Lorca 1914

Um yrkisefni Federico García Lorca

Um höfundinn
Hólmfríður Garðarsdóttir

Hólmfríður Garðarsdóttir

Hólmfríður Garðarsdóttir er prófessor í spænsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands. Í rannsóknum sínum hefur hún lagt áherslu á bókmenntir Rómönsku Ameríku og um þessar mundir vinnur hún að nýrri bók um málefni minnihlutahópa við Karíbahafsströnd Mið-­Ameríkuríkja. Sjá nánar

Lorca 1914
Federico García Lorca árið 1914

[container] Spænska ljóðskáldið Federico García Lorca fæddist í litlu þorpi nærri borginni Granada á Suður-Spáni, þann 5. júní 1899. Í huga skáldsins bjó Granadaborg yfir ævintýraljóma sem stafaði ekki hvað síst af dönsum, sögum og söngvum af arabískum uppruna sem auðguðu mann- og menningarlíf borgarinnar. Ímynd blóðblandaðra íbúa svæðisins og ekki hvað síst hins „þeldökka kynþátt[ar] með eirðarleysið í blóðinu“ (30), eins og Einar Bragi segir um sígaunana, í grein sinni „Um García Lorca, líf hans og starf“ frá 1954, fylgdu Lorca allt hans líf og urðu áberandi yrkisefni í ljóðum hans. Fjarlægur uppruni þeirra, sagnir um ættgöfgi, dýrkun á frelsi, auk virðingar við spádómsgáfur og mátt hljómfalls og tónlistar lögðu Lorca til efnivið. Í verkum hans örlar strax frá upphafi á því að þessi sérstæða menning og söngvar sígauna, hinir svonefndu cante jondo, fylgdu honum í túlkun hans á umhverfinu. Hljómfall menningar Andalúsíu sem mótuð var af alþýðukveðskap og gítarleik skapaði baksvið ljóðagerðar Lorca alla tíð.

Sjóðir alþýðukveðskapar
Þegar fram líða stundir verður Lorca skáld myndmáls og myndlíkinga um leið og honum tekst með málfærni sem á sér fá fordæmi í spænskri bókmenntasögu að tengja andstæð fyrirbæri, eins og myrkur tunglsins og birtu næturinnar, depurð lífsins og gleði dauðans. Ljóð hans eru skrifuð af hugljómun og innblæstri en nákvæmt formið tekst á við hefðir ljóðlistarinnar eins og hún var best þekkt á Spáni í upphafi tuttugustu aldar. Strax frá útkomu fyrstu ljóðabókar Lorca, sem bar einfaldlega titilinn Ljóðabók (Libro de poemas) og kom út árið 1921, til seinni verka, sannaðist að rödd hans var önnur og annarskonar en áður þekktist. Ljóð hans voru laus við prjál og allan óþarfa en stóðu vörð um grundvallaratriði ljóðformsins. Í þessari frumraun er að finna persónulegustu ljóð Lorca og þar gætir bæði áhrifa rómantísku stefnunnar og módernismans en um leið skapar hann sér sína eigin sjálfsstæðu ljóðaveröld og túlkun á umhverfi sínu. Þarna er strax að finna eins konar drög að ljóðaheimi Lorca og þótt hann fylgi straumum og stefnum álfunnar þá mótar hann um leið “sér-lorkískt” afbrigði ljóðlistar sem fylgir honum í næsta ljóðasafni sem lítur ekki dagsins ljós fyrr en mörgum árum síðar. Og þrátt fyrir að ljóðagerð hans taki umtalsverðum breytingum á næstu fimmtán árum koma þarna strax fram þau yrkisefni, áherslur og táknmyndir sem setja mark sitt á ljóðagerð hans æ síðan. Athygli vakti strax frá upphafi hvernig Lorca gerir alþýðumenningu Andalúsíu að meginefnivið verka sinna, en einmitt það yrkisefni verður grunnurinn að þeirri efnislegu samfellu sem einkenndi allan hans feril. Um sérstöðu ljóðagerðar Lorca segir Guðbergur Bergsson:

Lorca gekk auðsæilega, en ekki djúpsæilega, lengst í að leita til og sækja í sjóði alþýðukveðskapar og talmálsins og hlaut fyrir bragðið ákúrur þeirra vina sinna sem höfðu framúrstefnuna að leiðarljósi og beittu myndmálinu með sundurtættum, rofnum hætti, einkum Dalí og Buñuel.(Úr Hið eilífa þroskar djúpin sín. s. 44.)

Dansandi kona af sígunaættumMeð nýstárlegum stíl sínum skapar Lorca marglaga veröld þar sem samtvinnaðar eru jarðneskar og himneskar, efnislegar og ímyndaðar, nálægar og fjarlægar víddir tilverunnar. Í ljóðagerð hans bregður fyrir áður óþekktu líkingamáli þar sem þéttriðið net mynda og tákna raðast saman á nýstárlegan máta. Upptök sína eiga þessi tákn í hefðbundnu líkingamáli annars vegar, og í alþýðuhefðinni hins vegar. Lorca samvefur fyrirmyndir úr þjóðsögum Spánar, goðafræði Grikkja og Rómverja og Biblíunni, og lætur táknin þjóna yrkisefninu til að koma á framfæri sýn sinni á veruleikann. En samhliða því að Lorca endurnýjar hefðbundnar líkingar og býr til nýstárlegar myndir þá er það ekki síst það hlutverk sem hann felur menningu sígauna í ljóðagerð sinni sem verður einkenni verka hans. Sígaunarnir birtast í verkum hans sem tákngervingar angurværðar, sársauka og ástarinnar. Þeir lifa í sátt við náttúruna og þess vegna birtast í ljóðum hans myndir af tungli sem tælir, vindi sem svæfir ungmeyjarnar og vindhviðum sem svipta sítrónum af trjám í ána Darro.

Fágaður einfaldleiki
Skáldið nýtir sér alkunnar goðsögur sem efnivið um leið og óhefðbundið hugmyndaflug Lorca ber hann inn á áður óþekktar brautir í spænskri ljóðagerð. Dulúðugt og dimmt afl virðist hafa skáldið á valdi sínu og hvetja það áfram við endurnýjun og endursköpun kunnuglegs myndmáls, um leið og ógnir sögunnar, óttinn við dauðann, máttur girndarinnar og þess sem er handan seilingar eru honum hugleikin yrkisefni. Sérstæði verka hans felst þó fyrst og fremst í tækninni sem hann notar til að byggja upp fágaðan einfaldleika úr efniviði sem fenginn er á landamærum þess raunverulega og yfirskilvitlega.

Córdoba.
Fjarlæga og eina.

Svarta hryssa, stóra tungl
og ólífur í malnum mínum.
Þótt ég þekki vegina
kemst ég aldrei til Córdoba.[1]

Skáldið erfir ýmsar myndir fyrri tíma en leggur um leið til fjölda nýrra. Vatnið er í ljóðum Lorca öflugt frjósemistákn en er um leið verkfæri dauðans. Blóð — rautt blóð — er lífstákn, kyntákn, á sama tíma og svart blóð er ímynd dauðans. Arabískir stóðhestar koma víða fyrir í ljóðum Lorca og mætti með nokkru sanni kalla þá konungleg tákn lífsorku og karlmennsku, en líka tákn eyðingarmáttar ástarinnar. Akrar og graslendur tákna upphaf og vellíðan, á sama tíma og hnífar, sveðjur, nálar og jafnvel smápeningar, verða í verkum hans fulltrúar hins illa.

Þráhyggja Lorca um alltumlykjandi návist dauðans og glataða æsku finnur sér samastað í verkum hans þar sem víða er að finna myndir látinna ungbarna og börn sem streitast á móti voveiflegum örlögum sínum. Þrátt fyrir þann myrka tón sem er að finna í mörgum ljóða hans og margræði þeirra er Lorca aldrei svartsýnn né nær bölsýni tökum á skáldinu. Barátta mannsins felst í því að túlka og ráða í flókin tákn í umhverfi sínu svo hann megi tryggja eigin velferð. Dapurleg örlög birtast á torræðinn sögulegan og frumspekilegan hátt þegar hann beinir sjónum að tilveru mannsins og samfélaginu sem hann byggir. Þessi margræðu átök verða ekki alltaf aðskilin heldur birtast samtvinnuð og tengd.

Þess ber í lokin að geta að Lorca yrkir síendurtekið um ástina og í meðförum hans er hún geislandi alheimskraftur. Hún er óbeislanleg orka sem byggir upp og brýtur niður. Hún er orka sem streitist gegn því að vera fjötruð og þráin sem engan lætur ósnortinn. Í ljóðinu “Óður til Walt Whitman” (“Oda a Walt Whitman”) úr ljóðabókinni Skáld í New York er margræði ástarinnar til skoðunar. Ljóðskáldið leikur sér með kynferðislegar táknmyndir ástarinnar þar sem gáskafullur leikur líkamans er lofaður.

Samantektin byggir á efni úr formála bókarinnar
Gustur úr djúpi nætur: Ljóðasaga Lorca á Íslandi (2007).

[1] Þýðing  Guðbergs Bergssonar á “Canción de jinete” sem hann kallar “Söng reiðmannsins” og birtist í Hið eilífa þroskar djúpin sín. 1992. s. 66.  Sama ljóð þýðir Jóhann Hjálmarsson með “Saung riddarans” og segir: “Kordóva/Ein og fjarri/Lítill svartur hestur, fullt túngl …”.  Þó Helgi Hálfdánarson kalli ljóðið “Kveðið á hestbaki” og þýði: Kordóva./Ein í fjarska./Klárinn blakkur, tunglið fullt …”.

[/container]

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

138000511

138000512

138000513

138000514

138000515

138000516

138000517

138000518

138000519

138000520

138000521

138000522

138000523

138000524

138000525

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

158000406

158000407

158000408

158000409

158000410

158000411

158000412

158000413

158000414

158000415

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

208000436

208000437

208000438

208000439

208000440

208000441

208000442

208000443

208000444

208000445

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000246

228000247

228000248

228000249

228000250

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

228000256

228000257

228000258

228000259

228000260

228000261

228000262

228000263

228000264

228000265

228000266

228000267

228000268

228000269

228000270

228000271

228000272

228000273

228000274

228000275

228000276

228000277

228000278

228000279

228000280

228000281

228000282

228000283

228000284

228000285

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

238000257

238000258

238000259

238000260

news-1701