Furðuveröld á kunnuglegum slóðum

[cs_text id=”” class=”” style=”” text_align=”none”]
Valter Hugo Mᾶe
Afmennskun
Þýðandi Guðlaug Rún Margeirsdóttir
Sagarana, 2016
Skáldsagan Afmennskun (p. A deshumanizaҫᾶo), eftir portúgalska rithöfundinn Valter Hugo Mᾶe, kom nýverið út á íslensku hjá Sagarana útgáfunni í Reykjavík, sem Luciano Dutra stýrir svo ötullega. Þýðandi verksins er Guðlaug Rún Margeirsdóttir.

Í skáldsögunni er sögð saga ungrar stúlku, Halldóru, sem kölluð er Halla, og býr ásamt foreldrum sínum í útjaðri lítils þorps á afskekktum stað á Vestfjörðum. Hún deilir lífi sínu með lesandanum en það mótast mjög af auðugu ímyndunarafli og því að sætta sig við dauða tvíburasystur sinnar, Sigríðar. „Þau sögðu mér að þau myndu gróðursetja hana. […]. Við vorum tvíburasystur. Spegilmynd hvor annarrar. Allt í kring um mig tvístraðist við dauða hennar“ (7). Átök aðalpersónunnar, barnsins, og tilraunir til að skilja umhverfi sitt, nýjar aðstæður og hlutverk leggjast þungt á hana. „Móðir mín myndi ekki fyrirgefa mér nein mistök“ (7).

Líf hennar mótast mjög af auðugu ímyndunarafli og því að sætta sig við dauða tvíburasystur sinnar.
Í fyrri hluta bókarinnar kynnist lesandinn smám saman hugarvíli og angist stúlkunnar. Hvernig getur hún haldið áfram að vera í sambandi við systur sína, hvað átti hún til bragðs að taka þegar móðir hennar hélt á beittum hníf og „lét hnífsblaðið gæla við brjóst sitt“ (12) eða faðir hennar fór ekki á sjó heldur „dyttaði bara að“ (13)? Hún brýtur heilann þar sem hún situr við leiði Sigríðar. „Fólk var farið að tala um dánu systurnar. Sú sem var meira dáin og sú minna dáin“ (11). Samtímis persónugerist umhverfi stúlkunnar því: „Einmana manneskjur vita að það er eitthvað í vatninu, í steininum, í vindinum, í eldinum. Að það er eitthvað á jörðinni.“ (13). Brekkurnar í kringum bæinn, klettabeltin, gilið, hafið, hvalirnir, kindurnar og fuglarnir fylgjast með og hlusta.

Lesandinn kynnist fólkinu í lífi Höllu. Þessum örfáu manneskjum sem allar eru mótaðar af missi, sársauka og afskræmdum hugmyndum – ranghugmyndum – um tilgang lífsins og tilvist mannsins. Sorgin umlykur allt og alla. Það gerir þögnin einnig. Móðir stúlkunnar skaðar sig, sker sig. Faðir hennar semur raunarljóð sem hann les upphátt en gefur hvergi út. Síðar kynnumst við Einari, einfara og einfeldningi sem „segir barnalega hluti“ (87). Samræður Einars og Höllu endurspegla hins vegar háheimspekilegar vangaveltur um lífið og tilveruna. „Hún er tólf ára“ (69), hann rauðbirkinn þurs á þrítugsaldri. Bæði eru einstæðingar og finna huggun hvort í öðru. „Hann strauk mér léttilega og þefaði eins og hann ætlaði að smakka á mér. […] Ég sagði honum frá öllu. Sérstaklega frá afdráttarlausum fyrirskipunum systur minnar. […] Hann strauk mér fram og til baka. Blés. Kitlaði mig. Síðan byrjaði hann að kyssa mig. […] Ég var ekki nógu gömul til að eiga kærasta og Einar var miklu eldri“ (48). „Það sem gerðist okkar á milli var eins og eitthvað án nafns. Ég gæti aldrei elskað Einar“ (56).

Þögn, aðskilnaður og einvera ráða lífi allra sögupersóna þar sem tjáningarmátinn eru hálfkveðnar vísur og hugsanir sem ekki eru færðar í orð.
Og hið óumflýjanlega gerist. Barnið verður barnshafandi. „Faðir minn sagði ekki neitt þegar hann kom inn. Hann fékk sér í glas og móðir mín líka. Þau sátu við borðið og drukku þegjandi, eins og þau væru ekki fær um að tala. Ég fór. Sá að þau voru orðin full“ (59). Þögn, aðskilnaður og einvera ráða lífi allra sögupersóna þar sem tjáningarmátinn eru hálfkveðnar vísur og hugsanir sem ekki eru færðar í orð. Móðirin fer að ímynda sér að óléttan sé tilkomin vegna sifjaspella. Halla þvertekur fyrir það en segir ekki til Einars. Langtímum situr hún á leiði systur sinnar og ímyndar sér að þær flétti saman fingur. Hún berst við að hafa „ekki eigin sjálfsmynd“, að vera tvíburi dauðans“, lifa „full ótta“ og sífellt „skelfingu lostin“ (66). Hún gerir fátt annað en að „fóðra dýrin í fjósinu, fara upp að gróðursetta barninu, horfa á sjóinn og þegja“ (67). „Ég lifði í mínum einmanaleika og sorg“ (68).

Lífið sem kviknaði að vori, dafnaði yfir sumartímann, slokknaði í vetrarbyrjun. Halla tekur ótímabæra sótt og „illa lyktandi vatnið“ rennur úr henni „í kekkjum eins og það væri illa soðið“ (82). „Allir fengu að vita að ég var með dauðann í örmunum […] Nokkur grömm af barni […] „krumpuðum, örsmáum líkama“ (83). Hún nefnir hann Hilmar Einarsson og Halldóruson „og samþykkti ekki lengur að vera barn“ (85).

Í seinni hluta skáldsögu Mᾶe er sögð sagan af samlífi og sambýli Höllu og Einars í herbergiskytru safnaðarheimilis sveitarinnar, samræðum þeirra sem mótast af afskræmingu einangrunar og einmanaleika. Annar vetur gengur í garð. „Það var þá [sem] ég „sætti mig við Einar. Fíllinn og maurinn. Strokkur og Geysir“ (128).

Þessi ljúfsára, á köflum óhugnanlega, birtingarmynd einangrunar, missis og samskiptaleysis ber vott um innsæi.
Sjálf reynir hún með aðstoð  Einars að trúa því að sveinbarnið dvelji hjá Sigríði og að dauðinn sé eitthvað gott svo hann verði hamingjusamur. Mᾶe gælir við hugmyndir Ortega y Gassett, eins og þær birtast í ritgerðinni „Afmennskun listarinnar“ (sp. „Deshumanización del arte“, 1925), um einskonar blæjur sem lagðar eru yfir sannleikann, yfir bitran veruleikann, en ná ekki að má hann út. Hann ber við hvert sem litið er. Vetrarhörkurnar auka á einangrun. Allt er ófært. Enginn á ferð, engin samskipti og andleg áþján magnast í hvítri auðninni. Móðirin, faðirinn, Einar og Halla dvelja langdvölum í eigin hugarheimi, eigin hugarórum og túlkun á tilverunni. Aðalpersónur skáldsögunnar einangrast í afdölum sínum en ígrunda útgönguleiðir. Einar fær minnið og hefndarþorsti blossar upp. Fólk er brennt inni, aðrir munda riffilinn á sama tíma og enn aðrir halda til fjalla.

Þessi ljúfsára, á köflum óhugnanlega, birtingarmynd einangrunar, missis og samskiptaleysis ber vott um innsæi. Hún er borin á borð af kærleika, skilningi og óttablandinni virðingu. Viðbrögð íbúanna við örlögum sínum eru trúverðug, sammannleg, enda staðfestir höfundur í eftirmála að þegar hann fæddist „hafði Casimiro bróðir minn dáið“ (157) og „að bók þessi er skrítin ástarjátning“. Hún sé hins vegar hans „einlægasta ástarjátning til Vestfjarða“ (158).[/cs_text]

Um höfundinn
Hólmfríður Garðarsdóttir

Hólmfríður Garðarsdóttir

Hólmfríður Garðarsdóttir er prófessor í spænsku við Mála- og menningardeild Háskóla Íslands. Í rannsóknum sínum hefur hún lagt áherslu á bókmenntir Rómönsku Ameríku og um þessar mundir vinnur hún að nýrri bók um málefni minnihlutahópa við Karíbahafsströnd Mið-­Ameríkuríkja. Sjá nánar

[cs_text id=”” class=”” style=”” text_align=”none”][fblike][/cs_text]

Deila

news-1701

yakinjp


sabung ayam online

yakinjp

yakinjp

rtp yakinjp

yakinjp

slot thailand

yakinjp

yakinjp

yakin jp

ayowin

yakinjp id

maujp

maujp

sabung ayam online

sv388

taruhan bola online

maujp

maujp

sabung ayam online

sabung ayam online

sabung ayam online

judi bola online

sabung ayam online

judi bola online

slot mahjong ways

slot mahjong

sabung ayam online

judi bola

live casino

118000501

118000502

118000503

118000504

118000505

118000506

118000507

118000508

118000509

118000510

118000511

118000512

118000513

118000514

118000515

118000516

118000517

118000518

118000519

118000520

118000521

118000522

118000523

118000524

118000525

118000526

118000527

118000528

118000529

118000530

118000531

118000532

118000533

118000534

118000535

118000536

118000537

118000538

118000539

118000540

118000541

118000542

118000543

118000544

118000545

118000546

118000547

118000548

118000549

118000550

118000551

118000552

118000553

118000554

118000555

128000566

128000567

128000568

128000569

128000570

128000571

128000572

128000573

128000574

128000575

128000576

128000577

128000578

128000579

128000580

128000581

128000582

128000583

128000584

128000585

128000586

128000587

128000588

128000589

128000590

128000591

128000592

128000593

128000594

128000595

128000596

128000597

128000598

128000599

128000600

128000601

128000602

128000603

128000604

128000605

128000606

128000607

128000608

128000609

128000610

128000611

128000612

128000613

128000614

128000615

128000616

128000617

128000618

128000619

128000620

138000421

138000422

138000423

138000424

138000425

178000761

178000762

178000763

178000764

178000765

178000766

178000767

178000768

178000769

178000770

178000771

178000772

178000773

178000774

178000775

208000231

208000232

208000233

208000234

208000235

208000236

208000238

208000239

208000240

208000241

208000242

208000243

208000244

208000245

208000246

208000247

208000248

208000249

208000250

208000251

208000252

208000253

208000254

208000256

208000257

208000258

208000259

208000260

208000261

208000262

208000263

208000264

208000265

208000266

208000267

208000268

208000269

208000270

208000271

208000272

208000273

208000274

208000275

208000276

208000277

208000278

208000279

208000280

208000281

208000282

208000283

208000284

208000285

208000286

208000287

208000288

208000289

208000290

208000291

208000292

208000293

208000294

208000295

news-1701