Úr dulardjúpum menningarinnar

[cs_text]„Einkenni samtímans er, að reglubundnum skilningi fer fram, en forneskjan þokar.“1 Þannig kemst félagsfræðingurinn Max Weber að orði í þekktri ritgerð um „starf fræðimannsins“ frá árinu 1919. Sú mynd af rökvæðingarferli nútímans sem hér er brugðið upp og liggur frá goðsögnum, átrúnaði og hindurvitnum til upplýsingar og vísindahyggju er í meginatriðum kunnugleg, en vert er að staldra við setninguna sem fylgir beint á eftir hjá Weber: „Þessu fylgja þau sköp, að hið æðsta og göfugasta fær ekki þrifizt á almannaleið, heldur á það sér nú skjól hjá einstaklingum, annað hvort í bróðurhug manna á milli eða í dularreynslu, sem ekki er af þessum heimi“.2 Hér glittir í þá díalektík sem setur mark sitt á menningu nútímans: ferli rökvæðingar og afhelgunar leiðir ekki til þess að eldri hugmyndir gufi upp eða hverfi. Öllu heldur má segja að skynsemishyggja nútímans beinlínis kalli á gagnviðbrögð og þannig taki fornar trúarhugmyndir og andlegir straumar á sig nýjar myndir, finni sér annan farveg. Lýsing Webers dregur ekki aðeins fram hvernig vettvangur hins dulræna á undir högg að sækja, heldur einnig hvernig útskúfun hins andlega getur léð straumum þess gildi innan hópa og hreyfinga sem taka gagnrýna afstöðu til menningar nútímans og leitast við að varðveita rótgróin gildi sem hún ógnar. Þetta varpar ljósi á þá þverstæðu að tímabilið þegar Weber vann að kenningu sinni um afhelgun nútímans var einn helsti blómatími dulspekihreyfinga á Vesturlöndum, nægir þar að nefna hreyfingar eins og guðspeki, spíritisma og sálarrannsóknir sem voru fyrirferðarmiklar í evrópsku menningarlífi í upphafi tuttugustu aldar.

„Förumaður á útjaðri heimsins“. Trérista eftir óþekktan listamann, sem birtist fyrst í riti Camilles Flammarion, L’Atmosphère. Météorologie populaire, árið 1888. Gjarnan er vísað til myndarinnar sem lýsandi dæmis um heimsmyndafræði dulspekinnar.

Oft fer furðulega lítið fyrir þætti dulrænna strauma í umfjöllun fræðimanna um menningu nútímans og er ein meginástæðan án efa sú að „sjálf hugmyndin um dulhyggju og hið dulræna virðist ekki samrýmast hugmyndum okkar um menningu og hugarfar nútímans“.3 Það er fræðimönnum m.ö.o. nokkur ráðgáta að hugmyndir dulspekinnar skuli hafa haft slíkt aðdráttarafl fyrir menntamenn og listamenn á mótunartíma vestrænnar nútímamenningar – og það sem verra er, þetta er á einhvern hátt pínlegt fyrir sjálfsmynd okkar, sem kjósum að skilgreina okkur sem þátttakendur í menningarlegu og vísindalegu verkefni sem er í senn gagnrýnið og framsækið.4 Fyrir vikið hefur ríkt hneigð til að líta á hugmyndir dulspekinnar sem barn síns tíma, sem einskonar leifar úr menningu fortíðar er hjari áfram í nútímanum en hafi ekki mótandi áhrif á þá meginstrauma er leggi grunn að samtíma okkar. Frá slíku sjónarhorni virðist hægðarleikur að víkja þessum straumum til hliðar, á þeim forsendum að þeir séu vissulega til staðar en liggi einfaldlega utan rannsóknasviðsins hverju sinni. Þannig hafa veigamikil svið hugmynda- og menningarsögunnar legið að nokkru leyti í þagnargildi, fræðimenn sitja eftir með þægilega og kunnuglega mynd af hinni sögulegu framvindu sem ítrekað er endurtekin og staðfest. Nærvera dulspekilegra strauma í menningu nútímans er þannig ekkert launungarmál en á einhvern sérkennilegan hátt eru þeir aukaatriði, skipta ekki máli fyrir stóru myndina. Óhætt er að taka undir þá fullyrðingu Wouters J. Hanegraaff að dulspekin sé „ýkjulaust það svið sem mest hefur verið vanrækt og misskilið innan hugvísindanna, í það minnsta ef horft er til vestrænnar menningar“.5 Þessi staða þekkingar leiðir þó um leið til þess að „möguleikinn – eða jafnvel líkurnar – á nýjum uppgötvunum og óvæntri nýrri innsýn er hvergi jafn mikill og einmitt hér“.6 Þetta endurspeglast í greinunum sem birtast í þessu hefti Ritsins, sem eru nokkuð ýtarlegar og draga fram margvíslegar heimildir og hugmyndir sem fræðimenn hafa veitt litla athygli.

Vart þarf að koma á óvart að skoðanir fræðimanna séu skiptar þegar kemur að rannsóknum á dulspeki, enda hefur einn helsti sérfræðingur á rannsóknasviðinu lýst vettvanginum sem einskonar „ruslakörfu“ vestrænnar þekkingar,7 þar sem saman komi þær hugmyndir er flokkist undir ranghugmyndir, hindurvitni, bábiljur, kerlingabækur, ó- eða andvísindaleg lífsviðhorf og úrelta þekkingu. Myndhverfing „ruslakörfunnar“ er e.t.v. ekki jafn upphafin eða seiðandi og „dulardjúpin“ sem vísað er til í yfirskrift þessa inngangs, en hún er á margan hátt lýsandi fyrir stöðu dulspekinnar innan vestrænnar menningarsögu. Segja má að dulspekin fái að nokkru leyti breytta stöðu með upplýsingunni: á fyrri öldum var óhefðbundin þekkingarleit fordæmd sem trúvilla en frá og með átjándu öld er henni úthýst á forsendum vísindahyggju undir merkjum hjáfræði og fávisku. Við pólitískar aðstæður samtímans, þar sem æ harðar er sótt að vísindalegri þekkingu, er skiljanlegt að fræðimenn séu tortryggnir á gildi þess að beina sjónum að þætti slíkra hugmynda í vestrænni menningarsögu. Gildir þar einu hvort horft er til þeirra strauma nútímadulspeki sem áður eru nefndir eða til rótgrónari dulspekihefða, svo sem gnóstíkur, hermetíkur, alkemíu, kabbalisma, stjörnufræði, náttúruspeki eða galdralistar, en vikið er að öllum þessum hefðum með einum eða öðrum hætti í greinunum sem hér birtast. Á hitt ber að líta að dulspekin er samofin sögu okkar vestrænu nútímamenningar.

Spíritisminn var ein þeirra dulspekihreyfinga sem setti hvað sterkastan svip á vestrænt menningarlíf í upphafi tuttugustu aldar. Andafundir þar sem þátttakendur gátu orðið vitni að yfirnáttúrulegum fyrirbrigðum nutu mikilla vinsælda og gjarnan var reynt að festa slík fyrirbrigði á filmu.

Fræðimenn kunna að finna hugarfró í því að líta á hugmyndir dulspekinnar sem einskonar sögulegar dreggjar, sem í besta falli höfði til
sérvitra sagnfræðinga, eða í því að afmarka þær við tilteknar hreyfingar og einstaklinga sem sökktu sér ofan í dulræn rit eða tóku virkan þátt í slíkri starfsemi. Þáttur dulspekinnar er þó víðtækari en svo og í raun má líta á hana sem einn þeirra meginþátta sem móta menningu nútímans. Þannig hefur Christopher Partridge lagt til að í stað þess að einblína á afmarkaða hópa eða skýrt skilgreindan vettvang dulspeki, sé gagnlegra að horfa til víðara sviðs þess sem kalla má „dulmenningu“ (e. occulture) og er í raun samofið hversdagslífi nútímans á jafn sjálfsagðan hátt og önnur svið.8 Þannig ætti m.ö.o. að vera jafn sjálfsagt mál að tala um áhrif guðspeki, alkemíu eða spíritisma á skrif vestrænna listamanna og menntamanna og t.a.m. um þau áhrif sem heimspeki Nietzsches, kenningar Marx eða sálgreining Freuds kunna að hafa haft á skrif þessara sömu höfunda. Vandinn er sá að á þessu er reginmunur: tengslin við skrif Nietzsches, Marx eða Freuds eru alla jafna talin auka gildi verkanna og bera vott um framsækni þeirra, en tengslin við spíritisma, guðspeki eða aðra dulspekistrauma hafa þveröfuga virkni og virðast einna helst til þess fallin að níða af mönnum skóinn – verk hafa m.ö.o. gildi vegna þess að þar er tekist á við hugmyndir Nietzsches, Marx eða Freuds, en þau eru tvíbent eða vafasöm ef þar er
unnið með dulspekilegar hugmyndir eða hafa í besta falli gildi þrátt fyrir slík tengsl.

Við þetta bætist að í hefðbundinni háskólamenntun er lítil áhersla lögð á hugmyndaheim dulspekinnar og segja má að frá og með upplýsingu hafi hún í vissum skilningi verið „heimilislaus innan akademíunnar“.9 Sem fræðimenn höfum við því takmarkaða þekkingu á sögu og lykilverkum dulspekinnar og við erum á margan hátt illa í stakk búin að takast á við hugmyndaheim hennar. Valkostirnir felast í því að: a) skilgreina þessa strauma út af rannsóknarsviðinu; b) gangast við tilvist þeirra en víkja þeim til hliðar sem sögulegu hismi; c) ganga til verks og reyna að ná áttum í þessum framandi hugmyndaheimi. Greinarnar sem hér birtast eiga það sameiginlegt að þar er þriðja leiðin valin. Markmiðið er ekki aðeins að draga fram mikilvægi þessara strauma, heldur einnig að leita leiða til að skilja þá og setja í samhengi. Straumarnir eru vitaskuld fjölbreytilegir og „dulspeki“ er hér notað sem jafngildi hugtaksins „esóterík“ á erlendum málum, sem á síðustu árum hefur fest sig í sessi sem einskonar regnhlífarhugtak yfir þessa ólíku strauma dulrænnar og óhefðbundinnar þekkingarleitar. Greinarnar fjalla um birtingarmyndir dulspeki frá upphafi tuttugustu aldar til samtímans, þótt umfjöllunin teygi sig vitaskuld aftur til eldri hefða sem gegna lykilhlutverki í sjálfsmynd ólíkra dulspekihreyfinga nútímans. Þegar horft er til tímabils nútímans blasir við að þekking dulspekinnar er ekki aðeins arfleifð fortíðar, heldur reynist hún samofin jafnt nýrri vísindaþekkingu og straumum nútímabókmennta og -lista.

Helena P. Blavatskij og Henry S. Olcott, tveir af stofnendum Guðspekifélagsins árið 1875. Guðspekin var ein af áhrifamestu dulspekihreyfingunum sem komu fram á þessum tíma.

Tvær þemagreinanna eru helgaðar því gróskumikla tímabili í upphafi tuttugustu aldar þegar íslensk nútímamenning er í mótun, en þetta er jafnframt það tímabil þegar dulspekihugmyndir eru einna miðlægastar hér á landi. Fyrstu áratugir tuttugustu aldar voru blómatími dulspekihreyfinga hér á landi, hreyfingar og samtök á borð við Guðspekifélagið, Sálarrannsóknafélagið og Tilraunafélagið gegndu veigamiklu hlutverki í menningarumræðum og dulspekin var snar þáttur í hugmyndaheimi hinnar vaxandi borgarastéttar.10 Bergljót S. Kristjánsdóttir fjallar um lífsspeki Þórbergs Þórðarsonar, eins þeirra íslensku höfunda sem sökktu sér ofan í rit um dulræn efni á þessum árum. Grein hennar varpar ekki aðeins nýju ljósi á þennan þátt í höfundarverkinu, sem fræðimenn hafa löngum vitað af en lítið gert með, heldur sýnir hún einnig að dulspekin er að mörgu leyti lykill að því að skilja þekkingarleit, þjóðfélagsgagnrýni og fagurfræðilega afstöðu höfundarins. Benedikt Hjartarson fjallar um rit Helga Pjeturss, Nýal, sem kom út í þremur bindum á árunum 1919 til 1922. Greinin tekur á margbrotnu sambandi raunvísindalegra kenninga, dulrænna trúarhugmynda og nýstárlegra tjáningaraðferða í sérstæðri „lífgeislafræði“ Helga. Greinarnar um verk Þórbergs og Helga taka þannig hvor með sínum hætti á framlagi dulspekinnar til íslenskrar menningarumræðu á tímabilinu, en vitaskuld birtist þetta framlag einnig í verkum fjölmargra annarra höfunda og listamanna. Hér leitar hugurinn m.a. að verkum Einars Jónssonar myndlistarmanns og tengslum þeirra við guðspeki og aðra dulspekistrauma. Verkið Morgunn, sem Einar vann á árunum 1931–1932 og prýðir forsíðu þessa heftis, er lýsandi dæmi um þátt dulspekilegra íhugana í verkum listamannsins, ekki aðeins í betur þekktum höggmyndum hans heldur einnig í málverkunum frá síðari tíma ferilsins. Myndheimurinn sver sig í ætt við norður-evrópskan symbólisma en í verkinu má einnig greina markvissa glímu við táknheim dulspekinnar, sem birtist m.a. í vísunum í goðsögulega heima, í gagnvirku sambandi manns og alheims og í ímyndum frjósemi, andlegrar vakningar og endurfæðingar. Táknheimurinn er torræður en lesendur munu finna einhverja lykla að túlkun á verkinu í greinum þessa heftis Ritsins.

Hinar þemagreinarnar tvær færa okkur nær samtímanum og því tímabili sem í samhengi dulspekinnar er gjarnan kennt við nýaldarhreyfingar. Sólveig Guðmundsdóttir fjallar um hreyfingu aksjónismans í Vín og það mikilvæga hlutverk sem dulrænar trúarhefðir gegndu í hinu þjóðfélagslega uppgjöri í Austurríki á eftirstríðsárunum. Tengingin kann að koma nokkuð á óvart í ljósi þess að jafnan er litið á aksjónismann sem lýsandi dæmi um framsækna, veraldlega og ögrandi listsköpun er skori ríkjandi hefðir og siðvenjur á hólm. Grein Sólveigar sýnir með hvaða hætti dulrænar trúarhugmyndir döfnuðu innan þess vettvangs gagnmenningar sem aksjónisminn spratt af og þjónuðu aðferðum helgimyndabrots og ögrunar við ríkjandi siðferðisleg og fagurfræðileg gildi. Loks fjallar Gísli Magnússon um skáldsögu danska metsöluhöfundarins Peters Høeg, Den stille pige, sem kom út 2006. Greining Gísla á hörðum viðbrögðum gagnrýnenda við verkinu sýnir að afstaðan í garð andlegra strauma og dulrænna trúarhefða markast af djúpstæðu óþoli í samtíma okkar. Greinin leggur til annars konar lestur á verkinu, þar sem leitast er við að skilja verkið út frá markvissri könnun á þeim andlegu hefðum sem þar er unnið með, en gagnrýnendur hafa lítið haft fyrir að setja sig inn í.

Þýddu greinarnar eru tvær. Í öðru tilvikinu er um að ræða frumútgáfu á grein eftir Tessel M. Bauduin, sem hefur á síðustu árum látið að sér kveða innan vettvangs nýrri rannsókna á dulspeki. Það er mikill fengur fyrir Ritið að fá til birtingar þessa frumsömdu grein, sem færir okkur aftur til umrótatímabilsins við upphaf tuttugustu aldar. Viðfangsefnið eru verk sænsku listakonunnar Hilmu af Klint, sem ollu nokkru fjaðrafoki þegar þau voru fyrst sýnd opinberlega árið 1986, á stórri yfirlitssýningu um andlega strauma í nútímalist í Los Angeles og Den Haag. Síðan hafa andleg verk af Klint skapað henni nokkurn sess sem einn af frumkvöðlum abstraktlistar, en það hefur þó valdið listfræðingum nokkrum heilabrotum að listakonan málaði verkin að eigin sögn í miðilsleiðslu. Bauduin víkur ekki aðeins að margbrotnu sambandi miðilsstarfsemi og óhlutbundinnar listsköpunar, heldur varpar hún jafnframt nýju ljósi á miðilshlutverkið og tengsl þess við sjálfsmynd og kyngervi listakonunnar. Hin greinin er eftir Andreas B. Kilcher og hefur að geyma safn af þekkingarfræðilegum rannsóknartilgátum um dulspeki. Greinin er í senn ögrandi tilraun til að ná utan um þetta víðfeðma efni og beitt framsetning á þeim lykilspurningum sem við er að etja þegar fræðimenn reyna að ná tökum á fyrirbrigði dulspekinnar og hlutverki þess í menningu nútímans. Kilcher dregur saman margar þær meginhugmyndir sem glímt er við í hinum greinunum og snúa að því hlutverki sem dulspekin gegnir sem vettvangur átaka, sáttaumleitana og sviptinga, þar sem tekist er á um afstöðuna til átrúnaðar, vísinda,
fagurfræði og þekkingar.

Loks birtist aftast í þessu hefti svargrein eftir Ásgeir Berg Matthíasson, þar sem höfundur bregst við þremur greinum Guðna Elíssonar um starfsemi Vantrúar.

  1. Max Weber, „Starf fræðimannsins“, Mennt og máttur, þýð. Helgi Skúli Kjartansson, Reykjavík: Hið íslenzka bókmenntafélag, 1996, bls. 69–115, hér bls. 113.
  2. Sama rit, bls. 113.
  3. Alex Owen, The Place of Enchantment. British Occultism and the Culture of the Modern, Chicago og London: University of Chicago Press, 2004, bls. 6.
  4. Hér er horft til þekktrar greinar Jürgens Habermas um verkefni nútímans: „Die Moderne – ein unvollendetes Projekt“, Die Moderne – ein unvollendetes Projekt. Philosophisch-politische Aufsätze, Leipzig: Reclam, 1990, bls. 32–54.
  5. Wouter J. Hanegraaff, Western Esotericism. A Guide for the Perplexed, London: Bloomsbury, 2013, bls. vii.
  6. Sama rit, bls. vii.
  7. Sama rit, bls. 127.
  8. Christopher Partridge, „Occulture Is Ordinary“, Contemporary Esotericism, ritstj. Egil Asprem og Kennet Granholm, London og New York: Routledge, 2014, bls. 113–133.
  9. Wouter J. Hanegraaff, Western Esotericism, bls. 2.
  10. Hér má benda á greinargóða umfjöllun Péturs Péturssonar í greininni „Trúarlegar hreyfingar í Reykjavík tvo fyrstu áratugi 20. aldar. Þriðji hluti: Spíritisminn og dultrúarhreyfingar“, Saga 1/1984, bls. 93–172.
[/cs_text]
Um höfundinn

Benedikt Hjartarson

Benedikt Hjartarson er prófessor í almennri bókmenntafræði og menningarfræði við Íslensku- og menningardeild.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

slot mahjong

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

article 328000601

article 328000602

article 328000603

article 328000604

article 328000605

article 328000606

article 328000607

article 328000608

article 328000609

article 328000610

article 328000611

article 328000612

article 328000613

article 328000614

article 328000615

article 328000616

article 328000617

article 328000618

article 328000619

article 328000620

article 328000621

article 328000622

article 328000623

article 328000624

article 328000625

article 328000626

article 328000627

article 328000628

article 328000629

article 328000630

article 328000631

article 328000632

article 328000633

article 328000634

article 328000635

article 328000636

article 328000637

article 328000638

article 328000639

article 328000640

article 328000641

article 328000642

article 328000643

article 328000644

article 328000645

article 328000646

article 328000647

article 328000648

article 328000649

article 328000650

article 888000031

article 888000032

article 888000033

article 888000034

article 888000035

article 888000036

article 888000037

article 888000038

article 888000039

article 888000040

article 888000041

article 888000042

article 888000043

article 888000044

article 888000045

article 888000046

article 888000047

article 888000048

article 888000049

article 888000050

article 888000056

article 888000057

article 888000058

article 888000059

article 888000060

article 888000061

article 888000062

article 888000063

article 888000064

article 888000065

article 888000066

article 888000067

article 888000068

article 888000069

article 888000070

article 878000011

article 878000012

article 878000013

article 878000014

article 878000015

article 878000016

article 878000017

article 878000018

article 878000019

article 878000020

article 878800021

article 878800022

article 878800023

article 878800024

article 878800025

article 878800026

article 878800027

article 878800028

article 878800029

article 878800030

article 878800031

article 878800032

article 878800033

article 878800034

article 878800035

article 878800036

article 878800037

article 878800038

article 878800039

article 878800040

article 868000011

article 868000012

article 868000013

article 868000014

article 868000015

article 868000016

article 868000017

article 868000018

article 868000019

article 868000020

article 868100021

article 868100022

article 868100023

article 868100024

article 868100025

article 868100026

article 868100027

article 868100028

article 868100029

article 868100030

article 868100031

article 868100032

article 868100033

article 868100034

article 868100035

article 868100041

article 868100042

article 868100043

article 868100044

article 868100045

article 868100046

article 868100047

article 868100048

article 868100049

article 868100050

article 868100051

article 868100052

article 868100053

article 868100054

article 868100055

article 868100056

article 868100057

article 868100058

article 868100059

article 868100060

cuaca 898100001

cuaca 898100002

cuaca 898100003

cuaca 898100004

cuaca 898100005

cuaca 898100006

cuaca 898100007

cuaca 898100008

cuaca 898100009

cuaca 898100010

cuaca 898100011

cuaca 898100012

cuaca 898100013

cuaca 898100014

cuaca 898100015

cuaca 898100016

cuaca 898100017

cuaca 898100018

cuaca 898100019

cuaca 898100020

cuaca 898100021

cuaca 898100022

cuaca 898100023

cuaca 898100024

cuaca 898100025

cuaca 898100026

cuaca 898100027

cuaca 898100028

cuaca 898100029

cuaca 898100030

cuaca 898100031

cuaca 898100032

cuaca 898100033

cuaca 898100034

cuaca 898100035

cuaca 898100036

cuaca 898100037

cuaca 898100038

cuaca 898100039

cuaca 898100040

cuaca 898100041

cuaca 898100042

cuaca 898100043

cuaca 898100044

cuaca 898100045

cuaca 898100046

cuaca 898100047

cuaca 898100048

cuaca 898100049

cuaca 898100050

cuaca 898100051

cuaca 898100052

cuaca 898100053

cuaca 898100054

cuaca 898100055

kasus 898100001

kasus 898100002

kasus 898100003

kasus 898100004

kasus 898100005

kasus 898100006

kasus 898100007

kasus 898100008

kasus 898100009

kasus 898100010

kasus 898100011

kasus 898100012

kasus 898100013

kasus 898100014

kasus 898100015

kasus 898100016

kasus 898100017

kasus 898100018

kasus 898100019

kasus 898100020

article 898100021

article 898100022

article 898100023

article 898100024

article 898100025

article 898100026

article 898100027

article 898100028

article 898100029

article 898100030

article 898100031

article 898100032

article 898100033

article 898100034

article 898100035

article 898100036

article 898100037

article 898100038

article 898100039

article 898100040

article 898100041

article 898100042

article 898100043

article 898100044

article 898100045

article 898100046

article 898100047

article 898100048

article 898100049

article 898100050

article 710000011

article 710000012

article 710000013

article 710000014

article 710000015

article 710000016

article 710000017

article 710000018

article 710000019

article 710000020

article 710000021

article 710000022

article 710000023

article 710000024

article 710000025

article 710000026

article 710000027

article 710000028

article 710000029

article 710000030

article 710000031

article 710000032

article 710000033

article 710000034

article 710000035

article 710000036

article 710000037

article 710000038

article 710000039

article 710000040

article 710000041

article 710000042

article 710000043

article 710000044

article 710000045

article 710000046

article 710000047

article 710000048

article 710000049

article 710000050

article 710000051

article 710000052

article 710000053

article 710000054

article 710000055

article 710000056

article 710000057

article 710000058

article 710000059

article 710000060

article 710000061

article 710000062

article 710000063

article 710000064

article 710000065

article 710000066

article 710000067

article 710000068

article 710000069

article 710000070

article 710000071

article 999990001

article 999990002

article 999990003

article 999990004

article 999990005

article 999990006

article 999990007

article 999990008

article 999990009

article 999990010

article 999990011

article 999990012

article 999990013

article 999990014

article 999990015

article 999990016

article 999990017

article 999990018

article 999990019

article 999990020

news-1701