Kvikmyndagerð og Molotov-kokteilar: Ferilsaga Dunu

Kolbeinn Rastrick er kvikmyndafræðingur og kvikmyndagagnrýnandi á Rás 1. Auk þess hefur hann unnið á kvikmyndahátíðum eins og RIFF og Stockfish.“

Ný bók um Guðnýju Halldórsdóttur lítur dagsins ljós næstkomandi fimmtudag í útgáfuhófi Forlagsins á Fiskislóð 39. Bókin ber heitið Duna: Saga kvikmyndagerðarkonu en að henni unnu sagnfræðingurinn Kristín Svava Tómasdóttir og kvikmyndafræðingurinn Guðrún Elsa Bragadóttir. Ég settist niður með þeirri síðarnefndu og spurði út í þetta áhugaverða verk.

Bókin er að sögn Guðrúnar Elsu óvenjuleg ævisaga að því leyti að hún einblínir á feril Guðnýjar og ekki að ástæðulausu. Guðný, eða Duna eins og hún er oftast kölluð, „er afkastamesta kvikmyndagerðarkona okkar Íslendinga.“ Hún hefur leikstýrt fimm myndum í fullri lengd og er hvað þekktust fyrir að hafa leikstýrt kvikmyndunum Kristnihald undir Jökli, Ungrúin góða og húsið og Veðramót og skrifað handritið fyrir Stellu í orlofi. Að sögn Guðrúnar Elsu lögðu þær Kristín Svava þó ekki mikla áherslu á fræðilega greiningu á kvikmyndunum sjálfum heldur frekar feril Dunu, enda bókinni ætlað að höfða til breiðs lesendahóps. „Það er svo margt við hennar ævi sem er rosalega merkilegt og áhugavert“ segir Guðrún Elsa. Guðný lauk kvikmyndanámi frá London International Film School og aðstoðaði til dæmis við tökur á kvikmyndinni The Gold Diggers sem var tekin að hluta á Íslandi og gerð af hópi kvenna, þ.á.m. hinni þekktu Sally Potter, sem leikstýrði myndinni. Þá stofnaði Guðný ásamt fjórum öðrum konum Kvikmyndafélagið Umba árið 1983 sem var jafnframt fyrsta kvikmyndaframleiðslufyrirtæki stofnað af konum á Íslandi.[1]

„Hún er enginn egóisti“

Kristín Svava hefur þekkt Guðnýju lengi, en hún kynntist henni í gegnum foreldra sína:  „Svo hún vissi að hún væri afar töff og skemmtileg kona.“ Guðrún Elsa segir það endurspegla eigin upplifun af Dunu: „Hún er ótrúlega skemmtileg, fyndin og lifandi með ótal margar sögur uppi í erminni.“ Að sögn Guðrúnar þurfti aðeins að sannfæra Guðnýju um að vera viðfang þessarar ævisögu. „Hún er enginn egóisti og eins og margir leikstjórar, meira fyrir að vera fyrir aftan myndavélina en fyrir framan hana, í sviðsljósinu.“ Kristín Svava og Guðrún byrjuðu haustið 2022 að fara í heimsóknir til Guðnýjar í Mosfellssveit og taka viðtöl við hana. Að sögn Guðrúnar er Duna í raun þriðji höfundur bókarinnar. „Hennar persónuleiki gegnsýrir algjörlega textann og við reyndum halda hennar tóni, orðalagi og frásagnarstíl í gegnum bókina.“ Fyrir þeim Kristínu Svövu var efnið því bæði skemmtilegt jafnt því að vera ákaflega mikilvægt enda var eins og Guðrún orðar það „ekkert sjálfsagt fyrir konu á áttunda áratugnum að fara út í það að vinna í kvikmyndum.“

Molotov-kokteill á Langjökli

Bókin stiklar yfir sögu íslenskrar kvikmyndagerðar samhliða því að segja sögu Guðnýjar. „Okkur langaði að skrifa sögu sem myndi líka vera saga af kvikmyndagerð á Íslandi á þessum tíma,“ segir Guðrún Elsa. „Við lögðum áherslu á að fjalla um gerð kvikmyndanna, undirbúning, tökutímabil, eftirvinnslu og viðtökur.“ Duna: Saga kvikmyndagerðarkonu er uppfull af ljósmyndum frá þessu ferli ásamt myndum úr lífi Dunu. „Það sem mér finnst eiginlega skemmtilegast við þessa bók okkar eru allar ljósmyndirnar sem við fengum bæði frá opinberum aðilum og einkasöfnum.“ Á þessum myndum sést ýmislegt forvitnilegt eins og fólksbíll sem hefur verið umbreytt í „kvikmyndavagn“, jeppi fastur í miðri á og trékofi sem kvikmyndagerðarfólkið er við það að kveikja í með Molotov-kokteil. Guðrún segir aðdraganda Molotov-kokteilsins hafa verið vandræði sem fylgdu tökum á myndinni The Gold Diggers uppi á Langjökli. „Eftir tökur voru nokkur þeirra sem unnu að myndinni svo pirruð á þessu öllu saman að þau kveiktu í kofanum!“ Síðan kom hins vegar í ljós að það þurfti að endurtaka hluta af tökunum og neyddust þau til að endurreisa úr rústunum horn af kofanum. „Það reyndust til myndir af allri atburðarásinni!“ segir Guðrún, en myndaseríuna má sjá í bókinni.

Molotov-kokteillinn og kofinn umræddi. Mynd úr einkasafni Guðnýjar Halldórsdóttur.

Tvær nætur í rúmi Laxness

Að sögn Guðrúnar Elsu unnu þær Kristín Svava bókina saman, bæði þegar kom að skrifum og heimildavinnu. Hún segir dugnað Kristínar Svövu þó forsendu þess að bókin kom út. „Hún er náttúrulega bara snillingur og ótrúlega vön. Hún kann að skrifa og klára bók.“ Þrátt fyrir að bókaútgáfa geti verið strembin er þó sjaldan að hrakfarir setji hana úr skorðum á jafn dramatískan hátt og kvikmyndirnar. Guðrún Elsa lýsir því að þær Kristín Svava hafi lent í alls konar minni háttar ævintýrum á meðan á skrifum bókarinnar stóð. „Við fórum í hríðarbyl upp á Eyrarbakka, tókum strætó og enduðum svo á því að þurfa að taka leigubíl upp á Selfoss í ógeðslegu veðri því við misstum af tengistrætó.“ Í einni heimsókn sinni til Dunu fengu þær að gista í gömlu vinnurými Dunu, þar sem nú er notaleg gistiaðstaða. „Þau voru þarna að klippa myndir í gamla daga og við fengum að gista þar í tvær nætur. Ég fékk að gista í rúmi Halldórs Laxness. Það var alveg stemning!“

Edda Björgvins í hlutverki Stellu. Mynd úr einkasafni Guðnýjar Halldórsdóttur.

Höfundar bókarinnar og Guðný Halldórsdóttir munu lesa upp úr og árita Dunu: Sögu íslenskrar kvikmyndagerðarkonu í bókabúð Forlagsins næstkomandi fimmtudag 31. október kl. 16:30. Í boði verða léttar veitingar undir völdum tónum úr kvikmyndum Dunu.

Þá má einnig benda áhugasömum á tvo spennandi viðburði til viðbótar af tilefni útkomu bókarinnar:

Upplestur 7. nóvember – Duna: Saga kvikmyndagerðarkonu.

Kvöldstund með Dunu og Kristínu 7. nóvember – Skilaboð til Söndru!


[1] Kristín Svava Tómasdóttir og Guðrún Elsa Bragadóttir, Duna: Saga kvikmyndagerðarkonu (Reykjavík: Forlagið, 2024).

Kolbeinn Rastrick er kvikmyndafræðingur og kvikmyndagagnrýnandi á Rás 1. Auk þess hefur hann unnið á kvikmyndahátíðum eins og RIFF og Stockfish.

Pistillinn var unninn í námskeiðinu Vinnustofa í menningarblaðamennsku við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

slot mahjong

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

article 888000081

article 888000082

article 888000083

article 888000084

article 888000085

article 888000086

article 888000087

article 888000088

article 888000089

article 888000090

article 888000091

article 888000092

article 888000093

article 888000094

article 888000095

article 888000096

article 888000097

article 888000098

article 888000099

article 888000100

cuaca 898100126

cuaca 898100127

cuaca 898100128

cuaca 898100129

cuaca 898100130

cuaca 898100131

cuaca 898100132

cuaca 898100133

cuaca 898100134

cuaca 898100135

cuaca 898100136

cuaca 898100137

cuaca 898100138

cuaca 898100139

cuaca 898100140

cuaca 898100141

cuaca 898100142

cuaca 898100143

cuaca 898100144

cuaca 898100145

cuaca 898100146

cuaca 898100147

cuaca 898100148

cuaca 898100149

cuaca 898100150

cuaca 898100151

cuaca 898100152

cuaca 898100153

cuaca 898100154

cuaca 898100155

cuaca 898100156

cuaca 898100157

cuaca 898100158

cuaca 898100159

cuaca 898100160

cuaca 898100161

cuaca 898100162

cuaca 898100163

cuaca 898100164

cuaca 898100165

cuaca 898100166

cuaca 898100167

cuaca 898100168

cuaca 898100169

cuaca 898100170

cuaca 898100171

cuaca 898100172

cuaca 898100173

cuaca 898100174

cuaca 898100175

article 710000151

article 710000152

article 710000153

article 710000154

article 710000155

article 710000156

article 710000157

article 710000158

article 710000159

article 710000160

article 710000161

article 710000162

article 710000163

article 710000164

article 710000165

article 710000166

article 710000167

article 710000168

article 710000169

article 710000170

article 710000171

article 710000172

article 710000173

article 710000174

article 710000175

article 710000176

article 710000177

article 710000178

article 710000179

article 710000180

article 710000181

article 710000182

article 710000183

article 710000184

article 710000185

article 710000186

article 710000187

article 710000188

article 710000189

article 710000190

article 710000191

article 710000192

article 710000193

article 710000194

article 710000195

article 710000196

article 710000197

article 710000198

article 710000199

article 710000200

psda 438000036

psda 438000037

psda 438000038

psda 438000039

psda 438000040

psda 438000041

psda 438000042

psda 438000043

psda 438000044

psda 438000045

psda 438000046

psda 438000047

psda 438000048

psda 438000049

psda 438000050

psda 438000051

psda 438000052

psda 438000053

psda 438000054

psda 438000055

psda 438000056

psda 438000057

psda 438000058

psda 438000059

psda 438000060

psda 438000061

psda 438000062

psda 438000063

psda 438000064

psda 438000065

psda 438000066

psda 438000067

psda 438000068

psda 438000069

psda 438000070

psda 438000071

psda 438000072

psda 438000073

psda 438000074

psda 438000075

psda 438000076

psda 438000077

psda 438000078

psda 438000079

psda 438000080

psda 438000081

psda 438000082

psda 438000083

psda 438000084

psda 438000085

psda 438000086

psda 438000087

psda 438000088

psda 438000089

psda 438000090

psda 438000091

psda 438000092

psda 438000093

psda 438000094

psda 438000095

psda 438000096

psda 438000097

psda 438000098

psda 438000099

psda 438000100

psda 438000101

psda 438000102

psda 438000103

psda 438000104

psda 438000105

psda 438000106

psda 438000107

psda 438000108

psda 438000109

news-1701