Verður íslenska gjaldgeng í stafrænum heimi?

[x_text]
Á undanförnum árum hafa komið fram ýmsar skýrslur um nauðsyn þess að styrkja íslenskuna í stafrænum heimi og gera hana gjaldgenga í samskiptum okkar við tölvur og tölvustýrð tæki. Nú er þörf á aðgerðum.
Íslensk málstefna var sett vorið 2009 og birt í bæklingnum Íslenska til alls. Þar var um að ræða tillögur sem Íslensk málnefnd hafði unnið að frá ársbyrjun 2007, en þetta var í fyrsta skipti sem mörkuð var ítarleg opinber stefna um tungumálið – stöðu þess, meðferð, varðveislu og eflingu á ýmsum sviðum. Eitt þessara sviða er íslenska í tölvuheiminum. Þar er  meginmarkmiðið:islenska_til_alls

Að íslensk tunga verði nothæf – og notuð – á öllum þeim sviðum innan tölvu- og upplýsingatækninnar sem varða daglegt líf alls almennings.

Til að skýra þetta nánar er bætt við:

Þetta merkir í fyrsta lagi að viðmót algengs hugbúnaðar (valmyndir, hjálpartextar o.s.frv.) þarf að vera íslenskt; í öðru lagi að til þarf að vera ýmiss konar hugbúnaður sem liðsinnir og leiðbeinir notendum við notkun íslensks máls (leiðréttingarforrit, þýðingarforrit, hjálparforrit fyrir fatlaða); og í þriðja lagi að unnt á að vera að nota íslensku sem samskiptamál við ýmiss konar tölvu- og tæknibúnað (upplýsingakerfi, þjónustuver, tölvustýrð tæki af ýmsu tagi).

Í málstefnunni eru svo taldar upp ýmsar aðgerðir sem grípa þurfi til eigi þetta markmið að nást, s.s. íslenskun notendahugbúnaðar fyrir skólakerfið og opinberar stofnanir, uppbygging, efling og opnun mállegra gagnasafna, gerð þýðingarforrita og leiðréttingarforrita, endurbætur á talgreini og talgervli, o.fl. En þótt málstefnan væri samþykkt einróma á Alþingi 12. mars 2009 fylgdu engar tillögur um að ráðist yrði í þessar aðgerðir, hvað þá að fé væri veitt til þeirra.

Tvær skýrslur

Í ársbyrjun 2010 skipaði mennta- og menningarmálaráðherra þó nefnd „til að fylgja eftir stefnu um notendaviðmót á íslensku í skólum og […] gera áætlun um aðrar aðgerðir sem tilgreindar eru í málstefnunni um íslensku í tölvuheiminum“. Þessi nefnd skilaði áliti sumarið 2012 og lagði fram fjölda tillagna sem skiptust í þrjá meginþætti. Þær vörðuðu í fyrsta lagi íslenskt notendaviðmót hugbúnaðar, og þar var lögð áhersla á útbreiðslu íslensks viðmóts þar sem það er til, eflingu hugbúnaðarþýðinga, og stuðning við íðorðastarf. Í öðru lagi var lagt til að fé yrði veitt til þróunarverkefna á sviði máltækni – talgreiningar, málfarsleiðréttingabúnaðar og vélrænna þýðinga. Í þriðja lagi var lagt til að gert yrði átak í gerð rafræns námsefnis á íslensku fyrir spjaldtölvur.
islenska_a_stafraenni_oldÞað er fljótsagt að engum af þessum tillögum hefur verið hrint í framkvæmd. En um það leyti sem nefndin skilaði af sér var gefin út ítarleg skýrsla undir heitinu Íslensk tunga á stafrænni öld / The Icelandic Language in the Digital Age. Þetta var afrakstur viðamikils evrópsks verkefnis, META-NET, sem stóð yfir árin 2011-2013 og tók til 30 evrópumála. Einn meginþáttur verkefnisins fólst í því að kanna stöðu máltækni fyrir tungumálin 30 og rafrænan stuðning við þau, og gera grein fyrir niðurstöðunum í tvímála skýrslum, á viðkomandi máli og ensku.
Niðurstaða þessarar könnunar var sú að íslenska stendur næstverst af málunum 30 á sviði máltækni. Meginályktun íslensku skýrslunnar er þessi:

Íslenska er ekki í bráðri hættu, þrátt fyrir yfirburði enskunnar í máltækni og tölvumálvísindum. Á hinn bóginn gæti staðan gerbreyst á svipstundu þegar ný kynslóð tækninnar fer fyrir alvöru að ráða við mannlegt mál á skilvirkan hátt. […] Tungumál sem jafnvel mjög fáir tala geta lifað af, verði fullnægjandi máltæknibúnaður tiltækur. Án slíks búnaðar munu jafnvel stórþjóðatungumál verða í mikilli hættu. Eigi íslenska að vera lífvænleg þjóðtunga í þróuðum heimi verður hún að geta staðið undir kröfum upplýsingatækninnar. Fjárfesting í máltækni verður því að vera grunnþáttur í framkvæmd íslenskrar málstefnu.

Þingsályktun

Í framhaldi af þessari skýrslu lagði allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis fram þingsályktunartillögu vorið 2014 um „aðgerðaáætlun um notkun íslensku í stafrænni upplýsingatækni“. Tillagan var samþykkt einróma og hljóðar svo:

Alþingi ályktar að fela mennta- og menningarmálaráðherra að skipa nefnd sérfræðinga í málvísindum og upplýsingatækni sem geri áætlun um aðgerðir er miði að því að gera íslensku gjaldgenga í stafrænni upplýsingatækni og stuðla að notkun hennar á þeim vettvangi. Áætlunin feli í sér tímasett yfirlit um aðgerðir og áfanga, kostnaðarmat og fjármögnun. Nefndin leggi áætlun sína fram í síðasta lagi 1. september 2014.

Þrátt fyrir þá dagsetningu sem tilgreind er í ályktuninni var nefndin ekki skipuð fyrr en í byrjun september 2014 og skilaði skýrslu í desember sama ár. Þar er lagt til

að fjárfest verði í íslenskri máltækni með sérstakri langtímaáætlun til 10 ára sem styrki bæði doktorsnema og einstök tækniþróunar- og innviðaverkefni og fylgi þannig fordæmi nokkurra Evrópuþjóða sem við berum okkur gjarnan saman við. Nefndin áætlar að það þurfi um einn milljarð króna til að byggja nauðsynlegan grunn þannig að í lok áætlunarinnar verði íslenskan komin í flokk nágrannatungumála þegar litið er til stuðnings við máltækni. Þetta er vissulega mikið fé, en nefndin telur að á þessu sviði eigi þjóðin ekkert val, sé raunverulegur vilji til þess að gera Íslendingum kleift að halda áfram að nota íslensku á öllum sviðum þjóðlífsins.

Nefndin lagði til að fé til máltækni yrði úthlutað gegnum sérstakan samkeppnissjóð sem Rannís yrði falin umsjón með. Við lokaafgreiðslu fjárlaga ársins 2015 var samþykkt breytingartillaga fjárlaganefndar um „15 millj. kr. framlag til aðgerða er miði að því að gera íslensku gjaldgenga í stafrænni upplýsingatækni og stuðla að notkun hennar á þeim vettvangi í samræmi við þingsályktun nr. 18/143 sem samþykkt var í vor“. Vorið 2015 var svo Máltæknisjóður stofnaður og úthlutunarreglur hans staðfestar af mennta- og menningarmálaráðherra. Fyrstu styrkjum var úthlutað í haust.

Staða og horfur

Þær 15 milljónir sem fengust til máltækni á þessu ári duga skammt – í tillögum nefndarinnar var gert ráð fyrir 40 milljónum á árinu, og 90 milljónum á næsta ári. Í fjárlagafrumvarpi fyrir 2016 eru hins vegar aðeins ætlaðar 30 milljónir í Máltæknisjóð – þriðjungur af því sem nefndin lagði til. Þó er e.t.v. ekki útséð um að fjárveitingin verði hækkuð. Í ræðu sem Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra flutti við setningu landsfundar Sjálfstæðisflokksins 23. október sl. sagði hann m.a.:

Nú er svo komið að tölvutækni og samskiptatækni ýmiss konar er á góðri leið með að yfirtaka því sem næst öll samskipti í mannlegu samfélagi og þykir örugglega sumum nóg um. Skylda okkar er að tryggja að börnin okkar læri íslensku og noti hana, læri að skilja heiminn með þeim hugtökum sem íslenskan hefur þróað í meira en árþúsund […]. Við verðum því að tryggja að íslenskan verði tæk sem tungumál sem hægt er að nota við þessar breyttu aðstæður, í þessari nýju samskiptatækni. Þetta er stórmál sem ekki hefur farið nægilega mikið fyrir í umræðunni en hlutirnir eru að breytast með ógnarhraða – maður sér það á börnunum sínum hvað allt er að taka miklum og örum breytingum. Við þurfum þess vegna að vinna mikla undirbúningsvinnu og fjárfesta í þekkingu og tækni. Ef við gerum það ekki óttast ég að börnin okkar muni nota íslenskuna minna og minna, og við þurfum því – og ég legg það til – að við ráðumst af krafti í þá vinnu sem vinna þarf til að gera íslenskuna tæka í nútímasamskiptum með allri þeirri tækniþróun sem er að verða. Við þurfum að horfa til tölvu- og fjarskiptatækninnar. Þetta mun kosta okkur nokkra fjármuni, en það eru smámunir einir miðað við þá hagsmuni sem undir eru, sjálfa þjóðartunguna.

Því verður að treysta að hér sé ekki um innantóm orð að ræða, og ráðherra fylgi þessum orðum eftir með því að leggja til verulega hækkun á framlagi í Máltæknisjóð við lokaafgreiðslu fjárlaga í desember. Boltinn er hjá ríkisstjórninni – vonandi fær hún ekki dæmda á sig leiktöf.[/x_text]

Um höfundinn
Eiríkur Rögnvaldsson

Eiríkur Rögnvaldsson

Eiríkur Rögnvaldsson er prófessor emeritus í íslenskri málfræði. Undanfarin ár hefur hann einkum fengist við máltækni en hefur einnig stundað rannsóknir í samtímalegri og sögulegri setningafræði, svo og orðhlutafræði og hljóðkerfisfræði. Sjá nánar

[x_text][fblike][/x_text]

Deila

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000541

118000542

118000543

118000544

118000545

118000546

118000547

118000548

118000549

118000550

118000551

118000552

118000553

118000554

118000555

118000556

118000557

118000558

118000559

118000560

118000561

118000562

118000563

118000564

118000565

118000566

118000567

118000568

118000569

118000570

118000571

118000572

118000573

118000574

118000575

118000576

118000577

118000578

118000579

118000580

118000581

118000582

118000583

118000584

118000585

118000586

118000587

118000588

118000589

118000590

118000591

118000592

118000593

118000594

118000595

118000596

118000597

118000598

118000599

118000600

118000601

118000602

118000603

118000604

118000605

118000606

118000607

118000608

118000609

118000610

118000611

118000612

118000613

118000614

118000615

128000606

128000607

128000608

128000609

128000610

128000611

128000612

128000613

128000614

128000615

128000616

128000617

128000618

128000619

128000620

128000621

128000622

128000623

128000624

128000625

128000626

128000627

128000628

128000629

128000630

128000631

128000632

128000633

128000634

128000635

128000636

128000637

128000638

128000639

128000640

128000641

128000642

128000643

128000644

128000645

128000646

128000647

128000648

128000649

128000650

128000651

128000652

128000653

128000654

128000655

128000656

128000657

128000658

128000659

128000660

128000661

128000662

128000663

128000664

128000665

128000666

128000667

128000668

128000669

128000670

128000671

128000672

128000673

128000674

128000675

128000676

128000677

128000678

128000679

128000680

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

208000281

208000282

208000283

208000284

208000285

208000286

208000287

208000288

208000289

208000290

208000291

208000292

208000293

208000294

208000295

208000296

208000297

208000298

208000299

208000300

208000301

208000302

208000303

208000304

208000305

208000306

208000307

208000308

208000309

208000310

208000311

208000312

208000313

208000314

208000315

208000316

208000317

208000318

208000319

208000320

208000321

208000322

208000323

208000324

208000325

208000326

208000327

208000328

208000329

208000330

208000331

208000332

208000333

208000334

208000335

208000336

208000337

208000338

208000339

208000340

208000341

208000342

208000343

208000344

208000345

208000346

208000347

208000348

208000349

208000350

208000351

208000352

208000353

208000354

208000355

news-1701