Staða kennslugreinarinnar íslensku í Háskólanum

Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus við Íslensku- og menningardeild, skrifar um stöðu kennslugreinarinnar íslensku við Háskóla Íslands.

Fækkun íslenskunema

Ég kenndi íslensku við Hugvísindasvið (áður Heimspekideild) Háskóla Íslands frá 1982-2018 og hef því miklar taugar til greinarinnar og hef reynt að fylgjast með henni síðan. Mér brá þess vegna í haust þegar ég frétti að nýnemar í greininni væru aðeins rétt á annan tuginn þetta árið – hafa ekki verið færri síðan einhvern tíma á sjöunda áratugnum eða jafnvel fyrr. Þá var fjöldi ný­stúdenta við Háskólann bara brot af því sem nú er þannig að hlutfall íslenskunema af ný­nem­um er ekki nema brotabrot af því sem það var fyrir meira en hálfri öld. Nemendum fór fjölgandi framan af starfstíma mínum og fjöldinn náði hæstu hæðum kringum 1990 þegar nærri 90 nem­end­ur hófu nám í íslensku tvö ár í röð, en þeim hefur farið jafnt og þétt fækkandi síðan.

Þarna er örugglega margt sem spilar saman. Tvær viðamiklar rannsóknir (Greining á mál­fræði­leg­um áhrifum stafræns málsambýlis og Íslenska sem námsgrein og kennslutunga) benda til þess að íslenskukennsla, sérstaklega í grunnskólum en að einhverju leyti í framhaldsskólum líka, höfði ekki alltaf nógu vel til nemenda – þau hafa oft jákvæðara viðhorf til ensku en ís­lensku. Samræmdu prófin (sem nú hafa sem betur fer verið lögð af) voru líka skaðræði eins og ég hef oft skrifað um. Við í Háskólanum (ég ber þar fulla ábyrgð því að það er ekki svo langt síðan ég hætti störfum) höfum kannski ekki heldur staðið okkur nógu vel í markaðssetningu. Okkur hefur greinilega ekki tekist að vekja áhuga á greininni meðal framhaldsskólanema.

En fleira kemur til. Ég hef heyrt að eftir að hafa verið með íslensku á stundaskránni alla sína skóla­tíð þyki ekki spennandi að fara í háskóla til að læra grein sem heitir íslenska – er það ekki bara meira af því sama? Meiri orðflokkgreining og meiri Egils saga?Alþjóðavæðingin hefur líka áhrif – nemendur hafa sagt mér að þau óttist að lenda í blindgötu ef þau fara í íslensku, vilja eiga þess kost að fara í skiptinám til útlanda og halda að það sé ekki hægt, vilja búa og starfa erlendis og telja að námið nýtist þeim ekki þar, o.s.frv. Neikvæð umræða um málfar ungs fólks hefur líka áhrif – það er alltaf verið að tala mál unglinga niður, segja þeim að þau kunni ekki íslensku, skamma þau fyrir að sletta ensku of mikið, o.s.frv. Það er ekki sérlega hvetjandi.

Við sem eldri erum gleymum því oft að nemendur hafa alist upp í allt annars konar þjóðfélagi en við – allt annars konar þjóðfélagi en flestir kennarar þeirra því að meðalaldur kennara er nokkuð hár. Við áttum okkur ekki endilega á því hvað þetta þýðir. Og jafnvel þótt við áttum okkur á því vitum við ekki endilega hvernig á að bregðast við. Og jafnvel þótt við teljum okkur vita það er óvíst að við höfum eða kunnum á þau tól og tæki, í þessu tilviki kennsluefni og kennslu­aðferðir, sem þarf til að bregðast við. Gerbreytt þjóðfélag kallar auðvitað á gerbreytt kennsluefni og gerbreyttar kennsluaðferðir. Ég efast ekkert um að fjöldi kennara átti sig á því, og reyni að koma til móts við nemendur á þeirra forsendum. En það er hægara sagt en gert.

Er íslenskunám óspennandi?

Eitt af því sem veldur vanda er tilfinnanlegur skortur á hentugu kennsluefni. Vegna þess að nem­endur – eða foreldrar – þurfa að kaupa kennslubækur framhaldsskóla, öfugt við það sem ger­ist annars staðar á Norðurlöndum, leita þau eðlilega allra leiða til að lækka bókakostnaðinn. Þótt skiptibókamarkaðir séu hagstæðir fyrir nemendur eru þeir rothögg fyrir bókaútgáfu og draga stórkostlega úr endurnýjun kennsluefnis á íslensku og áhuga útgefenda á útgáfu nýs kennslu­efnis. Þess vegna sitjum við uppi með gamalt og úrelt kennsluefni sem nemendur lesa í snjáðum og misvel förnum bókum. Í sumum greinum er gripið til þess ráðs að nota erlendar kennslubækur – en þar er ekki hægt í íslensku og þess vegna kemur þetta verst niður á henni.

Til að bæta úr skorti á hentugu kennsluefni eru kennarar oft að útbúa fjölrit eða glærusöfn með efni sem þau telja að henti nemendum. Það er út af fyrir sig góðra gjalda vert, en getur þó reynst tvíbent þegar að er gáð. Hvað varðar allan frágang og útlit standast myndalaus fjölrit auðvitað engan saman­burð við myndskreyttar erlendar kennslubækur prentaðar í lit á glanspappír. Fjöl­rit­að íslensku­kennslu­efni á ekki séns í fjölbreytt enskukennsluefni á bók eða margmiðlunar­formi. Gamalt eða ósjálegt kennsluefni hefur áhrif á viðhorf nemenda til kennslu­greinarinnar. Íslenska er í sauðalitunum – enska er í öllum regnbogans litum. Íslenska er gamal­dags – enska er nútíma­leg. Íslenska er heimóttarleg – enska er alþjóðleg. Íslenska er dauf – enska er fjör.

Ég held samt að það skorti ekki ekki áhuga nemenda á íslenskum menningararfi og ég er sannfærður um að það er hægt að vekja áhuga þeirra á íslensku máli líka. En okkur vantar hentugt efni til að miðla þessu til þeirra. Það er ekki við því að búast að hinn frjálsi markaður framleiði slíkt efni. Ríkið verður að koma til – standa fyrir og styrkja myndarlega útgáfu hentugs kennsluefnis sem nær til nemenda. Og þetta má ekki verða dæmigert íslenskt „átaksverkefni“ sem lýkur um leið og einhver árangur fer að koma í ljós – eða jafnvel fyrr. Þetta þarf stöðugt að vera í gangi – sífellt að framleiða nýtt efni. Það er að segja, ef við viljum halda áfram að tala íslensku. Kannski er sumum það ekkert sérstakt keppikefli, en þá skulum við bara segja það.

Nú má vissulega halda því fram að við þurfum ekki á því að halda að mennta meira en tug fólks á ári í íslensku – það dugi til að tryggja nægilega nýliðun í þeim störfum sem íslenskumenntunar er krafist til. Ég er reyndar ósammála – það hefur sýnt sig að íslenskunám nýtist fólki í fjölmörgum og fjölbreyttum störfum og okkur veitir ekkert af því að útskrifa fleiri með háskóla­menntun í íslensku. En það er í sjálfu sér aukaatriði. Aðalatriðið er það að þessi fækkun nem­enda ber skýrt vitni um stöðu íslenskunnar í huga ungs fólks. Íslenska er ekki spennandi. Hún er ekki kúl. Hún er ekki grein sem unga fólkið hefur áhuga á að læra í háskóla. Hún höfðar ekki til ungs fólks. Það er verulega alvarlegt og við því verður að bregðast á einhvern hátt.

Staða íslenskunnar í samfélaginu

Þótt hugsanlega megi rekja minnkaðan áhuga á íslenskunámi að einhverju leyti til kennslunnar í grunn- og framhaldsskólum, og til þess að háskólakennarar í greininni hafi ekki staðið sig í markaðssetningu, held ég að það sé ekki frumástæðan heldur birtingarmynd miklu stærra máls – stöðu íslenskunnar í samfélaginu. Staðreyndin er sú að við höfum ekki sinnt íslenskunni nógu vel, ekki hugsað nógu vel um að sýna málnotendum fram á gildi hennar fyrir okkur og fyrir samfélagið. Við höfum tekið íslenskunni sem sjálfsögðum hlut í stað þess að hlynna að henni – hennar vegna, en ekki síður okkar vegna. Móðurmálið er hluti af sjálfsmynd okkar – af okkur sjálfum. Við þurfum að rækta þann hluta á jákvæðan og uppbyggjandi hátt – ekki sem skyldu.

Það þýðir ekkert að reka áróður fyrir íslenskunni á einhverjum þjóðernisforsendum sem eiga rætur í sjálfstæðisbaráttunni á nítjándu öld. Það virkaði kannski ágætlega í upphafi síðustu aldar en gerir það ekki lengur. Með því er ég ekki að segja að íslenskan skipti ekki máli fyrir okkur sem þjóð. Auðvitað gerir hún það. En við verðum samt að átta okkur á því að til þess að unga fólkið hafi áhuga á henni, vilji nota hana á flestum sviðum, rækta hana og varðveita, verður hún að vera sam­keppnis­hæf. Við þurfum að geta boðið unga fólkinu áhugaverða afþreyingu og fræðslu á ís­lensku, nútímalegt og smekklegt kennsluefni – og síðast en ekki síst: Nýjan mál­staðal sem stendur nær því máli sem ungt fólk hefur tileinkað sér og talar en núverandi staðall.

Góðu fréttirnar eru þær að þetta er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Það er engin ástæða til svartsýni um íslenskuna og framtíð hennar – ef við sinnum henni, hvert og eitt. Stjórnvöld hafa gert vel í að byggja upp íslenska máltækni en þurfa að stórauka annan stuðning við íslenskuna – við útgáfu kennslu- og fræðsluefnis, við bókaútgáfu, kvikmyndagerð og hvers kyns afþreyingu á íslensku. Framar öllu þarf að gera stórátak í kennslu íslensku sem annars máls, með sameinuðu átaki stjórnvalda og atvinnurekenda. En þetta hrekkur skammt ef við, almennir málnotendur, leggjumst ekki líka á árarnar við að gera íslensku sjálfsagða á öllum sviðum. Við berum ábyrgð á framtíð íslensk­unnar og verðum að axla þá ábyrgð.

Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands.

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

138000511

138000512

138000513

138000514

138000515

138000516

138000517

138000518

138000519

138000520

138000521

138000522

138000523

138000524

138000525

article 138000526

article 138000527

article 138000528

article 138000529

article 138000530

article 138000531

article 138000532

article 138000533

article 138000534

article 138000535

article 138000536

article 138000537

article 138000538

article 138000539

article 138000540

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

158000406

158000407

158000408

158000409

158000410

158000411

158000412

158000413

158000414

158000415

article 158000416

article 158000417

article 158000418

article 158000419

article 158000420

article 158000421

article 158000422

article 158000423

article 158000424

article 158000425

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

208000421

208000422

208000423

208000424

208000425

208000426

208000427

208000428

208000429

208000430

208000431

208000432

208000433

208000434

208000435

article 208000436

article 208000437

article 208000438

article 208000439

article 208000440

article 208000441

article 208000442

article 208000443

article 208000444

article 208000445

article 208000446

article 208000447

article 208000448

article 208000449

article 208000450

208000436

208000437

208000438

208000439

208000440

208000441

208000442

208000443

208000444

208000445

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

228000256

228000257

228000258

228000259

228000260

228000261

228000262

228000263

228000264

228000265

228000266

228000267

228000268

228000269

228000270

228000271

228000272

228000273

228000274

228000275

228000276

228000277

228000278

228000279

228000280

228000281

228000282

228000283

228000284

228000285

article 228000286

article 228000287

article 228000288

article 228000289

article 228000290

article 228000291

article 228000292

article 228000293

article 228000294

article 228000295

article 228000296

article 228000297

article 228000298

article 228000299

article 228000300

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

238000257

238000258

238000259

238000260

article 238000261

article 238000262

article 238000263

article 238000264

article 238000265

article 238000266

article 238000267

article 238000268

article 238000269

article 238000270

news-1701