„Konur að verki“: Viðtal við Þórhildi Þorleifsdóttur

[cs_text]Stella í orlofi var frumsýnd árið 1986 og viðtökurnar voru prýðilegar. Erfitt hefði þó á þeim tíma verið að sjá fyrir eða spá um þann sess sem myndin ætti að lokum eftir að skipa í þjóðarvitundinni. Stella í orlofi hefur reynst tveimur kynslóðum endalaus gleðigjafi og stuðvél og er önnur af tveimur íslenskum költmyndum níunda áratugarins (hin er auðvitað Með allt á hreinu), sígild orðin í krafti líflegrar atburðarásar, hnyttins díalógs og óviðjafnanlegrar frammistöðu Eddu Björgvinsdóttur í titilhlutverkinu og Þórhalls Sigurðssonar í hlutverki hins drykkfellda Svía, Salomons.

Leikstjóri myndarinnar er Þórhildur Þorleifsdóttir en handritið skrifaði Guðný Halldórsdóttir, og fyrirtæki í hennar eigu, Umbi, framleiddi myndina. Burðarhlutverkið í myndinni er auðvitað Stella og fléttan öll hverfist um hressilegar ófarir hennar og þeirra sem í kringum hana eru, en frá þessu sjónarhorni sker myndin sig jafnframt frá flestum öðrum kvikmyndum níunda áratugarins (og þó nær væri leitað í tíma) hvað það varðar að konur leiða ferðina, þetta er mynd sem gerð er af konum um konu. Björn Þór Vilhjálmsson ræddi við Þórhildi um gerð þessarar ástsælu myndar, samstarfið við leikarana og hvernig það var að stíga út úr leikhúsinu og inn í kvikmyndaheima.

Það hefur löngum verið þyrnum stráður vegur að gera kvikmynd á Íslandi, ekki síst fyrir daga stafrænnar tækni. Hvernig kom það til að þú snerir þér að kvikmyndagerð um miðjan níunda áratuginn?

Það er einföld skýring á því. Guðný Halldórsdóttir hringdi í mig og bað mig að leikstýra Stellu í orlofi. Ég var aðstoðarleikstjóri Hrafns Gunnlaugssonar í Hrafninn flýgur (1984) og það var mín eina reynsla fram að þessu, auk nokkurra verkefna fyrir sjónvarp.

Á þessum tíma, eins og frægt er, var fólk að veðsetja húsin sín og fá venslaða til að slá víxla til að fjármagna myndir sínar. Gætir þú rætt örlítið hvernig innlenda bíólandslagið blasti við þér við gerð Stellu í orlofi? Hvernig var hún fjármögnuð?

Því miður get ég ekki svarað þessari spurningu. Ég kom ekki nálægt fjármögnun Stellu í orlofi. Það hvíldi á herðum UMBA.

Handrit myndarinnar er skrifað af Guðnýju Halldórsdóttur, og fyrirtæki hennar, Umbi, framleiðir myndina. Gætir þú aðeins rætt samstarfið milli ykkar?

Guðný afhenti mér fullskrifað handrit, en auðvitað lásum við það saman, ræddum innihald og atburðarás og ég gerði einhverjar tillögur um breytingar. Þær voru þó ekki stórvægilegar.

Svo er það annað, uppröðun sem þessi í helstu áhrifa– og valdahlutverk þekktist ekki – og þekkist vart enn – í íslenskri kvikmyndagerð. Þar á ég við, konur skrifa, leikstýra og framleiða (ásamt kannski öðrum í framleiðsluhlutverkinu) kvikmynd í fullri lengd, mynd sem fer í almenna dreifingu og nýtur vinsælda. Gætirðu aðeins rætt þessa dýnamík og mikilvægi, jafnvel í samhengi við myndina, sem óneitanlega virðist búin umtalsverðri feminískri undiröldu?

Ég held það hafi skipt sköpum að konur gengdu öllum lykilhlutverkum í gerð og framleiðslu Stellu í orlofi. Í fyrsta lagi hefði enginn karlmaður getað skrifað þetta handrit og líklega vandfundinn sá karlmaður sem hefði getað leikstýrt myndinni. Þ.e.a.s. það hefði þá orðið allt önnur mynd. Það þarf konur til að skilja „konur eins og Stellu“. Hún býr í öllum konum. Þessi útsjónarsemi og ráðsnilld er eitthvað sem konur þekkja vel. Atburðarás sem þær setja ekki í gang sjálfar, en bregðast við og gera gott úr. Konur eru reddarar af guðs náð. Dýnamíkin var því sú að allar konurnar sem að þessu komu skildu Stellu. Það þurfti engar útskýringar eða afsakanir.

Hvernig fór val á leikurum í myndina fram?

Handritið var skrifað með Eddu Björgvinsdóttur í huga. Það kom aldrei nein önnur til greina í það hlutverk. Það voru engar áheyrnarprufur (e. auditions), heldur ræddum við Guðný möguleika fram og aftur, vörpuðum fram hugmyndum, mátuðum leikara saman í huganum o.s.frv., þar til heildarmyndin var komin. Þá var haft samband við viðkomandi leikara og í einstaka tilfellum, af einhverjum ástæðum, gekk það ekki, en það var þá í smærri hlutverkum. Það kom sér auðvitað vel að ég hafði unnið með flestum leikurunum og þekkti þá því vel. Auðvitað var Guðný ekki ókunnug þeim heldur, þar sem hún hafði leikstýrt eða komið að áramótaskaupum og fleiru.

Hvað stendur uppúr, nú þegar þú lítur um öxl, varðandi gerð Stellu í orlofi? Gætirðu jafnframt rætt örlítið hvernig ákvarðanir um útlit myndarinnar og formræna áferð voru teknar?

Uppúr stendur náttúrlega gleðin og vinnusemin á tökustað. Það fannst held ég öllum þetta skemmtilegt og almenn ánægja með handrit, þannig að mannskapurinn hafði fulla trú á verkefninu. Vinnan með Eddu og Ladda er auðvitað mjög eftirminnileg, frjó og skemmtileg og er þá á engan hallað, þau voru jú „aðal“. Jafnframt er auðvitað eftirminnilegt að leikstýra stórum flóknum senum eins og afmælisveislunni og „síldarstemmingunni“ í laxasenunni, þegar lionsklúbburinn Kiddi var mættur á planið og flugstjórarnir gerðu árás.

Þannig senur verður að undirbúa og æfa mjög vel. Í raun þarf að „kóreógrafa“ atriði af þessu tagi í bak og fyrir og sjá til þess að allir viti nákvæmlega hvað þeir eru að gera á hverju augnabliki. Hitt væri svo rándýrt, það er að segja, að spinna frá senu til senu og treysta svo á klippingu. Það er heldur ekki víst að það skilaði tilætluðum árangri; framvindusamhengi (e. continunity) kynni til dæmis að skorta. Þarna bjó ég auðvitað af reynslu minni af stórum og flóknum leik– og óperusýningum þar sem tugir, ef ekki hundruðir, komu við sögu. Ég nálgaðist alla leikstjórnina eins og ég myndi gera í leikhúsi og svo var bara að filma það sem ég var í raun búin að ákveða. Þetta er líklega ólíkt því sem kvikmyndaleistjórar gera yfirleitt, en kannski skýringin á því hversu leikurinn er góður í myndinni og öll smáatriði skýr í persónusköpun og atburðarás.

Eðli málsins samkvæmt vinna leikstjóri og kvikmyndatökumaður náið saman. Ég held að ég hafi verið leiðandi í því samstarfi þar sem ég var í raun með senurnar úthugsaðar og tilbúnar, vissi hvernig stíl ég vildi hafa á útliti og leik og og lagði áherslu á að hann nyti sín. Ég gæti trúað að kvikmyndatökumanninum hafi þótt nóg um og er heldur ekki viss um að ég hafi skilað klippara mörgum kostum. (Hef í laumi haft gaman af því að sá ágæti kvikmyndaleikstjóri Louis Bunuel sagði að auðvitað væri hann búin að fullgera myndina í huganum. Hún yrði ekki til við klippiborðið.)

Stella í orlofi sló hressilega í gegn og hefur gert allar götur síðan. Hvernig var að njóta svona mikillar velgengni með þinni fyrstu mynd? Er eitthvað við viðtökurnar sem er sérstaklega eftirminnilegt, eða eftirlíf myndarinnar?

Það er auðvitað alltaf gaman að „slá í gegn“. Ég leiddi nú ekkert sérstaklega hugann að þeirri hlið að þetta væri fyrsta kvikmyndin mín. Ég naut mikillar velgengni í leikhús- og óperuheiminum og sá þetta allt í samhengi. Þrátt fyrir ólík form snýst þetta í höfuðdráttum um það sama. Að koma efni og innihaldi til skila eins vel og frekast er unnt. Ég geri það auðvitað með áherslum á leikhúsið, leikarana, stílinn o.s.frv. Líkt og ég myndi gera með hvert annað leikrit. Aðrir leggja auðvitað meira upp úr „myndmálinu“, en gleymum því ekki að það er líka viðfangsefni í leikhúsi. Auk þess er ég menntaður dansari, þannig að formtilfinning og myndbygging eru mér ekki framandi.

Varðandi viðtökurnar fóru þær náttúrlega fram úr björtustu vonum og vinsældir Stellu í orlofi með ólíkindum allar götur síðan. Auðvitað hef ég, og eflaust fleiri, reynt að finna skýringar á þessari ótrúlegu velgengni. Svörin liggja ekkert á lausu, enda hef ég oft sagt bæði varðandi Stellu og við önnur tilefni að sá sem hefði á reiðum höndum svör og skýringar væri búinn að krækja sér í Nóbelinn.  Auðvitað er ekki nein ein skýring, heldur súmma margra. Gott handrit, góðir leikarar sem var vel leikstýrt, fyndni og jafnvel örlítil spenna. (Grunnurinn er jú framhjáhald sem alltaf lúrir í bakgrunninum og hætta á að komist upp, sem hann auðvitað gerir að lokum.) Fullt af skemmtilegum karakterum og uppákomum og áfram mætti telja. En hvað ræður svo úrslitum?!?

Sjálf held ég að það hafi skipt sköpum – fyrir utan það sem áður er talið – að þarna voru konur að verki. Það kvað við annan og nýjan tón í  íslenskri kvikmyndagerð. Það hafa vissulega verið gerðar fleiri gamanmyndir sem hafa notið mikilla vinsælda, en það sem skilur Stellu frá þeim er að hún er aldrei „skrípó“. Absúrd – já, en innan ramma raunveruleika sem allir geta tengt við. Raunveruleikinn er oft  svo miklu geggjaðri en skáldskapur. Persónurnar eru margar ýktar, eins og vera ber, eins konar erkitýpur og enn má leiða líkur að því að allflestir geti tengt við þær og því í vissum skilningi gert grín að sjálfum sér – hlegið að sjálfum sér. Það finnst held ég öllum gott, ef það er græskulaust og einkennist af skilningi á því að lífið getur haft ótrúlegustu birtingarmyndir. Allt það sem „venjulegt fólk“ getur lent í! Flestir mæta uppákomum af ótrúlegu æðruleysi, takst á við það sem lífið færir og Stella er holdgervingur þess.

Var það aldrei freisting að feta áfram braut kvikmyndaleikstjórans?

Það hefði vissulega verið gaman, en slík tækifæri buðust bara ekki. Ég hafði ekki áhuga eða aðstæður til að geta „veðsett líf mitt“. Hafði þegar gert það tvisvar til að geta stofnað og rekið leikhópa, en nú voru komin fleiri börn og lífsbaráttan harðari. Því var þetta bara spurning um að vera í viðbragðsstöðu, en… síminn hringdi bara aldrei.

Ég held að þarna hafi skipt miklu máli að um var að ræða leikstjóra af kvenkyni. Karlmaður sem hefði náð sama árangri hefði verið kallaður aftur til starfa. Ég gæti nefnt dæmi um slíkt en læt ykkur eftir að geta í eyðurnar.[/cs_text]

Um höfundinn
Björn Þór Vilhjálmsson

Björn Þór Vilhjálmsson

Björn Þór Vilhjálmsson er dósent í almennri bókmenntafræði og kvikmyndafræði. Sérsvið hans eru skörun og samræða kvikmynda og bókmennta, tækni og menning, nýmiðlar af ýmsum toga, og íslensk kvikmyndasaga. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000516

118000517

118000518

118000519

118000520

118000521

118000522

118000523

118000524

118000525

118000526

118000527

118000528

118000529

118000530

118000531

118000532

118000533

118000534

118000535

118000536

118000537

118000538

118000539

118000540

118000541

118000542

118000543

118000544

118000545

118000546

118000547

118000548

118000549

118000550

118000551

118000552

118000553

118000554

118000555

118000556

118000557

118000558

118000559

118000560

118000561

118000562

118000563

118000564

118000565

118000566

118000567

118000568

118000569

118000570

128000581

128000582

128000583

128000584

128000585

128000586

128000587

128000588

128000589

128000590

128000591

128000592

128000593

128000594

128000595

128000596

128000597

128000598

128000599

128000600

128000601

128000602

128000603

128000604

128000605

128000606

128000607

128000608

128000609

128000610

128000611

128000612

128000613

128000614

128000615

128000616

128000617

128000618

128000619

128000620

128000621

128000622

128000623

128000624

128000625

128000626

128000627

128000628

128000629

128000630

128000631

128000632

128000633

128000634

128000635

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

208000251

208000252

208000253

208000254

208000256

208000257

208000258

208000259

208000260

208000261

208000262

208000263

208000264

208000265

208000266

208000267

208000268

208000269

208000270

208000271

208000272

208000273

208000274

208000275

208000276

208000277

208000278

208000279

208000280

208000281

208000282

208000283

208000284

208000285

208000286

208000287

208000288

208000289

208000290

208000291

208000292

208000293

208000294

208000295

208000296

208000297

208000298

208000299

208000300

208000301

208000302

208000303

208000304

208000305

208000306

208000307

208000308

208000309

208000310

news-1701