Nútímabókmenntafræði í fullu fjöri

[cs_text]
1.
Úlfhildur Dagsdóttir
Sjónsbók: Ævintýrið um höfundinn, súrrealisma og sýnir
JPV, 2016
„eins og Josh Toth bendir á þá er póstmódernisminn ekki horfinn þótt hann sé kannski dauður […]. Hann heldur áfram að virka sem ákveðið hreyfiafl“ (Sjónsbók, s. 323)

Þeir sem eru í tímaþröng að lesa ritdóma láta sér jafnan nægja að telja stjörnurnar eða, ef þeim er ekki til að dreifa, renna augum yfir lokaorðin þar sem dómurinn er felldur. Ég er ekki gefinn fyrir stjörnugjöf en mig langar að segja þetta strax: Sjónsbók: Ævintýrið um höfundinn, súrrealisma og sýnir eftir Úlfhildi Dagsdóttur er öndvegisrit. Hún varpar ekki bara nýju og heillandi ljósi á höfundarverk skáldsins Sjóns heldur einnig á íslenska bókmenntasögu, framúrstefnu og arfleifð póststrúktúralískra bókmenntakenninga á okkar dögum. Bókin er þar að auki skrifuð af þekkingu, andagift og ástríðu fyrir bæði skáldskap og fræðum.

2.
Allar götur síðan hefur Úlfhildur fjallað jöfnum höndum um nýrri og eldri verk Sjóns, bæði í ræðu og riti
Í októbermánuði síðastliðnum sendi Sjón frá sér skáldsöguna Ég er sofandi hurð, lokabindið í trílógíunni sem hófst með Augu þín sáu mig (1994) og var fram haldið með Með titrandi tár (2001). Allar bækurnar voru prentaðar á 562 blaðsíðum í einu bindi undir titlinum Codex 1962. Fræðirit Úlfhildar, sem er um það bil 100 síðum styttra, kom út svo að segja samhliða. Í viðtölum hefur skáldið rætt um langan meðgöngutíma verksins, hann spannar næstum aldarfjórðung, en með líkum hætti hefur Úlfhildur verið að móta efnið í sína bók enn lengur, eða allt frá því að hún skrifaði ritgerð um skáldsöguna Stálnótt  (1987) í námskeiði Ástráðs Eysteinssonar um módernisma veturinn 1988 til 1989. Tveimur árum síðar skrifaði hún lokaritgerð  í almennri bókmenntafræði um Sjón og erótík en efni úr henni birtist í tímaritunum Torfhildi og TMM í byrjun tíunda áratugarins.

Allar götur síðan hefur Úlfhildur fjallað jöfnum höndum um nýrri og eldri verk Sjóns, bæði í ræðu og riti, og hefur margt af því efni, eins og eðlilegt er, verið innlimað í Sjónsbók. Hér er þó ekki um greinasafn að ræða heldur heildstæða en um leið lagskipta rannsókn á ferli Sjóns frá því að hann kom fyrst fram sem súrrealískt skáld, aðeins 16 ára gamall, með ljóðabókinni Sýnir (1978) og þar til tólfta ljóðabók hans, gráspörvar og ígulker (2015) birtist fyrir ári síðan. Höfuðáhersla er lögð á ljóð og skáldsögur Sjóns en einnig vikið að margvíslegum öðrum verkum hans, svo sem handritum að leikritinum, óperutextum og kvikmyndum.

3.
Þetta er skemmtileg og frumleg nálgun, sem gaman væri að sjá fleiri glíma við í umfjöllun um einstaka höfunda eða listamenn.
Bók Úlfhildar skiptist í fimm meginkafla. Sá fyrsti, sem fjallar um feril skáldsins, kom mér að vissu leyti í opna skjöldu því að þar er umræðan um ferilinn fléttuð saman við almennara yfirlit um íslenska bókmennta- og menningarsögu tímabilsins. Þetta er skemmtileg og frumleg nálgun, sem gaman væri að sjá fleiri glíma við í umfjöllun um einstaka höfunda eða listamenn. Hér minnir Úlfhildur okkur á að þótt Sjón sé að mörgu leyti óvenjulegur höfundur, á sínum einstaka sporbaugi, þá er hann líka barn síns tíma. Reyndar fannst mér sögulega yfirlitið, sem var þétt og sannfærandi framan af, verða handahófskenndara eftir því sem nær dró okkar dögum. Slíkt liggur að nokkru leyti í hlutarins eðli; það er vandasamt og á köflum vanþakklátt starf að feta nýjar slóðir.[/cs_text]
 
[cs_text]Annar kaflinn fjallar um súrrealísk einkenni á ljóðagerðinni. Ég hef um árabil verið handgenginn skáldsögum Sjóns en aldrei náð neinu sérstöku sambandi við ljóðabækurnar hans, allra síst þær elstu. Lykilinn að þessum verkum dregur Úlfhildur upp úr hatti André Breton og fleiri aldargamalla súrrealista en í umfjöllun sinni byggir hún jöfnum höndum á skrifum erlendra og innlendra fræðimanna. Þessi kafli er jafnframt fullur af fjöri og leik. Úlfhildi er lagið að kryfja brothætta texta án þess að murka úr þeim líftóruna en hún endar umfjöllunina á þessari innblásnu niðurstöðu: „Ástin er blóðug og svo er einnig um skáldskapinn: sjálfsmyndin er í gröfinni og varúlfurinn gengur laus – gengur jafnvel eins og klukka. Allt eru þetta sjálfsagðir hlutir í undursamlegum óhugnaði hins súrrealíska ævintýris“ (s. 177). Þetta var kafli sem opnaði betur augu mín fyrir þeirri sérstöku tegund draumkenndrar hugsunar sem súrrealisminn ástundar. Strax að lestri hans loknum rann ósjálfrátt upp fyrir mér lausn á ráðgátunni sem ýmsir vinir mínir höfðu verið að klóra sér í kollinum yfir og varðar nýja bókartitilinn, Ég er sofandi hurð.

4.

Þriðji, fjórði og fimmti hluti Sjónsbókar eru helgaðir skáldsögum Sjóns. Í þeim þriðja ræðir Úlfhildur um Stálnótt  og Engil, pípuhatt og jarðarber (1989), í þeim fjórða um Augu þín sáu mig og Með titrandi tár, og í þeim fimmta um Skugga-Baldur (2003), Argóarflísina (2005) og Rökkurbýsnir (2008). Drjúgur hluti hvers kafla hefur reyndar að geyma forvitnilega og vekjandi umræðu um yngri og eldri fræðikenningar, sem Úlfhildur nýtir sér síðan til að varpa ljósi á fagurfræðileg einkenni og þemu viðkomandi skáldsagna.

Þessi umfjöllun er grundvöllur skarplegrar greiningar á höfundar-nærveru Sjóns í eigin verkum, sem birtist til að mynda í persónu Johnny Triumph (Jóns-Sigur) í Stálnótt.
Í þriðja kaflanum ræðir hún til dæmis um sígild skrif Wimsatts, Beardsleys, Barthes, Bakhtins og Foucaults um höfundarvirkni og meintan dauða höfundarins, en jafnframt hvernig ýmsir fræðimenn, lesendur og jafnvel höfundar hafa á síðari árum (sp)unnið úr þeirri umræðu. Þessi umfjöllun er grundvöllur skarplegrar greiningar á höfundarnærveru Sjóns í eigin verkum, sem birtist til að mynda í persónu Johnny Triumph (Jóns-Sigur) í Stálnótt. Úlfhildur bendir á, með tilvísun til skrifa Barthes, „að ef dauði höfundarins getur af sér fæðingu lesandans, þá leggur sá lesandi greinilega mikið á sig við að halda höfundinum á lífi“ (s. 190). Með líkum hætti fléttar hún fræðandi umræðu um sjálfsöguna (e. metafiction) saman við greiningu sína á skáldsögunum í fjórða kafla og í fimmta kafla gefur hún sér góðan tíma í að ræða skrif fræðimanna á borð við Fludernik, Rimmon-Kenan og Wessling um frásagnarfræði og sögulegu skáldsöguna áður en hún víkur að verkum Sjóns.

Þegar á allt er litið vegur þessi síðari hluti Sjónsbókar Úlfhildar salt á milli þess að vera fjölbreytt lýsing á þróun Sjóns sem skáldsagnahöfundar og gagnleg úttekt á skáldskaparfræði (e. poetics) á okkar síðmódernísku  tímum. Jafnhliða bendir Úlfhildur á að eftir því sem á höfundarverkið líður takist skáldið af vaxandi siðferðilegri alvöru á við samtíð okkar og sögu. Hún orðar það svo í lokaorðum bókarinnar, sem hafa einnig að geyma greiningu hennar á þarsíðustu skáldsögu Sjóns, Mánasteini (2013):

Eins og fram hefur komið hafa fræðimenn bent á að veruleiki sögunnar er málum blandinn og ennfremur að sögulegt skáldverk geti einmitt þjónað þeim tilgangi að sýna okkur söguna í nýju ljósi […] sérstaklega út frá skuggahliðum hennar, því sem fyrirfinnst á jaðrinum. En Sjón er ekki sagnfræðingur. hann er ekki að skrifa sögu samkynhneigðra, sögu kvikmyndarinnar, sögu spænsku veikinnar eða sögu fullveldisins […]. Mögulega vill Sjón leggja áherslu á að sagan á sér margs konar myndir og að ein þeirra sé skáldskapurinn. Þannig má hugsa sér að skáldsagan sé ekki síður mikilvæg rannsókn á sögu en sagnfræðin, og geri sams konar kröfu til ‘sannleika’ og ‘veruleika’, með öðrum orðum, að þó höfundur leyfi sér að fara frjálslega með efnið, þá sé honum jafnframt full alvara með verkinu (s. 390).

Sömu sögu má segja af Úlfhildi. Verk hennar einkennist á köflum af mælsku, þversögnum, endurtekningum og jafnvel ærslum en henni er þó alltaf full alvara.

5.

hugras-ulfhildur-dags3Sjónsbók Úlfhildar Dagsdóttur er þriðja fræðiritið sem hún sendir frá sér á fimm ára tímabili. Aðeins eru tvö ár liðin frá því að myndasöguforlagið Froskur gaf út rit hennar Myndasagan. Hetjur, skrýmsl og skattborgarar (2014). Þremur árum fyrr kom út eftir hana hjá Bókmennta- og listfræðastofnun hátt í 500 síðna rit sem ber titilinn Sæborgin. Stefnumót líkama og tækni í ævintýri og veruleika (2011). Þar fjallar Úlfhildur um vélmenni, klóna og gervimenni í bókmenntum og myndmáli (m.a. kvikmyndum, myndasögum og tónlistarmyndböndum) en varpar líka ljósi á hvernig allur þessi skáldskapur hefur mótað hugmyndir okkar um erfðafræði og líftækni (þau viðfangsefni eru raunar mjög til meðferðar í Ég er sofandi hurð).

Ef einhver lesandi þessara eldri fræðirita Úlfhildar hefur haft áhyggjur af því að hún væri horfin inn á víðar lendur myndmiðla og menningarfræði og hefði alfarið snúið baki við Bókmenntunum (með stóra B-inu) þá staðfestir Sjónsbók að svo er ekki. Enda þarf annað ekki að hafa hitt í för með sér.[/cs_text]

Um höfundinn
Jón Karl Helgason

Jón Karl Helgason

Jón Karl Helgason er prófessor í Íslensku sem öðru máli við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Hann hefur skrifað fræðibækur og -greinar, fengist við þýðingar og komið að ritstjórn tímarita, bóka og vefja á Netinu. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

yakinjp id

maujp

maujp

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

sabung ayam online

judi bola

live casino

SGP Pools

slot mahjong

sabung ayam online

slot mahjong

SLOT THAILAND

118000731

118000732

118000733

118000734

118000735

118000736

118000737

118000738

118000739

118000740

118000741

118000742

118000743

118000744

118000745

118000761

118000762

118000763

118000764

118000765

118000766

118000767

118000768

118000769

118000770

118000771

118000772

118000773

118000774

118000775

118000776

118000777

118000778

118000779

118000780

118000781

118000782

118000783

118000784

118000785

118000786

118000787

118000788

118000789

118000790

118000791

118000792

118000793

118000794

118000795

138000456

138000457

138000458

138000459

138000460

138000461

138000462

138000463

138000464

138000465

138000466

138000467

138000468

138000469

138000470

138000471

138000472

138000473

138000474

138000475

138000476

138000477

138000478

138000479

138000480

138000481

138000482

138000483

138000484

138000485

138000486

138000487

138000488

138000489

138000490

138000491

138000492

138000493

138000494

138000495

138000496

138000497

138000498

138000499

138000500

138000501

138000502

138000503

138000504

138000505

138000506

138000507

138000508

138000509

138000510

158000371

158000372

158000373

158000374

158000375

158000376

158000377

158000378

158000379

158000380

158000381

158000382

158000383

158000384

158000385

158000386

158000387

158000388

158000389

158000390

158000391

158000392

158000393

158000394

158000395

158000396

158000397

158000398

158000399

158000400

158000401

158000402

158000403

158000404

158000405

208000391

208000392

208000393

208000394

208000395

208000396

208000397

208000398

208000399

208000400

208000401

208000402

208000403

208000404

208000405

208000406

208000407

208000408

208000409

208000410

208000411

208000412

208000413

208000414

208000415

208000416

208000417

208000418

208000419

208000420

228000156

228000157

228000158

228000159

228000160

228000161

228000162

228000163

228000164

228000165

228000166

228000167

228000168

228000169

228000170

228000171

228000172

228000173

228000174

228000175

228000176

228000177

228000178

228000179

228000180

228000181

228000182

228000183

228000184

228000185

228000186

228000187

228000188

228000189

228000190

228000191

228000192

228000193

228000194

228000195

228000196

228000197

228000198

228000199

228000200

228000201

228000202

228000203

228000204

228000205

228000206

228000207

228000208

228000209

228000210

228000211

228000212

228000213

228000214

228000215

228000216

228000217

228000218

228000219

228000220

228000221

228000222

228000223

228000224

228000225

228000226

228000227

228000228

228000229

228000230

228000231

228000232

228000233

228000234

228000235

228000236

228000237

228000238

228000239

228000240

228000241

228000242

228000243

228000244

228000245

228000246

228000247

228000248

228000249

228000250

228000251

228000252

228000253

228000254

228000255

238000230

238000231

238000232

238000233

238000234

238000235

238000236

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000237

238000238

238000239

238000240

238000241

238000242

238000243

238000244

238000245

238000246

238000247

238000248

238000249

238000250

238000251

238000252

238000253

238000254

238000255

238000256

news-1701