Þægindateppið hans Tarantino

[cs_text]Aldrei hefur verið hægt að saka Quentin Tarantino um að skila af sér knöppum kvikmyndum. Hluti af sjarmanum við myndirnar hans eru útúrdúrarnir: Mr. Pink (Steve Buscemi) gefur aldrei þjórfé; Vincent (John Travolta) og Jules (Samuel L. Jackson) hafa afar ólíkar skoðanir á fótanuddi en ná saman þegar um Amsterdam er rætt; ekki er útilokað að þýskar leyniskyttur séu kvikmyndaáhugamenn, og svo framvegis. Þá er Tarantino ekki lengur ungi róttæklingurinn sem kom eins og stormsveipur inn í bandaríska kvikmyndagerð á öndverðum tíunda áratug liðinnar aldar. Núna vantar bara örfá ár í að hann geti tekið sér sess meðal eldri borgara draumaverksmiðjunnar og er auk þess sennilega frægasti leikstjóri veraldar. En eftir því sem liðið hefur á feril Tarantino hafa þessir útúrdúrar hans verið að ágerast og orðið meira áberandi. Nýjustu tvær myndirnar, The Hateful Eight (2015) og Once Upon a Time … in Hollywood (2019), virðast til dæmis vera tilraunir um hvort hægt sé hreinlega að kasta „söguþræðinum“ svokallaða fyrir róða og umbreyta útúrdúrunum í meginfléttuna. Láta útúrdúruna með öðrum orðum taka upp þá virkni og það hlutverk sem hefðbundin frásagnarframvinda gegnir öllu jafnan í vestrænum meginstraumskvikmyndum.

Í Once Upon a Time … in Hollywood er meira að segja eins og Tarantino sé að reyna að koma útúrdúratilraunamennsku sinni í enn róttækari farveg; stórum hluta þess tíma sem áhorfendur verja með aðalpersónum myndarinnar, kúrekaleikaranum Rick Dalton (Leonardo DiCaprio) og áhættuleikara hans, Cliff Booth (Brad Pitt), eru þeir samferða tvímenningunum í bílum á meðan þeir keyra – og keyra, vissulega á milli staða, en fyrst og fremst eru þeir að keyra, líkt og það að komast á vettvang útúrdúrsins þar sem eitthvað muni hugsanlega gerast sé of fyrirsjáanlegt, full-hefðbundið. Bílferðirnar verða í þessu samhengi eins konar útúrdúrar á öðrum frásagnarútúrdúrum, og engan hefðbundinn söguþráð er að finna í myndinni. Formgerð hennar, þess í stað, er sá að tíminn líður, fyrst tveir dagar, svo sex mánuðir, svo ein kvöldstund. Og með reglulegum millibilum erum við á rúntinum um L.A. með Leo og/eða Brad og hlustum á svala rokk- og sálartónlist í bílaútvarpinu.

Það er kannski í eðli útúrdúra að virðast tilviljanakenndir – þannig hefðu Vincent og Jules aldrei lent í „The Bonnie Situation“ í Pulp Fiction (1994) ef ekki væri fyrir óheppilega hraðahindrun – og þar kann einmitt þematískt viðfangsefni nýja verksins að vera að finna: Tilviljunin sem fyrirbæri, verufræðilegt spursmál og heimspekileg ráðgáta – og frelsandi frásagnartæki fyrir handritshöfund myndarinnar. Jafnvel þeir sem ekki hafa séð myndina vita margir hverjir að Charles Manson kemur við sögu, og Sharon Tate morðin. Eðlilegt væri að ætla í framhaldinu að þar væri jafnframt um frásagnarlega Pólstjörnu myndarinnar að ræða, að frásagnarformgerðin félli að rökvísi Manson-morðanna. En það er nú öðru nær. Ekkert sem viðkemur þessum hörmulega atburði kemur fyrir sjónir áhorfenda sem annað en helber tilviljun (má þar nefna hvernig Manson-fjölskyldan kynnist Cliff), og það hvernig endalokin spilast má líta á sem hápunkt þessarar tilviljanarunu. Spurningin sem vaknar að lokum er þó sú hvort tilviljanakenndur hliðarveruleiki Tarantino sé full yfirborðskenndur til að virka sem heild – hvort tilviljanirnar séu ekki lýtir á myndinni þótt þær kunni einnig að vera þematískt viðfangsefni hennar.

Lesendur verða hér að leyfa mér að líta aftur til áðurnefndrar Pulp Fiction og atriðisins þegar Vincent fer með Miu (Uma Thurman) á stefnumót, að skipan Marsellus Wallace (Ving Rhames). Mikið hefur verið skrifað um þetta lykilverk Tarantino og þar á meða um þessa senu, og hefur henni m.a. verið lýst sem „kvikmyndalegu þægindateppi“ (e. cinematic warm blanket), og er þar vísað til þeirrar þægilega baðslegu rólyndistilfinningar sem skapast. En þægindateppi sem slík eru jafnan tengd æskunni og örygginu sem börn finna fyrir í faðmi fjölskyldunnar, en glatast svo með fullorðinsárunum. Kvikmyndaleg rökvísi Once Upon a Time … in Hollywood ber allan keim af hugmyndafræði þægindateppisins, og það ber að mínu mati að skilja í samhengi við æskuár leikstjórans og þeirrar tilraunar hans til að snúa aftur til þeirra í sinni nýju mynd.

Once Upon a Time… in Hollywood gerist undir blálok hippatímabilsins; götur Los Angeles eru sneisafullar af klassískum amerískum bílum, útvarpsstöðvarnar spila ekkert nema klassísk rokk- og sálartónlist, og karakterarnir tala með hrynjandi og hreimum sem ríma við þessa veröld og þetta tímabil. Það má reykja inni á veitingastöðum, Playboy-óðalið er hápunktur hedónismans, og spaghettívestrar og hasarmyndir með klassískum Hollywood-stjörnum eru sýndar (á filmu) í öllum þeim fjölmörgu nú niðurrifnu bíóum Los Angeles sem Tarantino kortlagði í æsku sinni og endurskapar hér. Í sjónvarpinu eru sjónvarpsþættir bæði í lit og svarthvítu um löggur, kúreka og önnur klassísk góð- og illmenni.

Hljómar þetta kunnuglega?

Tarantino hefur loksins ákveðið að sviðsetja kvikmynd á tímabilinu sem honum hefur alla tíð verið hugleikið og vísað til í flestum sínum fyrri myndum. Bíómenning tímabilsins, bílarnir, þættirnir, töffaraskapurinn, tískan, talandinn – allt hafa þetta verið mikilvægir þættir í skírskotunarkerfi Tarantino. Hér eiga þeir hins vegar allir heima, þetta er þeirra eðlilega umhverfi og tímabil, ofanverður sjöundi áratugurinn. Og sjálfur var Tarantino ungur drengur á þessu tímabili og hefur lýst því í viðtölum hvernig hann á þeim tíma drakk inn í sig tíðaranda og menningu. Það er í þessum skilningi sem myndin sem heild vísar til senunnar með Vincent og Miu, hún er tilraun leikstjórans til að vefa saman ímyndir svo úr verði æskuteppið sem hann kann einmitt að hafa vafið um sig á sunnudagsmorgnum þegar hann horfði á þá sömu þætti og myndir og eru endurskapaðar hér. Once Upon a Time … in Hollywood er bernsku-öryggisteppið sem Tarantino þæfði í taugaveiklun þegar John Wayne var kominn í þann krappann og saklaust drengjahjartað fyrir framan sjónvarpið sló ört. Myndin er ástaróður hans til eigin fortíðar og æsku og tilraun til þess að gera þann tíma ódauðlegan. Myndin er gerð til þess að færa okkur í draumóralandslag Tarantinos, þar sem allar myndir eru sýndar á filmu, þar sem allar stelpur eru berfættar og allir bílarnir eru kaggar. Myndin er draumur um raunveruleika sem auðvitað var aldrei til, í öllu falli hvergi annars staðar en í huga drengsins sem fór að vinna á vídeóleigu og varð svo konungur bíósins, dálítið eins og Tarzan varð konungur frumskógarins.

Vefsvæði Engra stjarna er hér.[/cs_text]

Um höfundinn
Heiðar Bernharðsson

Heiðar Bernharðsson

Heiðar Bernharðsson er með BA próf í kvikmyndafræði og meðlimur Engra stjarna.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

158000361

158000362

158000363

158000364

158000365

158000366

158000367

158000368

158000369

158000370

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

208000381

208000382

208000383

208000384

208000385

208000386

208000387

208000388

208000389

208000390

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000136

228000137

228000138

228000139

228000140

228000141

228000142

228000143

228000144

228000145

228000146

228000147

228000148

228000149

228000150

228000151

228000152

228000153

228000154

228000155

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701