Mikilvæg ákvörðun siðanefndar

[container]

Um höfundinn
Bjarni Randver Sigurvinsson

Bjarni Randver Sigurvinsson

Bjarni Randver Sigurvinsson er guðfræðingur og trúarbragðafræðingur. Rannsóknarsvið hans eru trúarhreyfingar á Íslandi og trúarstef í kvikmyndum. Hann hefur sem stundakennari kennt fjölda námskeiða á sviði trúarbragðafræða við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild HÍ og Háskólann á Bifröst.

 Siðanefnd HÍ hefur birt mér ákvörðun sína í kærumáli nr. 3/2014 með bréfi dagsettu 11. nóvember 2014. Kæru minni frá 10. október 2014 á hendur Magnúsi S. Magnússyni rannsóknarprófessor við HÍ er vísað frá á þeirri forsendu að málið varði „meint brot á lagareglum sem hægt sé að bera undir dómstóla“. Um leið tekur siðanefndin undir alvarleika þeirra ummæla Magnúsar um mig sem ég kærði hann fyrir en hún segir: „Af framlögðum gögnum fær siðanefnd ekki séð að hin kærðu ummæli séu þess eðlis að þar hafi kærði Magnús verið að starfa í anda sinnar fræðigreinar við háskólann.“ Hér vegur þó þyngra að með frávísun sinni stígur siðanefndin mikilvæg skref í að skýra umræðu- og tjáningarfrelsið innan Háskóla Íslands, jafnvel þegar kemur að ummælum sem hljóta að teljast umdeild og jafnvel gagnrýniverð. Þessi ákvörðun siðanefndar um meðferð málsins er að mínum mati jákvæð og mikilvæg fyrir háskólasamfélagið því að hún er fordæmisgefandi. Því hef ég kosið að fjalla um hana hér.

Forsaga málsins er sú að 19. desember 2013 birti DV frétt um grein sem ég hafði fáeinum dögum áður skrifað á Hugrás, vefrit Hugvísindasviðs, og ber heitið „Egill Helgason og akademísk fræðistörf“. Í þeirri grein bregst ég annars vegar við gagnrýni Egils á skrif Guðna Elíssonar prófessors við Íslensku- og menningardeild HÍ og hins vegar við framgöngu Egils í tengslum við umfangsmikla og áralanga kæruherferð vantarúarfélaga á hendur mér sem lauk með sigri mínum 4. október 2012 þegar Siðanefnd HÍ vísaði frá fimmtu og síðustu kæru Vantrúar á þeirri forsendu að hún væri tilefnislaus. Allmargir vantrúarfélagar beindu þó áfram spjótum sínum gegn mér og skrifuðu þeir fjölda harðorðra athugasemda undir frétt DVs. Þar á meðal birti Magnús S. Magnússon þrjár athugasemdir. Í kærunni orða ég þetta svona:

Eins og sjá má í meðfylgjandi afriti af athugasemdum Magnúsar S. Magnússonar undir frétt DVs kynnir hann sig þar sem „Research professor, director hjá University of Iceland“ og vísar á Facebook síðu háskólans og eigin Facebook síðu þar sem finna má nánari upplýsingar um starf hans við háskólann. Magnús, sem kemur fram sem rannsóknarprófessor í atferlisfræði við Háskóla Íslands, segist telja að ég geti vegna starfa minna hjá háskólanum orðið umhverfi mínu „mjög skaðlegur“ og vonar „að foreldrar haldi a.m.k. saklausum börnum langt frá slíkum manni“, það beri að „forða börnum frá skaðlegum félasgskap“. Þá vísar Magnús augljóslega til mín þegar hann segist „sjá ummerki starfsemi þessa fáránlega ‘kennara’ sem ruglar fólk hér í ríminu heldur rosalega“ og sömuleiðis þegar hann segir: „Það er átakanlegt að sjá hverning fámennið hér getur orðið til þess að einn og einn rugludallur getur hér náð tökum á nemendum og öðrum sem eru nánast í tómarúmi í skelfilega einagruðu og vanþróuðu samfélagi“.

Þá vitnaði ég þar í heild í athugasemdir Magnúsar og rökstyð hvernig kæruatriðin varði þær siðareglur háskólans sem ég tel að hafi verið brotnar. Jafnframt vísa ég rökstuðningi Magnúsar á bug:

Sú staðleysa Magnúsar S. Magnússonar að miðlun menningarlegrar trúarhefðar (sem hann kýs að uppnefna „hindurvitni“) hafi oft í för með sér „mjög alvarlegan og nær ólæknanlegan heilaskaða“ réttlætir á engan hátt ærumeiðandi dylgjur hans um mig enda er hún augljóslega í alla staði fræðilega fráleit og vart hægt að bendla við vísindi. Sömu sögu er að segja um fráleitar alhæfingar hans um ofstæki, ofbeldi, villimennsku og glæpastarfsemi sem sæma engum sem leggur stund á akademísk fræði í samræmi við siðareglur háskólans.

Skýrt kemur fram að það er aðeins eitt atriði sem ég kæri Magnús fyrir eða eins og ég orða það í lok kærunnar:

Sem nemandi og stundakennari við Háskóla Íslands á því haustmisseri sem Magnús S. Magnússon birti þessi skrif sín um mig fer ég fram á það að Siðanefnd HÍ úrskurði hvort hann hafi gerst brotlegur við siðareglur háskólans með því að hafa sem rannsóknarprófessor við stofnunina mælst til þess hjá fréttavef DVs í gegnum Facebook að foreldrar haldi börnum frá mér því að félagsskapur minn sé þeim skaðlegur. Jafnframt fer ég fram á að Siðanefnd HÍ meti hversu alvarleg brotin séu og upplýsi háskólayfirvöld um það.

Í ljósi þeirrar stöðu sem Magnús gegnir innan háskólans vildi ég ekki sitja undir svona löguðu og taldi eðlilegt að háskólayfirvöldum yrði gert það ljóst hvað maðurinn væri að segja. Ég leitaði upphaflega til sviðsstjóra starfsmannasviðs í apríl 2014 en þar var mér tilkynnt skriflega um mánuði síðar að málið ætti heima hjá Siðanefnd HÍ og því sendi ég kæruna að lokum þangað eftir dágóða umhugsun. Það gerði ég vegna þess að ég taldi niðurstöðu siðanefndar hugsanlega geta orðið prófstein þegar kæmi að sambærilegum málum, hver svo sem hún yrði.

Ljóst var að siðanefnd myndi annað hvort sakfella Magnús, sýkna hann eða vísa málinu frá. Ef Magnús yrði sakfelldur á grundvelli siðareglna háskólans gætu starfsmenn hans ekki komið fram opinberlega með ámælisverðar yfirlýsingar af því tagi sem hann gerði. Þó svo að slík niðurstaða kæmi mér vel í þessu máli yrði hættan þó alltaf sú að refsiglaðar siðanefndir misskyldu hlutverk sitt og sköðuðu háskólasamfélagið með aðgerðum sínum, fremur en bættu það. Ef Magnús yrði sýknaður yrði ekki lengur hægt með góðu móti að leggja fram kærur til siðanefndar vegna skrifa eða orða starfsmanna háskólans um menn og málefni. Sömu sögu væri að segja ef kærunni yrði vísað frá á þeirri forsendu að hún varði ekki siðareglur háskólans, sé tilefnislaus eða eigi heima hjá dómstólum því að með slíkri frávísun hefði siðanefnd markað þá stefnu að mál af þessu tagi eigi ekki heima hjá henni.

Ljóst var að áhættan fyrir mig að kæra málið var engin. Sjálfur hafði ég enga trú á því að Magnús yrði sýknaður en vonaðist til að hann yrði annað hvort sakfelldur eða að málinu yrði vísað frá á þeirri forsendu að það ætti heima hjá dómstólum. Síðast nefnda kostinn taldi ég vænlegastan fyrir háskólasamfélagið og vildi því með kæru minni láta reyna á það.

Þessi ákvörðun Siðanefndar HÍ er mikilvæg fyrir háskólasamfélagið því að nú vita háskólastarfsmenn hversu vítt tjáningarfrelsi þeirra er gagnvart henni. Sömuleiðis er ákvörðunin mikilvæg fyrir kærendur því að nú er ljóst að mál af þessu tagi eiga ekki heima hjá siðanefnd heldur fyrir dómstólum telji þeir að vegið hafi verið að mannorði sínu. Ákvörðun Siðanefndar HÍ veitir fordæmi sem líklega ber ekki að harma ef ákvörðunin verður gerð að almennri reglu.

Deila

[/container]


Comments

10 responses to “Mikilvæg ákvörðun siðanefndar”

  1. Bjarni Randver Sigurvinsson Avatar
    Bjarni Randver Sigurvinsson

    Þeir sem vilja fræðast nánar um þau kærumál Vantrúar sem ég vísa í hér fyrir ofan ættu að kynna sér eftirtaldar greinar:

    Börkur Gunnarsson: „Heilagt stríð Vantrúar.“ Morgunblaðið. 4. desember 2011. Vefur: http://www.mbl.is/frettir/innlent/2011/12/04/heilagt_strid_vantruar/

    Dögg Harðardóttir: „Ósigur Vantrúar. Kæruherferðin gegn Bjarna Randveri Sigurvinssyni stundakennara í HÍ.“ Bjarmi. September 2013. Vefur: https://www.academia.edu/6020719/Ósigur_Vantrúar_Kæruherferðin_gegn_Bjarna_Randveri_Sigurvinssyni_stundakennara_í_HÍ

    Guðni Elísson: „Í heimi getgátunnar. Kærur Vantrúar, glæra 33 og Egill Helgason.“ Tímarit Máls og menningar. Hefti 4. 2012. Vefur: https://www.academia.edu/4316001/Í_heimi_getgátunnar_Kærur_Vantrúar_glæra_33_og_Egill_Helgason_TMM_4_2012_

    Bjarni Randver Sigurvinsson: „Brautryðjandinn Helgi Hóseasson. Áhrif mótmælanda Íslands á aðgerðarsinna í þágu guðleysis.“ Tímarit Máls og menningar. Hefti 4. 2012. Vefur: https://www.academia.edu/6017694/Brautryðjandinn_Helgi_Hóseasson_Áhrif_mótmælanda_Íslands_á_aðgerðarsinna_í_þágu_guðleysis

  2. Hjalti Rúnar Avatar
    Hjalti Rúnar

    Þeir sem vilja fræðast nánar um kærumál Vantrúar sem vísað á er hér fyrir ofan ættu að kynna sér greinarnar hér: http://www.vantru.is/haskolinn/

    Nú hefur Magnús verið kærður þrisvar af ykkur í guðfræðideildinni (og auk þess var einn meðlimur Vantrúar kærður áður en allt þetta hófst). Er þessari kæruherferð ykkar í guðfræðideildinni lokið?

  3. Bjarni Randver Sigurvinsson Avatar
    Bjarni Randver Sigurvinsson

    Það er munur á tilefnislausum kærum eins og í tilfelli Vantrúar og kærum sem raunverulegt tilefni er fyrir. Siðanefnd HÍ úrskurðaði kæru Vantrúar tilefnislausa á sínum tíma. Hvað þetta nýja mál varðar þá leitaði ég fyrst til sviðsstjóra starfsmannasviðs en þar var mér tilkynnt að málið ætti heima hjá siðanefnd háskólans. Það er ekkert óeðlilegt við slíkt ferli. Kærumál mitt er Guðfræði- og trúarbragðafræðideild óviðkomandi og þar vissu fæstir einu sinni um það fyrr en eftir á. Kvörtun Péturs Péturssonar prófessors til rektors út af mikið til allt öðru er sömuleiðis Guðfræði- og trúarbragðafræðideild óviðkomandi og einnig mér.

  4. Hjalti Rúnar Avatar
    Hjalti Rúnar

    >Kærumál mitt er Guðfræði- og trúarbragðafræðideild óviðkomandi ….

    Kærumál þín (í fleirtölu). Fyrst kæra til sviðsstjórans, síðan kæra til siðanefndar. Svo kærði Pétur hann til rektors. Þrjár kærur allt í allt. (fyrir utan kærur fyrir mál Magnúsar).

    Og það var fullt tilefni fyrir kærum Vantrúar.

  5. Bjarni Randver Sigurvinsson Avatar
    Bjarni Randver Sigurvinsson

    Ég skil vel að þetta komi þér úr jafnvægi, Hjalti Rúnar. Þið vantrúarfélagar hafið nefnilega árum saman haldið því sama fram og Magnús S. Magnússon gerir. Þið hafið ótal sinnum kallað þá barnaníðinga sem miðla trú til barna og unglinga á þeirri forsendu að slíkt sé barnaníð. Jafnvel þeir sem verja rétt manna og trúfélaga til að gera slíkt hafa með þeim hætti verið sagðir skaðlegir börnum.

  6. Hvað bendir til þess að Hjalti hafi ekki verið í jafnvægi?

    > Þið hafið ótal sinnum kallað þá barnaníðinga sem miðla trú til barna og unglinga á þeirri forsendu að slíkt sé barnaníð.

    Hversu oft er “ótal sinnum”?

    Og hvað kemur þetta umræðunni hér við?

  7. Bjarni Randver Sigurvinsson Avatar
    Bjarni Randver Sigurvinsson

    Ég hef svarað athugasemd vantrúarfélagans Matthíasar Ásgeirssonar hér:

    http://www.hugras.is/2015/02/vantru-um-barnanid/

  8. Hjalti Rúnar Avatar
    Hjalti Rúnar

    >Ég skil vel að þetta komi þér úr jafnvægi, Hjalti Rúnar. Þið vantrúarfélagar hafið nefnilega árum saman haldið því sama fram og Magnús S. Magnússon gerir. Þið hafið ótal sinnum kallað þá barnaníðinga sem miðla trú til barna og unglinga á þeirri forsendu að slíkt sé barnaníð.

    Komi mér úr jafnvægi? Ekki vera að geta þér til um andlegt ástand mitt Bjarni.

    Ég man nú ekki eftir því að ég hafi nokkurn tímann kallað “þá barnaníðinga sem miðla trú til barna og unglinga á þeirri forsendu að slíkt sé barnaníð”.

    >Kvörtun Péturs Péturssonar prófessors til rektors út af mikið til allt öðru er sömuleiðis Guðfræði- og trúarbragðafræðideild óviðkomandi og einnig mér.

    Bjarni, af hverju kallarðu þetta “kvörtun” en ekki kæru?

  9. Nei, ég fékk ekki svar við spurningunni:

    > Hversu oft er ótal sinnum?

    Ég er engu nær.

    Ég fékk ekki heldur svar við spurningunni:

    > Hvað bendir til þess að Hjalti hafi ekki verið í jafnvægi?

    Ég er engu nær.

    Og tal þitt um þá sem “miðla trú til barna” sýnir öllum nema verstu ofstækismönnum á hverju málflutningur þinn byggir og að þú ert óhæfur til að fjalla um félagið Vantrú með heiðarlegum hætti. Vantrú hefur aldrei gagnrýnt að trú séð “miðlað” í formi kennslu um trúarbrögð. Umræðan snýst um trúboð (kristniboð) í leik- og grunnskólum.

    Þetta veistu vel Bjarni Randver en samt kýstu að afvegaleiða umræðuna með þessum hætti.

    Eða kannski er það Guðni sem gerir það, ég veit það aldrei.

  10. Bjarni Randver Sigurvinsson Avatar
    Bjarni Randver Sigurvinsson

    Matthías, trúboð felst í miðlun trúar. Þið vantrúarfélagar hafið ítrekað gagnrýnt slíka miðlun til barna og m.a. talað um barnaníð í því sambandi. Eins og sjá má af grein minni „Vantrú um barnaníð“ einskorðast þessi gagnrýni ykkar ekki við það sem þú kallar „trúboð (kristniboð) í leik- og grunnskólum“. Ég minnist þess samt ekki að hafa nokkurn tímann haldið því fram að Vantrú sé á móti því sem félagið kallar kennslu um trúarbrögð. Hér reynir þú sem fyrr að afvegaleiða umræðuna.

    Annars er svar félaga þíns og ábyrgðarmanns vefs Vantrúar, Birgis Baldurssonar, við þessari grein minni upplýsandi. Hann skrifar í umræðuþráðinn fyrir neðan hana: „Þetta tal okkar um barnaníð er non-issue. Það er enginn að reyna að sverja það af sér að hafa notað það hugtak í greinaskrifum og umræðunni, jafnvel ítrekað. Það að þú skulir gera þetta að einhverju tilefni til greinaskrifa, einhverja litla athugasemd Matta um fyrirbærið “ótal sinnum” sýnir aðeins að þú reynir hvað þú getur að koma höggi á okkur. Vel má vera að einhverjir hneykslist á því hvað við höfum oft notað orðið barnaníð í ræðu og riti og þá er tilgangi þínum náð. En barnaníð er þetta nú samt (sbr. Galileo; “en hún snýst nú samt). Ég hef notað hugtakið og ætla að nota það áfram þegar tilefni er til. Það er því af og frá að ég sé eitthvað að reyna að beina athyglinni frá því og umræðunni annað, af því að ég sé eitthvað að skammast mín fyrir þetta. Öðru nær, mér finnst þetta svo mikill tittlingaskítur að ég nenni ekki einu sinni að ræða það.“

    http://www.hugras.is/2015/02/vantru-um-barnanid/

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

118000661

118000662

118000663

118000664

118000665

118000666

118000667

118000668

118000669

118000670

118000671

118000672

118000673

118000674

118000675

118000676

118000677

118000678

118000679

118000680

118000681

118000682

118000683

118000684

118000685

118000686

118000687

118000688

118000689

118000690

118000691

118000692

118000693

118000694

118000695

118000696

118000697

118000698

118000699

118000700

118000701

118000702

118000703

118000704

118000705

118000706

118000707

118000708

118000709

118000710

118000711

118000712

118000713

118000714

118000715

118000716

118000717

118000718

118000719

118000720

128000681

128000682

128000683

128000684

128000685

128000686

128000687

128000688

128000689

128000690

128000691

128000692

128000693

128000694

128000695

128000721

128000722

128000723

128000724

128000725

128000726

128000727

128000728

128000729

128000730

128000731

128000732

128000733

128000734

128000735

128000736

128000737

128000738

128000739

128000740

128000741

128000742

128000743

128000744

128000745

138000441

138000442

138000443

138000444

138000445

138000446

138000447

138000448

138000449

138000450

138000431

138000432

138000433

138000434

138000435

138000436

138000437

138000438

138000439

138000440

138000441

138000442

138000443

138000444

138000445

138000446

138000447

138000448

138000449

138000450

138000451

138000452

138000453

138000454

138000455

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

208000361

208000362

208000363

208000364

208000365

208000366

208000367

208000368

208000369

208000370

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

228000051

228000052

228000053

228000054

228000055

228000056

228000057

228000058

228000059

228000060

228000061

228000062

228000063

228000064

228000065

228000066

228000067

228000068

228000069

228000070

228000071

228000072

228000073

228000074

228000075

228000076

228000077

228000078

228000079

228000080

228000081

228000082

228000083

228000084

228000085

228000086

228000087

228000088

228000089

228000090

228000091

228000092

228000093

228000094

228000095

228000096

228000097

228000098

228000099

228000100

238000216

238000217

238000218

238000219

238000220

238000221

238000222

238000223

238000224

238000225

238000226

238000227

238000228

238000229

238000230

news-1701