„Konur sem haga sér vel komast ekki á spjöld sögunnar“ – eða hvað?

[cs_text]Nýlega las ég þekkta bók bandaríska sagnfræðingsins Laurel Thatcher Ulrich, Well-Behaved Women Seldom Make History, sem út kom árið 2007. Ég hafði oft séð vísað til þessarar bókar og séð slagorðinu um þægu konurnar sem ekki komast á spjöld sögunnar bregða fyrir í ólíku samhengi.

Kápan á Vintage Books útgáfu bókar Laurel Thatcher Ulrich frá 2008. Bókin kom fyrst út 2007.

Bókin hefst á inngangskafla þar sem Ulrich lýsir því hvernig þessi litla setning í grein sem hún skrifaði árið 1976, um konur í Nýja-Englandi (nokkur fylki á norðausturströnd Bandaríkjanna) áratugina í kringum 1700, gekk í endurnýjun lífdaganna í nýju samhengi um miðjan tíunda áratug tuttugustu aldar. Konurnar sem Ulrich skrifaði um voru Púrítanar og héldu sig til hlés við trúarlegar athafnir og bænahald. Þær drógu hvorki vald guðs né karla í efa. Þær leituðu ekki eftir því, skrifar Ulrich 1976, að þeirra yrði minnst: „Og þannig hefur það heldur ekki verið. Konur sem haga sér vel komast sjaldan á spjöld sögunnar“ (xxviii). Markmið Ulrich var ekki að harma þá kúgun sem þessar konur bjuggu við heldur einmitt að færa þessum þægu konum sögu.

Þessi setning um þægar konur og söguna rataði svo eftir ýmsum leiðum inn í bækur og greinar og flæddi þaðan yfir á kaffikrúsir og stuttermaboli, límmiða á stuðara á bílum, segla á ísskápa, inn í lagatexta og jafnvel ljóð. Ýmsir kvennahópar gerðu slagorðið að sínu til þess að réttlæta einhvers konar „óþekkt“ og einstaklingar fundu styrk í þessum orðum í sínum einkauppreisnum gegn ríkjandi hefðum og gildum sem þrengdu að þeim í lífi og starfi. Ulrich segist ekki alltaf sátt við það samhengi sem slagorðið hefur verið sett í en við það er ekki ráðið. Það á sér sína eigin tilveru. Ulrich hefur aftur á móti safnað bréfum og upplifunum frá ýmsum þeim sem hafa staðið fyrir dreifingu slagorðsins eða nýtt það á einn eða annan hátt. Og hún notaði það í kennslu í femínískri sagnfræði þar sem spurningunni um það hvað þyrfti til þess að komast á spjöld sögunnar var velt upp.

Þurftu konur að vera þægar eða óþægar til þess að verða hluti af (hinni karllægu) sögu? Til þess að brjóta blað? Stundum er svarið ekki augljóst. Ulrich bendir til dæmis á Rosu Parks, sem við þekkjum öll sem konuna sem neitaði að standa upp fyrir hvítum karlmanni í strætó í Montgomery, Alabama, árið 1955. Aðrar konur höfðu neitað að gefa eftir sæti sitt löngu á undan Parks en þær þóttu ekki henta sem andlit baráttunnar fyrir jafnrétti svartra og hvítra. Rosa Parks var nefnilega þæg — nema kannski í þetta skipti. Hún átti sér ekki pólitíska sögu, var ekki þekkt fyrir sérstakan uppreisnaranda. Hinar stúlkurnar voru aftur á móti ýmist óþekkar eða áttu vafasama ættingja. Ein átti til dæmis pabba sem var fylliraftur, önnur, eldklár, átti óskilgetið barn (einstæð móðir á nútímalegra máli). Hvað er Rosa Parks þá? Þæg eða óþekk? Slagorðið um að þægar konur komist ekki á spjöld sögunnar á sér nefnilega ýmsar hliðar og sagnfræðingar vita að söguna og atburði hennar, og gerðir fólks, er hægt að túlka á ýmsa vegu. Sagan er sögð á ýmsa vegu, eins og Ulrich minnir á í inngangi bókarinnar, og sumir „búa vísvitandi til sögu, aðrir fyrir slysni“ (xxxiii). Þannig, segir Ulrich, klífa sumir fjöll, varpa sprengju, eða neita að víkja úr sæti. Eða „búa til sögu“ (e. make history) með því „að halda dagbók, skrifa bréf eða sauma út upphafsstafi á línlök“ (xxxiii).

Ulrich þekkir einmitt vel til hversdagslegra heimilda á borð við sendibréf og dagbækur og hversu mikla þýðingu þær hafa fyrir sagnfræðina og skilning okkar á fortíðinni. Árið 1990 gaf hún út bókina A Midwife’s Tale: The Life of Martha Ballard, based on Her Diary, 1785–1812, en þar var sögð saga ljósmóðurinnar Mörthu Ballard, sem hélt dagbók í 27 ár. Á þessum tíma tók hún á móti 816 börnum, ræktaði lækningajurtir í bakgarðinum, fæddi og ól upp sín eigin börn. Úr þessari einstöku heimild varð til margverðlaunuð metsölubók, hún hlaut m.a. hin virtu Pulitzer-verðlaun í flokki fræðirita. Þannig getur hin hljóðláta rödd og hið smáa stundum náð í gegn í sagnritun sem annars einkennist oft af hávaða og látum. Eða eins og Ulrich skrifar: „Sagan er samtal og stundum öskurkeppni samtíðar og fortíðar þótt raddirnar sem okkur langar mest að heyra séu oft vart greinanlegar“ (xxxiii).

Bókin með þennan margræða titil um að þægar konur komist ekki á spjöld sögunnar fjallar einmitt um raddir sem oft hafa verið lítt greinanlegar. Ulrich segist með henni gera tilraun til þess að „búa til sögu“ auk þess sem hún kanni „hvernig og undir hvaða kringumstæðum konur hafi búið til sagnfræði“ því hún hafi áhuga á „því sem konur gerðu í fortíðinni, hvernig gerðir þeirra voru skráðar, og hvernig síðari kynslóðir mundu þær“ (xxxiii-xxxiv). Markmið hennar er ekki að sanna eða afsanna slagorðið góða heldur „sýna fram á samtvinnun samtíðar og fortíðar í því hvernig sagan [sagnfræði] verður til.“

Christine de Pizan og dyggðirnar Skynsemi, Ráðvendni og Réttlæti byggja borg kvennanna. Myndin er tekin úr einu handritanna sem varðveitt eru af bók Pizan, Le Livre de la Cité des dames, og skoða má á þessari vefsíðu (World Digital Library): https://www.wdl.org/fr/item/4391/

Til að segja þá sögu valdi Ulrich þrjú verk, þrjá klassíkera vestræns femínisma, sem útgangspunkta. Þetta eru bók hinnar fransk-ítölsku Christine de Pizan, The Book of the City of Ladies, sem kalla mætti Bókina um borg kvennanna, frá 1405. Endurminningabók bandarísku kvenfrelsisbaráttukonunnar Elisabeth Cady Stanton, Eighty Years and More, eða Áttatíu ár og gott betur, sem kom út árið 1898. Og loks margfræg bók ensku skáldkonunnar Virginiu Woolf frá 1929, Sérherbergi (A Room of One’s Own), sem út kom í íslenskri þýðingu Helgu Kress árið 1983. Allar þessar konur skrifuðu sagnfræði á einn eða annan hátt; allar nýttu þær sagnfræði, söguna, til þess „að skilja eigið líf“ (xxxiv).

Christine de Pizan var fædd á Ítalíu 1364 en ólst upp við frönsku hirðina í París þar sem faðir hennar var læknir. Hún hlaut óvenjugóða menntun en giftist ung. Eftir að hún varð ekkja hálfþrítug, með ung börn, fór hún að vinna fyrir sér sem skrifari handrita/bóka (kannski er rétt að minna á að á þessum tíma var prentverkið í burðarliðnum og bækur enn handskrifaðar). Og hún fór að skrifa sínar eigin bækur. Árið 1405 kom „út“ bók hennar um borg kvennanna. Hún hefst á því að kona grípur bók úr hillu og fer að lesa. Sú reynist mikið kvenhatursrit, eins og títt var um trúar- og heimspekirit á þessum tíma. Söguhetjan verður miður sín yfir því hvaða mynd er dregin upp af konum og þar sem hún lætur hugann reika um þessi mál birtast henni þrjár konur í líki jafnmargra dyggða sem segjast ætla að sýna henni að þessir kvenhaturs(karl)höfundar hafi rangt fyrir sér. Þær segja að ráðist sé að konum með slúðri og illgirni úr öllum áttum og tími sé til kominn að grípa til varna. Söguhetjan (Pizan), undir leiðsögn dyggðanna, byggir því frá grunni táknræna borg með sögum af kvenhetjum og heilögum meyjum, bæði goðsögulegum og raunverulegum sögulegum persónum. Þannig verður til óvinnandi borgvirki verðugra kvenna. Um þetta má lesa í bók Ulrich en einnig hjá Mary Spongberg, Writing Women‘s History since the Renaissance (2002) og auðvitað í Christine de Pizan, The Book of the City of Ladies. Mitt eintak er þýðing úr frönsku og inngangur eftir Rosalind Brown-Grant, Penguin útgáfa frá 1999. Sagt er frá Christine de Pizan og verkum hennar, einkum Bókinni um borg kvennanna, í flestum ritum um sagnaritun kvenna fyrr á öldum, en bókin er jafnan talin fyrsta alvöruatlaga konu að því að skrifa kvennasögu. Þarna var hún í formi frásagna og æviþátta (dyggðugra) kvenna sem hægt var að spegla sig í.

Það er svolítið skemmtilegt, í ljósi splunkunýrrar kvikmyndar um Ofurkonuna (Wonder-Woman), að Ulrich kýs að ræða sérstaklega um Amasónurnar í framhaldi af bók Pizan (en þar er fjallað um Amasónur) og leiðir þá umfjöllun áfram inn í sögur af ýmis konar kven(ofur)hetjum. Þar koma til dæmis við sögu konur sem rufu mörk hins karllega og kvenlega, villtu á sér heimildir árum og jafnvel áratugum saman – þóttust vera karl. Ein endaði sem heilög meyja fyrir vikið. Aðrar voru brenndar á báli. Og svo kemur Ofurkonan sjálf fram á fimmta áratug 20. aldar og gengur í endurnýjun lífdaganna sem femínískt tákn á forsíðu MS-magazine (undir ritstjórn Gloriu Steinem) árið 1972. Svo má nefna að bandaríski sagnfræðingurinn Jill Lepore gaf út bókina The Secret History of Wonder Woman árið 2014, og hefur fengið góðar viðtökur.

Elisabeth Cady Stanton (1815–1902) er stórnafn í sögu bandarískrar kvennasögu og henni bregður fyrir á síðum íslenskra blaða um aldamótin 1900. Endurminningar Stanton, Áttatíu ár og gott betur, komu út árið 1898 en fáeinum árum fyrr hafði komið út svokölluð Kvennabiblía (The Women’s Bible) þar sem Stanton gagnrýndi kirkjuna og hefðbundna karllæga biblíutúlkun harðlega (Arnfríður Guðmundsdóttir fjallaði um Kvennabiblíuna í íslensku samhengi í bókinni Kvennabaráttan og kristin trú, 2009). Eins og nærri má geta féll slík gagnrýni ekki í kramið hjá öllum og segir Ulrich að endurminningum Stanton hafi verið ætlað að milda (árangurslaust) afstöðu fólks til hennar. Í bókinni Áttatíu ár og gott betur segir Stanton frá æsku sinni og uppeldi, hvað mótaði afstöðu hennar til kvenfrelsis strax á unga aldri. Hún lýsir stöðu kvenna og réttindaleysi, einnig því hvernig hún varð eindregin baráttukona gegn þrælahaldi. Þótt frásagnir Stanton séu það sem Ulrich kallar „ömmulegar“, þ.e. svolítið sætar og skemmtilegar, mynda þær „frásögn af hreyfingu til sigurs, frá fráfræði til sjálfsþekkingar og frá því að vera öðrum háð til sjálfstæðis“ (25). Ulrich tengir svo frásagnir af enn fleiri konum við bók Stanton – til dæmis af kvenstrokuþrælum.

Í Sérherbergi skrifar Woolf að væri tekið mark á því sem karlmenn skrifuðu um konur í bókmenntum mætti ætla að þær væru margbreytilegar og mikilvægar persónur, rétt eins og karlmenn. En þá tekur við þessi undarlega þverstæða. Veruleikinn er annar. Myndin er af bls. 64 í Sérherbergi eftir Virginu Woolf, í þýðingu Helgu Kress frá 1983.

Virginu Woolf (1882–1941) þarf varla að kynna, þessa stórkostlegu skáldkonu. Í Sérherbergi tekur Woolf ekki aðeins á stöðu kvenna í heimi bókmennta heldur einnig sagnfræði þar sem hún lætur hinn karllæga heim háskólanna heyra það. Í sagnfræðiritum British Museum (þar sem Woolf eða söguhetja hennar Mary Beaton ætlaði að finna „sannleikann“) fann hún harla lítið um sögu kvenna. Smávegis var í nýlegu verki G. M. Trevelyan, sem var vel þekktur sagnfræðingur og höfundur margra sagnfræðirita. Og svo var þessi undarlega þverstæða, sem Woolf lýsir svo vel í kaldhæðnum texta: Konan „fyllir ljóðabækurnar spjaldanna á milli; en í sögunni er hún næstum ekki til“ (64). Í raunveruleikanum, eins og Woolf les út úr verki Trevelyan, voru þær „lokaðar inni, barðar og þeim hrint um herbergin“ (64). „Konuna“ fann Woolf heldur ekki „í nokkru safni sagnaþátta … Hún skrifar aldrei ævisögu sína og heldur sjaldan dagbók; það hafa ekki varðveist eftir hana nema örfá bréf. Hún skildi ekki eftir sig nein leikrit eða ljóð sem við getum dæmt hana af“ (66). Og þó. Konur voru þarna í bakgrunninum, eins og Woolf bendir á: „Því að maður kemur oft auga á þær í frásögnum af lífi stórmennanna, þar sem þær skjótast í bakgrunninum og leyna, finnst mér stundum, bendingu, hlátri eða jafnvel tári“ (66). Eins og frægt er velti Woolf upp þeirri spurningu hvað orðið hefði um systur Shakespeares, hafi hún verið til og búið yfir sömu hæfileikum og hann. Stutta svarið er að hún hefði endað í ótímabærum dauða, hrakin og smáð. Ulrich skoðar aftur á móti dætur Shakespeaears, raunverulegar dætur hans, Judith og Súsönnu, og notar þær sem kastljós á sögu kvenna í Englandi á 16. og 17. öld þar sem raddir kvenna birtast í heimildum, ýmist vegna þess að þær voru „þægar“ eða „óþægar“.

Þannig notar Ulrich þessi þrjú þekktu verk til þess að draga fram áhrifaríkar sögur af konum, bæði þeim sem hljóma hátt og snjallt í gegnum heimildirnar og líka hinum sem birtast eins og fjarlægt bergmál, þessar sem Woolf sá skjótast um í bakgrunninum.

Bók Ulrich er hluti af þeirri endurskoðun sem fram hefur farið á sagnaritun nú undanfarna tvo áratugi eða svo, ekki bara karllegri sagnaritun þjóðríkja heldur einnig femínískri sagnaritun, sem lengi vel var blind á það sem áður hafði verið skrifað um konur og sögu kvenna. Eða, eins og bent hefur verið á, þá höfnuðu fræðikonur nýju kvennahreyfingarinnar að einhverju leyti eldri tegundum af sagnaritun kvenna sem gamaldags og ófaglegri. Um þetta hefur meðal annars verið fjallað í Bonnie G. Smith The Gender of History. Men, Women, and Historical Practice, sem kom fyrst út árið 1998 og er grundvallarrit fyrir þá sem rannsaka sagnaritun kvenna. Þar fjallar hún á áhrifaríkan hátt um tilurð nútímasagnfræði á nítjándu öld og útilokun kvenna frá fagsviðinu.

Eins og Ulrich sýnir vel í bók sinni verður sagan líka til út frá lífi og störfum „þægra“ kvenna (32). Hún bendir réttilega á að það séu ekki bara kynjahlutverkin sem slík sem hafi komið í veg fyrir sýnileika kvenna heldur sagan sjálf sem hefur ekki tekist sérlega vel upp í því að fjalla um þá sem störfuðu innan vébanda heimilis eða voru að mestu bundnir sama stað. Það er ágætt að enda á lokaorðum Ulrich sjálfrar: „Konur sem haga sér vel búa til sögu þegar þær gera hið óvænta, þegar þær skapa og varðveita vitnisburði, og þegar síðari kynslóðir láta sig þær varða“ (229). Enda snýst „sagan ekki bara um það sem gerist í fortíðinni heldur hvað síðari kynslóðir kjósa að gera úr henni“ (50).[/cs_text]

Um höfundinn
Erla Hulda Halldórsdóttir

Erla Hulda Halldórsdóttir

Erla Hulda er dósent í kvenna- og kynjasögu við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands.

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

Mix Parlay


yakin jp

yakin jp

yakin jp

rtp yakinjp

yakinjp

Togel Online Resmi

pola ritme turbo stop go rahasia sopir angkot cuan 95 juta

strategi kode kuno petugas arsip bongkar rahasia 120 juta otomatis

karyawan minimarket temukan jam hoki pola tap cepat saldo meledak

trik tahan putar penjual mainan cuan 78 juta tanpa boncos

analisis frekuensi wild tukang fotokopi berbuah jackpot ratusan juta

timing free spin anti rungkad kunci kemenangan maksimal

pola step bet mikro desainer interior jaga profit stabil 65 juta

strategi gacor juru parkir manfaatkan jam sepi raih big win

ahli kopi reset modal cerdas saat multiplier drop wd pasti

kombinasi bet anti zonk pelayan restoran menu kombo hasilkan 110 juta

deteksi server hoki montir ac bawa pulang maxwin sebelum siang

ritme putaran beruntun guru ngaji pecahkan jackpot x500

pola turbo jeda pedagang kain kelola volatilitas tetap untung

taktik push berjenjang skema 3 2 1 barista kafe cuan 82 juta

manajemen dana anti rugi penjahit jas modal kecil untung besar

pola simbol berbaris petani padi ciptakan combo wild raksasa

kondektur bus uji frekuensi scatter akurat wd 135 juta

trik tumpuk wild pola sisir vertikal tukang cukur bonus berantai

sinkronisasi jari dan rtp teknisi lift profit tetap melejit

deteksi akurat server rungkad penjaga toko anti boncos total

kombinasi jam hoki dan pola khusus pedagang buah anti zonk x1000

mahasiswi desain mode pola putaran bintang paling gacor auto maxwin

penjual hewan trik scatter emas jitu cuan 450 juta sekejap

ahli geologi temukan urutan permata jackpot 85 juta kaya mendadak

seniman tato pahami ritme jarum pola putaran cepat maxwin tanpa batas

nelayan malam pola penyebaran hitam viral waktu hoki terbongkar

admin medsos filter real time analisis akurat rtp live tembus x500

strategi sultan agen properti fitur spin turbo cuan cepat anti rugi

petugas keamanan pola anti rungkad saat server padat wd aman

manajemen risiko saldo besar sopir truk logistik sebelum pecah maxwin

konsultan pajak pola penggandaan profit tanpa limit cuan fantastis

akuntan publik deteksi akurat waktu terbaik free spin auto sultan

buruh pabrik lacak mesin panas jam hoki terbaru pola spin jebol maxwin

karyawan bank uji skema kredit cepat kuasai fitur beli putaran anti zonk

juru masak deteksi bumbu rahasia kombinasi bet anti zonk hadiah x500

pedagang pulsa cadangkan saldo dana mini recovery anti boncos total

teknisi listrik trik petir x500 anti rungkad bawa pulang maxwin besar

pekerja konstruksi fondasi step up bet anti ambruk jackpot beruntun

penjual tanaman hias siraman interval timing spin tumbuh jackpot ratusan juta

nelayan pagi strategi ikan hoki anti rungkad bawa pulang 150 juta

cleaning service reset modal cerdas saat multiplier mandek wd cepat

juru pijat refleksi pola putaran cerdas x1000 anti rungkad terbaru

strategi jam hoki terbaik penjaga kolam ikan cuan 120 juta sekejap

penulis novel gunakan plot twist analisis pola terbaru pasti untung

guru les musik skema nada 3 5 7 pola push bertahap tingkat pengembalian 99

pedagang kopi keliling pola putaran cerdas untung 80 juta seminggu

montir mobil uji sprint spin 15 menit cetak big win cuan 90 juta

reset modal cerdas sapu bersih cleaning service wd cepat

penjaga toko buku uraikan indeks simbol free spin naikkan untung 50 juta

teknisi drone pola stabil bet terbang rendah pecah maxwin 800 juta

desainer grafis grid tempo pola turbo pause jaga volatilitas cuan x1000

penjual emas strategi sultan kombinasi spin cerdas anti boncos total

tukang sayur pola 3 baris wild emas modal 50 ribu langsung sultan

koki restoran deteksi bumbu rahasia kombinasi bet anti zonk 400 juta

pedagang asongan trik putaran maut 9 jitu scatter emas nembak

petugas pemadam kebakaran deteksi server panas pecah jackpot 750 juta

sopir taksi online buktikan cuan besar pola simbol khusus biru jaminan wd

tukang kebun raup ratusan juta analisis pola anti rungkad auto sultan

pegawai negeri ubah nasib trik buy spin cerdas perkalian x1000 berkali kali

pemuda desa buktikan pola 7 baris wild biru raup 950 juta tidak masuk akal

karyawan swasta 650 juta pola lonceng emas mahjong ways 2 scatter hijau

ibu rumah tangga x1000 sweet bonanza analisis maxwin

mahasiswa 888 juta pola bintang jatuh wild emas starlight princess

pemain medan pola batu petir gates of olympus jackpot 15 miliar

tukang ojek waktu emas scatter 5 baris wild west gold

pebisnis 788 juta pola keberuntungan game dewi fortuna x500

sopir ojol rahasia mahjong ways 1 spin otomatis

tukang sayur pola simbol khusus sugar rush cuan 90 juta

fotografer freelance shutter pace vs rtp gates of olympus wd konsisten

penata rias layer wild starlight princess bonus berantai auto jackpot

operator pabrik shift malam cooldown 7 10 profit maksimal

pedagang ikan kelola gelombang multiplier tarik profit aman anti boncos

petugas keamanan cek area gelap pola anti rungkad wd terjamin

karyawan toko pola 4 simbol merah kemenangan puncak bocoran resmi

pemain bali bongkar jam hoki wild emas ajaib auto sultan 999 juta

mahasiswa kedokteran taktik scatter emas kombo liar cuan 180 juta

ibu rumah tangga kaya raya pola ikan hoki scatter hijau terbukti akurat viral

pemuda desa mengubah nasib kisah bayaran x100 modal receh cuan maksimal

pemain jakarta berhasil trik spin turbo kemenangan puncak 1 miliar

pedagang ikan gelombang multiplier profit mahjong ways sebelum drop

auto sultan strategi gol juventus 750 juta trik ampuh

cuan mendadak pola kemenangan roma 650 juta tukang kopi fenomenal

starlight princess pola bet kecil wd trik bintang x200 beruntun

stop rungkad rtp live habanero terbaik pola putaran otomatis

mahjong ways 3 pola scatter hitam bocor analisis maxwin 777 juta

wild west gold jackpot miliar slow spin 3 baris emas kaya mendadak

gates of olympus pola batu petir x500 tersembunyi mahasiswa maxwin

aztec gems pola quick spin cuan 100 juta tanpa rungkad anti buntung

koi gate fenomena wild gold trik manajemen modal mini jackpot 95 juta

sweet bonanza pola permen bergaris mega jackpot jam hoki buy spin

starlight princess wild emas berantai gamer profesional cuan 170 juta

mahjong ways 2 kunci utama wd trik spin santai pegawai minimarket

bukan isapan jempol rtp live pragmatic play malam ini pola bet efektif

the dog house megaways maxwin instan sopir ojol ubah nasib

gates of olympus pola petir merah terbukti akurat jam gacor jitu

wild west gold scatter biru viral bet naik turun cuan 60 juta

sweet bonanza pola permen manis x500 anti rungkad ibu beli mobil

mahjong ways 1 rahasia kuno pola spin manual jebol jackpot

starlight princess petir bintang x100 tiap jam pola putaran cerdas

aztec bonanza cuan maksimal taruhan minimalis pekerja pabrik 280 juta

koi gate trik simbol hoki tercepat pola spin turbo 15 kali auto jackpot

klaim jackpot joker jewels malam ini trik jam hoki mahasiswa cuan x100

tukang cukur teknik spin halus mahjong ways anti boncos

terapis pijat pola bet mahjong ways mengalirkan jackpot

pilot drone atur batas rugi mahjong ways aman

arsitek metode buy free spin mahjong ways 2 stabil modal

kasir baca pola simbol mahjong ways turbo spin

resepsionis transisi spin mahjong ways 4 manual ke auto

programmer kode pola binary ritme bet mahjong ways 3

pustakawan pilih jam hoki mahjong ways royal

sales timing tarik dana mahjong ways sebelum drop

montir kapal selam batas maksimal putaran mahjong ways 1

mahjong ways 2 pola wild berantai tukang ojek mega jackpot

starlight princess anti rungkad petir bintang x1000 wd pasti

stop boncos wild west gold buy spin cerdas karyawan cuan 90 juta

maxwin pengali x1000 sweet bonanza terbaru

waktu emas wild west gold scatter 5 baris

pola sayap kupu kupu mahjong ways 3 wd pasti

strategi bet stabil gerbang ikan koi rtp 99

pola bintang jatuh princess starlight 888 juta

trik putaran turbo permen manis cuan x500

petir biru x500 olympus waktu gacor terkini

pola sinar bulan putri bintang jackpot instan

jam keberuntungan harta karun aztec 400 juta

pola 4 simbol merah gerbang kaca terbaru

jackpot 999 juta gold bonanza spin cerdas

strategi naga hitam raja kerbau scatter wild

pola mekanik emas hoki nexus untung besar

maxwin simbol biru emas koboi liar terjitu

analisis rtp langsung jam gacor slot pragmatic

koi gate viral pola ikan tersembunyi pemuda desa maxwin 180 juta

aztec gems maxwin trik spin manual 5 detik jackpot 70 juta

naga emas mahjong ways 3 pola bet kecil cuan miliar

joker jewels anti zonk strategi bet minimalis menang 99 persen

sweet bonanza xmas pola scatter kombo ibu rumah tangga 200 juta

gates of gatot kaca pecah analisis jam hoki sopir taksi x500

the dog house mega jackpot pola spin turbo pelajar sma 110 juta

mahjong ways scatter kombo gila teknik wild emas 420 juta

tercepat pola putaran maut starlight princess x500 nonstop

wild west gold gacor malam ini scatter emas anti rungkad sultan

koi gate pola naga biru terbongkar rtp 98 persen anti boncos

kisah pedagang sayur maxwin 150 juta pola bet stabil aztec bonanza

mahjong ways 2 pola naga hitam viral jackpot 600 juta otomatis

petir biru x1000 meledak jam gacor terbaru gates of olympus

sweet bonanza rahasia multiplier emas waktu hoki auto sultan

starlight princess anti rungkad rtp live 98 pola gacor

aztec gems trik bet minimalis jackpot 90 juta

rahasia sultan trik spin cepat the dog house maxwin

analisis pg soft pola spin cerdas mahjong ways 3 jackpot

kisah viral karyawan toko cuan 75 juta pola habanero anti rugi

panduan rtp slot pyramid bonanza kemenangan 99 persen

power of thor megaways trik gelegar x500 pola profesional

modal receh cuan maksimal pola great rhino megaways hoki

analisis jam hoki pragmatic pola spin normal jackpot

pola scatter hitam gates of olympus viral waktu hoki zeus

rahasia tersembunyi joker jewels trik keuntungan 50 juta

bocor tuntas analisis persentase menang sweet bonanza xmas

pola rahasia mahjong ways 1 sopir ojol cuan miliaran spin otomatis

jebol jackpot ratusan juta pola scatter merah wild west gold

strategi sultan trik spin turbo gems bonanza

pola gajah wild biru great rhino kaya mendadak

panduan rtp live aztec gems trik anti rungkand

bocoran pola scatter dog house anti boncos

trik buy feature buffalo king megaways x500

pola wild komplit madame destiny megaways maxwin

strategi anti gagal sugar rush tercepat wd

jam gacor poseidon megaways perkalian akurat

pola scatter koin money train 3 cuan menggila

taktik pola scarab emas legacy of dead receh untung

strategi putaran maut wild kraken release the kraken

Suara Cilok Scatter

Jam Hoki Petani Kopi

Gerakan Kipas Sate

RTP Wild West Gold

Teknik Tambal Ban

Prediksi Real Madrid

Manchester City vs Bournemouth

Barcelona vs Elche

Arsenal vs Burnley

Man United vs Forest

The Dog House Megaways Viral

Psikologi Warna Candy Bonanza

Mitos vs Fakta Justice League

Trik Skip Intro Playboy Gold

Moon Princess 1000 Cetak Rekor

Pola Triple Hot Hot Fruit

Zeus Howling Thunder CQ9

Pola Efisien Wild Safari

Strategi Ritme Dog House

Mekanik Rahasia Candy Bonanza

Prediksi Liverpool vs Aston Villa

Derby London Chelsea vs Spurs

Taktik Atletico vs Sevilla

Expected Goals Haaland

Analisis 15 Menit Terakhir

Analisis Mahjong Ways 3

Pola Ngantuk Mahjong Ways

Ritual Kucing Hitam

Taktik Rahasia RTP

Panduan Tukang Parkir

Pep Guardiola City

Arsenal vs Burnley

Tottenham vs Chelsea

Derby London Chelsea Spurs

Trik Menang Pragmatic

Analisis Data Akurat Mahjong Ways

Pola Ngantuk Satpam Mahjong Ways

Ritual Kucing Hitam Mahjong Wins

Taktik Rahasia Pola RTP Jember

Panduan Spin Turbo Tukang Parkir

Sistem Xavi Anti Kebobolan Barca

Kontroversi Kartu Merah Derby London

Filosofi Sepak Bola Modern London

Prediksi Liverpool vs Aston Villa

Statistik Clean Sheet Barcelona Elche

Mode Hemat Data Scatter

Filosofi Ngopi Hitam Pro

Pola Spin Tukang Ojek

Pola Scatter Koi Gate

Taktik Cuci Piring Spin

Misteri Anfield Liverpool

Arsenal vs Burnley 22 Menit

Pelatih Tertekan Ten Hag

Ketergantungan Gol Madrid

Tottenham vs Chelsea Modern