Um sársauka

[cs_text]Eiríkur Guðmundsson: Ritgerð mín um sársaukann, Reykjavík: Benedikt bókaútgáfa, 2018, 270. bls.

Ég las ritgerð Eiríks Guðmundssonar um sársaukann um jólin. Strax á fyrstu blaðsíðunum tók ágengt óöruggi að grafa um sig. Mín biðu 270 síður af þéttum texta sem teygðu sig út í aðsteðjandi myrkur, líkt og óupplýstur vegur á vetrarkvöldi. Ég var orðinn farþegi í aftursæti. Frammí sat Eiríkur dottandi en Klara undir stýri. Það var ekki mikið sagt eða spjallað. Út um framrúðuna sá ég hvít og gul strik þjóta inn undir húddið  „Nei, þau eru bara hvít. Við erum á Íslandi.“ (Ritgerð mín…, bls. 11). Upphafskafli bókarinnar greip mig strax frá byrjun og hreif mig með.

Textinn kippti um leið undan mér fótunum. Hann skapaði sömu tilfinningu og gerir vart við sig hjá flestum sem hafa bílpróf þegar þeir sitja aftur í smábíl sem ekið er greitt af ókunnum bílstjóra í myrkri að vetri. Ætli sé hált? Er farið að hríða? Fer hún ekki of hratt? Skyldi eitthvað gerast? Er eitthvað til að halda sér í? Það var einmitt þetta síðasttalda sem skapaði öryggisleysið. Í texta Eiríks er fátt til að styðjast við ólíkt því sem gerist í hefðbundnu íslensku skáldsögunni. Þar myndar epískur söguþráður öruggt rið meðfram veginum svo hangið sé í upphafssenu bókarinnar.

Svo tók að grípa um sig einhvers konar svimi líkt og bílveiki. Ég vissi ekki þá af hverju hann stafaði en ég sé það núna. Í upphafi er höfundurinn ekki á leið inn í sögu sína með lesandann í slagtogi heldur út úr henni. Bílferðin stefnir ekki þangað sem sagan gerist heldur til baka, heim, þegar öllu er lokið.

Öryggisleysið sem þessi sterka lesupplifun af fyrstu köflum ritgerðarinnar skapaði fólst nákvæmlega í þessu: Kem ég til með að halda þræði út í gegnum bókina? Hvað gerist ef ég man ekki hvar ég hætti síðast? Kem ég til með að halda þetta ferðalag út? Hætti ég þessu ekki bara? Í því sambandi skiptir máli að ég er af þeirri kynslóð lesenda sem ólst upp við að það væri bæði ódyggð og vesalmennska að nota bókamerki og að gefast upp á bók í miðju kafi. Hann var harður norðlenski skólinn í lestrarmálum á öldinni sem leið.

Svo hafði ég líka áhyggjur af Eiríki. Ég þekki hann betur sem rödd en rithöfund. Hann er óskorðaður meistari hins snarpa pistils. Enginn stendur honum á sporði í hvössum, efnismiklum, ádeiluþrungnum útvarpspistlum. Flutningurinn er líka öruggur og óborganlegur, ótrúlega mörg atkvæði á mínútu. Hver man ekki Eirík í Gufunni í miðju Hruninu? Ætli Jón Vídalín hafi verið einhvern veginn þannig í stólnum, til dæmis þegar hann úthelti sér yfir reiðinni? Efasemdir mínar í garð Eiríks þarna á jólanóttina fólust í að ég óttaðist að hann missti stjórnina á textamassanum. Það er ábyrgðarhluti að leggja upp með hátt í þrjú hundruð blaðsíðna bók og róa henni í land án „sögu“. Það er jú ótúlega ríkt í okkur Íslendingum að í öllu þurfi að felast samfelld „saga“ eins og hryggsúla í hrossi. Hvernig var ekki talað um Thor? Færi Eiríkur yfir strikið? Það gæti orðið pínlegt og í öllu falli stjörnuhrap í mínum huga.

Eftir því sem leið á hátíðin og lesturinn varð mér stöðugt ljósar að Eiríki mundi ekki bregðast bogalistin. Við mundum báðir komast heilir heim. Í ritgerðinni um sársaukann leynast nefnilega ótalmörg leiðarhnoð sem fylgja lesendunum í síbreytilegum myndum og mynda misrauða þræði gegnum verkið. Eitt þeirra er tónlistin. Vísanirnar eru ótrúlega margar í lög og tónverk af ýmsu tagi. Sum þekkti ég en mörg alls ekki. Næst þegar ég les bókina ætla ég að liggja á Jútúb og láta músíkina mynda undirtón við lesturinn. Ég hef gert tilraun. Textinn og tónarnir falla ótrúlega saman og skapa oft ágenga heild.

Á sama hátt mynda heimsbókmenntirnar annað leiðarhnoð. Þar kemur græna rósin t.a.m. til sögunnar. Þessir þættir verksins sköpuðu hjá mér grun um að með hjálp ritgerðarinnar megi lesa og hlusta sig inn í menningarsögu sem skiptir raunverulegu máli og eykur þekkingu lesandans á samtímanum á alveg nýjan hátt, a.m.k. fyrir mig sem kem úr annarri átt að þessu öllu en Eiríkur.

En svo eru allt annars konar leiðarstef sem smám saman raðast saman í „sögu“ sem er samt rökkri og móðu hulin. Þetta er ættar- eða fjölskyldusaga þar sem lesandann grunar meira en hann skilur. Þar sem fleira er hálfsagt en fullsagt og þagað er yfir mörgu eins og í öllum fjölskyldum sem ganga gegnum súrt og sætt — eða kannski sárt.

Skýrasta leiðarhnoðið er þó kenndin sem nær tökum á lesandanum og heldur honum föstum, teymir hann síðu af síðu uns lestrinum er lokið og söknuðurinn tekinn við. Í seinni tíð hef ég sannfærst um það betur og betur að tilfinning eða kennd er mun traustari burðarbiti í listaverki, skáldsögu, kvikmynd eða líklega hverju sem er en „saga“. Sögunni hættir til að vera öll á yfirborðinu og hún gleymist hratt. Tilfinningin grefur hins vegar um sig í sálardjúpinu og fylgir lesandanum lengi. A.m.k. held ég að það verði nokkuð í að ég jafni mig af sársaukanum og hætti að velta honum fyrir mér eftir að hafa lesið ritgerð Eiríks Guðmundssonar um hann. Ég verð að segja alveg eins og mér finnst: Það er eitthvað ótrúlega heróískt yfir því að landa verki af þessu tagi á svona trúverðugan máta. Eríkur er mikill galdramaður hins ritaða ekki síður en talaða orðs.[/cs_text]

Um höfundinn
Hjalti Hugason

Hjalti Hugason

Hjalti Hugason er prófessor í kirkjusögu við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Hann hefur stundað rannsóknir á ýmsum sviðum íslenskrar kirkjusögu og kirkjuréttar en auk þess ritað um trú, samfélag og menningu á ýmsum vettvangi. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-0812

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

judi bola online

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

yakinjp

ayowin

mahjong ways

judi bola online

mahjong ways 2

10031

10032

10033

10034

10035

10036

10037

10038

10039

10040

10041

10042

10043

10044

10045

10101

10102

10103

10104

10105

10106

10107

10108

10109

10110

10221

10222

10223

10224

10225

10226

10227

10228

10229

10230

11000

11001

11002

11003

11004

11005

11006

11007

11008

11009

10111

10112

10113

10114

10115

10231

10232

10233

10234

10235

10236

10237

10238

10239

10240

11010

11011

11012

11013

11014

11015

11016

11017

11018

11019

10046

10047

10048

10049

10050

10051

10052

10053

10054

10055

10056

10057

10058

10059

10060

10116

10117

10118

10119

10120

10121

10122

10123

10124

10125

10126

10127

10128

10129

10130

10206

10207

10208

10209

10210

10211

10212

10213

10214

10215

10216

10217

10218

10219

10220

11020

11021

11022

11023

11024

11025

11026

11027

11028

11029

11030

11031

11032

11033

11034

9041

9042

9043

9044

9045

10061

10062

10063

10064

10065

10066

10067

10068

10069

10070

10131

10132

10133

10134

10135

10136

10137

10138

10139

10140

10196

10197

10198

10199

10200

10201

10202

10203

10204

10205

11035

11036

11037

11038

11039

11040

11041

11042

11043

11044

10011

10012

10013

10014

10015

10016

10017

10018

10019

10020

10021

10022

10023

10024

10025

10026

10027

10028

10029

10030

10141

10142

10143

10144

10145

10146

10147

10148

10149

10150

10181

10182

10183

10184

10185

10186

10187

10188

10189

10190

10191

10192

10193

10194

10195

11045

11046

11047

11048

11049

11050

11051

11052

11053

11054

11055

11056

11057

11058

11059

10071

10072

10073

10074

10075

10076

10077

10078

10079

10080

10081

10082

10083

10084

10085

10151

10152

10153

10154

10155

10156

10157

10158

10159

10160

10161

10162

10163

10164

10165

10166

10167

10168

10169

10170

10171

10172

10173

10174

10175

10176

10177

10178

10179

10180

11060

11061

11062

11063

11064

11065

11066

11067

11068

11069

11070

11071

11072

11073

11074

10086

10087

10088

10089

10090

10091

10092

10093

10094

10095

10096

10097

10098

10099

10100

news-0812