Gagnagrunnur um íslenska kvikmyndasögu

[cs_text]Ásgrímur Sverrisson er starfandi kvikmyndagerðarmaður en hann hefur jafnframt komið víða í íslenskri kvikmyndaumræðu, meðal annars sem ritstjóri Lands og sona um árabil. Frá 2013 hefur hann verið ritstjóri vefritsins Klapptré. Vefritið er óhætt að kalla eina af þjóðarinnar mikilvægustu þekkingarveitum um íslenska kvikmyndagerð. Hér ræðir hann við Björn Þór Vilhjálmsson um menningarlegt hlutverk Klapptrés og hvernig það endurspeglar sýn Ásgríms á  kvikmyndir og íslenska kvikmyndaheiminn.

Byrjum á byrjuninni. Hvað er Klapptré?

Klapptré er vefur um íslenska kvikmyndagerð í öllum sínum fjölbreytileika. Þarna birtast fréttir, fréttaskýringar, gagnrýni, umræða og skoðanir ásamt ýmiskonar tölulegum upplýsingum og öðru tilfallandi.

Hvernig myndir þú lýsa tilgangi Klapptrés, og hlutverki innan íslenskrar kvikmyndaumræðu?

Tilgangur Klapptrés er að veita sem bestar upplýsingar um það sem er að gerast hverju sinni í íslenskri kvikmyndagerð. Um leið er augað líka á sögunni, þ.e. að segja hana jafnóðum, halda utan um það sem fjallað er um í öðrum miðlum og svo framvegis þannig að úr verði safn fjölbreytilegs efnis sem gefur nokkuð skýra mynd af því sem er að gerast á hverjum tíma. Svona eftir því sem aðstæður leyfa. Vefurinn er ætlaður bæði þeim sem eru í greininni og þeim sem hafa áhuga á að fylgjast með því sem þar er að gerast. Og lestrartölur sýna að hann er lesinn langt út fyrir bransann, innanbúðarfólk er kannski svona fjórðungur lesenda.

Hvað hefur Klapptré verið lengi starfandi, hvernig varð hugmyndin að vefritinu til, og hvernig er umsjón með því háttað?

Klapptré fór í loftið 16. september 2013. Hugmyndin er einfaldlega hluti af því sem ég hef verið að gera síðan á unglingsárum, þ.e. fjalla um kvikmyndir og kvikmyndagerð í ýmsum miðlum, bæði eigin og annarra. Ég hef alltaf haft þessa miðlunarþörf varðandi kvikmyndirnar en ég hef líka stundað kvikmyndagerð frá sama tíma. Fyrir mér hafa þetta alltaf verið tvær hliðar sama penings. Varðandi umsjón þá er þetta að mestu leyti mitt verk en sem betur fer eru einnig góðir pennar sem leggja til efni, auk þess sem margskonar upplýsingar koma frá fólki í bransanum.

Nú eru ólíkar gáttir á forsíðu vefritsins á borð við „Gagnrýni“, „Viðtöl“ og „Verk í vinnslu“. Hvernig endurspeglar skipulag vefritsins sýn þína á kvikmyndir og íslenska kvikmyndaheiminn?

Þarna er hugmyndin að flokka efnið á sæmilega skipulegan hátt til að auðvelda leit og líka til að gefa mynd af fjölbreytninni og breiddinni. Svo nota ég líka efnisorð (tags) mjög grimmt, einmitt til að einfalda leit og greiða aðgang að upplýsingum um tiltekin nöfn eða verk og svo framvegis. Þannig verður smám saman til góður gagnabanki. Kvikmyndabransinn á sér margar hliðar og það er markmiðið að spegla það sem best. Þetta er líka grein í mikilli gerjun og örum vexti, í raun eitt allsherjar breytingaferli um áratugaskeið, tilraunir og endurbætur, mishröð framþróun og stundum skref aftur á bak. Hin síðari ár hafa einkennst af miklum krafti og það hefur verið mjög áhugavert að fylgjast með því.

Ein gáttin á Klapptré nefnist „Sjónvarp“. Þróunin á sjónvarpsmarkaði undanfarin tíu til fimmtán ár, einkum kannski í enskumælandi löndum en í raun víðar, hefur verið mikil, og má þar nefna tilkomu svokallaðs „gæðasjónvarps“ (e. prestige TV). Gætir svipaðra hræringa hér á landi og hvernig kemur hlutur sjónvarpsefnis þér fyrir sjónir þegar rætt er um íslenska kvikmyndamenningu?

Já vissulega hafa íslenskir kvikmyndagerðarmenn sýnt leiknu sjónvarpsefni mikinn áhuga gegnum tíðina. Þetta sem er að gerast núna er hluti af mjög löngu ferli þar sem mikil og löng barátta hefur staðið um eflingu leikins efnis fyrir sjónvarp áratugum saman. Framanaf voru leiknar þáttaraðir frekar sjaldséðar, meira var gert af stökum verkum en samt lítið í heildina og fjármagn oftast ekki mikið. Sumpart var þetta vegna takmarkaðs svigrúms og sumpart vegna takmarkaðs áhuga æðstu stjórnenda á að setja þetta í forgang. Á fyrstu árum nýrrar aldar fór þetta smám saman að breytast, stofnaður var sérstakur sjónvarpssjóður sem lengi hafði verið barist fyrir og stjórnendur sjónvarpsstöðvanna tóku við sér að einhverju leyti. Nokkuð regluleg framleiðsla á seríum hófst fyrir ca. áratug en þetta hefur verið hæg og skrykkjótt þróun þó gott efni hafi komið fram að einhverju leyti. Stærri markaðir hafa síðan opnast á undanförnum árum vegna örra breytinga í dreifingu myndefnis og breiðari áhuga á norrænu efni en áður. Við höfum notið góðs af því og það gæti auðveldað ýmislegt, en það er afar brýnt að auka verulega innlenda fjárfestingu í þessari grein kvikmyndagerðar til að rækta og virkja þann sköpunarkraft og hæfileika sem búa meðal íslenskra kvikmyndagerðarmanna. Það sem hefur breyst á undanförnum árum er að stjórnendur RÚV hafa sett þetta efni í forgang og það skiptir miklu máli vegna stærðar RÚV á markaðinum. Einkastöðvarnar leiddu þó þetta ferli framan af og það ber vissulega að þakka. En það er semsagt brýnt að Kvikmyndasjóður leggi aukið fé í gerð leikins efnis. Slíkt er háð pólitískum vilja og þar skortir enn nokkuð uppá. Svo má auðvitað líka hugsa sér að einkafjármagn komi til í auknum mæli, sérstaklega ef möguleikar eru á víðtækri dreifingu. Það er reyndar þegar byrjað að gerast. Aukið fjármagn er semsagt ákveðin forsenda en bransinn þarf líka að herða sig varðandi kröfur til verkefna, innihald þeirra og nálgun. Það er metnaður til þess tel ég, en þetta er líka spurning um hvernig búið er að fólki. Stefnumótun og umræða varðandi inntak og áherslur er líka afar takmörkuð enn og það er brýnt að bæta úr því, slíkt ætti að koma frá sjónvarpsstöðvunum og Kvikmyndamiðstöð í framhaldi af samræðu við greinina en líka sem víðast um samfélagið, ekki ósvipað því sem Danir gerðu með mjög góðum árangri og Norðmenn hafa gert að undanförnu.

Það vekur sérstaka athygli að Klapptré, auk fréttamiðlunar, heldur utanum gríðarmikið af fróðleik er snertir stofnanalegt umhverfi íslenskrar kvikmyndagerðar. Gætir þú rætt aðeins ástæðuna fyrir því að þér finnst mikilvægt að gera þetta?

Já, aftur er þetta spurning um sem greiðast aðgengi að upplýsingum, en þetta er auðvitað fyrst og fremst bakgrunnsefni. Hugmyndin var að lengd og breidd bransans myndi blasa við á einni síðu og þar væru síðan hlekkir á frekari upplýsingar. Ég reyndi að hugsa þetta út frá þeim sem væri að reyna að kynna sér bransann; hvernig lítur hann út varðandi strúktúr og helstu útlínur, hvar eru lykiltölur, hvernig er lagaramminn og svo framvegis.

Annað sem ég hef líka lagt áherslu á er sem greiðastur aðgangur að statistik um aðsókn á kvikmyndir og áhorf á þær í sjónvarpi. Fyrir mér snýst þetta ekki um tekjur (eða aðsókn/áhorf) sem einhverskonar endanlegan mælikvarða á velgengni eins og algengt er að miða við hjá mörgum fjölmiðlum. Ég hef hinsvegar áhuga á viðtökum, hvernig hitta þau verk sem gerð eru almenning fyrir? Hvaða sögu segja þessar tölur um áhuga almennings? Hvernig eru tengslin milli verkana og þeirra sem njóta þeirra? Fyrir hverja eru myndirnar okkar, hvaða hópa eru þær að ávarpa og hvernig gengur það? Við því eru mismunandi svör en mér finnst eðlilegt að velta því fyrir sér og svona upplýsingar geta hjálpað. Fyrir mér er þetta áhugavert samspil og mikilvægt. Mælikvarðarnir eru ekki endilega sem mest aðsókn, slíkt hlýtur meðal annars að vera í samhengi við eðli verksins. Einhverskonar toppaðsókn á alls ekki að vera eina leiðarljósið, langt í frá. Þar skiptir auðvitað mestu máli einhverskonar innri sannfæring þeirra sem gera verkið um að það eigi erindi.

Hvernig hefur Klapptré þróast í tímans rás? Hafa orðið breytingar á efnistökum, umfjöllunarsviðum og því hvernig þú nálgast ritstjórnina?

Ekki svo mikið á þessum fjórum árum, fyrst og fremst minniháttar breytingar. Það er hinsvegar ýmislegt sem ég myndi vilja gera betur, t.d. fleiri og ítarlegri viðtöl sem væru bæði á faglegum nótum og fjölluðu einnig um hugmyndir og áherslur; líka gagnrýni um verk og fjölbreytta umræðu um markmið og leiðir.

Hverjum sem skoðar vefritið er ljóst að þú hefur góða yfirsýn yfir íslenskar kvikmyndir og kvikmyndaumfjöllun á Íslandi. Hvað finnst þér um menningarumfjöllun fjölmiðla í dag þegar kemur að kvikmyndum? Og kannski þegar kemur að íslensku kvikmyndaefni sérstaklega?

Hún mætti heilt yfir vera mun snarpari og fjölbreyttari. Maður skilur þetta ekki alveg því þetta er mjög heillandi og áhugavert svið og það er gaman og fræðandi að lesa góða menningarumfjöllun. Ég veit þó að margir sem starfa á fjölmiðlunum hafa metnað og vilja til að gera vel en eru bundnir af sínum ramma. Þá kemur spurningin um hver setur rammann og þá komum við að lykilstjórnendum. Það virðist hafa dregið úr áhuga þeirra á að fjalla um þetta efni svona almennt talað, það er eins og þeim finnist þetta ekki spennandi svið. Ég átta mig ekki alveg á afhverju, en sjálfsagt snýst þetta að einhverju leyti um hvar áhugasvið manna liggja. En auðvitað er þetta ekki annaðhvort eða dæmi, flestir fjölmiðlanna reyna að halda þessu efni úti að einhverju leyti; ef við horfum á stærri miðlana þá er RÚV til dæmis með margvíslega nálgun á þetta efni og Morgunblaðið einnig – en báðir gætu þó gert ýmislegt betur.

Svo er annað sjónarmið sem heyrist stundum frá fjölmiðlafólki og það snýr að samskiptunum við listamenn. Þá er bent á að þetta fólk sé margt viðkvæmt og hörundsárt varðandi umfjöllun og að mikill þrýstingur sé á að hún sé sem jákvæðust, kynning og jafnvel einhverskonar hylling eigi að vera í forgrunni. Og að þetta hafi lesendur frekar takmarkaðan áhuga á og að þessvegna hafi dregið úr menningarumfjöllun, því fjölmiðlar vilji auðvitað fyrst og fremst birta það sem fólk vill lesa. Nú kann að vera eitthvað til í þessu en þá verður að spyrja á móti afhverju fjölmiðlar fjalli þá ekki bara um þetta efni út frá sínum forsendum. Það eru að sjálfsögðu til margar leiðir til að nálgast þetta. Skylda fjölmiðla er auðvitað fyrst og fremst við lesendur sína en það þýðir ekki að sensationalismi, leðjuslagur og upphrópanir eigi að vera ráðandi, hlutverk fjölmiðlafólks er að fjalla um samfélagið vítt og breitt og á því eru ótal margir fletir, bæði hvað varðar efni og nálgun.

Varðandi kvikmyndaumfjöllunina (bæði hvað varðar innlendar og erlendar kvikmyndir) vantar fleiri áhugaverða penna, kannski meðal annars út af því að hér er ekki svigrúm til að gera þetta að fullu starfi og þetta er ekkert sérstaklega vel borgað. Þeir eru þó vissulega til hér sem betur fer. En svo má einnig benda á að þetta er hluti af alþjóðlegri þróun, netið hefur raskað mjög starfsemi meginstraumsfjölmiðla og þeir eiga í erfiðleikum með að fóta sig í nýju umhverfi. Fókus almennings hefur færst yfir á samfélagsmiðla og þar ægir öllu saman; misgóðu efni fjölmiðla sem og allskyns fólki sem stígur á stokk með misvel ígrundaðar pælingar. Það er bæði gott og vont – en hvað annað er svosem nýtt? Það góða er að netið hefur gefið okkur meiri fjölbreytni (nei, ég er ekkert sérstaklega trúaður á kenninguna um “bergmálsherbergið”, hún er í besta falli einföldun) en það slæma er meðal annars að þeir sem fara um með bauki og bramli fá oft mestu athyglina. Þetta er í sjálfu sér ekkert nýtt en netið hefur skerpt á þessu. Valið er samt okkar, almennings.

Og hér kemur eiginlega framhaldsspurning. Hvað finnst þér um uppgang íslenskrar kvikmyndagerðar eftir árþúsundamótin?

Þetta hefur auðvitað verið mikil rússibanareið. Það hefur orðið mikil aukning og sviðið hefur stækkað að því leyti að íslenskar kvikmyndir eru orðnar mun stærri hluti af alþjóðlegum kvikmyndaheimi en áður. Slíkt er auðvitað hluti af löngu ferli, en vissulega spilar inní að hæfileikafólki hefur fjölgað og það er gott. En við glímum líka við erfið mál, sérstaklega snúið fjármögnunarumhverfi sem gerir úthald og útgerð ansi flókna. Ákveðin tilhneiging til einsleitni er líka vandamál, en á móti kemur að það er verið að reyna að finna leiðir framhjá því sem betur fer. Baráttan fyrir aukinni þátttöku kvenna í lykilstöðum kvikmyndagerðar er til dæmis hluti af því.

Ísland er lítið samfélag, og auðvelt er að stíga á tærnar á fólki, jafnvel óviljandi. Hefur það einhvern tíma komið fyrir að reynt hefur verið að hafa áhrif á umfjöllun eða miðlun á Klapptré?

Já það hefur vissulega komið fyrir, aðallega þegar einhverjum finnst á sig hallað í einhverskonar umfjöllun. Það er þá bara skoðað. En stefna Klapptrés er skýr; að segja frá því sem er að gerast, þar á meðal því sem aðrir miðlar segja um verk íslenskra kvikmyndagerðarmanna, viðtöl, umfjallanir, gagnrýni og ýmislegt annað. Stefnan er líka að segja rétt frá og einnig greina frá aðfinnslum og því sem fólki kann að finnast miður. Að sjálfsögðu beiti ég ritstjórnarlegu mati hverju sinni hvað þetta varðar, en aðallega varðandi meðferð staðreynda og þess háttar. Og ef bent er á villur í fréttum Klapptrés þá er mér að sjálfsögðu ljúft og skylt að leiðrétta þær. Svo er miðillinn líka opinn þeim sem vilja koma skoðunum sínum og sjónarmiðum á framfæri. Ég lít semsagt ekki á Klapptré sem minn eigin persónulega miðil heldur almennan fréttamiðil og vettvang þar sem bæði ég og aðrir geta sett fram sín sjónarmið. En ég reyni eins og mér er framast unnt að aðskilja þær skoðanir sem ég kann að hafa frá almennum fréttaflutningi.

Þú ert jafnframt starfandi kvikmyndagerðarmaður. Hvernig gengur að samræma kvikmyndagerðarhlutverkið og ritstjórnarhlutverkið?

Það getur stundum verið pínulítið snúið þar sem ég hef tengsl við ansa marga í greininni, hef bæði starfað að mörgum verkefnum með fjölda fólks gegnum tíðina og á hverjum tíma er ýmislegt í deiglunni með ýmsu samstarfsfólki. Þannig hef ég til dæmis ekki verið að skrifa dóma um íslenskar kvikmyndir sjálfur út af nálægðinni við vel flesta. Vildi þó oft geta gert það. En leiðarljósið er kannski helst það að ég er ekki í því að halla á neinn sérstaklega né að hampa neinum sérstaklega, heldur upplýsa eftir bestu getu, forðast “hæp” og leyfa lesendum að draga sínar ályktanir. Skoðanapistlar, hvort sem þeir eru frá mér komnir eða öðrum, tala svo bara sínu máli. Svo dæma lesendur sjálfir hvernig til tekst.

Hvar verður Klapptré eftir tíu ár?

Vonandi enn öflugra, með fjölbreyttari umræðu og skoðanaskiptum, meiri gagnrýni og hverskyns áhugaverðum fróðleik. Svo verður þá væntanlega komin nokkuð þéttur gagnagrunnur um íslenska kvikmyndasögu þessa tímabils, bæði það sem hæst ber en líka ýmsir krókar og afkimar. En svo þarf líka að hafa í huga að við lifum mikla gerjunar- og breytingatíma, það hangir mikið spurningamerki yfir framtíð kvikmynda. Á tuttugustu öldinni voru þær nálægt samfélagsmiðjunni og slógu jafnvel taktinn á tímabili. Tilfinningin er hinsvegar sú að þær séu að færast smám saman út til jaðarsins, en um leið er samfélagið að verða brotakenndara og meira marglaga en áður, þ.e. jaðarinn er að stækka en miðjan að dragast saman. Það er því spurning hvar og hvernig þær leggjast í kúltúrnum í framtíðinni og hverskonar breytingum þær taka. Þetta mun líka hafa áhrif á þá sem miðla fréttum og öðru af greininni.

Að lokum, áttu þér eftirlætis íslenska kvikmynd?

Þessi hápólitíska spurning ætti auðvitað að fá hið hápólitíska svar, no komment! En ég ætla samt að segja að ég met ýmsar þeirra mikils, sérstaklega þær sem hafa breytt kúrsinum svolítið, lyft þessu upp á hærra plan og fleytt íslenskri kvikmyndagerð áfram. Svo eru auðvitað augnablik í mörgum myndum sem eru eftirminnileg, þar sem maður sér möguleikana á því sem hefði getað gerst en gerðist ekki alveg. Síðan er það svo að maður er svolítið gegnsósaður af íslenskum myndum, flestar bíómyndanna hef ég séð oftar en einu sinni og sumar mörgum sinnum. Upplifunin á þeim getur verið breytileg, aðallega vegna þess að maður breytist sjálfur á ferðalaginu gegnum tímann, viðhorf og sýn manns á hlutina. En allt er þetta indælt stríð og drifið áfram af því að maður hefur vonir og metnað fyrir hönd íslenskrar kvikmyndagerðar.[/cs_text]

Um höfundinn
Björn Þór Vilhjálmsson

Björn Þór Vilhjálmsson

Björn Þór Vilhjálmsson er dósent í almennri bókmenntafræði og kvikmyndafræði. Sérsvið hans eru skörun og samræða kvikmynda og bókmennta, tækni og menning, nýmiðlar af ýmsum toga, og íslensk kvikmyndasaga. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

article 710000001

article 710000002

article 710000003

article 710000004

article 710000005

article 710000006

article 710000007

article 710000008

article 710000009

article 710000010

article 710000011

article 710000012

article 710000013

article 710000014

article 710000015

article 710000016

article 710000017

article 710000018

article 710000019

article 710000020

article 710000021

article 710000022

article 710000023

article 710000024

article 710000025

article 710000026

article 710000027

article 710000028

article 710000029

article 710000030

article 710000031

article 710000032

article 710000033

article 710000034

article 710000035

article 710000036

article 710000037

article 710000038

article 710000039

article 710000040

articel 538000001

articel 538000002

articel 538000003

articel 538000004

articel 538000005

articel 538000006

articel 538000007

articel 538000008

articel 538000009

articel 538000010

articel 538000011

articel 538000012

articel 538000013

articel 538000014

articel 538000015

articel 538000016

articel 538000017

articel 538000018

articel 538000019

articel 538000020

kasus 898100001

kasus 898100002

kasus 898100003

kasus 898100004

kasus 898100005

kasus 898100006

kasus 898100007

kasus 898100008

kasus 898100009

kasus 898100010

kasus 898100011

kasus 898100012

kasus 898100013

kasus 898100014

kasus 898100015

kasus 898100016

kasus 898100017

kasus 898100018

kasus 898100019

kasus 898100020

cuaca 898100001

cuaca 898100002

cuaca 898100003

cuaca 898100004

cuaca 898100005

cuaca 898100006

cuaca 898100007

cuaca 898100008

cuaca 898100009

cuaca 898100010

cuaca 898100011

cuaca 898100012

cuaca 898100013

cuaca 898100014

cuaca 898100015

cuaca 898100016

cuaca 898100017

cuaca 898100018

cuaca 898100019

cuaca 898100020

analisis rtp mahjong ways jakarta

evaluasi pola rtp mahjong ways 2 bandung

algoritma pg soft pola simbol rtp

pola scatter hitam industri kreatif surabaya

fluktuasi server mahjong ways rtp jakarta

mekanisme rtp pola kemenangan mahjong ways2

analisis scatter hitam rtp pg soft

pola grid mahjong wins 3 grafik rtp

article 868000011

article 868000012

article 868000013

article 868000014

article 868000015

article 868000016

article 868000017

article 868000018

article 868000019

article 868000020

article 868100021

article 868100022

article 868100023

article 868100024

article 868100025

article 868100026

article 868100027

article 868100028

article 868100029

article 868100030

article 868100031

article 868100032

article 868100033

article 868100034

article 868100035

article 868100036

article 868100037

article 868100038

article 868100039

article 868100040

implementasi manajemen risiko rtp mahjong ways 2

observasi pola geometris mahjong ways rtp jakarta

strategi bertahap rtp baccarat

analitik scatter pg soft rtp bandung

perbandingan algoritma mahjong wins 3 rtp terbaru

prediksi scatter hitam rtp mahjong ways surabaya

operasional server pg soft rtp mahjong ways 2 jakarta

interaksi simbol scatter rtp mahjong wins 3

article 878000011

article 878000012

article 878000013

article 878000014

article 878000015

article 878000016

article 878000017

article 878000018

article 878000019

article 878000020

article 878800021

article 878800022

article 878800023

article 878800024

article 878800025

article 878800026

article 878800027

article 878800028

article 878800029

article 878800030

article 878800031

article 878800032

article 878800033

article 878800034

article 878800035

article 878800036

article 878800037

article 878800038

article 878800039

article 878800040

dinamika metrik rtp pg soft simbol digital

struktur pola server mahjong ways realtime

pola pengulangan grid mahjong ways 2

fluktuasi rtp scatter hitam jam server

pemantauan rtp presisi mahjong ways2

pola sebaran scatter keamanan server jakarta

article 888000031

article 888000032

article 888000033

article 888000034

article 888000035

article 888000036

article 888000037

article 888000038

article 888000039

article 888000040

article 888000041

article 888000042

article 888000043

article 888000044

article 888000045

article 888000046

article 888000047

article 888000048

article 888000049

article 888000050

article 888000051

article 888000052

article 888000053

article 888000054

article 888000055

article 888000056

article 888000057

article 888000058

article 888000059

article 888000060

kajian 638000065

kajian 638000076

kajian 638000077

kajian 638000078

kajian 638000079

kajian 638000080

kajian 638000081

kajian 638000082

kajian 638000083

kajian 638000084

kajian 638000085

transformasi data rtp online internasional

pola berkelanjutan pg soft manajemen risiko

rtp scatter hitam standar akreditasi media

pola distribusi logaritma mahjong ways

pengukuran rtp mahjong ways 2 statistik final

navigasi responsif live casino antarmuka lokal

paradigma rtp mahjong ways2 regulasi global

pola transaksional data baccarat pasar

metrik rtp mahjong wins 3 media digital

pola visual scatter keamanan server

berita 428011501

berita 428011502

berita 428011503

berita 428011504

berita 428011505

berita 428011506

berita 428011507

berita 428011508

berita 428011509

berita 428011510

berita 428011511

berita 428011512

berita 428011513

berita 428011514

berita 428011515

berita 428011516

berita 428011517

berita 428011518

berita 428011519

berita 428011520

strategi analisis rtp pola scatter hitam

optimasi pola grid mahjong ways rtp jakarta

laporan metrik rtp scatter hitam bandung

pola bermain algoritma rtp pg soft surabaya

pola perulangan grid mahjong ways2 rtp

jam hoki pola scatter rtp global medan

efisiensi pola scatter hitam rtp semarang

strategi mahjong ways 2 rtp server asia

pemetaan pola baccarat rtp internasional

monitoring simbol mahjong wins 3 rtp

pola scatter hitam volatilitas rtp yogyakarta

pola terukur mahjong ways rtp hari ini

klasifikasi pola grid pg soft rtp

article 328000601

article 328000602

article 328000603

article 328000604

article 328000605

article 328000606

article 328000607

article 328000608

article 328000609

article 328000610

article 328000611

article 328000612

article 328000613

article 328000614

article 328000615

article 328000616

article 328000617

article 328000618

article 328000619

article 328000620

article 328000621

article 328000622

article 328000623

article 328000624

article 328000625

article 328000626

article 328000627

article 328000628

article 328000629

article 328000630

post 238000621

post 238000622

post 238000623

post 238000624

post 238000625

post 238000626

post 238000627

post 238000628

post 238000629

post 238000630

standarisasi pola online audit rtp indonesia

navigasi pola menang mahjong ways2 update rtp

integrasi pola scatter deteksi rtp server

kalkulasi strategi live casino indikator rtp

pola alur mahjong ways 2 rtp dinamis bali

post 238000631

post 238000632

post 238000633

post 238000634

post 238000635

news-1701