[cs_text]
Í júlí árið 2015 fórst Arthur, 15 ára sonur Nicks Cave, af slysförum. Nú rúmu ári síðar hefur Cave ásamt hljómsveit sinni The Bad Seeds gefið út plötu, Skeleton Tree, og fylgt henni úr hlaði með heimildarmynd eftir Andrew Dominik. Myndin segir frá gerð plötunnar í skugga sonarmissis.
Andrew Dominik
One More Time with Feeling
2016
Platan var langt komin þegar Arthur dó, en var ekki fullunnin fyrr en í ár. Þótt maður gæti haldið að sumir textanna á plötunni séu viðbrögð við slysinu þá er það ekki svo, og Cave segir í myndinni að auðvitað hafi þeir ekki haft neitt forspárgildi, hann hafi alltaf fjallað um dauða, myrkur og angist – sem vissulega er rétt, en nú hefur alvaran snúið öllu á haus, allt er breytt.

Myndin er ákafalega haganlega gerð, samsett úr fjölmörgum þáttum, en hún fléttar saman viðtölum við Cave, eiginkonu hans Susie, son hans Earl og samstarfsmann og vin, Warren Ellis. Hún er ýmist tekin í stúdíóinu – þar sem hvert lag á plötunni fær sitt rými – eða á heimili hans, auk skota frá London, Brighton og umhverfi. Þá kommenterar Cave á senur í myndinni auk þess að lesa yfir myndina nokkra texta/ljóð sem eru greinilega ort í kjölfar slyssins.

Það má segja að Cave hafi verið sagnamaður, epíkin aldrei langt undan í hans fyrri verkum, en nú hefur hann misst trú á frásögnina. Trámað verður aldrei afgreitt á þann hátt …
Þetta er auðvitað ákaflega vandmeðfarið efni, sárasti missirinn, en hér er fjallað um það á mjög svo fíngerðan, hófstilltan, en þó tilfinningaþrunginn hátt. Myndin er þannig alveg einstaklega áhrifamikil hugleiðing um tráma og sorg. Það hjálpast allt að, tónninn í viðtölunum, einföld, jafnvel hrá, áleitin tónlistin og mögnuðu textarnir sem Cave les. Hér er gerð tilraun til að segja frá tráma, að koma því til skila, en um leið er áherslan hjá Cave sjálfum og kvikmyndagerðarmanninum sú að það sé í raun vonlaust verk. Myndin og Cave hafa því margt að segja sem rímar við það sem trámasérfræðingar hafa löngum sagt, að trámað liggi utan við hefðbundna frásögn, það eigi sér stað einhvers staðar annars staðar. Slysinu sjálfu, viðbrögðum og dögunum á eftir er því aldrei lýst í myndinni, það er aldrei fært í frásögn, heldur er það eins og þung undiralda út í gegn. Cave segir í einni af fyrstu senum myndarinnar að lífið sé ekki frásögn – og það má segja að sú hugmynd leggi grunninn að brotakenndri uppbyggingu myndarinnar þar sem aldrei er nein sjálfvirk framvinda, heldur ólíkir þættir settir saman og áhorfandinn minntur reglulega á gerð myndarinnar sjálfrar. Kvikmyndagerðarmaðurinn er þó ekki endilega sammála Cave og segir að lífið sé að sjálfsögðu frásögn með sinn náttúrulega upphaf og endi, en Cave segir að það sé ekki boðið uppá frásagnarboga sem útskýri og sýni hvernig eitt leiði af öðru, hvernig allt sé í einhverju lógísku framhaldi og skipulagi. Þvert á móti sé aldrei nein lausn í sjónmáli. Það má segja að Cave hafi verið sagnamaður, epíkin aldrei langt undan í hans fyrri verkum, en nú hefur hann misst trú á frásögnina. Trámað verður aldrei afgreitt á þann hátt, en þó er algjörlega skýr tilfinning fyrir hvörfunum sem slysið olli – allt hefur breyst, hann þekkir ekki sjálfan sig lengur og segir „the person inside the skin is a different person“. Þau hjónin eru máttvana gagnvart sorginni, byrjendur, þau hafa ekkert svar, enga lausn, nema kannski þá að halda áfram, að halda áfram að vera hamingjusöm og að skapa. Hann hefur heyrt allar klisjurnar og í einni af áhrifamestu senum myndarinnar útskýrir hann að hann hafi heyrt svo oft að sonur hans lifi í hjarta hans, en að það sé einmitt ekki þannig, hann sé að sjálfsögðu í hjarta hans, en lifi alls ekki.

Í myndinni fléttast saman sköpun – tónlistarsköpun – og tráma. Eins og Cave nefnir er okkur kannski tamt að líta svo á að áföll geti verið einhvers konar uppspretta sköpunar, þar verði til verk sem hefðu ekki verið gerð annars, það gefi manni „eitthvað til að skrifa um“. Cave segir hins vegar að svo sé ekki, tráma sé eyðileggjandi afl, þar rúmist engin sköpun. Í tráma er ekkert pláss fyrir neitt annað en trámað. Hins vegar mætti segja að myndin afsanni það að einhverju leyti, því hún fjallar auðvitað um sköpun en þá kannski frekar á þann hátt að sköpunin eigi sér stað þrátt fyrir áfallið, verði til í einhverju öðru rými en þar sem sorgin býr.

Eins og segir í einum textanna sem Cave les yfir myndina: „Það er meira af Paradís í helvíti en okkur hefur verið sagt“.
Og það er einmitt það sem myndin fjallar líka um, þetta líf utan trámans. Cave lýsir því sem svo að áfallið sé lokað af á ákveðnum stað, en utan þess sé einhvers konar venjulegt líf og þar sé hægt að halda áfram og jafnvel komast burt frá áfallinu um tíma, en það kallar alltaf á þau aftur og dregur þau til sín, þau eru bundin því um ókomna tíð. Þetta líf utan sorgarinnar sést einkum í senunum í stúdíóinu og það er undirstrikað á ýmsan hátt í myndinni. Stúdíóið er hringlaga (og þó nokkuð er unnið með hringformið í myndmálinu) og  þar ríkir velvild og hlýja. Það kemur ekki síst fram í samskiptum Caves við Warren Ellis, en með stuttum senum, setningum hér og þar og augnatilliti sýnir myndin að á milli þeirra er traust, hlýja, húmor, sköpunarþörf og listfengi. Eins og segir í einum textanna sem Cave les yfir myndina: „Það er meira af Paradís í helvíti en okkur hefur verið sagt“.[/cs_text]
[cs_text]Lystibryggjan (Brighton Marine Palace and Pier). Ljósmynd: Linda France

west-pier-linda-france
Vesturbryggjan hrörlega (West Pier). Ljósmynd: Linda France

Í Brighton, heimabæ þeirra hjóna, eru tvær bryggjur – lystibryggjur eins og algengar eru í breskum strandbæjum.

Önnur þeirra, sú sem stendur austar, heitir því virðulega nafni Brighton Marine Palace and Pier og fagurhvít, full af leiktækjum af öllum sortum og fólki að skemmta sér í sólinni. Sú vestari er niðurnídd, brunnin allt að því til kaldra kola og rís úr sjónum eins og beinagrind til að minna strandfólkið á hverfulleikann og dauðann. Þeim bregður báðum fyrir í mynd Dominiks, en svarthvít myndatakan hjá Benoît Debie og Alwin H. Küchler hæfir efninu einkar vel og skapar áhrifamikla kontrasta ljóss og skugga, og bryggjurnar eru viðeigandi táknmyndir um sorgina óbærilegu og lífið sem heldur þó einhvern veginn áfram.[/cs_text]

Um höfundinn
Gunnþórunn Guðmundsdóttir

Gunnþórunn Guðmundsdóttir

Gunnþórunn Guðmundsdóttir er prófessor í almennri bókmenntafræði. Rannsóknasvið hennar eru sjálfsævisögur á síðari hluta 20. aldar og 21. öld, minnis- og trámafræði í bókmenntum, ljósmyndir í skáldskap og æviskrifum, samtímabókmenntir, spænskar og franskar bókmenntir. Sjá nánar

[cs_text][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000501

118000502

118000503

118000504

118000505

118000506

118000507

118000508

118000509

118000510

118000511

118000512

118000513

118000514

118000515

118000516

118000517

118000518

118000519

118000520

118000521

118000522

118000523

118000524

118000525

118000526

118000527

118000528

118000529

118000530

118000531

118000532

118000533

118000534

118000535

118000536

118000537

118000538

118000539

118000540

118000541

118000542

118000543

118000544

118000545

118000546

118000547

118000548

118000549

118000550

118000551

118000552

118000553

118000554

118000555

128000566

128000567

128000568

128000569

128000570

128000571

128000572

128000573

128000574

128000575

128000576

128000577

128000578

128000579

128000580

128000581

128000582

128000583

128000584

128000585

128000586

128000587

128000588

128000589

128000590

128000591

128000592

128000593

128000594

128000595

128000596

128000597

128000598

128000599

128000600

128000601

128000602

128000603

128000604

128000605

128000606

128000607

128000608

128000609

128000610

128000611

128000612

128000613

128000614

128000615

128000616

128000617

128000618

128000619

128000620

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

178000761

178000762

178000763

178000764

178000765

178000766

178000767

178000768

178000769

178000770

178000771

178000772

178000773

178000774

178000775

208000231

208000232

208000233

208000234

208000235

208000236

208000238

208000239

208000240

208000241

208000242

208000243

208000244

208000245

208000246

208000247

208000248

208000249

208000250

208000251

208000252

208000253

208000254

208000256

208000257

208000258

208000259

208000260

208000261

208000262

208000263

208000264

208000265

208000266

208000267

208000268

208000269

208000270

208000271

208000272

208000273

208000274

208000275

208000276

208000277

208000278

208000279

208000280

208000281

208000282

208000283

208000284

208000285

208000286

208000287

208000288

208000289

208000290

208000291

208000292

208000293

208000294

208000295

news-1701