segir frá því þegar Kristur steig niður til Heljar og frelsaði sálir réttlátra. Sagan er fjörleg og lýsir með dramatískum hætti baráttu Krists við „Satan jötun, helvítis höfðingja.“ Bullitta sýnir fram á að sagan sé þýdd úr franskri sögugerð frá tólftu öld af Evangelium Nicodemi sem ekki var sú gerð sem mest var í umferð á þeim tíma. En Niðurstigningarsaga er ekki bara þýðing á einu verki. Í henni eru ýmis frávik frá frumtexta og áhugaverð innskot, sem þýðandinn hefur sótt í önnur lærdómsrit. Dario Bulitta gerir rækilega grein fyrir vinnubrögðum og heimildum höfundar og veitir þannig innsýn í menntaheim tólftu aldar á Íslandi. Bullitta sýnir fram á tengsl Niðurstigningarsögu við Jarteinabækur Þorláks helga og að Niðurstigningar saga hafi verið þýdd og sett saman milli 1199 og 1211, á dögum Páls biskups Jónssonar. Hugsanlegt er að sá velmenntaði biskup hafi sjálfur verið  hér að verki. Það er óhætt að telja þetta verk Darios Bullitta með athyglisverðustu og vönduðustu ritum í norrænum miðaldafræðum sem fram hafa komið á síðustu árum.

Dario Bullitta. Páls leizla. The Vision of St Paul. Edited and translated by Dario Bullitta. London: Viking Society for Northern Research, 2017. (Viking Society Texts)

Þessi bók er ekki mikil að vöxtum, aðeins rúmlega 100 síður samtals, en engu að síður innihaldsrík og hefur nýjungar fram að færa. Helmingur bókarinnar er útgáfa á Páls leizlu, latneskum frumtexta hennar og enskri þýðingu. Skrá um biblíutilvitnanir, handritaskrá og atriðisorðaskrá fylgja í bókarlok. Í síðara Korintubréfi (12: 2 – 4) segir svo: „Ég þekki kristinn mann. Fyrir fjórtán árum var hann hrifinn burt allt til þriðja himins. Hvort það var í líkamanum eða utan líkamans veit ég ekki. Guð veit það.“ Hinn kristni maður er væntanlega postulinn Páll sjálfur. Leitast er við að skýra orð postulans í Apocalypsis Pauli sem ritað var á grísku á þriðju öld. Ritið varð útbreitt og endurritað og þýtt á latínu á sjöttu öld. Þar er lýst ferðalagi Páls til himnaríkis og helvítis og sagt frá því semfyrir augu ber. Yngri latnesk gerð, líklega á rætur að rekja til níundu aldar,  greinir einungis frá förinni í verri staðinn. Þessi sögugerð, Visio Pauli, varð talsvert útbreidd og hin norræna Páls leizla er byggð á henni, eins og Dario Bullitta rekur vandlega í inngangi sínum. Páls leizla er varðveitt í tveimur íslenskum handritum frá 15. og 16. öld. Hann gerir vandlega grein fyrir handritunum og vinnubrögðum þýðandans, styttingum, en einnig viðbótum. Í inngangi er einnig kafli um Kristsmynd þá sem fram kemur í Páls leizlu. Þar birtist myndin af hinum þjáða Kristi síðmiðalda. Dario Bullitto kemst að þeirri athyglisverðu niðurstöðu að Páls leizla hafi verið tekin saman á síðari hluta 15. aldar, að undirlagi hins norska Hólabiskups Ólafs Rögnvaldssonar, en áður hafði hún verið talin mun eldri. Norski fræðimaðurinn Matthias Tveitane taldi hana frá miðri 12. öld   í útgáfu sinni.

Mauro Camiz. La saga islandese di san Benedetto. Roma: Edizioni Kappa, 2017. (Biblioteca Medievale)

„Sá maður var, er göfuglega lifði líf sitt en hann hét Benedictus, og hann var svo sem hann hét, en það þýðist blessaður að voru máli.“ Þannig hefst Benedictus saga. Mauro Camiz gefur söguna út eftir handritinu Stock. Perg. 2, sem er talið ritað 1425 – 1445. Þetta handrit hefur að geyma nokkrar dýrlingasögur, þýddar úr latínu. Heilagur Benedikt frá Núrsía er jafnan talinn upphafsmaður klausturlífs. Við hann er kennd Benediktsregla, en hún varð til þegar hann setti á stofn klaustur í Monte Cassino á Ítalíu, árið 529.

Mauro Camiz gefur söguna út samkvæmt fyrrnefndu handriti og þýðir hana á ítölsku. Í inngangi er fjallað um vegsömun og vinsældir heilags Benedikts á Íslandi. Nefna má að fjögur íslensk klaustur voru undir Benediktsreglu á miðöldum. Stutt en skýr greinargerð er um kristnisögu Íslands, sniðinn fyrir ítalska lesendur. Að mestu leyti er inngangurinn helgaður handritinu sjálfu og rithætti þess. Textinn er gefinn út með ítarlegum skýringargreinum og þýðingu  á ítölsku. Skýringargreinarnar eru sannkölluð náma fyrir þá sem fást við dýrlingasögur. Orðskýringar fylgja í bókarlok.

Allar bækurnar þrjár eru vönduð fræðirit og höfundarnir hafa lagt fram drjúgan skerf til þess að tengja saman Norður- og Suður-Evrópu, með útgáfum sínum, þýðingum og rannsóknum á latneskum textum í norrænni gerð og geymd. Góðar skrár fylgja öllum bókunum. Þær munu henta sérlega vel til kennslu í miðaldafræðum.[/cs_text]

Um höfundinn
Ásdís Egilsdóttir

Ásdís Egilsdóttir

Ásdís Egilsdóttir er prófessor emerita í íslenskum bókmenntum fyrri alda. Hún hefur einkum rannsakað heilagra manna sögur og kvæði, en einnig lestur, læsi og minni á miðöldum. Þá hefur hún fengist við kynjafræði, einkum karlmennsku í miðaldatextum.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

118000781

118000782

118000783

118000784

118000785

118000786

118000787

118000788

118000789

118000790

118000791

118000792

118000793

118000794

118000795

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000246

228000247

228000248

228000249

228000250

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701