Njála var það heillin!

[cs_text text_align=”none”]
Eftirvæntingin hefur verið að byggjast upp allar götur frá því að það spurðist út að Þorleifur Arnarson ætlaði sér að setja Brennu-Njáls sögu á svið. Ég var með sjálfa mig í hugrænni atferlismeðferð lengi fyrir sýninguna því ég óttaðist að það yrði engin Njála í þessari sýningu eða að minnsta kosti engin sérstök virðing fyrir henni. Hvort tveggja reyndist rangt.

Aðferð

Það er ekki létt verk að búa til leikrit/leiksýningu úr Njálu. Brennu-Njáls saga skiptist í tvo hluta, fyrir og eftir kristnitöku, í henni fer að minnsta kosti sex meginsögum fram og fjölmörgum smærri, sagan er fjölmennust Íslendingasagna og mikilvægi hennar í menningararfinum verður ekki með orðum lýst. Þorleifur, Mikael Torfason og hópurinn fer þá leið að skipta sögunni upp eftir persónum, sögu Hrúts og Unnar, Hallgerðar, Gunnars, Njáls og Kára með kristnitökuna í miðjunni. Sömu aðferð beittu Ingólfur Örn Björgvinsson og Embla Ýr Bárudóttir í snilldargóðum myndasögubókum sínum fjórum um Njálu 2003-2007. Þessi aðferð gengur prýðilega upp í sýningunni.

Nú víkur sögunni vestur til Breiðafjarðardala

Sýningin fer rólega af stað, Sigrún Edda, sögumaður situr á háum stól í miðjum leikhópnum, svolítið eins og völva, hún byrjar að lesa fyrstu blaðsíðuna í Njáls sögu: „Mörður hét maður er kallaður var gígja …“ og þessi áhorfandi hugsaði: Fínt! bara 362 síður eftir … en þá steig Hrútur fram og svo Höskuldur og sýningin brast á. Fyrstu atriðin voru afar fyndin en smám saman þyngdist tónninn í sýningunni eftir því sem flækjurnar urðu örlagaþrungnari.

Hugras_leikdomur_Njala
Leikhópurinn er ekki stór, tíu manns að dönsurum frátöldum. Hallgerður er leikin af Unni Ösp Stefánsdóttur sem hefur þann glæsibrag og þá reisn sem þessi dramatíska persóna þarf að hafa og Valur Freyr Einarsson tók það að sér eftir umræður á sviðinu að leika Gunnar á Hlíðarenda, enda allra manna gjörvulegastur. Hann kemur sér í svo vond mál að hann þarf að leita ráða hjá hinum lögfróða Njáli vini sínum eins og kunnugt er. Innkoma Njáls á Bergþórshvoli í gervi Jabba the Hut úr Star Wars var eftirminnileg. Jabba er gáfuð geimvera, gjörspillt, samviskulaus og með ítök alls staðar. Þannig birtist Njáll í upphafi, leikinn af mikilli list og innsæi af Brynhildi Guðjónsdóttur en eftir því sem ráð hans gefast verr og ógæfa vina hans og skjólstæðinga vex, skreppur þessi hvelja saman og verður æ minni og sorgmæddari. Bergþóru lék Sigrún Edda Björnsdóttir en hennar hlutur var heldur lítill í sýningunni þó að segi í sögunni að hún hafi verið drengur góður. Enginn hefur kallað Skarphéðin Njálsson dreng góðan og Hjörtur Jóhann Jónsson sýndi hann sem þá blóðugu drápsmaskínu sem örlögin ætla honum að verða. Hann stendur manni fyrir hugskotssjónum lengi eftir sýninguna.

Hugras_leikdomur_Njala2

Sjónarspil

Njálusýningin er mikið sjónarspil og öllu til tjaldað. Stórskipið Titanic siglir inn á sviðið til þess eins að girndarráð Gunnars og Hallgerðar fái verðuga umgjörð í stafni skipsins og leikmynd Ilmar Stefánsdóttur er sjón sögu ríkari. Enn sem fyrr er lýsing Björns Bergsteins Guðmundsson óhemju áhrifamikil, og lokasenan fyrir hlé var eins og marglaga myndverk, eins og krónótóp þar sem mörg listasögutímabil eru til staðar samtímis og það sama gilti um fjölmargar frjóar vísanir og tilvitnanir í tónlistinni. Búningar Sunnevu Ásu Weisshappel og hin sjónræna vinna sýningarinnar verðskuldar sérstaka umfjöllun hér á Hugrás. Og enn hef ég ekkert sagt um þátt Ernu Ómarsdóttur og þann hluta íslenska dansflokksins sem lagði sitt af mörkum til sýningarinnar. Hallgerðardans þeirra var eftirminnilegur. Hann fjallaði um hár konunnar, menningarlega merkingu þess, mikilfenglega, ógnandi, dýrslega en fyrst og fremst máttuga. Tónlist Árna Heiðars Karlssonar og hljóðmynd Valdimars Jóhannssonar og Baldvins Þórs Magnússonar var áhrifamikil. Þó fannst mér það slysalegt eftir hlé að Árni Heiðar kynnti sjöundu píanósónötu Prokofiev á þann hátt að margir áhorfendur héldu að þetta væri grín og hluti af því karnívali sem áður var komið. Hlátrasköllin fylgdu því sónötunni inn í hinn áhrifamikla kristnitökuballett sem á eftir fór þar sem ofbeldi trúskiptanna er sýnt eins og hamskipti, sjálfviljug hjá sumum eða mjög svo nauðug.[/cs_text]

[cs_text text_align=”none”]

Hápunktur

Seinni hluti sýningarinnar fjallaði um dráp Höskuldar, hins elskaða fóstursonar Njáls og staðgengil Gunnars í hjarta hans sem hefði aldrei verið veginn, ef Njáll hefði ekki tekið Gunnar fram yfir Skarphéðinn, ef Bergþóra hefði ekki reiðst og tekið til sinna ráða og ef sjálfsmynd Skarphéðins og bræðra hans væri ekki mótuð af samfélagi og réttarkerfi feðraveldis þar sem hin brenglaða, en sjálfum sér samkvæma. rökvísi heiðursmorða og fæðardeilna ríkir.
„Menn drepa ekki lengur í hefndarskyni, enda er hefndarskyldan ekki lengur við lýði hér á landi …“ segir Erna Ómarsdóttir í áhugaverðu viðtali í leikskrá en ég er hrædd um að hefndin sé sterkara afl og öflugri hugmyndafræði en nokkru sinni í fjöldamenningu, undirheimum og öfgahópum, alls staðar þar sem karlar gera völd sín yfir konum að hornsteini sjálfsvirðingar og réttinum til valda. Þessi hugmyndafræði leiðir til Njálsbrennu og það er harmrænt innsæi Njáls og örlög að stöðva þetta ferli með því að neita útgöngu úr Bergþórshvoli og dæma sig og alla fjölskyldu sína til dauða.
Í seinni hluta sýningarinnar fannst mér vanta þennan eða viðlíka fókus og undirbyggingin sem komin var í fyrri hlutanum var hársbreidd frá því að leysast upp en sýningin náði vopnum sínum og endaði á kynngimagnaðri lokasenu þar sem Karlakór Kópavogs lagði sitt af mörkum til tilfinningaþrungins endis.

Sturm und Drang

Það er klárlega ýmislegt flippað í þessari sýningu, sumt mætti kannski skera burt og/eða þjappa þegar sýningin þroskast – en ég veit það ekki samt. Sýningin er metnaðarfull tilraun með miðaldabókmenntir okkar sem eru endalaus uppspretta merkingar fyrir jafn hæft listafólk og hér leggur sitt að mörkum. Sýningin er endurritun á Njálu fyrir ungmenni á öllum aldri, full af leikgleði, hugmyndaauðgi, ástríðu, (fífl)dirfsku. Þetta er hörkuverk – skemmtilegt og hressandi í myrkrinu.

Ps. Engu að síður vil ég taka undir orð vinar míns: Látum árið 2016 verða ár hins skáldsögulausa leikhúss á Íslandi![/cs_text]

Um höfundinn
Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir

Dagný Kristjánsdóttir er prófessor emeríta í íslenskum nútímabókmenntum við Íslensku­- og menningardeild Háskóla Íslands. Sérsvið hennar er íslensk bókmenntasaga, kvennabókmenntir, barnabókmenntir, kynjafræði og sálgreining. Sjá nánar

[cs_text text_align=”none”][fblike][/cs_text]

Deila

news-1112

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

judi bola online

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

ayowin

mahjong ways

judi bola online

mahjong ways 2

JUDI BOLA ONLINE

10221

10222

10223

10224

10225

10226

10227

10228

10229

10230

11000

11001

11002

11003

11004

11005

11006

11007

11008

11009

12001

12002

12003

12004

12005

12006

12007

12008

12009

12010

20001

20002

20003

20004

20005

20006

20007

20008

20009

20010

10231

10232

10233

10234

10235

10236

10237

10238

10239

10240

11010

11011

11012

11013

11014

11015

11016

11017

11018

11019

12011

12012

12013

12014

12015

12016

12017

12018

12019

12020

20011

20012

20013

20014

20015

20016

20017

20018

20019

20020

10126

10127

10128

10129

10130

10206

10207

10208

10209

10210

10211

10212

10213

10214

10215

10216

10217

10218

10219

10220

11020

11021

11022

11023

11024

11025

11026

11027

11028

11029

11030

11031

11032

11033

11034

12021

12022

12023

12024

12025

12026

12027

12028

12029

12030

12031

12032

12033

12034

12035

20021

20022

20023

20024

20025

20026

20027

20028

20029

20030

20031

20032

20033

20034

20035

9041

9042

9043

9044

9045

10196

10197

10198

10199

10200

10201

10202

10203

10204

10205

11035

11036

11037

11038

11039

11040

11041

11042

11043

11044

10146

10147

10148

10149

10150

10181

10182

10183

10184

10185

10186

10187

10188

10189

10190

10191

10192

10193

10194

10195

11045

11046

11047

11048

11049

11050

11051

11052

11053

11054

11055

11056

11057

11058

11059

12036

12037

12038

12039

12040

12041

12042

12043

12044

12045

12046

12047

12048

12049

12050

20036

20037

20038

20039

20040

20041

20042

20043

20044

20045

20046

20047

20048

20049

20050

10161

10162

10163

10164

10165

10166

10167

10168

10169

10170

10171

10172

10173

10174

10175

10176

10177

10178

10179

10180

11060

11061

11062

11063

11064

11065

11066

11067

11068

11069

11070

11071

11072

11073

11074

12051

12052

12053

12054

12055

12056

12057

12058

12059

12060

20051

20052

20053

20054

20055

10086

10087

10088

10089

10090

10091

10092

10093

10094

10095

10096

10097

10098

10099

10100

11000

11001

11002

11003

11004

11005

11006

11007

11008

11009

20056

20057

20058

20059

20060

20061

20062

20063

20064

20065

news-1112