Hlýlegar hversdagsmyndir

[cs_text]
Eyþór Árnason
Ég sef ekki í draumheldum náttfötum
Veröld, 2016
Eyþór Árnason hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar með sinni fyrstu ljóðabók Hundgá úr annarri sveit árið 2009 og hefur verið drjúgvirkur síðan því að nú er komin út hans fjórða ljóðabók. Titill bókarinnnar er eins og örljóð: Ég sef ekki í draumheldum náttfötum.

Eyþór er sniðugur höfundur, ljóðin eru falleg og mörg hver býsna skemmtileg. Gráglettni er yfir bókinni í heild, víða er hægt að glotta út í annað og jafnvel skella upp úr. Það er eitthvað rammíslenskt við mörg ljóðin á fremur hversdagslegan hátt þar sem fortíð og nútíð fléttast jafnan saman. Rauður þráður í bókinni eru styttur bæjarins sem lifna við og öðlast nýja merkingu hvort sem það er Útlaginn við Hringbraut, óþekkti embættismaðurinn, Tómas Guðmundsson eða Maríustyttan við Landakot. Sérstaklega verður að nefna ljóð um nýlega styttu af Ingibjörgu H. Bjarnason við Alþingishúsið sem gefur styttunni merkingarauka:

Skyndilega er Ingibjörg mætt

Tekur vindinn í fangið
og kápan bylgjast
eins og hún sé að hefja sig til flugs

Það er falleg birta í svipnum
von um réttlæti
eða kannski jafnræði

Hún horfir ákveðið á móti Jóni
sem er einhvern veginn
ekki eins viss og hann var

heldur dauðahaldi
í stífpressaða boðungana
augnaráðið örlítið víkjandi
en hún hvikar ekki (51)

Ýmsar snjallar vísanir í menningarsöguna skjóta upp kolli hér og hvar sem gerir það að verkum að heimur bókarinnar stækkar og myndirnar skerpast. Höfundur stefnir saman nýjum og gömlum tíma svo úr verða broslegar aðstæður eins og Snorri Sturluson sem bíður eftir ritdómi eftir Gissur í Mogganum (24) eða þegar Skúli fógeti birtist með upprúllaðar teikningar af innréttingum úr IKEA (22). Í ljóðinu Í Herdísarvík birtist annar merkur maður og sá hefur eignast ipad:

Traustir höfuðstafir heilsa
þegar ég geng yfir
mosavaxna stuðlana
heim að skúrnum

Inni er dauf glóð
í arninum

Skáldið situr í gamla stólnum
Hann er nýbúinn að læra á iPadinn
sem Hlín kom með úr bænum
í fyrradag (44).

Mörg ljóðin kallast að einhverju leyti á við útlit bókarinnar því að þau eru látlaus og einföld.
Fyrir um ári síðan sendi höfundur frá sér bókina Norður þar sem lesandi leggur upp í ferðalag frá Reykjavík til Skagafjarðar. Höfundur lýsti því sjálfur í viðtölum að hann sæi bókina fyrir sér sem rútuferð. Hugurinn hvarflar ósjálfrátt að þeirri bók þó að nýja bókin lýsi ekki ferðalagi. Mörg ljóðanna gerast raunar í Reykjavík en finna má hlýlega lýsingu af útvöldum stöðum og mönnum úti á landi víða og Norðurlandið á þar greinilega sérstakan sess. Ljóðið BSÍ – Norðurleið kemur vekur ef til vill sérstaklega hugrenningartengsl við bókina frá í fyrra þar sem birtist rúta til fortíðar, sjálf rauða og hvíta norðurleiðarrútan.

Bók Eyþórs lætur lítið yfir sér, er rétt um 70 blaðsíður. Kápan er einföld í bláum og gráum litum, og nafn höfundar og titill eru í fremur hógværri stærð framan á kápu. Hún geymir þó alls 56 ljóð sem ef til vill hefði mátt fækka aðeins þannig að bókin yrði þéttari því að mörg ljóðin eru gullmolar sem kannski eiga það á hættu að týnast í fjöldanum. Mörg ljóðin kallast að einhverju leyti á við útlit bókarinnar því að þau eru látlaus og einföld. Flest eru ljóðin létt og kankvís en inn á milli leynast alvarlegri og lágstemmdari ljóð. Þetta tvennt fléttast síðan stundum saman eins og í vel heppnuðu minningarljóði um Hermann Gunnarsson, Fyrir Hermann – Einn dans við mig:

Kveikti á lampanum

Bræddi svellið á kuldapollinum
og lýsti upp óbærilegt myrkrið

Þurfti enga upphitun
kom alltaf funheitur inn á völlinn

Lék sjálfan sig og söng
ótalmarga sólardansa
fyrir okkur öll (55)

Tónn höfundar einkennist af hlýju og væntumþykju fyrir umhverfinu og hversdeginum
Tónn höfundar einkennist af hlýju og væntumþykju fyrir umhverfinu og hversdeginum; ekkert er of smávægilegt til þess að ekki megi yrkja um það. Athyglin beinist oft og tíðum að því sem við tökum sem sjálfsögðu. Að lestri loknum situr lesandinn eftir með þá tilfinningu í brjósti að heimurinn sé kannski ekki svo slæmur þegar allt kemur til alls.[/cs_text]
Um höfundinn
Þórdís Edda Jóhannesdóttir

Þórdís Edda Jóhannesdóttir

Þórdís Edda Jóhannesdóttir er doktor í íslenskum bókmenntum og stundakennari við Íslensku‐ og menningardeild Háskóla Íslands. Rannsóknarsvið hennar er íslenskar miðaldabókmenntir. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000491

118000492

118000493

118000494

118000495

118000496

118000497

118000498

118000499

118000500

118000501

118000502

118000503

118000504

118000505

118000506

118000507

118000508

118000509

118000510

118000511

118000512

118000513

118000514

118000515

118000516

118000517

118000518

118000519

118000520

118000521

118000522

118000523

118000524

118000525

128000546

128000547

128000548

128000549

128000550

128000551

128000552

128000553

128000554

128000555

128000556

128000557

128000558

128000559

128000560

128000561

128000562

128000563

128000564

128000565

128000566

128000567

128000568

128000569

128000570

128000571

128000572

128000573

128000574

128000575

128000576

128000577

128000578

128000579

128000580

128000581

128000582

128000583

128000584

128000585

128000586

128000587

128000588

128000589

128000590

158000326

158000327

158000328

158000329

158000330

158000331

158000332

158000333

158000334

158000335

158000336

158000337

158000338

158000339

158000340

158000341

158000342

158000343

158000344

158000345

178000746

178000747

178000748

178000749

178000750

178000751

178000752

178000753

178000754

178000755

178000756

178000757

178000758

178000759

178000760

178000761

178000762

178000763

178000764

178000765

178000766

178000767

178000768

178000769

178000770

178000771

178000772

178000773

178000774

178000775

208000206

208000207

208000208

208000209

208000210

208000211

208000212

208000213

208000215

208000216

208000218

208000219

208000220

208000221

208000222

208000223

208000224

208000225

208000226

208000227

208000228

208000229

208000230

208000231

208000232

208000233

208000234

208000235

208000236

208000237

208000238

208000239

208000240

208000241

208000242

208000243

208000244

208000245

208000246

208000247

208000248

208000249

208000250

208000251

208000252

208000253

208000254

208000255

208000256

208000257

208000258

208000259

208000260

208000261

208000262

208000263

208000264

208000265

news-1701