Stríðið sem breytti öllu

[cs_text]
Gunnar Þór Bjarnason
Þegar siðmenningin fór fjandans til. Íslendingar og stríðið mikla 1914-1918
Mál og menning, 2015
Nýlega rakst ég á bréf sem langafi minn hafði skrifað elsta syni sínum – afa mínum – sem þá var farinn að starfa í Reykjavík. Bréfið er skrifað á Ísafirði þar sem hann var búsettur og dagsett 24. nóvember 1920. Þar segir:

Gjörðu mér þann greiða að komast eptir hvort hægt er að fá strausikur í Rvík og hvaða verð er á honum.
Sje hann fáanlegur bið jeg þig síma til mín og láta vita um verð án þess að nefna vöruna t.d. Fást á kr. pr. kg.
Biðji jeg þig að útvega getur þú ef nauðsin krefur fengið peninga símsenda til að greiða um leið og varan fer, en helst vil jeg ekki borga fyrr en hún kemur.
Fræddu mig einnig um hvort Landsverslun ætlar að útvega sikur svo nóg sé til í skammtinn.
Ifir höfuð að tala kæmi mjer vel ef þú hjeldir til mín þeim verzlunarfrjettum sem þjer sínast mættu að gagni koma, einkum þeim sem ekki eru hafðar í hámæli.
Símtöl er ekki hægt firir mig að hafa um nokkuð það er miklu máli skiptir. Verður því brjefum mest að hlíta.

Oftast þegar fólk rekst á svona bréf hefur það ekki hugmynd um hvað er í gangi. Hvers vegna þessi sykurþörf? Hvers vegna þetta pukur? Var maðurinn að brugga? Þegar maður les bréf frá öfum sínum eða ömmum, langöfum og langömmum hefur maður alltaf vissa tilhneigingu til að hugsa um persónulega hlið þess sem skrifað er. Hvers konar manneskja var hann eða hún? Einkabréfið er jú einkasamtal. Hvað segir það okkur um tengsl fólks, samskipti og tilfinningar? Það fer oft framhjá hinum venjulega lesanda að bréf eru kannski fyrst og fremst frábærar heimildir um hverdagslegan veruleika samtíma síns. Þau sýna félagsleg tengsl og efnahagslega stöðu á allt annan hátt en aðrar heimildir –hjálpa manni að móta sýn á aðstæður fólks og viðbrögð við þeim, hvernig það tekst á við þær. Hvernig það komst af og kom sér fyrir í samfélagi á borð við samfélag Landsverslunar og sykurskömmtunar þar sem allir voru að takast á við afleiðingar hrikalegra hamfara – styrjaldar. Það var verðbólga, atvinnu- og húsnæðisleysi og að mörgu leyti hörmulegt ástand.

Fyrri heimstyrjöldin. Hún er í vissum skilningi enn í gangi þegar langafi minn skrifar afa mínum fyrirmæli um að útvega sér sykur. Afleiðingar hennar eru enn að koma fram. Styrjöldin hefur breytt öllum aðstæðum. Ísland er allt í einu fullvalda ríki sem verður að bjarga sér. Stundum er eins og stórir atburðir og þróun í heimssögunni sem á meðan á þeim stóð skipta sköpum um líf fólks og örlög gleymist eða hverfi í skuggann af einhverju öðru furðu fljótt. Þannig hefur það einhvernveginn verið með Heimstyrjöldina fyrri. Eins mikil umskipti og þessi styrjöld hafði í för með, þá var næstum eins og þau yrðu léttvæg vegna styrjaldarinnar sem hófst rétt tæplega 21 ári eftir að þeirri fyrri lauk. 21 ár er ekki langur tími. Og seinni heimstyrjöldin var að svo miklu leyti ólík þeirri sem á undan fór. Endalok hennar miklu meira afgerandi, sigurinn yfir óvininum miklu afdráttarlausari heldur en verið hafði 1918.

Á síðustu árum hefur fyrri heimstyrjöldin hinsvegar smátt og smátt þokast út úr skugga seinni heimstyrjaldarinnar. Nokkrar bækur um hana hafa verið víðlesnar og hafa bæði náð að endurvekja áhuga á henni og náð að setja hana í nýtt samhengi og skýra hana á nýjan leik. Einhvern veginn hef ég á tilfinningunni að bók Nialls Ferguson, The Pity of War hafi markað dálítil tímamót, en bækur Margretar MacMillan hafa líka verið víðlesnar. Peacemakers: Six Months that Changed the World breytti held ég líka skilningi margra á samningunum eftir styrjöldina – enda ótrúlega skemmtileg bók, ekki síst fyrir lýsingarnar á leiðtogunum, Wilson, Lloyd George og Clemençeau. Og það hefur sitt að segja að fyrir tveimur árum var liðin öld frá því að styrjöldin braust út – það varð ærið tilefni til nýrra rannsókna og skrifa. Eitt hundrað ára afmæli styrjaldarinnar stendur náttúrlega yfir jafnlengi og stríðið sjálft, þannig að það er við því að búast að enn eigi umræðan um fyrri heimstyrjöldina og áhrif hennar eftir að færast í aukana.

Enn sem komið er hefur hins vegar ekki mikið verið skrifað á íslensku um fyrri heimstyrjöldina – eða um Ísland í fyrri heimstyrjöldinni. Þegar blaðað er í gegnum ellefu síðna heimildaskrá bókar Gunnars Þórs Bjarnasonar um Íslendinga og stríðið er varla eitt einasta íslenskt rit sem hefur styrjöldina sérstaklega að viðfangsefni – nema þá rit og greinar sem komu út á meðan á henni stóð eða stuttu eftir lok hennar. Bókin er að því leyti brautryðjendaverk.

Hún er þó ekki á nokkurn hátt hefðbundin sem slík. Gunnar reynir ekki að „skrifa söguna“ í þeim skilningi að hann reki hana frá upphafi til enda eða reyni að sýna fram á tiltekið orsakasamhengi. Bókin er nær því að vera röð svipmynda sem stundum koma lesandanum skemmtilega á óvart, fræða eða takast á við ýmsar viðteknar hugmyndir um tímabilið. Leiðarstefið birtist þó strax í titli bókarinnar: Stríðið mikla – heimstyrjöldin fyrri – var endalok siðmenningar. Ekkert gat nokkurntímann orðið eins og það var eftir að hildarleiknum lauk og heimurinn hefði örugglega orðið einhvernveginn allt öðruvísi ef þetta stríð hefði ekki verið háð. Það gildir ekki bara um umheiminn heldur Ísland líka.

Gunnar gefur sér gott pláss framan af bókinni til að draga upp mynd af sögusviðinu, síðustu vikunum áður en stríðið braust út, og leggur áherslu á mannlífslýsingar í allri frásögn af atburðum. Hann fléttar skrif íslenskra blaða gjarnan saman við lýsingar á aðdraganda og atburðum stríðsins og tekst þannig frá upphafi að láta íslenska vinkilinn njóta sín í frásögninni, hvort sem hann er beinlínis að tala um íslenskar aðstæður eða ekki.

Það einkennir hins vegar bókina að hún er að miklu leyti byggð á prentuðum heimildum tímabilsins, síður á vinnu með frumheimildir. Frumheimildir koma helst við sögu þegar athyglinni er beint að einstökum Íslendingum sem tengdust stríðinu meira en aðrir – ekki síst íslenskum hermönnum, en vel á annað þúsund hermanna af íslenskum ættum börðust í stríðinu, langflestir í her Kanada (bls. 228). Gunnar segir sögu nokkurra íslenskra hermanna, en þó sérstaklega eins, Gunnars Richardssonar, en bréf hans eru einu frumheimildirnar sem Gunnar nýtir sér í bókinni. Annað efni frá hermönnum er fengið úr blöðum og öðrum prentuðum heimildum, sem að vísu eru í sumum tilfellum beint uppúr bréfum.

Þegar siðmenningin fór fjandans til er sett saman úr nítján köflum. Fyrstu sjö köflunum er varið til að lýsa aðdraganda stríðsins, ástæðum og afleiðingum þess á daglegt líf fólks, en í næstu fimm köflum er Ísland og Íslendingar í forgrunni. Í þrettánda kafla er snúið aftur til vígstöðvanna, en í fjórtánda og fimmtánda kafla beinist athyglin íslenskum þátttakendum í ófriðnum, beinum og óbeinum, og svo að ástandi á Íslandi vegna atburðanna og þeirri nýju veröld sem blasti við í stríðslok og hvernig Íslendingar þurftu að fóta sig í nýjum heimi í lokaköflum bókarinnar.

Það sem bók Gunnars sýnir með svo skemmtilegum hætti er hve litlu það skiptir þegar upp er staðið að vera „fjarri heimsins vígaslóð“. Ísland er ekki einangrað frá umheiminum – áhrifin af því sem gerist í nágrannalöndum og á meginlandinu hafa skjót og skýr áhrif. Þetta var jafnsatt fyrir eitthundrað árum og það var í dag. Það var ástandið í heiminum sem stýrði því sem efst var á baugi í þjóðmálaumræðunni á Íslandi síðustu ár stríðsins – en það var ekki stríðið sem var umræðuefnið heldur dýrtíð og skortur (bls. 295). Íslendingar þurftu að slíta tengslin við „veröld sem var“ og móta lífsafkomu sína í nýjum veruleika rétt eins og þjóðirnar sem höfðu átt beina aðild að stríðinu.

Bók Gunnars Þórs er afbragðsgott yfirlit yfir sögusvið stríðsins, í senn fræðandi og vekjandi. Við lesturinn saknar maður þess kannski helst að sjá vinnu með frumheimildir, til dæmis bréf einstaklinga eða aðrar persónulegar heimildir. Styrkleiki hennar er að draga upp mynd af sögusviði og sýna hvernig einstaklingar fóru vel eða illa útúr atburðum. Oft vill maður vita aðeins meira (og jafnvel miklu meira) um karakterana heldur en Gunnar leyfir manni að vita. En kannski verður þessi bók einmitt til þess að auka áhuga á styrjaldarsamhengi slíkra heimilda. Það er að minnsta kosti greinilegt að fyrir einsögufræðingana er nóg efni til að vinna úr sem tengist fyrri heimstyrjöldinni. Ég hugsa að ég hefði lesið bréf langafa míns allt öðruvísi ef ég hefði ekki verið að lesa bók Gunnars á sama tíma og ég sá það, þótt reyndar hefði aldrei komið til greina að maðurinn væri að brugga af augljósum ástæðum sem þó verða ekki tíundaðar hér.
[/cs_text]

Um höfundinn
Jón Ólafsson

Jón Ólafsson

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

158000361

158000362

158000363

158000364

158000365

158000366

158000367

158000368

158000369

158000370

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

208000381

208000382

208000383

208000384

208000385

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000136

228000137

228000138

228000139

228000140

228000141

228000142

228000143

228000144

228000145

228000146

228000147

228000148

228000149

228000150

228000151

228000152

228000153

228000154

228000155

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701