Gamlir og nýir draugar

[cs_text]
Inga Mekkin Beck
Skóladraugurinn
Vaka Helgafell, 2016
Íslensku barnabókaverðlaunin hafa nú verið veitt í þrjátíu ár en þau voru sett á fót í tilefni sjötugsafmælis barnabókahöfundarins góðkunna Ármanns Kr. Einarssonar.  Að verðlaununum standa fjölskylda Ármanns, Barnavinafélagið Sumargjöf, IBBY á Íslandi og Forlagið. Listinn yfir verðlaunahafa síðustu áratuga er glæsilegur og þar má finna marga sígilda gullmola á borð við Gegnum þyrnigerðið eftir Iðunni Steinsdóttur, Benjamín dúfu eftir Friðrik Erlingsson, Emil og Skunda eftir Guðmund Ólafsson og Margt býr í myrkrinu eftir Þorgrím Þráinsson. Síðustu ár hafa verðlaunin verið veitt ungum höfundum sem eru að stíga sín fyrstu spor á ritvellinum og er það vel. Má þar nefna höfunda sem hafa getið sér gott orð eins og Bryndísi Björgvinsdóttur, Gunnar Theodór Eggertsson og Ragnheiði Eyjólfsdóttur sem hlaut verðlaunin 2015 og fylgir þeim eftir strax í ár með framhaldsbók.

Í ár komu verðlaunin í hlut Ingu Mekkin Beck en hún sver sig í ætt við verðlaunahafa síðustu ára því að Skóladraugurinn er hennar fyrsta bók. Sagan segir frá Gunnvöru sem er nýflutt frá Bandaríkjunum í lítinn bæ úti á landi þar sem hún þekkir engan. Fyrsti skóladagurinn verður henni afar örlagaríkur ekki aðeins vegna þess að hún er látin setjast hjá Petru sem verður besta vinkona hennar heldur ekki síður vegna þess að skólastjórinn segir bekknum söguna af draugnum sem dvelur í kjallara skólans og fer á kreik á um það bil fimmtíu ára fresti. Bekkurinn hefur margoft heyrt söguna og finnst lítið til koma en Gunnvör verður undir eins hugfangin og sagan hverfur ekki úr huga hennar næstu daga. Smám saman kemur í ljós hvers vegna Gunnvör er svona heilluð af möguleikanum á því að draugar séu til og sagan af draugnum fléttast saman við erfiðleika og sorg fjölskyldu Gunnvarar.

Eftirtektarverðast við söguna er hvernig höfundur nýtir drauga og draugatrú til þess að opna glugga inn í annað og erfiðara umfjöllunarefni: sorg og dauða.
Framan af er sagan nokkuð spennandi þó að ef til vill hefði mátt undirbyggja persónu Gunnvarar aðeins betur því að það tekur lesanda nokkra stund að átta sig á sögu hennar. Þó að framvindan krefjist þess að hluti þeirrar sögu komi í ljós hægt og bítandi mætti kynning á Gunnvöru að ósekju vera skýrari. Sagan flæðir þó ágætlega þannig að erfitt er að leggja hana frá sér og er í heildina vel skrifuð. Draugasagan sjálf er afar áhugaverð þar sem þjóðsagnaarfur kemur við sögu og hjátrú Íslendinga er nýtt en um leið birtast í sögunni nýrri einkenni út bíómyndum um drauga sem ættaðir eru úr Hollywood. Draugarnir tveir sem Gunnvör kynnist eru harla ólíkir, annar gamall og illur viðureignar enn hinn ungur og saklaus. Höfundur vísar til dæmis til bíómyndarinnar um drauginn Casper og yngri draugurinn, Patti, við kallast að sumu leyti á við hann.

Eftirtektarverðast við söguna er hvernig höfundur nýtir drauga og draugatrú til þess að opna glugga inn í annað og erfiðara umfjöllunarefni: sorg og dauða. Í ljós koma meðal annars hverjar afleiðingar þöggunar um voveifleg slys getur verið. Lausn draugasögunnar felur í sér tækifæri fyrir sögupersónurnar að ræða þessi málefni og foreldrar Gunnvarar, sem lesandi kynnist þó ekki mjög náið, ná að gera upp erfiða tíma í samvinnu við Gunnvöru. Kjarnakonan Hansína leikur þar lykilhlutverk og minnir á hjálpsömu álfkonuna sem leiðir aðalpersónuna í rétta átt en hún er þó ekki sveipuð neinum ævintýraljóma heldur minnir á rammíslenskar kerlur sem víla ekkert fyrir sér og hræðast fátt. Það er þó nokkuð óljóst í lokin hvernig hún tekst á við gamla drauginn og í raun verður hans hlutverk alltaf fremur óskýrt og lesandi er litlu nær um hans örlög.

Höfundi tekst ágætlega að skapa spennu af og til, kalt vatn rennur milli skinns og hörunds þegar Gunnvör fer að leita að draugnum í kjallaranum og nokkrum sinnum eykst hraðinn þannig að blaðsíðurnar þjóta áfram. Inn á milli hægist á en yfirleitt eru þeir kaflar ekki langir þannig að sagan fellur ekki. Það er ef til vill helst í lokin sem sagan verður örlítið langdregin þar sem hnýta þarf alla lausa enda og útskýra ýmislegt sem er gefið í skyn í sögunni. Sumt af því hefði mögulega mátt leysa fyrr í sögunni eins og til dæmis hefði verið hægt að skýra betur ömmu Petru sem þykir skrítin og jafnvel geggjuð eins og nokkrum sinnum kemur fram án þess að lesandi fái nokkra tilfinningu fyrir henni. Í heildina er bókin þó gott byrjendaverk og vonandi hvatning til Ingu um að skrifa meira. Sagan er fengur fyrir ungt fólk sem vill gleyma sér um stund, týnast inn í spennandi sögu í kunnuglegu umhverfi – hver veit hvað leynist í gömlum geymslum skólans?[/cs_text]

Um höfundinn
Þórdís Edda Jóhannesdóttir

Þórdís Edda Jóhannesdóttir

Þórdís Edda Jóhannesdóttir er doktor í íslenskum bókmenntum og stundakennari við Íslensku‐ og menningardeild Háskóla Íslands. Rannsóknarsvið hennar er íslenskar miðaldabókmenntir. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

138000511

138000512

138000513

138000514

138000515

138000516

138000517

138000518

138000519

138000520

138000521

138000522

138000523

138000524

138000525

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

158000406

158000407

158000408

158000409

158000410

158000411

158000412

158000413

158000414

158000415

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

208000436

208000437

208000438

208000439

208000440

208000441

208000442

208000443

208000444

208000445

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000246

228000247

228000248

228000249

228000250

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

228000256

228000257

228000258

228000259

228000260

228000261

228000262

228000263

228000264

228000265

228000266

228000267

228000268

228000269

228000270

228000271

228000272

228000273

228000274

228000275

228000276

228000277

228000278

228000279

228000280

228000281

228000282

228000283

228000284

228000285

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

238000257

238000258

238000259

238000260

news-1701